Morgunblaðið - 21.02.1998, Side 8
8 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
I’M coming
Lýsing þjóðvegarins yfír Hellisheiði
Ekki í skoðun hjá Vegagerðinni
HUGMYNDIN um að lýsa upp
veginn yfir Hellisheiði hefur aldrei
komið til skoðunar hjá vegagerð-
inni „af nokkurri alvöru“, að sögn
Gunnars Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra Vegagerðarinnar.
Gunnar sagðist minnast þess að
þingsályktunartillaga hefði verið
flutt um lýsingu Hellisheiðar fyrir
nokkrum árum en hún hefði ekki
verið afgreidd og málið því ekki
verið tekið til ítarlegrar skoðunar.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær hefur Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri, skrifað
samgönguráðherra og bæjarstjórn
Selfoss bréf þar sem hún býður
fram einhvers konar þátttöku Raf-
magnsveitu Reykjavíkur í því að
lýsa upp veginn yfir heiðina.
Veltur á því hvemig
vegafé verður varið
Gunnar sagði að ákvörðun um
framkvæmd málsins velti væntan-
lega fyrst og fremst á því að þing-
menn Suðurlandskjördæmis ákveði
að verja vegafé kjördæmisins í
þetta verkefni. Hann segist telja að
sjálfsagt séu skiptar skoðanir á því
hvar þetta verkefni eigi heima í
forgangsröð vegamála en hins veg-
ar sé málið hvorki flókið né erfitt í
framkvæmd ef ákvörðun væri tek-
in.
Gunnar sagði að hins vegar hefði
Vegagerðin ekki fengið upplýsing-
ar um þetta tilboð borgarinnar og
hvað fælist í því.
'h
Hilmir Snær Guðnason
Menningarverðlaun DV
í leiklist 1997
11
Fyrir einstakan
leik í Hamlet og
Listaverkinu
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Fyrirlestrar Sjávarútvegsstofnunar
Sfldin veður og
sfldin kveður
Jakob Jakobsson
JAKOB Jakobsson, for-
stjóri Hafrannsókna-
stofnunar, heldur fyr-
iriestur um eftirlætisvið-
fangsefni sitt, síldina, í sal 4
í Háskólabíói í dag klukkan
13.15. Fyrirlesturinn er
ætlaður almenningi og er
sá fyrsti í röð fyrirlestra
sem Sjávarútvegsstofnun
Háskólans gengst íyrir á
næstu vikum í tilefni af ári
hafsins.
- Hvað ætlar þú að fjalla
um?
„Ég ætla að gera grein
fyrir náttúrueðli síldarinn-
ar, það er hvemig hún veð-
ur og kveður sitt á hvað, og
hvers vegna það orð hefur
komist á hana í aldanna rás
að hún sé ótrygglynd og
erfið viðureignar. Meining-
in er að taka sem dæmi ýmis síld-
veiðitímabil í norðanverðu Atl-
antshafi. Sum komu upp íyrir
nærri þúsund ámm, stóðu mjög
hátt í nokkra áratugi eða nokkur
hundrað ár en döluðu síðan og
liðu undir lok. Ég mun ræða ein-
kenni síldarinnar vítt og breitt og
hve mikla þýðingu hún hefur haft
fyrr á öldum í tengslum við ríki-
dæmi þjóða og kaupstaðamyndun.
Kaupmannhöfn er íyrrverandi
síldarbær svo dæmi sé tekið.“
- Hvaða þjóðir koma við sögu í
umfjöllun þinni?
„Ég mun til dæmis gera að
umtalsefni miklar síldveiðar
Dana við Skán á 11. öld til 14.
aldar. Síðan verður rætt um
langvarandi veiðar Hollendinga í
Norðursjó á 13. öld sem höfðu af-
gerandi áhrif á ríkidæmi þeirra á
þeim tíma. Farið verður yfir sfld-
artímabilin við Noreg og vitnað í
Egilssögu og Heimskringlu í því
sambandi. Eins fjalla ég um sfld-
veiðitímabilin við vesturströnd
Svíþjóðar en þessi tímabil hafa
skipst nokkuð á. Svo mun ég
enda á sfldveiðitímabilinu við ís-
land.“
- Hvar í heiminum veiðist síld-
in helst?
„Það era sfldarstofnar í Atl-
antshafi og innhöfum þess og
Kyrrahafi en síldin er eingöngu á
norðurhveli jarðar. Suðurmörkin
í Evrópu era við Biskaja-flóa og
norðarlega við Austurströnd
Bandaríkjanna. Við Vesturströnd
Bandaríkjanna í Kyrrahafi nær
sfldin lengst suður undir San
Francisco og rétt suður undir
Hokkaido við Japan. Helstu
heimkynni sfldarinnar eru hins
vegar við vesturströnd
Evrópu, þar era
stærstu stofnanir og
veiðin mest. Norsk-ís-
lenski stofninn er tal-
inn einna stærstur og
hefur oft verið um tíu
milljónir tonna. Norðursjávar-
stofninn hefur verið nokkrar
milljónir tonna, kannski þrjár
þegar best hefur látið. Þetta era
tveir stærstu stofnarnir."
- Hvað segja elstu heimildir
um síldveiðar?
„Elstu heimildir um sfldveiðar
hafa fundist í uppgreftri á mann-
vistarleifum frá steinaldartíma.
Fundist hafa leifar sfldarbeina
við strendur Danmerkur og Evr-
ópu. Sennilega hafa menn verið
með framstæð net til veiðanna."
- Hvenær hófu Islendingar
síldveiðar?
„Sfldveiðar vora ekki stundað-
ar sem atvinnugrein við ísland
fyrr en upp úr 1890 en Norð-
menn hafa veitt hana frá örófi
alda.“
- Eiga Norðmenn þá ekki bara
► Jakob Jakobsson forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar fæddist í
Neskaupstað árið 1941. Hann
lauk stúdentsprófí frá MR árið
1952 og BS-prófi í fiskifræði og
stærðfræði frá Giasgow-háskóla
árið 1956. Sama ár hóf hann
störf hjá Hafrannsóknastofnun
og hefur stýrt stoftiuninni frá
1984. Jakob hefur verið virkur á
alþjóðavettvangi á sínu sviði,
hefur átt sæti í Norðaustur-Atl-
antshafsfískveiðineftidinni og
var ennfremur forseti Alþjóða-
hafrannsóknaráðsins frá 1988-
1991. Hann var skipaður prófess-
or við Háskóla íslands árið 1994.
Jakob er kvæntur Margréti E.
Jónsdóttur fréttamanni.
síldina, með tilliti til veiði-
reynslu?
„Það má kannski segja það ef
horft er til miðalda. En sfldin var
í fjörðum og flóum Norðanlands
allan fyrri hluta þessarar aldar,
þar til hún hvarf. Síðasta stóra
árið hér var 1966.“
- Hverjir eru helstu eiginleikar
síldarinnar?
„Hún er oft í feikilegum torf-
um og stundum mjög auðveidd. Á
öðram tímum leynir hún á sér,
dreifist og jafnvel hnignar stór-
um sfldarstofnum þannig að veið-
ar falla alveg niður. Þeir eigin-
leikar síldarinnar að ganga
stundum í stóram torfum og að
hún skuli þá vera svona auðveidd
gefur mönnum mikla gróðavon
sem síðan bregst. Þess vegna er
sfldin svona spennandi umfjöllun-
arefni.“
- Hvað ræður þessari óút-
reiknanlegu hegðun?
„Við því er ekkert
einhlítt svar. Ég held
að það sé mjög mis-
jafnt frá einum stofixi
til annars og skýring-
amar eftir því.“
- Er síldin skemmtilegasta
físktegundin að þínu mati?
„Alveg tvímælalaust."
- Lumar þú á nýjum uppiýs-
ingum í þessum fyrirlestri?
„Það væra þá kannski fyrst og
fremst hugmyndir mínar um sfld-
artímabilin við Noreg og Svíþjóð.
Þær era öðravísi miðað við það
sem skrifað hefur verið um þetta
tímabil áður.“
- Hvenær vaknaði áhugi þinn á
síidinni?
„Ég hef haft hann frá blautu
bamsbeini þótt ég hafi fyrst og
fremst verið alinn upp við þorsk-
veiðar. Ég byrjaði tvítugur að
merkja sfld fyrir Áma Friðriks-
son og merkti um það bil hundr-
að þúsund sfldir fyrir hann. Ætli
örlög mín hafi ekki verið ráðin
þá.“
„Síldin er
skemmti-
legasta fisk-
tegundin“