Morgunblaðið - 21.02.1998, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Skátafélagið Vogabúar
í Grafarvogi 10 ára
Stofnun
SKÁTAFÉ LAGIÐ
Vogabúar í Grafarvogi
var stofnað 22. febrúar
1988 og er því 10 ára á
þessu ári. Aðalhvata-
maður að stofnun fé-
lagsins var Stefán Már
Guðmundsson, en stofn-
, un félagsins var Gilwell-
verkefni hans. Fyrsti fé-
lagsforingi Vogabúa var
Yngvinn Gunnlaugsson
og þegar litið er til baka
eru það þessir tveir aðil-
ar sem lögðu stærstu
steinana í grunninn að
þvi öfluga félagi sem er
starfandi í dag. Auðvit-
að kom fjöldi annarra aðila að starf-
inu á þessum tíu árum og þeir
skiptu líka sköpum. Fyrstu árin var
starfsemin í félagsmiðstöðinni
Fjörgyn í Foldaskóla og átti félagið
einstaklega gott samstarf við Arn-
finn Jónsson þáverandi skólastjóra
og Soffíu Pétursdóttur forstöðu-
mann félagsmiðstöðvarinnar.
Einnig fór starfsemi félagsins fram
um tíma í húsnæði skólagarða
Reykjavíkur.
Bygging skátamiðstöðvar
Strax á fyrstu árum félagsins
var farið að huga að staðsetningu
fyrir skátamiðstöð og var félaginu
síðan úthlutað lóð við Logafold 106.
Bygging skátamiðstöðvainnar tók
nokkur ár og hún var síðan vigð á
árinu 1994. Pessi glæsilega skáta-
9 miðstöð gjörbreytti starfsemi fé-
* iagsins og skátum fjölgaði mikið
hjá félaginu næstu árin. Nokkrir
aðilar veittu félaginu mikinn stuðn-
ing í þessum byggingarfram-
kvæmdum og má þar nefna fram-
lag Reykjavíkurborgar, aðstoð
Skátasambands Reykjavíkur,
rausnarlegt framlag Trésmiðju
Snorra Hjaltasonar og stuðning
Lionsklúbbsins Fjörgynjar í Graf-
arvogi, en félagar þar lögðu fram
mikla vinnu, gáfu öryggiskerfi,
flaggstengur fyrir framan húsið og
gengu frá lóðinni. Síðasta árið hef-
ur verið unnið að frágangi á lóð
skátamiðstöðvarinnar og búið er að
helluleggja stórt svæði, byggja
verönd og verið að koma fyrir
geymsluaðstöðu á lóðinni. í þessum
framkvæmdum og mörgum öðrum
verkefnum hefur Sigurður Rúnar
Sigurðsson verktaki í Hverafold
lagt fram bæði verkfæri, stærri
tæki og vinnu. Félagið færir hon-
um bestu þakkir fyrir hans fram-
lag.
Útilífsskóli
Á árinu 1994 eftir að
skátamiðstöðin var tek-
in í notkun var stofn-
settur útilífsskóli hjá
félaginu, sem hefur nú
verið starfræktur í
fjögur ár. Útilífsskóli
Vogabúa hefur eins og
félagið unnið sér sterka
stöðu í Grafarvogi og
námskeiðum hefur
fjölgað á hverju ári.
Síðasta sumar var fullt
á öllum námskeiðum,
en boðið er upp á hefð-
bundin útilífsnámskeið
fyrir 7-12 ára börn og á
haustin vikunámskeið allan daginn
fyrir unglinga á aldrinum 12-14 ára,
sem gefa réttindi til foringjastarfs
innan félagsins. Fyrsta árið stjóm-
aði Ólafur Valdín Halldórsson Útí-
lífsskólanum og síðustu árin hefur
Gylfi Þór Gylfason veitt honum for-
Skátastarf er í eðli
sínu forvarnastarf,
segir Guðmundur G.
Kristinsson, starf sem
styrkir börn og ung-
linga til sjálfstæðis
og þroska.
stöðu. Næstum allir aðrir sumar-
starfsmenn skólans hafa verið starf-
andi skátar í Vogabúum og með
mikla reynslu af skátastarfi.
