Morgunblaðið - 11.01.1998, Síða 37
I
I
I
I
I
I
I
►
I
I
\
\
\
j
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNlÍDAGUR 11. JANÚAR1998 37
MINNINGAR
JÓN HJÖRTUR
GUNNARSSON
+ Jón Hjörtur Gunn-
arsson fæddist í
Reykjavík 5. júlí 1925.
Hann lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 3. janúar
siðastliðinn. Foreldrar
hans voru Gunnar
Jónsson, f. 15. júní
1897, d. 17. nóv. 1954,
og Guðný Sæmunds-
dóttir, f. 15. nóv. 1893,
d. 23. júní 1981. Systk-
ini Jóns: Sigríður, f. 12.
okt. 1923, verslunar-
maður í Hafnarfirði,
Steinunn, f. 21. des.
1926, ekkja í Banda-
ríkjunum, Sæmundur, f. 1. sept.
1929, látinn, Baldur, f. 13. nóv.
1930, lagerstjóri, býr í Hafnar-
firði, Sæunn, f. 23. nóv. 1931,
tækniteiknari í Reykjavík, Guðný
Gunnur, f. 23. 1. 1933, bókavörð-
ur í Hafnarfirði.
Jón kvæntist 26. okt. 1950
Sesselju Steingrímsdóttur, f. 13.
sept. 1930, foreldrar hennar voru
Steingrímur Einarsson, sjómaður
í Reykjavfk, og kona hans Þuríð-
ur Ágústa Símonardóttir. Börn
Jóns Hjartar og Sesselju eru: 1)
Sigurður Guðjón, f. 22. ágúst
1948, sjómaður í Vestmannaeyj-
um. Börn hans og Jónínu Þórðar-
dóttur eru Berglind Þóra, f. 3.
maí 1977, nemi í Kópavogi, Eva
María, f. 21. apríl 1981, nemi í
Kópavogi. 2) Sigríður, f. 12. feb.
1951, ekkja eftir Michael R.
Lepore. Sambýlismaður hennar
er S. Guðni Pétursson. 3) Gunnar,
f. 19. okt. 1952, sagnfræðingur í
Reykjavík. 4) Steingrímur Ágúst,
f. 15. maí 1954, sjúkraliði í Vest-
mannaeyjum, kvæntur Þórönnu
M. Sigurbergsdóttur, leikskóla-
stjóra, börn þeirra: Ríkharður
Örn, f. 23. apríl 1976, sjúkraliði
og lögreglumaður í Vestmanna-
eyjum, Sigurjón, f. 18. nóv. 1978,
dáinn 30. maí 1996 (í bílslysi),
Björk, f. 27. ágúst 1980, fram-
haldsskólanemi í Vestmannaeyj-
um, Daníel, f. 13. jan. 1986,
Kristný, f. 15. jan. 1988, Hanna,
fædd andvana 18. jan. 1991,
Gunnar, f. 15. ágúst 1993. 5) Jón
Hjörtur, f. 10. júlí 1956, mat-
reiðslumaður og sjómaður, Nes-
kaupstað, kvæntur Katrínu S.
Högnadóttur, sjúkraliða. Dætur
í dag kveðjum við undirritaðir
góðan vin og samstarfsmann til
margra ára. Við kynntumst Jóni
Hirti Gunnarssyni þegar hann
starfaði sem húsasmiður hjá Helga
Kristjánssyni húsasmíðameistara.
Hann vann þá við að byggja verk-
smiðjuhús Péturs Snæland hf. í
Ananaustum á miðjum sjötta ára-
tugnum. Hann vakti strax athygli
okkar bræðranna fyrir þær sakir
að hann var sívinnandi, prílandi
upp og niður stillansa á ógnar-
hraða og virtist alltaf vera í góðu
skapi. Auk þess blístraði, eða öllu
heldur hvissaði, hann einhverjar
laglínur með alveg sérstökum
hætti sem okkur þótti gaman að
heyra.
Við hændust að þessum manni
sem okkur þótti svo gaman að sjá
vinna og greinilega hafði svo gam-
an af því sjálfur. Þrátt fyrir ungan
aldur okkar leyfði hann okkur að
taka til hendi og lét okkur fínna að
við værum að vinna merkileg störf.
