Morgunblaðið - 11.01.1998, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1998
HUGVEKJA
„ Oss langar
að sjá Jesú “
í hugvekju dagsins
segir sr. Heimir
Steinsson: Full
ástæða er til að þakka
Guðfræðistofnun fyr-
ir útgáfu þeirrar rit-
raðar, sem hér hefur
verið vikið að.
LITLU fyrir jól kom út bók,
er hafði ofangreind orð Jóhann-
esar guðspjalls (12:21) að heiti
og yfirskrift. Um var að ræða
11. bindi í ritröðinni „Studia
theologica Islandica" eða „ís-
lenzkar guðfræðirannsóknir", en
efni þetta er gefið út af Guð-
fræðistofnun Háskóla íslands og
Skálholtsútgáfunni. Ritröðin hóf
j .göngu sína árið 1988 og fyllir
J 5þannig áratuginn nú á næstu
misserum. Þar er að fínna fleiri
ritgerðir um guðfræði en annars
staðar getur á íslandi, þótt
Kirkjuritið og Orðið, rit Félags
guðfræðinema, séu bæði liðtæk
í því efni einnig.
Afmælisrit séra
Jónasar Gísiasonar
Undirtitill umræddrar bókar
er sá, sem hér var hafður að
millifyrirsögn. Hinn 23. nóvem-
ber 1996 varð séra Jónas Gísla-
son, prófessor í kirkjusögu og
vígsiubiskup, sjötugur. Af því til-
efni senda Guðfræðistofnun og
Skálholtsútgáfan frá sér þetta
rit. Fyrsti hluti ritsins geymir
greinar um séra Jónas. En
meginmál bókarinnar birtir rit-
gerðir, ræður, ljóð o.fl. eftir af-
mæiisbarnið sjálft. Þar kennir
ýmissa góðra grasa. Verður nán-
ar að þeim vikið hér á eftir.
Dr. Gunnlaugur A. Jónsson
prófessor og ritstjóri Guðfræði-
stofnunar skrifar inngangsorð.
Þar greinir m.a. frá því, að séra
Jónas var reyndar fyrsti um-
sýslumaður þeirrar Ritraðar, sem
afmælisbók hans birtist í. Er
hann því „sérlega vel að slíkum
heiðri kominn", eins og dr. Gunn-
laugur tekur til orða. Gunnlaugur
kveður ritið hafa verið unnið „í
nánu samstarfi“ við Jónas, en
hinn síðar nefndi hafði það að
leiðarljósi, að niðurstaðan „yrði
sem mest við alþýðu hæfí“. Jónas
valdi og heiti ritsins sjálfur.
Dr. Hjalti Hugason prófessor
ritar greinina „Gert upp við
kirkjusögukennara", en Hjalti er
arftaki Jónasar á kennarastóli við
Guðfræðideild Háskóla íslands.
Hjalti kveður það almenn sann-
indi, að stúdentar geri uppreisn
gegn lærifeðrum. En ályktunar-
orð hans eru þau, að í öllu upp-
'^gjöri felist „menntun og þroski,
ef það fær að eiga sér stað án
beizkju“. Síðan spyr höfundur:
„Er það ekki hlutverk sérhvers
kéhnara að beina nemendum sín-
um einmitt í þá átt?“ - og svarar
sér sjálfur: „Það tókst Jónasi
Gíslasyni oft, og fyrir það er að
þakka.“
Dr. Páli Skúlason háskólarekt-
or sendir Jónasi vinsamlega
kveðju undir yfírskriftinni „Að lifa
í trú“. Páll hefur fyrr og síðar
skrifað af næmum skilningi um
, kristinn dóm. Skemmst er að
minnast erindis, sem rektor flutti
á liðnu hausti í tilefni af 150 ára
afmæli Prestaskólans. Hér kveður
enn við áþekkan tón.
Þórarinn Bjömsson cand.theol.,
sem um þessar mundir vinnur við
að rita sögu KFUM, skrifar stór-
fróðlega grein um þátttöku Jónas-
k ar Gíslasonar í þeim féiagsskap,
en þar lét hann mjög að sér kveða
um langt skeið. Hér er raunar að
fínna ágrip af ævisögu Jónasar
endilangri. Hæfír vel að flíka því
efni í upphafí afmælisrits.
Meginmál
Fyrsti hluti meginmáls þeirrar
bókar, sem ég tók mér fyrir hend-
ur að kynna í hugvekju dagsins,
greinir frá kirkjusögu. Þar eru
m.a. „Smábrot úr sögu Skál-
holts", „Molar um meistara Brynj-
ólf“ og „Deilur um Odda“. Einnig
fjallar séra Jónas um Hallgrím
Pétursson og lítið eitt um Passíu-
sálma hans. Allar eru greinamar
gimilegar til fróðleiks hveijum
sem ann sögu íslenzkrar kristni.