Alþjóðleg samskipti
Frá því félagið var stofnað hefur
verið lögð mikil áhersla á alþjóðleg
samskipti við erlenda skáta og á
hverju sumri hafa hópar frá félag-
inu farið á erlend skátamót eða
skipulagt eigin ferðir í samstarfi við
erlend skátafélög. Einnig hefur fé-
lagið tekið á móti hópum til
skemmri og lengri dvalar hér á
landi og skipulagt ferðir hér á landi.
Hópar frá félaginu hafa átt sam-
starf við, heimsótt eða tekið á móti
skátum frá Svíþjóð, Skotlandi,
Spáni, Hollandi, Áusturríki, Japan
og fleiri löndum.
Skálabygging á afmælisári
Félagið keypti á síðasta ári 130
fermetra hús sem ætlunin var að
nota sem fjallaskála, en við nánari
skoðun kom í ljós að þessi stærð
hentaði ekki og var húsið selt aftur.
Búið er að koma upp sérstökum
skálasjóði og stefnt að því að byggja
nýjan flokkaskála í nágrenni
Reykjavíkur á 10 ára afmælisári fé-
lagsins.
Bæjarstemmning í Grafarvogi
Skátafélagið Vogabúar hefur
verið þátttakandi í sameiginlegum
uppákomum Grafarvogsbúa og má
þar t.d. nefna umsjón með Ósku-
dagsskemmtunum, skrúðgöngum á
sumardaginn fyrsta og fleira.
Einnig hafa skátar frá félaginu
tekið þátt í sameiginlegum skrúð-
göngum skáta 17. júní og sumar-
daginn fyrsta. Gott samstarf hefur
verið öll árin við skóla, félagsmið-
stöð, íþróttafélagið Fjölni og Graf-
arvogskirkju. Um árabil gaf félagið
út tímaritið Útilíf sem dreift hefur
verið í Grafarvogi. Þar hefur verið
fjallað um starfsemina á hverjum
tíma og komið á framfæri ýmsum
upplýsingum um útilíf og skáta-
starf. Fjöldi þeirra barna og ung-
linga sem hefur tekið þátt í starfi
félagsins í gegnum árin skiptir
sjálfsagt orðið þúsundum. Hjá fé-
laginu hefur starfað mikið lið öfl-
ugra foringja, en hátt í hundrað
skátar hafa tekið þátt í foringja-
námskeiðum á vegum félagsins,
tuttugu hafa unnið að og fengið
forsetamerkið og tíu hafa lokið
Gilwell-þjálfun.
Gildi skátastarfs
Skátastarf er í eðli sínu forvarn-
arstarf sem styrkir börn og ung-
linga til sjálfstæðis og þroska til að
takast betur á við lífið. Jafningja-
fræðsla hefur mikið verið í umræð-
unni sem sterkasta vopnið gegn sí-
vaxandi ógn vímuefna, en jafningja-
fræðsla er einmitt sá grunnur sem
skátastarfið byggist á. Besta for-
vömin í umhverfi bama og unglinga
er að byggja upp hjá unglingum
styrk og sjálfstæði til að segja nei
þegar á þarf að halda. Starfsemi
skátafélagsins Vogabúa hefur á
þeim tíu áram sem það hefur starf-
að, skilað miklum árangri til upp-
byggingar á ungu fólki sem sést á
þeim einstaklingum sem hafa tekið
þátt í starfinu og era komnir út í
þjóðfélagið. Skátafélagið Vogabúar
þakkar velvild allra þeirra sem hafa
lagt félaginu lið í gegnum árin og
býður Grafarvogsbúum til afmælis-
messu í Grafarvogskirkju sunnu-
daginn 22. febrúar kl. 14:00.
Höfundur er féhigsforingi skátafé-
lagsins Vogabúa ( Grafarvogi.
( Y
BIODROGA
snyrtivörur
Fjarlagagerð
til framtíðar
Fjármálaráðuneytið boðar til opins fundar um
fjárlagagerð til framtíðar mánudaginn 23. febrúar
kl. 14.30-16.00 að Sölvhóli, fundarsal Seðlabanka
íslands, Sölvhólsgötu 1.