Við nutum þess að vinna með þess-
um manni.
Til aðgreiningar frá öðrum Jón-
um kölluðum við þennan bamgóða
afkastamann Jón smið og hefur
hann æ síðan heitið það hjá okkur
og okkar fjölskyldum og vinum.
Leiðir okkar bræðra og Jóns smiðs
lágu saman oftar á næstu ámm,
svo sem við byggingu Eymunds-
sonarhússins í Austurstræti 18 og
við framkvæmdir við ýmsa laxa-
stiga í Langá á Mýrum, svo eitt-
hvað sé nefnt.
A þessum tíma tókust þannig
þeirra: Kristín
Harpa, f. 1. jan.
1977, Sesselja Rán,
f. 27. maí 1980,
Anna Margrét, f.
28. nóvember 1995.
6) Sesselja, f. 4.
sept. 1958, verslun-
armaður í Reykja-
vík, gift Kim Mort-
ensen, rafvirkja.
Börn þeirra:
Sesselja María, f. 8.
mars 1984, Jón
Hjörtur, f. 5. maí
1987. 7) Garðar,
fæddur 25. mars
1960, starfsmaður hjá Sól hf.
Barn hans og Fannar Eyþórs-
dóttur Einar Ágúst Garðarsson,
f. 8. sept. 1990. Sambýliskona
Garðars er María Breiðfjörð.
Barn þeirra: Alexandra Diljá, f.
25. aprfl 1997. 8) Sæmundur Ingi,
f. 6. nóv. 1961, öryggisvörður í
Reykjavík, sambýliskona hans er
Elfur Magnúsdóttir. Barn þeirra
Magnús Máni, f. 18. apríl 1994. 9)
Ástríður Ó., f. 4. sept. 1963,
starfsmaður á Hrafnistu, Reykja-
vík, var gift Sigurði M. Haralds-
syni. Þau skildu. Börn þeirra:
Steinunn Þuríður, f. 19. sept.
1985, Helga Hrund, f. 6. júní
1990. 10) Einar Valgeir, f. 21.
okt. 1964, sjúkraliði, kvæntur
Sigurlín Þ. Sigurjónsdóttur. Börn
þeirra: Jósúa, f. 16. sept. 1994,
Kaleb Örn, f. 12. maí 1997.
Jón Hjörtur fæddist í Reykjavfk
og bjó þar til 1930 er hann fluttist
með ömrnu sinni, Sigríði Ólafs-
dóttur, til Akureyrar, þar sem
hann ólst sfðan upp. Hann lærði
trésmíði hjá Guðmundi
Tómassyni á Akureyri 1942-1946
og var trésmiður á Akureyri
1946-1951. Jón fékk meistara-
réttindi 1951 og vann hjá Helga
Kristjánssyni, húsasmíðameist-
ara á Lambastöðum á Seltjarnar-
nesi 1954-1974. Jón vann ýmis
trésmíðastörf 1974-1979. Hann
vann hjá Pétri Snæland, síðar
Lystadún-Snæland, frá 1979 til
dauðadags. Jón Hjörtur var um
tíma í varasfjórn Trésmíðafélags
Reykjavíkur.
Útför Jóns Hjartar fer fram frá
Neskirkju á morgun, mánudag,
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
kynni með fjölskyldu okkar og hon-
um að alltaf þegar eitthvað þurfti
að taka til hendinni við smíðar,
hvort sem það var heima hjá okkm-
eða á vinnustað eða uppi í sveit, var
kallað í Jón smið og hann beðinn að
bjarga málum, sem hann oftast
gerði á sínum ofurhraða.
Síðar æxluðust málin þannig að
Jón smiður réðst til starfa hjá fyr-
irtæki okkar er það stóð á tíma-
mótum og miklar framkvæmdir
voru framundan. Eins og venjulega
var hann í fararbroddi með hamar
sinn og sög og dreif aðra með sér
með dugnaði og elju. Þegar bygg-
ingaframkvæmdum lauk vildum
við ekki missa starfskrafta Jóns
smiðs og fengum hann til að halda
áfram störfum hjá okkur við fram-
leiðslustörf og viðhald bygginga.
