Morgunblaðið - 21.02.1998, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998 37
AÐSENDAR GREINAR
Hvetja skal til vottunar
vistvænna fískveiða
AÐ undanförnu hef-
ur átt sér stað nokkur
umræða um svokallað-
ar vistvænar fiskveiðar.
Aform - átaksverkefni
sem til var stofnað á Al-
þingi árið 1995 hefur á
starfstíma sínum látið
til sín taka málefni er
varða vistvænan og líf-
rænan landbúnað og
sjávarútveg og einnig
kynnt sér vottun mat-
væla í Evrópu og Am-
eríku. Ljóst er að mikil-
vægi vottunar matvæla
eykst með hverju ári og
er nú svo komið að
vottuð lífræn matvæli
njóta stöðugt meiri virðingar með-
al neytenda sem telja að mikilvægi
dýravemdar, náttúruvemdar, holl-
ustu og hreinna framleiðsluhátta
án notkunar aðskotaefna og sjálf-
bærir framleiðsluhættir skipti
miklu máli. En það geta ekki allir
framleiðendur uppfyllt strangar
kröfur um lífræna þúskaparhætti
og sem dæmi má nefna að hér á
landi er mesti þröskuldurinn sá að
notkun tilbúins áburðar er ekki
leyfð. Þess ber þó að geta að notk-
un tilbúins áburðar hér á landi er
aðeins brot af því sem annars stað-
ar þekkist. íslenskur landbúnaður
getur hins vegar státað af því að
vera stundaður í hreinu umhverfi
og án notkunar óæskilegra að-
skotaefna. Á næstunni mun liggja
fyrir endurskoðuð reglugerð um
vottun vistvænna afurða þar sem
tekið er tillit til hreinleika, vist-
vænna búskaparhátta og unnt að
rekja uppmna afurðanna frá bónda
að borði eða einsog
einhver hefur sagt frá
„haga í maga“. Upp-
mnavottun verður
væntanlega gerð að
skilyrði fyrir útflutn-
ingi matvæla í Evrópu
og Ameríku á alíra
næstu ámm.
Hvað eru vistvænar
fískveiðar?
Samkvæmt reglu-
gerð um lífræna bú-
skaparhætti alþjóða-
samtaka lífrænna
framleiðenda og
bænda er sérstakur
kafli um villibráð. Þar er
einkum lögð á það áhersla að ekki
skuli gengið svo nærri náttúruleg-
um auðlindum jarðar að af því stafi
sú hætta að þeim verði útrýmt.
Áform hefur unnið að því í sam-
vinnu við virta vottunaraðila líf-
rænna afurða austanhafs og vestan
að kanna hvaða möguleika íslend-
ingar hefðu til að votta sjávaraf-
urðir samkvæmt lögum og reglu-
gerðum sem þegar era í gildi hér á
landi um veiðar, vinnslu og með-
ferð afurðanna. Talið er nokkuð
víst að núverandi kerfi standist
þær kröfur sem almennt em gerð-
ar til vistvænnar framleiðslu. Þá
hefur Áform látið sig varða vist-
vænar vöramerkingar á fiski og
reynt að koma viðhorfum í land-
búnaði áleiðis til sjávarútvegsins.
Undirstaðan fyrir vistvænan land-
búnað er vemdun frjósemi jarð-
vegsins og viðhald á eðlilegri
hringrás náttúrannar. Stjórn
Áfroms telur að þessi markmið
megi heimfæra upp á fiskveiðar að
miklu leyti. Tilgangur kvótakerfis-
ins er sá að tryggja að veiðar séu
stundaðar í sátt við umhverfið og
hafa lög og reglugerðir um vinnslu
og veiðar hér á landi vakið mikla
athygli þar sem þær hafa verið
kynntar á vettvangi lífrænna fram-
leiðenda.
Vottun sjávarafurða
Síðar á þessu ári er líklegt að
stofnunin Marine Stewartship
Krafa neytenda um
vottuð hrein og holl
matvæli, segir Baldvin
Jónsson, á eftir að
aukast á komandi
árum.
Counsil (MSC) muni votta sjávar-
afurðir. MSC er samvinnuverkefni
matvælarisans Unilever og World
Wide Fund for Nature (WWF).
Fulltrúar þessara aðila komu hing-
að til lands síðastUðið vor og kom
fram í viðtölum við þá í fjölmiðlum
að fiskveiðar Islendinga væra til
mikillar fyrirmyndar enda væri af-
koma landsins byggð á þeim. Fóra
þeir fögram orðum um veiðar og
vinnslu og töldu að vandi sjávarút-
vegs í heiminum væri ekki jafnmik-
iU og tahð er ef hann væri stundað-
ur með sama hætti og hér á landi.
