Morgunblaðið - 21.02.1998, Page 31
MORGUNB LAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998 31
MARGMIÐLUN
Sérstæð kvikmyndaslóð
KVIKMYNDAFYRIRTÆKI hafa
flest komið sér fyrir á vefnum með
upplýsingar um kvikmyndir sínar
og kynningar. Einstaklingar og fjöl-
miðlar hafa líka reynt að hasla sér
völl á netinu með umfjöllun um
kvikmyndir, umsagnir og almennar
frásagnir. Það er þó í eðli netsins að
þar eru allir jafnir, allh- með sömu
dreifíngu og aðgang að lesendum.
Þannig er ein vinsælasta heimasíða
um kvikmyndir á netinu rekin af
áhugamanni sem er með fyrirtækið,
ef fyrirtæki skyldi kalla, á tölvunni
heima.
Ain’t it Cool News,
http://www.aint-it-cool-news.com/,
heitir vefslóð sem Harry Knowles,
Bandaríkjamaður á þn'tugsaldri,
rekur heiman frá sér og hefur gert í
um það bil ár. Hann hefur ýmis
sambönd í kvikmyndaiðnaðinum og
hefur brotið óskráðar reglur um
hvað megi birta og hvað ekki, en
kvikmyndaframleiðendur reyna að
stýra öllum fréttaflutningi af kvik-
myndum, ekki síst til að hann falli
að markaðssetningu viðkomandi
kvikmyndar. Knowles komst fyrst
upp á kant við Hollywood-veldið
þegar hann sagði fyrstur manna frá
óánægju áhorfenda á forsýningum
með Batman & Robin, sem telst ein
misheppnaðasta mynd síðustu ára,
að mati Knowles, en frammámenn
hjá Warner, framleiðanda myndar-
innar, vilja kenna neikvæðri um-
fjöllun Knowles um að myndin hafi
ekki gengið sem skyldi í Bandaríkj-
unum. Enn lenti Knowles í vand-
ræðum þegar Sony-Columbia hót-
aði honum lögsókn fyrir að birta á
vefsíðu sinni myndir af ófreskjunum
í Starship Troopers löngu áður en
myndin var frumsýnd.
Knowles segist hafa upplýsingar
sínar frá hundruðum manna sem
starfi innan Hollywood sem leki til
sín fréttum ýmist til að koma höggi
á keppinauta eða samherja, en
einnig berist honum mikið af ábend-
ingum frá þeim sem heimsækja síðu
hans á hverjum degi, en þeir eru
nærfellt 300.000.
Kvikmyndadómar Knowles eru
nokkuð frábrugðnir dómum ann-
arra miðla, því hann skrifar mikið
um hvernig sér hafí liðið daginn
sem hann sá myndina, hverju hann
hafi átt von á, hvað hann vissi um
myndina fyrirfram. Þannig hefst
dómur hans um Titanic, sem hann á
ekki nógu sterk orð til að lýsa, á frá-
sögn af því hvernig hann frétti af
myndinni fyrir tveimur áram, hvaða
útgáfur af handritinu hann hafi les-
ið og hvernig umfjöllum um mynd-
ina hafi þróast upp í að vera dóms-
dagsspádómar áður en hún var
frumsýnd.
HARRY Knowles
er íturvaxinn í
meira lagi og
hvarvetna er að
finna myndir af
honum á síðunni;
þannig er teikni-
myndin eins kon-
ar sjálfsmynd.
SyQuest
skorar á
Iomega
SKAMMT ER síðan Iomegagagna-
geymslufyrirtækið nánast lagði
undir sig markaðinn fyrir lausa
harða diska. Iomega, sem hafði
verið umsvifamikið í sölu á segul-
bandsafritunartdlum og færanleg-
um hörðum diskum lét á sínum
tfma f minni pokann fyrir SyQuest-
fyrirtækinu, en svaraði síðan með
nýrri gerð diska, Zip-diska, sem
voru minni um sig og ódýrari, auk-
inheldur sem drifin sem þurfti til
að lesa þá voru handhæg í notkun
og ódýr. Stóri bróðir Zip-disksins
er Jaz-diskurinn sem tekur 1 Gb af
gögnum.
