Morgunblaðið - 21.02.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998 25
Morgunblaðið/Golli
Bolla
bolla
ÞAÐ verða líklega bakaðar bollur á
mörgum heimilum í dag eða á
morgun, en bolludagurinn er á
mánudaginn. Flestir eiga uppskrift
að sígildum vatnsdeigsbollum og í
gær, föstudag, birtist í Morgunblað-
inu uppskrift að hefðbundnum ger-
bollum.
Þeir sem vilja á hinn bóginn
breyta til og baka óhefðbundnar
bollur geta t.d. prófað að baka þess-
ar kardimommubollur eða ávaxta-
bollur. Uppskriftirnar eru fengnar
úr Nýjum eftirlætisréttum Nýrra
eftirlætisrétta sem Vaka-Helgafell
gefur út.
Saltkjöt
o g baunir
HANN Þórarinn Guð-
mundsson, matreiðslumeist-
ari hjá Veislusmiðjunni, er þegar
farinn að undirbúa sprengidag
en það er á næsta þriðjudag sem
fólk borðar yfir sig af saltkjöti
og baunum.
„Fyrir mörgum árum tíðkaðist
að nota saltpétur við vinnslu salt-
kjötsins en saltpétur var síðan
bannaður vegna litarefna sem
áttu að gera kjötið fallega rautt.
í staðinn var farið að nota nítrit
saltblöndu við vinnslu kjötvara
og þ.á. m. saltkjöts."
Þórarinn segist ekki vita til
að hægt sé að kaupa nítritsalt í
matvöruverslunum á höfuð-
borgarsvæðinu en segir það
fást í kaupfélögum úti á landi.
„Hér á höfuðborgarsvæðinu
kaupir fólk saltkjötið tilbúið en
bændur salta gjarnan sitt eigið
kjöt.“
- Hvernig bera þeir lesendur
sig að sem vilja salta eigið lamba-
kjöt?
„ Við söltun
á fersku eða
þiðnuðu kjöti
er notaður
14% saltpæk-
ill. Vatn er
sett í ílát og
nítritsaltið
hrært út í
vatnið. Salt-
pækilsmælir
mælir pækil-
inn síðan upp
í 14%.“
Þegar Þór-
arinn var að
læra matreiðslu voru ekki til
saltpækilsmælar. „Þá var notuð
sú aðferð að blanda saman grófu
salti, saltpétri og köldu vatni. Til
að kanna hvort saltmagnið væri í
réttum hlutföllum var hrá
kartafia sett í vatnið. Ef hún
flaut var kjötið sett í löginn. Ef
saltmagnið var ekki rétt sökk
hráa kartaflan."
Hann segir það taka þijá daga
Morgunblaðið/Júlíus
ÞORARINN Guðmundsson mat-
reiðslumeistari hjá Veislu-
smiðjunni.
að gera gott saltkjöt ef það er
þiðið. Ef á hinsvegar að salta
frosið lambakjöt er pækillinn
hafður 16% þar sem lögurinn
þynnist með vatni úr kjötinu þeg-
ar það þiðnar. Það tekur einum
degi lengur að salta frosið kjöt.
Saltkjöt og baunir
Þórarinn féllst fúslega á að
gefa uppskrift að saltkjöti og
baunum. Uppskriftin hentar fjög-
urra manna fjölskyldu.
1 kg gular baunir (sem eru búnar að
_________liggja í bleyti i sólarhring)__
_____________'A hvítkálshaus____________
_________________1 rófa_________________
_____________4-5 gulrætur_______________
1/2 laukur
eitt búnt af ferskri steinselju
_________250 g beikonsneiðar____________
3 teningar Maggi kjötkraftur (ef þarf)
1 siðubiti______________
1,5 kg saltkjöt (400 g af saltkjöti á
mann með beini)
Sjóðið baunir í um klukku-
stund og hrærið vel í pottinum af
og til svo baunirnar brenni ekki
við. Sjóðið beikon og síðubita
með baununum. Þegar baunirnar
eru orðnar maukaðar setjið þá
grænmeti út í, sem búið er að
forsjóða. Saltkjötið sjálft þarf um
45 minútna suðu. Smakkið súp-
una til og setjið út í hana græn-
metissoðið og hluta af saltkjöts-
soðinu. Þórarinn segir að það sé
alls ekki víst að þurfi að nota
kjötkraftinn því salt fáist úr salt-
kjötssoði og grænmetissoði. Þeg-
ar súpan er tilbúin er ferskri
saxaðri steinselju bætt í pottinn.
