Morgunblaðið - 11.01.1998, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1998 31
H
)\
I,
)
i
í
)
i
M
i
Í
>1
>
)
i
i
i
i
i
i
>
i
>1
INGIBJÖRG
SIG URÐARDÓTTIR
+ Ingibjörg Sigurð-
ardóttir var fædd
á Nautabúi í Mæli-
fellsprestakalli,
Skagafirði, 4. maí
1919. Hún lést 30.
desember 1997 á
hjartadeild Landspít-
alans. Ingibjörg var
dóttir hjónanna Ingi-
bjargar Sigfúsdóttur
prestdóttur, f. 23.
september 1890 í
Hvammi í Laxárdal,
d. 26. september
1965; en foreldrar
hennar voru sr. Sig-
fús Jónsson, Mælifelli, Skaga-
firði, alþingismaður og kaupfé-
lagsstjóri, f. 24. ágúst 1866, d. 8.
júní 1937, og Guðríður Petrea
Þorsteinsdóttir frá Grund í Þor-
valdsdal, Eyjafjarðarsýslu, f. 12.
september 1866, d. 16. aprfl
1936; og Sigurðar Þórðarsonar,
fyrrum alþingismanns, kaupfé-
lagsstjóra og síðar skrifstofú-
stjóra í íjárhagsráði, f. 19. júlí
1888 á Fjalli, Sæmundarhlíð,
Skagafírði. Ingibjörg Sigurðar-
dóttir átti tvo bræður. Sigurð,
sem dó ungur að árum, f. 10.
desember 1934, d. 25. febrúar
1936. Sigfús, f. 18. október 1910
á Mælifelli, Skagafirði, ólst upp
á Nautabúi og kenndi sig við
þann stað alla tíð, d. 14. ágúst
1988, giftist Sigurbjörgu Stef-
ánsdóttur frá Gili í Svartárdal 5.
september 1936, f. 17. janúar
1915, d. 25. nóvember 1937. Þau
Ingibjörg, Abba, svo var hún
kölluð af vinum og venslafólki, fór í
Hjúkrunarskólann 1945, og stund-
aði hjúkrunarstörf upp frá því,
lengst af hjá Kristjáni Hannessyni
nuddlækni. Þangað til að lækna-
stofan var lögð niður vegna láts
Kristjáns. Þá hóf hún störf hjá
heimahlynningu Reykjavíkurborg-
ar þar til hún lét af störfum vegna
aldurs.
Abba eignaðist marga góða vini,
bæði vegna innilegs viðmóts, um-
hyggju um aðra, skemmtilegrar
frásagnagáfu og ótrúlegs minnis.
Persónuleg kynni mín við Öbbu
voru mjög góð og elskuleg. Þakka
ég Guði fyrir að gefa mér þau for-
réttindi að hafa kynnst henni per-
sónulega, en það gerðist með þeim
hætti að ég giftist bróðurdóttur
hennar og uppeldisystur Boggu.
Þetta er fátækleg kveðja til
merkrar konu, sem lét sig skipta
velferð annarra og skilur eftir
minningu um betra líf öðrum til
handa. Blessuð sé minning hennar.
Björgvin.
Abba mín, ég sakna þín mikið.
Ég sakna þess að heyra hringlið í
lyklakippunni þinni þegar þú varst
að koma, þess að tala við þig og
hlusta á allt það skemmtilega sem
þú hafðir frá að segja. Þú hafðir
lesið um allt miUi himins og jarðar
og vegna áhuga á svo margvísleg-
um hlutum vissir þú svo ótal
margt.
Þú áttir bækur um fom kvæði
sem ég hélt að enginn ætti eða læsi
ótilneyddur og meðvituð um notk-
un bóka tU hilluskrauts spurði ég
þig hvort þú hefðir keypt þær til að
lesa. Þú svaraðir því að þær væru
eignuðust eina dótt-
ur, Boggu, sem
fæddist 28. október
1937, var hún tæp-
lega mánaðar gömul
þegar mamma henn-
ar dó. Olst hún upp
með Ingibjörgu hjá
foreldrum hennar og
kallaði þau möinmu
og pabba. Bogga er
póstfulltrúi í Kefla-
vík og er gift Björg-
vini Lútherssyni,
eiga þau eina dóttur,
Eydísi Rebekku.