Með þetta í farteskinu er því ekk-
ert í raun því til fyrirstöðu að hefja
trúverðuga vottun vistvænna ís-
lenskra sjávarafurða þar sem veið-
arnar eru stundaðar í sátt við um-
hverfið á sjálfbæram forsendum.
Trúverðugleikinn fæst einungis
með því að opinberir aðilar veiti
skoðunaraðilum löggildingu sam-
kvæmt alþjóðlegum reglugerðum.
MSC er ekki opinber stofnun. Uni-
lever er fyrirtæki sem á talsvert
langt í land með að vera talið um-
hverfisvænt en nýtur nú velvildar
WWF með samstarfinu um MSC.
WWF stendur fyrir auglýsingaher-
ferð í sjónvarpsstöðvum í Evrópu
þar sem almenningur er hvattur til
að kaupa ekki fisk vegna þess að
fiskur sé í útrýmingarhættu. Hér
er á ferðinni slík ófrægingarher-
ferð gegn fiskveiðiþjóðum að með
ólíkindum er. Hvernig ætlar WWF
að taka að sér í samvinnu við Uni-
lever að votta fisk á sama tíma og
þeir vinna gegn neyslu sjávaraf-
urða? Það er ekki trúverðug vottun
sem krefst vottunargjalds sem síð-
an rennur til sérhagsmuna ein-
stakra umhvefissamtaka.
Matvælalandið ísland
Sjávarútvegur og landbúnaður
era höfuðatvinnugreinar þessa
lands og hafa verið stundaðar frá
landnámi. Lega landsins, stutt
gróðurtímabil, dreifð byggð og
hrein náttúra gefa íslenskri mat-
vælaframleiðslu nú enn betra tæki-
færi en nokkra sinni fyrr til að
selja hreinar afurðir fyrir sann-
gjarnt verð. Við munum aldrei geta
keppt á matvælamörkuðum heims-
ins á grandvelli lágs verðs og mik-
ils magns, heldur einungis á grand-
velli lítils magns fyrir sanngjamt
verð. Krafa neytenda um vottuð
hrein og holl matvæli á eftir að
Baldvin Jónsson
aukast á komandi árum. Hlutdeild
vistvænna afurða, að ekki sé talað
um lífrænt framleiddra, fer stöðugt
vaxandi og því mikilvægt að við
hefjum nú strangt eftirlit með mat- *
vælaframleiðslunni í samræmi við
kröfur markaðanna og vottun á
trúverðugan hátt um uppruna og
vinnslu.
Það er áríðandi að sjávarútvegur
og landbúnaður vinni saman. Það
myndi til dæmis verða landbúnað-
inum til framdráttar ef sjómenn
sæju sér hag í því að henda ekki
úrgangi í hafið eftir slægingu.
Flytja mætti þennan úrgang í land
og nýta í landbúnaði og hugsanlega
iðnaði. Þannig er hlúð að hringrás í
fæðukeðjunni.
Nú era starfandi tvær löggiltar
vottunarstofur í lífrænum landbún-
aði, væntanlega verður búnaðar-
samböndunum falin vottun vist-
væns landbúnaðar. Skynsamlegt
væri að Fiskifélag Islands tæki að
sér útgáfu heimilda til notkunar
umhverfismerkis sjávarafurða
samkvæmt reglugerð í samráði við
Fiskistofu og skoðunarstofur sem
vottuðu „Organic Ocean Prod-
ucts“*. Með því móti getur Fisldfé-
lagið staðið að kynningu vottunar-
innar og umhverfisstefnu sjávarút-
vegsins í heild sinni og komið henni
á framfæri við hagsmunaaðila inn-
an sjávarútvegsins. *-
Flestar nágrannaþjóðir okkar
hafa nú tekið upp stefnumótun um
sjálfbæra þróun í anda sáttmála
Sameinuðu þjóðanna síðan 1992,
„Dagskrá 21“. Þar er horft til sjálf-
bærrar þróunar á flestum sviðum
umhverfisins. Metnaðarfull stefna
ríkisstjórnar Islands í umhverfis-
málum liggur fyrir og því ekki eftir
neinu að bíða. Islendingar ráða yfir
nægilegri getu, hugsjón og gæða-
vitund til þess að taka svo mikil-
vægt skref sem það er að framleiða ^
einungis vottuð vistvæn matvæli í
sátt við náttúrana.