Á vegum OECD er nýútkomin skýrsla „Budgeting for the future“ sem
Jón Ragnar Blöndal, fyrrum sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu hefur
unnið. Á fundinum mun Jón kynna nýjungar í gerð langtímaáætlana hjá
aðildarlöndum OECD. Að loknu erindi Jóns mun Halldór Árnason
skrifstofustóri kynna ýmsar hugmyndir um hvemig megi styrkja
fjárlagagerð (slenska ríkisins. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra
ávarpar fundinn.
Fundarstjóri er Magnús Pétursson ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins.
Fundurinn er opinn öllum.
Fjármálaráðuneytið
Guðmundur G.
Kristinsson
Blað allra landsmanna! 2®of0,mí’Iaí'ií*
- kjarm malsms!
Byggjum
tónlistarhús
Á TÍMUM seinni
heimsstyrjaldarinnar
vora íslendingar helm-
ingi færri en þeir verða
um aldamótin. Þá
bjuggu aðeins um
140.000 manns hér á
þessu landi en þeir
reistu samt Þjóðleik-
hús, Þjóðminjasafn og
Háskóla svo eitthvað sé
nefnt. Það var fram-
kvæmdagleði og stór-
hugur sem fylgdi þessu
fólki. Enda þótt hin
unga þjóð væri fátæk
og brýn verkefnin ótal-
mörg höfðu menn fram-
sýni til þess að skilja að
án menningar og menningararf-
leifðar ættu íslendingar sér ekki
þjóðarvitund. Það vora ekki hag-
kvæmnisútreikningar sem skiluðu
þeirri niðurstöðu að byggja skyldi
Þjóðleikhús. Menn gengu ekki að
því gruflandi, þá frekar en nú, að
Þjóðleikhúsið er ekki arðbært fyrir-
tæki í peningalegum skilningi. Ékki
frekar en Borgarleikhúsið eða ís-
lenska óperan. Það er hins vegar
eðlilegt að gera kröfu um að rekst-
urinn skili sem mestu sjálfsaflafé.
Samningur menntamálaráðuneytis-
ins við Islensku óperana er athygl-
isverður í þessu sambandi. Hann er
á þá lund að Islenska óperan fær
fasta fjárveitingu en endanleg upp-
hæð hennar ræðst af sjálfsaflafé Is-
lensku óperannar. Með þessu móti
Pað er þörf fyrir tón-
listarhús, segir Júlíus
Vífill Ingvarsson, og
þeirri þörf munu sjálf-
stæðismenn svara á
næsta kjörtímabili.
er hægt að hvetja til þess að listræn
starfsemi taki einnig mið af því að
auka sjálfsaflafé sitt. En stórhugur
þeirrar kynslóðar sem reisti Þjóð-
leikhúsið og hleypti leiklistinni þar
af stokkunum er ekki ósvipaður
þeim bjartsýnishug sem einkenndi
stofnun Samtaka um byggingu tón-
listarhúss fyrir 15 áram.
Bókaþjóðin tónelska
Um 27.000 íslendingar hafa at-
vinnu af eða stunda tónlist. Allir
njóta hennar með einum eða öðram
hætti. Margir njóta hennar í gegn-
um einhverja þeirra tíu útvarps-
stöðva sem senda út tónlist á
Reykjavíkursvæðinu. Frægust allra
Islendinga er tónskáldið og söng-
konan Björk. Fjöldi annarra íslend-
inga vinnur við tónlist á erlendri
grundu. Fjöratíu óperusöngvarar
syngja úti í heimi. Frægastir þeirra
eru Kristján Jóhannsson og Krist-
inn Sigmundsson. Unga kynslóðin
er fjölmenn í tónlistinni því það era
12.000 nemendur við tónlistarnám.
Hljómburður skiptir höfuðmáli
Þegar ég var við nám í Bologna á
Ítalíu voru gerðar endurbætur á
hinu gamla óperuhúsi borgarinnar.
Einsöngstónleikaröð óperunnar var
því færð ýmist í eitt stóru bíóanna
eða í ráðstefnusal. Báðir salir höfðu
afleitan hljómburð. Gömlu brýnin
Luciano Pavarotti og Herman Prey
héldu tónleika á þessum tíma. Þeir
nutu reynslunnar og gættu sín á
möttum hljómburði salanna. Tón-
leikar þessara tveggja meistara
urðu engu að síður frekar rislitlir
vegna þess hversu ofurvarlega þeir
kusu að fara í beitingu raddarinnar.
Maður gat samt ekki annað en
dáðst að kænsku þeirra. Stórstjörn-
unum Katiu Ricciarelli og José Car-
reras vegnaði ekki eins vel. Þau
fóru geyst á sínum tónleikum og
ákváðu augljóslega að
bæta upp slæman
hljómburð með því að
syngja enn meira. Gefa
allt í botn. Það fór svo
að þau áttu í erfiðleik-
um með að ljúka söng-
skránni. Þau gátu hvor-
ugt tekið aukalag og
fóra heldur skömm-
ustuleg af sviðinu.
Hljómburðurinn í
Hálskólabíói er ekki
góður. Hann er þurr og
misjafn eftir því hvar
setið er í húsinu. Að
syngja þar er ekki gott.
Tónleikasalur á að
hljóma með hljóðfær-
inu, styðja við og vera mikilvægur
hluti af tónlistarapplifuninni.
Þannig tónleikasalur er ekki til hér-
lendis, því miður. Sinfóníuhljóm-
sveit Islands var stofnuð fyrir tæp-
lega hálfri öld. Hún hefur hlotið
margvíslegar erlendar viðurkenn-
ingai- og sldpað sér í sveit meðal
bestu hljómsveita. Eins og menn
þekkja leikur hún í bíósal og greiðir
á ári hverju 12 milljónir í húsaleigu
fyrir þá aðstöðu.
Samtök um byggingu
tónlistarhúss
Á áranum 1983-1986 áttu
þverpólitísk fjöldasamtök frum-
kvæði að fjársöfnun og samnor-
rænni samkeppni um hönnun tón-
listarhúss sem hýst gæti allar teg-
undir tónlistar og átti það að rísa í
Laugardalnum. Flestir þekkja
þessa sögu og hversu dapurlega
horfir um framhald þessarar fram-
kvæmdar. Samtök um byggingu
tónlistarhúss hafa þegar greitt 34
milljónir króna (framreiknaðar) af
söfnunarfé sínu í hönnunar- og
verkfræðikostnað. Áhugasömu fólki
sem styrkir samtökin fer enn fjölg-
andi. Nýlega arfleiddi Ruth Her-
manns fiðluleikari hið fyrirhugaða
tónlistarhús að eigum sínum. Fyrir
milligöngu Vigdísar Finnbogadótt-
ur hefur japanskt stórfyrirtæki gef-
ið eina milljón jena til byggingar
tónhstarhúss.
Byggjum tónlistarhús
Menntamálaráðherra Björn
Bjarnason skipaði nefnd árið 1996
um tónlistarhússmálið. Taldi nefnd-
in í ítarlegum niðurstöðum sínum
öll rök hníga að því að reisa beri
tónlistarhús. Slíkt hús verður reist
með sameiginlegu átaki Reykjavík-
urborgar, ríkisins, nærliggjandi
sveitarfélaga og Samtaka um bygg-
ingu tónlistarhúss. Meðal annars
vegna nýrra áhugaverðra hug-
mynda um það hvemig nýta megi
tónlistarhúsið einnig til ráðstefnu-
halds er önnur nefnd á vegum
menntamálaráðuneytisins að skoða
nýja staðsetningarmöguleika. Það
breytir rekstrarforsendum þess og
ber að skoða vandlega. Áhugi á ráð-
stefnuhaldi hérlendis er mikill en
aðstöðuleysi hamlar frekari þróun í
þá átt.
Á næsta kjörtímabili mun borgar-
stjórn sjálfstæðismanna taka af
skarið í þessu máli sem núverandi
borgarstjórn hefur leitt hjá sér.
Fyrsta skref þess ferlis er að kalla
saman þá sem vitað er að standa
munu saman að þessu verkefni. Síð-
an verður reynt að breikka þann
hóp eins og hægt er. Mikil undir-
búningsvinna er þegar að baki,
bæði af hálfu menntamálaráðuneyt-
isins og Samtaka um byggingu tón-
listarhúss, sem sýnir m.a. að nýting
hússins verður góð. Það er þörf fyr-
ir tónlistarhús og þeirri þörf mun-
um við sjálfstæðismenn svara á
næsta kjörtímabili!
HOfundur er frnmkvœmdnsljóri og
skipar fjórðn sæti ó frnmboðslistn
SjAlfstæðísflokksins.
Ingvarsson