Því næst fara „Fáeinir þankar
um predikunina" og að þeim lokn-
um flórar predikanir, sem Jónas
flutti við ýmis tækifæri á ferli
sínum. Sjálfur naut ég þess að
heyra sumar predikananna, er
þær voru færðar fram. Hlýlegt
er að hitta þær hér fyrir í prent-
uðu máli. - Séra Jónas Gíslason
hefur fengizt við margt í áratug-
anna rás. E.t.v. lætur honum bet-
ur að predika en nokkuð annað.
Næsti kapítuli afmælisritsins
nefnist „Almenn guðfræði". Þar
ijallar höfundur um „Kross Krists
í ljósi guðfræðinnar“, um „Uppris-
una“ og „Um Postulasöguna".
Nær lokum fyrstu greinarinnar
segir höfundur: „Ætli mannleg
tilvera væri ekki farsælli, ef sá
sannleikur yrði okkur ljósari, að
hamingja mannsins er ekki fólgin
í efnislegum gæðum einum, þegar
allt kemur til alls. Mannleg ham-
ingja er miklu fremur fóigin í því
að lifa lífínu í samhljóðan við
þann tilgang, sem mannlegri til-
veru er settur af skapara hennar“.
Næsti hluti bókarinnar er tvö
prósaljóð. Séra Jónas varð kunnur
að þess konar hugverkum, sem
hann skrifað vikulega í Morgun-
blaðið fyrir fáum árum. Það efni
kom út í heild árið 1994 undir
yfirskriftinni „Hver morgunn er
nýr“. Þetta form lætur Jónasi
Gíslasyni að sumu leyti einstak-
lega vel.
Þá er að finna greinar „Um
fáeina samferðamenn", þar minn-
ist séra Jónas meðal annarra
þeirra Bjarna Benediktssonar og
Geirs Hallgrímssonar. Hann
þekkti þá náið báða, Bjama og
Geir, og skrifar hér af alúð og
nærfæmi, en jafnframt af þeirri
skarpskyggni, sem honum löng-
um er lagin. Meðal annars segir
höfundur um Bjama Benedikts-
son: „Ég minnist hans með virð-
ingu og þökk og tel mér til gild-
is, að hann skyldi velja mig sem
trúnaðarmann sinn“.
Afmælisbókinni lýkur með
tveimur ritsmíðum, er lúta að
sáru heilsuleysi séra Jónasar
Gíslasonar hin síðari ár. Hin fyrri
þeirra er m.a. gagnrýni á heil-
brigðiskerfíð. Síðari grein rekur
sjúkdómssögu höfundar, en vitnar
þó öllu öðru fremur um heita
guðstrú hans, traust hans til Jesú
Krists.
Guðfræðiútgáfa
Full ástæða er til að þakka
Guðfræðistofnun fyrir útgáfu
þeirrar ritraðar, sem hér hefur
verið vikið að. Guðfræðileg um-
ræða er tiltölulega fátíð á ís-
landi. Þeir sem iokið hafa námi
við Háskóla íslands og em horfn-
ir þaðan búa við næsta takmark-
aðan kost fræðilegs fömneytis
upp frá því. Þeim mun sjálfsagð-
ara er að fagna því hveiju sinni,
sem vel er gjört.
Séra Jónasi Gísiasyni vígslu-
biskupi og prófessor óska ég til
hamingju með vel heppnað rit og
bið honum og ástvinum hans
blessunar í hverri raun.
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Mér fínnst
MÉR fínnst að þak eigi
að vera á fjárfestingum
lífeyrissjóða erlendis með
það fyrir augum að
áhættufjármagn vantar í
þjóðfélagið, föst upphæð
myndi líklegast auðvelda
Seðlabanka íslands
róðurinn. Mér fínnst að
það eigi að banna sölu og
leigu á kvóta og vinna upp
nýtt kerfi með byggða-
stefnu þessa lands í huga.
Mér finnst að gmndvöllur
þessa lands sem við ís-
lendingar höfum státað
okkur af, þ.e.a.s. hreint
land og fagurt, mætti
vera sterkari og því ætti
innflutningur á raf-
magnsvélum og bygging
lítils kjamorkuvers ekki
að vefjast fyrir okkur.
Mér finnst að slorþrær
eða marningsvélar ættu
að vera skilyrði í öllum
frystitogumm á þessu
landi enda um stóraukin
aflaverðmæti að ræða
þegar á heildina er litið.