Bogga átti þrjá syni
frá fyrra hjónabandi, Stefán,
Gunnar Stein og Auðun Þór.
Seinni kona Sigfúsar, Svanlaug
Pétursdóttir, f. 20. júní 1921.
Þau giftust á sæluviku, Sauðár-
króki, 1945. Þau eignuðust þrjú
börn. Sigurð, bónda, Vík, Skaga-
firði, giftan Ingibjörgu Hafstað,
þau eiga einn son, Jón Árna.
Stefaníu, ritara, gifta Snorra Jó-
hannssyni, þau eiga tvö böm,
Sigfús og Lilju Maríu. Ingvi Þór,
forstjóri, giftur Arnrúnu Antons-
dóttur, þau eiga þrjú börn, Ant-
on Líndal, Þórð og Svanlaugu.
Ingibjörg átti uppeldissystur,
Ingibjörgu Krisljánsdóttur, f. 11.
september 1922, gifta Guðjóni
Ingimundarsyni, kennara á
Sauðárkróki, f. 12. janúar 1915.
Útfór Ingibjargar fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 12.
janúar og hefst athöfnin klukk-
an 15.
svo skemmtilegar og þess vegna
hefðir þú keypt þær og vegna þess
svars las ég þær með öðru hugar-
fari en áður.
Engin sýndar- eða yfirborðs-
mennska var til í þér. Þú komst
fram við alla sem jafningja og þess
vegna varstu jafngóð vinkona smá-
fólksins og hinna fullorðnu. Þú
sagðir fjölmargar skemmtilegar
sögur og ævintýri og ég vildi óska
að ég gæti munað það allt núna en
sumt á ég aðeins í huganum sem
minningu um góða skemmtun. Af
væntumþykju sagðir þú margar
sögur af börnunum sem áður
bjuggu í Mávahlíðinni og þú hafðir
gaman af að rifja upp öll sniðugu
uppátækin þeirra. Með skemmti-
legri frásögn þinni urðu þessir at-
burðir raunverulegir og fólldð
kunnuglegt. Það sama gilti þegar
þú sagðir frá fólkinu þínu.
Þú skildir það fullkomlega þegar
ég neitaði að láta kalla mig „elsku
ungann“ þar sem mér fannst ég
vera orðin of stór til þess, en þar
sem það reyndist þér erfitt að
venja þig af þessum „ósið“ reynd-
um við í sameiningu öll ráð og
smám saman minnkaði fjöldi skipt-
anna sem þú gleymdir þér. Seinna
þegar ég var ekki eins upptekin af
því að vera orðin stór þótti mér
vænt um að heyra þig segja „elsku
unginn". Stundum sagðir þú í gríni
að núna mættir þú segja þetta án
þess að móðga mig og ég skamm-
aðist mín svolítið fyrir bamaskap-
inn sem aldrei móðgaði þig.
Þú kenndir mér að þekkja mun-
inn á hægri og vinstri sem reyndist
svo afar gagnlegt og mér fannst ég
þurfa að kenna þér að fara ekki í
krummafót. Þú mundir alltaf þessi
einföldu ráð líkt og ég mundi þín
Skilafrestur
minningargreina
EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef
útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og
þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðviku-
dags-, fimmtudags-, fóstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
og minntir mig stundum á þau
seinna.
Með sterkum persónuleika settir
þú svip á líf þeirra sem þig þekktu.
Ég vil þakka þér fyrir alla þína
góðvild, fyrii- allt sem þú hefur ver-
ið mér og öllum hinum sem kynnt-
ust þér og óska þess af öllu hjarta
að nú líði þér vel.
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svifa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
(Ólöf Sigurðard. frá Hlöðum.)