SparQ SyQuest
Fyrir skömrnu kynnti SyQuest
nýja gerð drifs sem fyrirtækið
kallar SparQ og er stefnt til höf-
uðs Jazdrifum Iomega. SparQdisk-
ar rúma 1 Gb af gögnum, líkt og
Iomegadiskarnir, en kosta talsvert
minna, aukinheldur sem drifið
kostar mun minna, samkvæmt
upplýsinguni á heimasfðu fyrir-
tækjanna er munurinn um 7.000
kr. á innbyggðu drifi en 14.000 kr.
á utanáliggjandi drifi. Samkvæmt
upplýsingum frá Iomega hyggst
fyrirtækið svara samkeppninni
með verulegri verðlækkun og
stefnir því í verðstríð. Þannig
munu diskarnir í drifin tvö kosta
það sama eða nánast það sama,
sérstaklega eftir að Iomega lækk-
aði til muna verð á diskum í
þriggja diska pakkningum.
iiPÚJIT LiD S'JAiiAU
SPIIRT:
Mér datt í hug að þið gætuð
svarað þessari spurningu sem
brennur núna á okkur feðgunum
(hann er 13 ára). Hvort eigum við
að kaupa Play-Station eða Nin-
tendo 64? Er svipað úrval af leikj-
um fyrir þessar vélar? Er grafíkin
svipuð? Hvað þarf annað að hafa í
huga?
Einar Reynir Pálsson,
rp@mmedia.is
SVAR:
Ekki er gott að gera upp á milli
þessara tölva, því hvor hefur nokk-
uð til síns ágætis. PlayStation nýt-
ur þess að vera útbreiddari og með
töluvert meira úrval af leikjum, en
á móti kemur að Nintendo 64 er
tvímælalaust með tækni framtíðar-
innar, 64 bita örgjörva, og mun öfl-
ugari og hraðvirkari hvað vélbún-
að varðar en PlayStation-tölvan.
Bestu leikir fyrir Nintendo 64, til
að mynda Mario 64 og Goldeneye,
eru taldir með bestu leikjum sinn-
ar tegundar, en leikir fyrir Nin-
tendo 64 eru almennt nokkuð dýr-
ari en fyrir PlayStation. Mun fjöl-
breyttara úrval er til af PlaySta-
tion-leikjum og verður svo um
hríð.
Líklega er best að taka ákvörðun
út frá því hvernig leikjatölvur fé-
lagarnir eiga, því miklu skiptir að
geta skipst á leikjum og ekki gott
að vera sá eini í hverfinu sem á
tölvu einhverrar gerðar.
SPURT:
Ég hef verið að reyna að komast í
gegnum Dungeon Keeper og er
kominn þó nokkuð langt, en kemst
ekki í gegTium eitt borð.
Mér datt í hug að þú gætir
hjálpað mér í gegnum þennan leik
með því að gefa mér upplýsingar
um svindl, hvort það sé eitthvað á
netinu í sambandi við það, o.fl. í
þeim dúr.
Með fyrirfram þökk,
Smári.
SVAR:
Ekki er beinlínis um svindl eða
lausnir í Dungeon Keeper en þó má
beita nokkurskonar göldrum. Við
altarið má fórna ýmsum dýi-um og
verum og með því að velja þau af
kostgæfni verður léttara að komast
í gegnum leikinn.
Ef fórnað er nokkrum púkum,
Imps, verða þeir mun ódýrari.
Ef fórnað er flugu og köngurló
fæst galdrakarl, Warlock.
Ef fórnað er bjöllu og köngurló
fæst leðurdís, Dark Mistress.
Ef fórnað er þremur köngurlóm
fæst galldjöfsi, Bile Demon.
Ef fórnað er draug deyja allar
hænurnar.
Ef fórnað er vampíru veikjast all-
ar ófreskjurnar.
Ef fórnað er tveimur galldjöfsum
breytast allar ófreskjurnar í hæn-
ur.
Ef fórnað er hyrndum sláttu-
manni, Horned Reaper, reiðast all-
ar ófreskjurnar.