.. ■■■BnHgHHMHMBI
Kardimommubollur
__________Um 8 dl hveiti_____
11,8 g þurrger (1 bréf)
3 msk. sykur
'/2 tsk. kardimommukrydd
___________1 tsk. salt_______
2 dl mjólk
___________75 g smjör________
_____________1 egg___________
egg til penslunar
Ávaxtabollur
sama deig og í
kardimommubollum
100 g rúsínur
50 rauð kokkteilber
50 g heslihnetukjarnar
bm m m. tmmmmm
Glassúr og fylling
100 g flórsykur og
1 msk. vatn
_____________eða_________
50 g súkkulaði
Sama aðferð á hér við um kar-
dimommu- og ávaxtabollur. Blandið
hluta af hveiti, þurrgeri, sykri, kar-
dimommukryddi og salti í skál.
Velgið mjóMna og setjið smjörið út
í (það þarf ekki að bráðna alveg),
hafið um 40°C heitt og hellið út í
hveitiblönduna. Setjið eggið út í og
hrærið vel. Ef verið er að baka
ávaxtabollurnar er rúsínum, söxuð-
um kokkteilberjum og söxuðum
heslihnetum bætt í deigið.
Bætið við hveiti og hnoðið. Setjið
deigið í skál og breiðið plastfilmu
yfir og látið það hefast á volgum
stað í 30 mínútur.
Mótið 12 bollur, raðið þeim á bök-
unarpappír og látið hefast í tíu mínút-
ur. Penslið með léttþeyttu eggi og
bakið í 200°C heitum ofni í 12 mínút-
ui'. Kælið bollumar og skerið í tvennt.
Glassúr og fyiling:
Vætið í flórsykrinum með vatni.
Bræðið súkkulaðið. Smyrjið glassúr
eða súkkulaði á bollurnar. Fyllið
þær með þeyttum rjóma.
Tilboð
Jau.-sun. ffcb
1 filefni konudagsins býður Hagkaup
vinsœlusfu dömuilmvötnin á iœgra verði
en í Fríhöfninni.
x* m«mqi
> CooiwafwerWoman 50ml 2*3r5rkr. T5?Okr. 2.650 kr. 1
» Jean Paul Gaulfier 50ml 4.C25 kr. 3.390 kr. 3.400 kr. 1
> CKOnelOO ml 3,639‘kr. 2.590 kr. 2.650 kr.
» CK be edf ÍOO ml 2^659kr. 2.Ö90 kr. 2.700 kr.
> Diesel 75 ml SrGra kr. 1.795 kr. 1.810 kr.
► All abouf Ive edp 40 ml 2t3r9~kr. 1.945 kr. 1.990 kr.
» 212 Caroiina Herrera 30ml 2c345rkr. 1.945 kr. 1.990 kr.
» Lancomé Tresor 50ml Z,5?9kr. 2.Ö90 kr. 2.760 kr.
> Scarf Taomina 30ml LP55 kr. 1.Ó90 kr. 1.740 kr.
> Tommy Girl 50 ml 2^535-kr. 1.790 kr. 1.820 kr. i
> Efemify 50 mi 4.5Ó5 kr. 3.290 kr. 3.390 kr.
p Paloma Picasso 20ml kr. 1.785 kr. 1.790 kr.
♦Samkvœmt verblista Fnhafnarinnar.
Gildir laugardag og
sunnudag 21. og 22. febrúar.
Afh. Tilbo&in eru einungis f
snyrfivöruverslunum
Hagkaups í Kringiunni,
Skcifunni og Akureyri.
- furirflcilshflduHa-