Aðalheiður.
Sem bliknar fagurt blóm á engi
svo bliknar allt, sem jarðneskt er.
ei standa duftsins dagar lengi,
þótt dýran fjársjóð geymi’ í sér.
Það eitt er kemur ofan að,
um eilífð skín og blómgast það.
En vel sé þeim, sem von ei setja
á veraldar og tímans hjóm,
en anda sinn til himins hvetja
og hafa þar sitt fegurst blóm, -
þess blessun kemur ofan að,
og eilíflega blómgast það.
(Vald. Briem.)
Mig langar að minnast kærrar
vinkonu með nokkrum orðum.
Ingibjörg Sigurðardóttir eða Abba
eins og hún var alltaf kölluð hefur
verið fjölskylduvinur okkar frá því
að við fluttum í Mávahlíðina fyrir
42 árum. Ein af mínum fyrstu
minningum um Öbbu er þegar hún
sat við rúmið mitt og las ævintýri
úr 1001 nótt. Hún hafði tekið að sér
að gæta okkar systkina því
mamma fór í siglingu með pabba.
A þessum tíma var ég ekki vön því
að lesið væri fyrir mig enda orðin
læs sjálf. Ég sé hana enn fyrir mér
þar sem hún sat með stóra þykka
bók og kvöldin urðu að mörgum
ævintýrum.
Abba var bókelsk og vel lesin
kona enda hafsjór af fróðleik.
Ef máltækið „sælla er að gefa en
þiggja" hefur átt við einhvem þá
átti það við um hana. Þegar hún
kom færandi hendi sagði hún
alltaf: „Uss, þetta er nú bara lítil-
ræði,“ sama hvort það voru heilu
staflarnir af smákökum eða eitt-
hvað annað. Allt sem hún gerði fyr-
ir aðra gerði hún með gleði og kær-
leika.
Eftir að ég varð fullorðin og
eignaðist mína eigin fjölskyldu hef-
ur Abba ávallt tekið þátt í öllum
okkar tyllidögum, deilt með okkur
gleði og sorg og verið mér og fjöl-
skyldu minni sannur vinur sem við
gleymum aldrei.
Lífið í Mávahlíðinni hélt áfram
þó svo að mín kynslóð flyttist í
burtu. Ég veit að mamma og pabbi
missa mikið þegar Abba er farin
þvi varla leið sá dagur að ekki var
hist, lesin dagblöðin, horft á sjón-
varp, farið saman í innkaup, nú eða
bara litið inn. Abba var manneskja
með stórt hjarta sem öllum þótti
vænt um sem kynntust henni, bæði
mönnum og málleysingjum. Hún
var milrill dýravinur og sinnti vel
þeim dýrum sem hún tók að sér. I
mörg ár matreiddi hún sérstaklega
fyrir fuglana sem komu reglulega í
mat. Það var hennar líf og yndi að
gera eitthvað fyrir aðra.
Oft gerði ég mér ferð til Öbbu til
að skoða blómin hennar því allt gat
blómstrað í hennar návist.
Nú þegar leiðir skiljast um sinn
óska ég henni góðrar heimkomu á
stað þar sem alltaf er hlýtt og bjart
og allt fær að blómstra.
Guð blessi minningu elskulegrar
vinkonu og hafðu þökk fyrir allt og
aUt.
Vilhelmína Þorsteinsdóttir.
Hve fagurt ljómar ljósa her
á loftsins bláa geim.
Hve milt og blítt þau benda mér
í bústað Drottins heim.
(Valdimar Snævarr.)
Þakklæti og söknuður komu upp
í hugann, þegar við fréttum um
andlát Ingibjargar Sigurðardóttur.