Ef fórnað er leðurdís, galldjöfsa
og trölli, Troll, fæst hyrndur sláttu-
maður.
Ekki má fórna kvikdauðum eða
hænum því þá reiðast goðin.
Aukaborð má finna í borðum 8, 9,
14, 15 og 17, en einnig koma sum
borð aðeins fram sé tungl fullt, en
það ræður forritið af klukku tölv-
unnar. Henni má breyta eftir alm-
anaki og þannig plata forritið.
Þegar þú hefur svo lokið öllum
borðunum getur þú leikið netborðin
með tölvuna sem andstæðing með
því að slá keeper95 -lplayer eða
keeper -lplayer í skráasafninu sem
leikurinn er í.
SPURT:
Gætuð þið vinsamlegast sagt
mér leyniorðin í „Pandemonium
1“ ef þau eru einhver.
Ingi Már Úlfarsson.
SVAR:
Ekki kemur fram í spurningunni
hvoi-t átt sé við PC-útgáfu
Pandemonium eða PlayStation.
Fyrst koma því PC-leyniorðin: Með
því að slá þau inn má hlaupa á milli
borða:
1. borð: OMAAEBIA, 2.
NAABEBAI, 3. ENAIAKBI, 4.
PEIAIBBA, 5. KFCACICE, 6.
AFICBAIM, 7. NGIAIBJJ, 8.
EHIIAKAC, 9. NIIAIBKB, 10.
AHICBAJE, 11. LOCACMGI, 12.
KACACIIM, 13. OAIAIDLB, 14.
ELIIAODC, 5. OEIAIELJ, 16.
OGIAJEEB, 17. AHMCBCMD,
18. AJECBDEF.
í Pandemonium fyrir PlaySta-
tion eru nokkuð öðruvísi leyniorð.
Sláðu inn EVILDEAD og óvin-
irnir verða ósigi-andi, CORONARY
til að fá fullt af hjörtum,
THETHING til að breytast, haltu
niðri L2 og þrýstu á hring til að
breytast og L2 og X til að breytast
til baka, BODYSWAP til að skipta
um persónu, þrýstu á þríhyrning-
inn til að skipta um persónu,
BORNFREE til að fara í hvaða
borð sem er, OTTOFIRE ótak-
markað af vopnum, VITAMINS
gefa 31 líf og CASHDASH gefur
aukaskjá þegar lokið er við borð.
Spurt og svarað
Lesendum Morgunblaðsins gefst
kostur á að leita svara við spurn-
ingum um margmiðlun og tölvumál.
Spurningar skal senda með tölvu-
pósti til spurt@mbl.is, eða í hefð-
bundnum pósti til Margmiðlunar-
síðu Morgunblaðsins, Kringlunni 1,
103 Reykjavík.
Pakistanskar vörur
v/ftutnings
Allt aft 50% afsláttur
Háholti 14, Mosfellsbæ
(annar elgandl, ðiur Karatchl, Annúla)
Síðir leðurfrakkar, jakkar,
koparstyttur, kínasilki,
kasmír ullarmottur, reiðskálmar,
útskornar gjafavörur.
Opið virka daga frá kl.13-18.
Opið laugardag frá kl.12-16.
Verið velkomin!
Símar 566 8280 og 566 6898 (á kvöldin).
Reiki-y heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið
HvaSfápkmkendurút^
irslíkumnátnskeiim.
^Læ ra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og /eða koma sér í orkulegt og tilfmningalegt jafnvægi.
^Læ ra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan
hátt, í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
#Læ ra að hjálpa öðrum til þess sama.
Ndmskeið í Reykjavík
28feb.-l. mars 1. stig helgamámskei<5
10.-12. mars 1. stig kvöldnámskeið
14,—15. mars 2. stig helgamámskeið
17.-20. tnars 2. stig kvöldnámskeið
Lausir einkatímar
í heilun og ráðgjöf.
Kem út á land ef úskað er
Upplýsingar og skrdning í síma 553 3934 kl. 10-12 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
Hefur tiu prófað að tippa á netinu?