Mér fínnst líka að hér
ætti að vera alþjóðleg ráð-
gjafarstofnun sem með
samvinnu Háskóla ís-
lands, ráðgjafastofum
fjármála og tölvufyrir-
tækjum, sem og ýmsum
aðilum tengdum fískiiðn-
aði, gæti fundið verðug
verkefni á erlendri grund
og væri sú ráðgjöf borguð
af þróunarstofnun Sam-
einuðu þjóðanna, til dæm-
is. Alþjóðlega ráðgjafa-
stofa Islands gæti skapað
grandvöll fyrir íslensk
dótturfyrirtæki og hugvit
á erlendri gmnd og stór-
aukið útflutning okkar á
öðram sviðum en þeim
sem fyrir em.
Jón Pétur Kristjánsson
sjómaður.
Mótmæli
EIN mesta skemmdar-
verkastarfsemi síðustu
ára hefur farið fram, sam-
eining sveitarfélaga. Með
blekkingum og ósönnum
áróðri hefur valdaklíkum
í þjóðfélaginu tekist að
eyðileggja eitt það mikil-
vægasta sem þjóðinni hef-
ur hlotnast, það er full-
trúalýðræðið í sveitarfé-
lögum. Ráðist hefur verið
á samstarf sveitarfélag-
anna, svo sem sameigin-
leg útboð á þjónustu. Eitt
af þvi sem þessar valdak-
líkur hafa að markmiði
er að stjóma ofan frá og
þagga niður hinar ýmsu
raddir fólksins sem em
hættulegar valdaklíkun-
um og geta komið í veg
fyrir að styrkja það vald
sem þær keppa að, það
er „einveldi".
Þjóðin er komin á
hættulega braut, og það
þarf að bregðast við eins
fljótt og hægt er. Mál-
gagn lýðræðisins þarf að
komast að og í síðasta
lagi í næstu alþingiskosn-
ingum.
Ámi Bjöm Guðjónsson.
Osammála
Víkverja
RAGNA hringdi til Vel-
vakanda og bað hann að
koma því á framfæri að
hún væri algjörlega ósam-
mála Víkveija fímmtu-
daginn 8. janúar sl. þar
sem hann talar um að
Landsbankinn sinni við-
skiptavinum sínum ekki
nógu vel. Hún segist alltaf
fá mjög góða þjónustu í
Landsbankanum, en hef-
ur ekki sömu sögu að
segja varðandi íslands-
banka. Sérstaklega fínnst
henni starfsfólk bankans
óliðlegt og gildir þá einu
um hvaða útibú er að
ræða.
Góð grein
Þuríðar
MÉR fínnst grein Þuríðar
Árnadóttur, læknis og
sérfræðings í alþjóða heil-
brigðismálum, sem birtist
í Morgunblaðinu 9. jan-
úar, mjög góð og efnis-
mikil og tími kominn til
að ræða þessi mál frá
þessu sjónarhorni. Sú
hugsun að stríð sé „eðli-
legt ástand" má aldrei
festast í huga okkar.
Margrét Guðmunds-
dóttir húsmóðir.
Dýrahald
Golden Retriver
týndur
GOLDEN RETRIVER
hundur hvarf frá Mið-
braut, Seltjamamesi, á
þrettándanum. Þeir sem
hafa orðið hans varir em
beðnir að hafa samband
í síma 551 1278.
SKÁK
IJmsjón Margeir
Fétursson
Hvítur leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp í rússnesku
bikarkeppninni í fyrra á móti
sem haldið var í Sochi við
Svartahafið. Ildar Ibragimov
(2.585) var með hvítt og átti
leik, en Andrei Kharitonov
(2540) hafði svart.
28. Bxh6!! - Hg8 (Svartur má
ekki þiggja drottningarfórnina:
28. - Rxg3? 29. Bxg7+ - Kg8
30. Rh6 er mát) 29. Df4! - Bg6
30. Bxg7+! - Hxg7 31. Hf8+
- Hg8 32. Hxg8+ - Kxg8 33.
Dg5 — Rxh4 34. Dxh4 — Bd8
35. Dh6 - Kf7 36. Rf6 - Bxf6
37. exf6 - Kxf6 38. Bh5 og
svartur gafst upp.
Skákþing Reykjavíkur hefst í
dag kl. 14 í félagsheimili TR,
Faxafeni 12. í aðalkeppninnni
er teflt eftir svissnesku kerfi,
allir í einum flokki.
Víkveiji skrifar...
HEILDARSKULDIR hins opin-
bera, ríkis og sveitarfélaga,
vora dijúgmiklar í endað árið
1997, eða um 282 milljarðar króna.