Minningamar af bernskuheimili
okkar í Mávahlíð 40 eru sveipaðar
dýrðarljóma, ekki síst fyrir það að
á hæðinni fyrir ofan okkur bjuggu
heiðurshjónin Ingibjörg Sigfús-
dóttir og Sigurður Þórðarson
ásamt Ingibjörgu dóttur sinni, sem
alltaf var köUuð Abba. Samgangur
og vinskapur var mikill, svo mikill
að það þótti sjálfsagt að við systk-
inin kölluðum Sigurð og Ingibjörgu
afa og ömmu. Heimili Öbbu var
menningarheimUi og þar fengum
við innsýn í heim tónlistar, mynd-
listar og ekki síst bókmennta.
Abba var óþreytandi að lesa fyiir
okkur og leiða okkur um veröld
þjóðsagnanna og hinna leyndar-
dómsfullu sagna í Þúsund og einni
nótt.
Abba var hjúkrunarkona af guðs
náð og er okkur minnisstæð um-
hyggja hennar þegar við vorum
lasin, því þá kom hún alltaf með
heimalagaðan heilsudi-ykk og las
fyrir okkur. Hún var óspör á tíma
sinn og það var gott að finna
hversu annt henni var um okkur.
Allt sitt líf starfaði hún við umönn-
un og hjúkraði hún mörgum á lífs-
leiðinni í kærleika og af fómfysi.
Það voru alltaf aðrir sem skiptu
meira máli en hún sjálf og þegar
við hugsum aftur í tímann um
Öbbu finnst okkur hlutverk hennai-
í lífinu hafa verið heilagt.
Eftir að fjölskylda okkar flutti
úr Mávahlíð 40 hélst vinskapurinn
og Abba lét sér ætíð annt um okk-
ar hag. Hún var með fjölskyldunni
á hátíðarstundum og gladdist yfir
hverju spori, hvort sem það var
skírn barna okkar, ferming eða
annað.
Við söknum Öbbu og vitum að
svo gerir stór hópur vina og vanda-
manna. Við sendum Boggu, Björg-
vini og frændfólki hennar okkar
innilegustu samúðarkveðjur. Guð
blessi minningu Öbbu.
Ó, lát þá stjörnu lýsa mér
um lífsins myrka dal
og leiða mig, nær lífið þver,
í ljóssins bjarta sal.
(ValdimarSnævarr.)
Berta, Helgi
og Halldór Snorri.
Abba var hún kölluð og hana hef
ég þekkt frá því ég man eftir mér.
Fyrir mér hefur hún alltaf verið
eins; reffileg á götu með sitt þykka
gráa hár og sterka svip. Hún hvarf
aldrei í fjöldann. Þó var hún hóg-
vær og hafði sig lítt í frammi á
mannamótum, en var síður en svo
skoðanalaus. A heimavelli var hún
kát, hlý og viðræðugóð. Abba var
dálítið sérsinna og hún var nægju-
söm. Eiginleiki sem ég og fleiri
dáðu hana fyrir og öfunduðu af í
laumi. Ekki fannst henni ástæða til
að hafa sjónvarp á heimilinu, ein-
tóm fimmtudagskvöld hjá Öbbu
þar, enda kom hún ýmsu í verk
með því að gerast aldrei sjónvarps-
þræll. En hún fylgdist grannt með
rás 1 í Ríkisútvarpinu, og var
áskrifandi að Þjóðviljanum meðan
það blað kom út. Eftir það fannst
henni ekki taka því að kaupa blöð.
Ekki átti hún bíl, fór sinna ferða
gangandi eða í strætisvagni.
En hún Abba skar ekki gjafir við
nögl og ekki hef ég tölu á því hve oft
ég og mínir sátum að sunnudags-
veisluborði hjá henni. Hún var
bókelsk, átti margar bækur og þær
átti hún tO að lesa þær og njóta,
einkum hafði hún áhuga á sagn-
fræði, en hún las allt. Abba var
hjálparhella margra, skyldra jafnt
sem óskyldra, hún var mætt á sinn
hljóðláta hátt til að bjóða fram að-
stoð sína þegar og ef þess þurfti.