* Orðið organic er það sem hér á landi
hefiir verið þýtt lífrænt en ecological sem
vistvænt
Höfundur er vcrkefnisstjóri Áforms
- átaksverkefnis.
Nýsköpunarsj óður
atvinnulífsins
UM SÍÐUSTU áramót urðu
þáttaskil á íslenskum fjármagns-
markaði. Gömlu ríkisviðskiptabönk-
unum Landsbanka Islands og Bún-
aðarbanka Islands var breytt í hluta-
félög og fjórir fjárfestingarlánasjóðir
sameinuðu starfsemi sína í Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins hf. og Ný-
sköpunarsjóði atvinnulífsins. Þess-
um breytingum á íslenskum fjár-
magnsmarkaði voru strax í upphafi
sett skýr markmið:
í fyrsta lagi að draga úr umsvif-
um ríkisins í almennri fjármála-
starfsemi og leggja af ríkisábyrgðir.
í öðra lagi að brjóta niður þá
múra sem verið hafa á fjármagns-
markaðinum á milli einstakra at-
vinnugreina.
í þriðja lagi að greina á milli og
skýra ábyrgð þróunar- og áhættu-
fjármögnunar annars vegar og al-
mennrar fjármálastarfsemi hins
vegar.
I fjórða lagi að efla framboð
áhættufjármagns fyrir atvinnulífíð.
í fimmta lagi að ná fram hagræð-
ingu á fjármagnsmarkaðinum með
aukinni samkeppni, sem á að skila
sér í ódýrari og betri fjármálaþjón-
ustu fyrir atvinnulífið.
Starfssvið Nýsköpunarsjóðs
Auk starfrækslu tryggingadeild-
ar útflutningslána verður starfssvið
Nýsköpunarsjóðsins í meginatrið-
um tvíþætt:
Annars vegar þátttaka í arðvæn-
legum fjárfestingarverkefhum með
íslenskum og erlendum fyrirtækj-
um.
Hins vegar stuðningur
við forathuganir, vöra-
þróunar- og kynningar-
verkefni.
Starfar á fyrstu stig-
um fjárfestingar
Nýsköpunarsjóði er
fyrst og fremst ætlað að
starfa sem áhættufjár-
magnssjóður. í því felst
að hann leggur fram fjár-
magn í formi hlutafjár
eða lána með sambæri-
legum kjörum og hlutafé
hvað varðar áhættu og
arðsemisvon. í hlutafé-
lagaforminu er fólginn
mikill styrkur því það
gefur ramma um aðhald og eftirlit
með verkefnunum. Þess vegna er
eðlilegt að sjóðurinn taki þátt í félög-
um með kaupum á hlutafé.
Af þessu leiðir að þátttaka Ný-
sköpunarsjóðs í fjárfestingarverk-
efnum er ekki hefðbundin stofnlána-
starfsemi. Sjóðurinn beinir sjónum
sínum fyrst og fremst að áhættu-
meiri fjárfestingarverkefnum á
fyrstu stigum vaxtar, þ.e. á þeim
stigum þar sem hefðbundinn
áhættufjármagnssjóður starfar ekki.
Honum er því ekki ætlað að keppa
við aðra fjárfesta, sem nú þegar hafa
á farsælan hátt markað sér veiga-
mikið hlutverk á síðari stigum
áhættufjárfestinga, eins og t.d. Afl-
vaki, Þróunarfélagið, Burðarás og
Eignarhaldsfélag Alþýðubankans
hafa svo ágætlega gert.
Sjóðurinn mun jafnframt styðja
við vöraþóun og ýmiss
konar forathuganir og
hagkvæmiathuganir,
þar sem minni kröfur
era gerðar til beins
arðs eða endurgreiðslu
fjárframlaga, enda
þótt ætla megi að þau
geti leitt til arðsamra
fjárfestinga eða fram-
leiðslu síðar meir.
Nýsköpunarsjóður-
inn mun sinna vand-
aðri áhættufjárfest-
ingu á grandvelli
þeirra meginreglna
sem beitt hefur verið
með góðum árangri á
þróaðri mörkuðum en
okkar. Nýsköpunarsjóðurinn er
sem sagt sjóður sem fjárfestir á
faglegum granni þar sem arðsemis-
von er í takt við áhættu.
í umfjöllun Alþingis um fram-
varp um Nýsköpunarsjóð atvinnu-
lífsins og í þeim starfsreglum sem
nú hafa verið staðfestar kemur
skýrt fram að Nýsköpunarsjóði er
ætlað sérstakt hlutverk á íslenskum
fjármálamarkaði á frumstigum fjár-
festingar í íslenskum fyrirtækjum.