Er skemmst frá að segja að
hann var með okkur til dauðadags,
allra síðustu árin hjá fyrirtækinu
Lystadún-Snæland. Þegar komið
er að kveðjustund koma upp í hug-
ann margar góðar minningar sem
ekki verða tíundaðar hér nánar.
Efst er okkur í huga þökk fyrir
langt og farsælt samstarf, trú-
mennsku og vináttu auðsýnda í
garð okkar jafnt í blíðu sem stríðu.
Jón smiður var ekki einungis af-
kastamaður í starfi heldur einnig í
fjölskyldumálum. Þau hjónin eign-
uðust tíu mannvænleg börn og var
ástríkt samband milli foreldra,
barna og bamabarna.
Við bræður, fjölskyldur okkar og
foreldrar, sendum eiginkonu hans
og afkomendum öllum okkar inni-
legustu samúðaróskir og biðjum
Guð að blessa minningu Jóns smiðs.
Sveinn, Halldór og
Gunnar Snæland.
Kenn oss að telja daga vora,
að vér megum öðlast viturt hjarta.
(Sálm.90,12)
Hinn 3. janúar sl. voru dagar
Jóns Hjartar Gunnarssonar taldir.
Dauðinn er alltaf óvinur. Jón
Hjörtur átti góða ævi, hann var
sáttur við alla og lifði í friði. Ég hef
þekkt Jón Hjört í tæp 25 ár frá því
að ég varð tengdadóttir hans og
Stellu. Mér var tekið eins og ég
væri ein af fjölskyldunni og hefur
það verið síðan. Ég er þakklát fyrir
að hafa átt tengdaföður sem Jón.
Jóni Hirti leið vel á heimavelli, þar
var hann sístarfandi, eitthvað að
smíða eða laga í kjallaranum eða
uppi að lesa. I góðu veðri naut
hann þess að sitja sunnan undir
húsvegg og lesa eða ráða krossgát-
ur. Það þarf engan Meðal-Jón til að
sjá 10 bömum sómasamlega far-
borða. Jón Hjörtur og Stella hafa
verið saman í tæpa hálfa öld og það
hefur oft þurft úthald og samstöðu
að fæða og klæða 10 böm. Þau
bjuggu á Tunguvegi 68 í nær 40 ár
og heimilið var alltaf opið vinum og
vandamönnum. Það var oft margt
fólk á heimilinu og mikið spjallað
og tekist á um hlutina. Það hvemig
Jón Hjörtur ræddi um hlutina flokk-
ast undir rökræður og heimspeki og
miðlaði hann góðu til bama og ann-
arra. Jón Hjörtur var trésmiður og
hafði hann góða verkþekkingu og
leituðu böm og tengdaböm til hans
eftir faglegum ráðleggingum og
alltaf hafði Jón tíma til að sinna
aukaverkefnum. Jón Hjörtur hafði
ekkd mörg orð um tilfinningar sínar
en ég hef reynt það bæði á gleði og
sorgarstundum að hann stóð með
mér og fjölskyldunni. Það eru
margir sem hafa fengið að gista og
það var alltaf pláss, oft svaf einhver
í stofunni. Bamabörnin hafa komið
með vini sína og ávallt var öllum vel
tekið. Jón Hjörtur var heilsu-
hraustur og vann fulla vinnu til sjö-
tugs, hann vann hálfan vinnudag
eftir það. Hann hætti formlega að
vinna hjá Lystadún-Snæland 1. jan.
sl. og var sáttur við þær breytingar.
Sesselja hefur misst elskulegan
eiginmann og lífsfómnaut. Það er
erfiður tími fram undan og ég veit
að hjá Drottni Jesú Kristi er hugg-
un að fá. Ég bið þess að huggun
Drottins komi yfir heimilið og mæti
börnum, tengdabörnum og barna-
bömum. Minning um góðan mann
lifir.
Þóranna M.
Sigurbergsdóttir.