Sem hlutfall af landsframleiðslu
mældust þessar skuldir 54%, sem
er 3 prósentustigum minna en árið
áður. Hreinar skuldir vora á hinn
bóginn nálægt 197 milljörðum
króna eða 37% af landsframleiðslu.
Helmingur þessara skulda var við
erlenda sparendur.
í framvarpi til fjárlaga var gert
ráð fyrir að vaxtagjöld ríkissjóðs
yrðu 12.300 m.kr. árið 1998. Þá
era ótalin vaxtagjöld sveitarfélag-
anna. Vaxtakostnaður ríkissjóðs
er langleiðina í áætluð heildar-
framlög ríkissjóðs á líðandi ári til
hátæknisjúkrahúsanna tveggja í
Reykjavík, sem stjórnmálamenn,
sumir hveijir, fjargviðrast sem
mest yfír. Vaxtakostnaður ríkisins,
hveijir svo sem ábyrgð bera á hon-
um, stingur þó mun rneir í augu
Víkveija.
XXX
F RÍKISBÚ SKAPURINN
hefði verið rekinn hallalaus
síðustu ártugi og áætlaður skulda-
kostnaður annó 1998 - að ekki
sé nú talað um greiddan vaxta-
kostnað síðustu tíu árin eða svo -
væri í handraða, þá væri hægt að
búa vel að mennta- og heilbrigði-
skerfum.
Að þessu ættu stjórnmálamenn
að hyggja, ekki sízt þingmenn
stjórnarandstöðu, sem standa á
öndinni í ræðustól Alþingis í há-
værri kröfugerð um aukin útgjöld
út og suður um samfélagið. Þar
geta þeir sameinast í orði og á
borði, þó það gangi bæði bág- og
broslega á öðrum vettvangi.
Norðmenn hafa þegar greitt
upp allar erlendar skuldir sínar.
Dönum miðar allnokkuð til sömu
áttar. Hér hefur tekizt að stöðva
skuldasöfnun ríkisins; jafnvel
stíga fáein hænufet í grynnkun
skuldasúpunnar. En betur má ef
duga á!
xxx
HAGSÆLD er orð sem lýsir
vel þjóðarbúskapnum síðustu
árin. Samt sem áður vora 67.603
íslendingar undir skattleysismörk-
um árið 1996. í þeirra hópi vora
10.136 eldri borgarar (67 ára og
eldri). ítem 1.800 einstæðir for-
eldrar. Konur voru tvöfalt fleiri en
karlar, 41.358 á móti 20.975 körl-
um.
Þessar tölur sýna glöggt að fjöl-
margir einstaklingar vora tekjulitl-
ir tilgreint ár. Ástæður geta verið
ýmsar: elli, orörka, atvinnuieysi,
lág laun. En ekki má horfa fram
hjá svartri atvinnu og skattsvikum,
þeim sem fram telja smátt en lifa
samt hátt.
Sveitarlimir hétu þeir fyrr á tið,
sem af illri nauðsyn þurftu að leita
til samfélagsins. Sveitarlimir í lok
20. aldar eru annarrar tegundar
að mati Víkveija, þ.e. þeir sem
svíkja undan skatti og láta sam-
borgarana greiða hluta sinn í sam-
félagslegri þjónustu, m.a. heil-
brigðisþjónustu, skólakerfi og al-
mannatryggingum. Á þeim þarf
að taka með meiri festu hér eftir
en hingað til!
xxx
*
IGÆR var 10. janúar. Þann dag
árið 1884 var fyrsta góðtempl-
arastúkan, ísafold nr. 1, stofnuð
norður á Akureyri. Fyrsta stúkan
í Reykjavík, Verðandi, var stofnuð
3. júlí 1885. Margar fylgdu síðan
í kjölfarið.
Hæst reis vegur íslenzkra góð-
templara árið 1908, þegar áfengis-
bann var samþykkt í þjóðarat-
kvæði, og 1915, þegar algert
áfengisbann gekk í gildi.
Skarð var rofið í bannlögin árið
1922 með innflutningi Spánarvína,
en sá gjömingur tengdist sölu ís-
lenzks saltfísks til Spánar. Bann-
lögin voru síðan afnumin í þjóð-
aratkvæði árið 1935. Síðan hefur
margur sjússinn verið sopinn á ísa
köldu landi, stundum til gleði en í
annan tíma til skaða.
Hver sem afstaða manna er til
stefnumiða góðtemplara neitar
enginn sanngjarn maður því, að
Reglan, eins og hún var oftast
kölluð, hefur margan manninn leitt
til betri vegar - og haft laundijúg
aðhaldsáhrif á hegðan og viðhorf
fólksins í landinu.