Það er síðan á ábyrgð stjórnenda
sjóðsins hvernig tekst til.
Múrum milli atvinnugreina
rutt úr vegi
Sú breyting sem nú hefur orðið á
rekstrarformi ríkisviðskiptabank-
anna og fjárfestingalánasjóðanna er
mér vissulega kærkomin. Jafnframt
er mér í mun að áfram verði haldið
Finnur
Ingólfsson
við að ryðja burtu þeim múram sem
enn era á milli atvinnugreinanna.
Hætta verður að meta alla hluti út
frá einangruðum sérhagsmunum
einstakra atvinnugreina. í stað þess
þurfum við öll að opna augu okkar
fyrir því að það er miklu meira sem
sameinar atvinnugreinarnar en skil-
ur þær að. Þetta hefur tekist vel í
þeim tilvikum þar sem reynt hefur á
þetta. Átak til atvinnusköpunar og
Samstarfsvettvangur sjávarútvegs
og iðnaðar era góð dæmi um hvern-
ig til hefur tekist.
Átak til atvinnusköpunar er sam-
starfsverkefni iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytisins, Iðnlánasjóðs og Iðn-
þróunarsjóðs, sem starfrækt hefur
verið síðastliðin tvö ár. Þótt aðstand-
endur þess samstarfs hafi átt rætur í
Mér er í mun að áfram
verði haldið við að
ryðja burtu þeim múr-
um, segir Finnur Ing-
ólfsson, sem enn eru á
milli atvinnugreinanna.
hefðbundnum iðnaði studdi það fyrst
og fremst lítil og meðalstór fyrirtæki
og nutu mörg fyrirtæki úr öðram
greinum, t.d. úr sjávarútvegi, ferða-
þjónustu og landbúnaði, góðs af því.
Nú era gömlu samstarfsaðilamir,
þ.e. sjóðir iðnaðarins, horfnir af sjón-
arsviðinu. Brýnt er að halda þessu
starfi áfram.
Nýsköpunarsjóður mun taka upp
merki þeirra og halda áfram því
uppbyggingarstafi sem þeir unnu
að og áttu vissulega sinn hlut í að
koma á fót. Hér er ég fyrst og
fremst að hugsa um mikilvæga
verkefnaflokka eins og Vöraþróun,
verkefni þar sem fyrirtæki hafa ver-
ið studd gegnum vöraþróunarferlið
allt frá hugmynd að markaðshæfri
vöra, Framkvæðiframkvæmd, sem
snúist hefur um sértæka ráðgjöf við
fyrirtæki á ýmsum sviðum, s.s.
stjórnun og markaðsmál, Snjall-
ræði, hugmyndasamkeppni fyrir
snjalla einstaklinga og Samstarfs-
vettvang sjávarútvegs og iðnaðar,
sem stutt hefur við þróun og gerð
ýmissa tækja og aðferða sem tengja
saman sjávarútveg og iðnað. Ailt
era þetta verkefni sem unnið hafa
sér traust og virðingu þeirra sem til
þekkja.
Endurskipulagning rannsókna-
stofnana næsta skref
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um nauðsyn þess að Nýsköpunai--
sjóður myndi sterk tengsl við rann-
sóknar- og þróunarumhverfið hér á
landi. Hins vegar er ekki síður mikil-
vægt að gott samstarf myndist við
atvinnuh'fið og samtök þeirra. Það
kemur bæði til af því að uppsprettu
nýsköpunar er gjaman að finna í
frjóum nýsköpunarjarðvegi stærri .
fyrirtækja og nauðsyn þess að fá
fagfjárfesta til samstarfs um fjár-
festingu á framstigi með öflugri
þáttöku í framtakssjóði Nýsköpun-
arsjóðs.
Það er trú mín og vissa að til-
koma Nýsköpunarsjóðs muni leiða
til efldrar nýsköpunar og aukinnar
sóknar og uppbyggingar íslensks
atvinnulífs, m.a. með erlendri sam-
vinnu. Það mun hvíla á herðum
stjórnar og starfsliðs sjóðsins að
búa svo um hnútana að það takist.
Ég lít svo á að Nýsköpunarsjóður
sé fyrsta skrefið í átt að breyttu ný- *-
sköpunaramhverfi hér á landi.
Óhætt er að segja að stofnun sjóðs-
ins sé mjög mikilvægt skref að þvl
marki. Næsta skref er hins vegar að
endurskipuleggja tækni- og rann-
sóknarstofnanir atvinnulífsins. Það
er verkefni næstu ára.
Höfundur er iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra.