Morgunblaðið - 21.02.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998 13
FRETTIR
20 mánaða
fangelsi
fyrir kóka-
ínsmygl
ÞRJÁTÍU og þriggja ára
gamall íslendingur var í gær
dæmdur til 20 mánaða fang-
elsisvistar fyrir að hafa reynt
að smygla 14 kílóum af kóka-
íni um eyjuna Curacao í
Antillaeyjaklasanum. Hann
var handtekinn á flugvellinum
í Williamstad, höfuðborg eyj-
arinnar, í lok október síðast-
liðins, á leið til Amsterdam í
Hollandi.
Eftir því sem næst verður
komist mun maðurinn afþlána
dóm sinn á eyjunni en hún
heyrir undir Holland. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins munar miklu þegar
tekin er ákvörðun um refs-
ingu fyrir dómstólum þar
hvort það sannist á smyglara
að eiga fíkniefni eða hvort
þeir teljist vera svokölluð
burðardýr.
Talinn vera burðardýr
Maðurinn hefur ekki komið
við sögu lögreglu hérlendis
vegna fíkniefnamála. Réttar-
gæslumaður Islendingsins,
lögmaður að nafni Scheep-
borg, byggði mál sitt á að
hann hefði verið burðardýr,
en hefði dómurinn talið Is-
lendinginn eiga efnin hefði
hann getað búist við allt að 6
ára fangelsi. Aðbúnaður fang-
elsismála á eyjunum mun
vera lakur ef miðað er við
flest lönd Evrópu.
IMARK veitir verðlaun fyrir auglýsingagerð í tólfta sinn
MARKAÐSSTJÓRI Morgunblaðsins, Mar-
grét Kr. Sigurðardóttir, afhendir verðlaunin
fyrir athyglisverðustu dagblaðaauglýsing-
una sem Morgunblaðið gaf. Við verðiaunun-
um tóku Gréta Guðmundsdóttir frá auglýs-
ingastofunni Nonna og Manna og Ólafur
Ólafsson og Eyþór Einar Sigurgeirsson frá ís-
lenskum lyfjaframleiðendum. A myndinni
Morgunblaðið/Arni Sæberg
til hægri kynna gestir sér Fréttavef og Fast-
eignavef Morgunblaðsins á bás blaðsins á ís-
lenska markaðsdeginum sem haldinn var í
gær.
Á fimmta hundrað auglýs-
ingar kepptu um 11 verðlaun
VERÐLAUN fyrir athyglisverðustu
auglýsingu ársins voru afhent í gær
en keppnin fór nú fram í tólfta sinn.
ÍMARK - félag íslensks markaðs-
fólks - stendur fyi'ir henni og voru
veitt verðlaun í 11 flokkum auglýs-
inga. AIls bárust 426 auglýsingar og
hafa þær aldrei verið fleiri.
Alls bárust 62 auglýsingar í
flokknum kvikmyndaðar auglýsingar
og hlaut auglýsing Eimskips verð-
laun í þeim flokki en hana unnu
Hvíta húsið og Hugsjón. Athyglis-
verðasta útvarpsauglýsingin er
„Hvatningarorðin" sem Gott fólk
framleiddi fyrii' Lánasýslu ríkisins
og „Þessi stíll hindrar samdrátt"
þótti athyglisverðasta dagblaðaaug-
lýsingin. Hana framleiddi auglýs-
ingastofan Nonni og Manni fyrir ís-
lenska lyfjaf'ramleiðendur og Sam-
tök iðnaðarins en alls bárust 84 dag-
blaðaauglýsingar.
I annað sinn voru nú afhent verð-
laun fyrir athyglisverðasta vef ársins
og var það í ár vefur Toyota sem
Intranet framleiddi fyrir Toyota-um-
boðið, P. Samúelsson. I flokkinn
tímaritaauglýsingar bárust 36 til-
nefningar og þótti „Rakvélarblað“
athyglisverðust en hana framleiddi
Hvíta húsið fyrir DV og Frjálsa fjöl-
miðlun.
Fyrir umhverfísgrafík fékk aug-
lýsingin „Nýtt afl“ verðlaun en hana
framleiddi Mátturinn og dýrðin fyrir
Nota Bene hf. Fyrir vöru- og firma-
merki fékk Flugfélag íslands verð-
laun en það var AUK sem hannaði.
Athyglisverðasti markpósturinn var
„Heimsmet í púsli“ sem Mátturinn
og dýrðin framleiddi fyrir IKEA-
Miklatorg hf., „Útboðsdagatal" sem
Gott fólk vann fyrir Lánasýslu ríkis-
ins fékk verðlaun fyrir kynningar-
efni og sigurvegarinn í flokki auglýs-
ingaherferða var „Sumarflöskur“
sem Mátturinn og dýrðin framleiddi
fyrir Vífílfell hf. Að lokum má nefna
óvenjulegustu auglýsinguna sem var
kjörin „Langbylgja Ríldsútvarpsins“
en hana framleiddi P&Ó.
Landlæknir leggur til að
heilsugæslulæknir verði sviptur leyfí
Talinn hafa
brotið læknalög
EMBÆTTI landlæknis sendi í gær
heilbrigðisráðherra tillögu um að
heilsugæslulæknir á höfuðborgar-
svæðinu verði sviptur lækningaleyfi
vegna óhæfu í læknisverki, sem sé
alvarlegt brot á læknalögum frá
1988. Málið tengist ásökunum konu
sem var sjúklingur læknisins á
hendur honum en læknirinn hefur
verið í leyfi frá störfum að undan-
fórnu.
Embætti landlæknis hefur rann-
sakað þær ásakanir seinustu vikur
og meðal annars rætt við umrædd-
an lækni vegna ásakana konunnar
um að hann hafi nauðgað henni.
Hún hefur lagt fram kæru til lög-
reglu vegna málsins og hefur lækn-
irinn játað að hafa átt mök við kon-
una en það hafi verið með hennar
vilja. „Læknisverkinu lauk á þann
veg að það er óhæfa í læknisverki,"
segir Olafur Ólafsson landlæknir.
Ráðuneytið hefur tillögu landlækn-
is til skoðunar og veitir lækninum
rétt til andmæla til næsta miðviku-
dags, 25. febrúar.
„Óhæfulegt athæfi“
Tillaga embættis landlæknis
byggist á 27. og 28. grein læknalag-
anna að sögn Sólveigar Guðmunds-
dóttur, lögfræðings ráðuneytisins,
þar sem segir m.a. að læknir sem
brjóti gegn ákvæðum laganna megi
svipta lækningaleyfi þó að ekki telj-
ist sannað að brotið hafi valdið tjóni
sé það þess eðlis að það verði að
teljast honum sérstaklega ósam-
boðið. „Landlæknir metur það svo
og rökstyður í tillögu sinni að þarna
hafi verið um að ræða „óhæfulegt
athæfi“,“ segir Sólveig.
Þá er tilgreint í lögunum að
landlækni beri að áminna lækni
sem hann verði var við að vanræki
skyldur sínar, fari út fyrir verksvið
sitt eða brjóti í bága við fyrirmæli
heilbrigðislaga landsins. Komi
áminning ekki að haldi eða sé um
að ræða óhæfu í læknisstörfum
beri landlækni að skýra ráðherra
frá málinu og gera tillögu um hvað
gera skuli. Geti þá ráðherra úr-
skurðað viðkomandi skuli sviptur
lækningaleyfi að fullu eða tíma-
bundið, en skjóta megi þeim úr-
skurði til dómstóla.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur embætti lögreglu-
stjóra í Reykjavík rannsakað málið
eftir að konan lagði fram kæru á
hendur lækninum um miðjan janú-
ar. Rannsókn mun vera vel á veg
komin en beðið er eftir niðurstöðu
lyfjamælingar.
9 sviptir frá 1976
Þá svipti heilbrigðisráðuneytið
fyrir skömmu Esra Pétursson
læknaleyfi að tillögu landlæknis
vegna alvarlegs brots á iæknalög-
um þegar hann birti sjúkrasögu lát-
ins sjúklings, sem var í meðferð hjá
honum, í bókinni Sálumessa synd-
ara. Esra hafði skilað inn leyfi sínu
á seinasta ári en samkvæmt upplýs-
ingum frá heilbrigðisráðuneytinu
getur læknir sem leggur inn leyfi
sitt að eigin frumkvæði sótt það aft-
ur komi ekki til sviptingar af hálfu
ráðuneytisins.
Ólafur segir að alls hafi níu lækn-
ar verið sviptir lækningaleyfi frá
árinu 1976.
Sértilboð til
Kanarí
17. mars
frá kr.
49.895
Við höfum nú tryggt okkur viðbótargistingu á Vista Dorrada, einum vinsælustu sináhýsum okkar á Kanarí á hreint
frábæru verði. Öll með einu svefnherbergi, stofu, eldhúsi, baði, síma og verönd fyrir framan hvert hús. Fallegur
garður, sundlaug, veitingastaður, móttaka, íþróttaðstaða og vagn gengur yfir daginn frá hótelinu niður á strönd.
Beint flug með nýjum Boeing 757 vélum án millilendingar og þú nýtur öruggrar þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Verd frá kr.
49.895
2 vikur, hjón með 1 barn, 2-12 ára,
Vista Dorada smáhýsi, 17. mars.
Verð frá kr.
54.760
2 vikur, 17. mars, m.v. 2 í smáhýsi,
Vista Dorada.
Viðbótarvika:
Kr. 12.000 pr. mann m.v. 2 f smáhýsi.
Innifalið í verði flug, gisting,
ferðir til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn.
Austurstræti 17, Sími. 562 4600