Móðir mín, Lára Gunnarsdóttir
saknar nú vinar í stað. Þær þekktust
á unglingsárum í Skagafirði, fluttu
báðar ungar til Reykjavíkur og svo
ánægjulega vildi til að þær hafa búið
í næsta nágrenni hvor við aðra milli
40 og 50 ár. Á vináttu þeirra féU
aldrei skuggi - þær áttu alltaf hvor
aðra vísa.
Mikið þótti mér vænt um þessa
konu og gleðst nú yfir því að hafa
sagt henni áður en hún dó, hve
mikils virði hún væri mér og böm-
um mínum. Það gerði ég í síðustu
heimsókn minni til hennar á
sjúkrahúsið. Við töluðum líka um
dauðann, sem hún kveið ekki, kvað
margt geta hent verra en dauðann.
Abba átti engin börn, en böm og
unglingar hændust að henni, enda
var hún góð við þau og þótti þau
skemmtileg. Tilfinningar mínar og
Gunnars bróður míns, seinna
bama minna og bróðurbama, voru
enda eins og um nákominn ætt-
ingja væri að ræða.
Ábba var á sínum stað í Máva-
hlíðinni, hvað sem á gekk. Foreldr-
ar hennar, Ingibjörg og Sigurður,
vom ein frumbyggja þessarar frið-
sælu og grónu götu. Og þar bjó
Abba í nákvæmlega 50 ár. Því
verður sú gata snöggtum fátækari ,
að henni genginni - og það er tóm
í hugum þeirra sem þar bjuggu og
þekktu hana í áratugi.
Blessuð veri minning góðrar
konu.
Guðrún Ægisdóttir.
Elsku Abba, mig langar til að
kveðja þig hér, fyrst ég gat það
ekki meðan þú lást á sjúkrahúsinu.
Þakka þér fyrir að hafa alltaf verið
góð við mig og Stebba bróður, við
tókum því eins og sjálfsögðum hlut
þegar við vomm krakkar, að þú
værir alltaf á vísum stað ef við
þyrftum á því að halda. Þú varst
svo hlý og mjúk og dúlluleg, eins-
konar vara-amma, og mér fannst
öryggi í því að líta út um borðstofu-
gluggann hjá ömmu Lám og sjá
þig bjástra í appelsínugula eldhús-
inu þínu. Þú gafst mér gjafir sem
glöddu mig, og það var alltaf hægt
að skreppa til þín og spjalla. Þegar
ég var minni, gat ég unað tímum
saman við að skoða húsgögnin þín
sem vora faHeg, leyndardómsfull
og öðruvísi, sérstaklega skattholið
með mörgu skúffunum. Og ekki
amaðist þú við því frekar en öðm.
Nú vildi ég að tími hefði unnist til
að fara með litla drenginn minn til
þín og sýna þér hann, og ekki hefði
verið verra að hann hefði fengið að
kynnast þér. En svo verður ekki,
og að leiðarlokum kveð ég þig og
þakka þér fyrir að hafa fengið að
vera þér samferða í heil þrjátíu ár.
Þín
Sigurlaug Guðjónsdóttir.
DANSSVEIFLU
Á TVEIM
DÖGUMI
Áhugahópur helgina
»»*-» 557 7700
dansþátttöku
á íslandi
Heimasíða; vAmtolvusko6MömWOgDaí»id/
nmsKTGGNm-
SiÁLFSMAT
15. jan. e.h. og
16. jan. f.h.
Hótel Saga
Leiðbeinendur:
HaraldurÁ
Hjaltason og
Jón Freyr
Jóhannsson
Lögð áhersla á sjálfsmatslíkanið og
notkun þess við mat á starfsemi og
stöðu fyrirtækja. Fjallaðumávinning
af notkun Innskyggnis, mismunandi
aðferðir við framkvæmd sjálfcmats og
hlutveik sjálfsmats í daglegri starfeemi
fyrirtækja.
GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAGISLANDS
Tölvupóstur gsfi@vsi.is.
Heimasiða http://wmv.skimo.is/gsfi
sími 511 5666 fax 511 5667