Með örfáum orðum vil ég kveðja
kæran starfsfélaga, Jón H. Gunn-
arsson er lést 3. janúar sl.
Mér brá ónotalega þegar hringt
var í mig og mér tjáð að Jón H.
Gunnarsson væri látinn. Ég hafði
verið í heimsókn hjá honum í vik-
unni og var Jón hress, þrátt fyrir
veikindi sem hann hafði átt í síð-
ustu 2 mánuði. Hann sagði mér að
hann væri allur að hressast, en
þyrfti að byggja upp þrekið aftur.
Hann ætlaði að fara í göngutúra
um hverfið, bytja á stuttum ferð-
um og lengja ferðirnar smám sam-
an eins og þrekið ykist.
Ég kynntist Jóni 1991 þegar fyr-
irtækin Lystadún og Snæland
sameinuðust. Það þurfti ekld
glöggan mann til að sjá að þar fór
dugandi og traustur fagmaður. Jón
var vinnuþjarkur og mikill afkasta-
maður. Laginn var hann og úr-
ræðagóður og sést það á því að
honum voru falin mörg vandasöm
verkefni sem hann leysti ávallt af
stakri snilld.
Vil ég þakka Jóni fyrir ánægju-
legt samstarf á liðnum árum. Um
hann lifa góðar minningar.
Eftirlifandi konu hans og fjöl-
skyldu sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur og bið hinn Hæsta að gefa
þeim styrk í sorginni.
Guðmundur
H. Baldursson.
Engihjalli 11 - íbúð 4A
í dag býðst þér og fjölskyldu þinni að skoða
þessa fallegu 88 fm,
3ja herb. íbúð sem er á 4. hæð
í nýlega viðgerðu og máluðu húsi.
Lyfta í húsinu.
Flísar og parket á gólfum.
Frábært útsýni.
íbúðin er laus strax,
svo nú er bara að drífa sig og skoða.
Ásmundur, sölumaður á Höfða, býður ykkur velkomin í
dag milli kl. 15 og 17.
Opið í dag
frá kl. 13-15.
Glæsilegar sérhæðir
Grænamýri 8,10,12, Seltjarnarnesi
Höfum til sölu 4 nýjar 111 frn. mjög skemmtilegar sérhæðir í
nýbyggingum. Ein íbúðin sem er neðri sérhæð, selst fullbúin án
gólfefna til afh. 1. feb. n.k., en hinar íbúðirnar seljast tæplega
tilbúnar til innréttinga. Sameign verður öll frágengin þar með
talin Ióð fúllfrágengin.
(f ÁSBYRGI €
Suóurlandsbraut 54
vió Faxafon, 108 Raykfnvik,
simi 568-2444, fax: 568-2446.
F.IGIV4MIÐUNIN
Sími ö»}{
i\ ö{{}{ 0005
NÝTT OG GLÆSILEGT ATVINNUHÚSNÆÐI
VIÐ SUÐURHRAUN
Nýtt og glæsilegt atvinnuhúsnæði
við Suðurhraun 1A, Garðabæ
er til sýnis á morgun mánudag og síðar eftir
nánara samkomulagi.
Lýsing:
Um er að ræða vandað iðnaðarhúsnæði á einni hæð og eru til sölu
margar einingar frá 93 fm til 243 fm. Mikil lofthæð (u.þ.b. 5 m).
Frágangur:
Plássin afh. tilb. til innréttinga fljótlega. Lóðin er öll hellulögð og frá-
gengin. Glæsilegur frágangur m.a. þakskífur á þaki o.fl.
Sérinnkeyrsludyr í hvert pláss. Sérrafmagn og -hiti í hverju plássi.
Húsnæði í sérflokki.
Greiðslukjön
Mjög góð kjör, útborgun aðeins 30% og eftirstöðvar til 15 ára.
Dæmi um stærðir:
Flatarmál fm verð
93 fm 60.000
97 fm 60.000
190 fm 57.000
227 fm 55.000
243 fm 55.000
Einnig eru fleiri pláss til sölu.
Upplýsingar gefa Sverrir og Stefán Hrafn.