Morgunblaðið - 21.02.1998, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998 47
Búist við líflegu
Islandsmóti í hraðskák
SKAK
Félagsheimili Hellis,
Þönglabakka 1
í IVl j 6 d (1
HRAÐSKÁKMÓT ÍSLANDS
Undirbúningur fyrir Alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótið er á lokastigi.
Sunnudaginn 22. febrúar kl. 14.
HRAÐSKÁKMÓT íslands 1998
verður haldið í Hellisheimilinu,
Þönglabakka 1, sunnudaginn 22.
febrúar. Félagsheimili Hellis er til
húsa á sama staða og Bridgesam-
bandið og er aðstaða þar til skák-
iðkana frábær. Þetta er í fyrsta sinn
sem Hraðskákmót íslands er haldið
hjá Helli. Taflið hefst klukkan 14 og
er öllum opið. Þátttökugjald er kr.
700 fyrir 16 ára og eldri, en kr. 400
fyrir 15 ára og yngri.
Að venju eru tefldar níu umferðir
eftir Monrad kerfi, tvær fimm mín-
útna skákir í hverri umferð. Þar
með er tryggt að allir hafi jafnoft
hvítt og svart. Það er full ástæða til
að minna skákáhugamenn á þetta
líflega og skemmtilega mót. Verð-
launasjóðurinn verður 60% af þátt-
tökugjöldum. Hann skiptist þannig:
1. verðlaun 50%, 2. verðlaun 30% og
3. verðlaun 20%.
Reykjavíkurskákmótið
Taflfélag Reykjavíkur stendur að
þessu sinni fyrir alþjóðlega Reykja-
víkurskákmótinu sem fram fer dag-
ana 10.-18. mars. Mótið er það
fyrsta í nýjum hring VISA-bikar-
keppninnar. Það er þegar ljóst að
mótið verður mjög öflugt því 20
stórmeistarar eru skráðir til leiks.
Af þeim eru þó aðeins þrír íslenskir.
Jóhann Hjartarson hefur nú hafið
störf sem lögfræðingur hjá Is-
ienskri erfðagreiningu og ekki líkur
á öðru en hann hætti atvinnu-
mennsku eins og hann hefur gefið
til kynna. Jóhann væri stigahæsti
þátttakandinn á Reykjavíkurskák-
mótinu, yrði hann með. Um þessar
mundir eru einmitt tíu ár frá því að
hann sigraði Viktor Kortsnoj í
frægu einvígi þeirra í Kanada 1988.
Stigahæstir þeirra sem skráðir eru
til leiks eru þessir:
I. Sokolov, Bosníu SM 2625
Miles, Englandi SM 2595
Curt Hansen, Danm. SM 2595
De Firmian, Bandar. SM 2590
Nijboer, Holiandi SM 2590
Christiansen, Bandar. SM 2575
S. Agdestein, Noregi SM 2570
Kindermann, Þýskal. SM 2565
Gausei, Noregi SM 2555
Lalic, Króatíu SM 2545
Hannes H. Stefánsson SM 2540
Gallagher, Englandi SM 2525
Davies, Englandi SM 2515
Djurhuus, Noregi SM 2510
Mortensen, Danm. AM 2510
Hector, Svíþjóð SM 2505
Helgi Olafsson SM 2505
Ákeson, Svíþjóð SM 2505
Rausis, Lettlandi SM 2490
Cicak, Svíþjóð AM 2480
Ward, Englandi AM 2480
Pröstur Þórhallsson SM 2480
Conquest, Englandi SM 2470
Aðrir skráðir keppendur eru þeir
Jesper Hall, Svíþjóð AM 2460, Van
der Weide, Hollandi 2450, Mikhael
Ivanov, Rússlandi SM 2440, Tiger
Hillarp-Persson, Svíþjóð, AM 2410,
Jón Viktor Gunnarsson, AM 2390,
Björgvin Jónsson, 2380, Jón Garðar
Viðarsson 2380, Neil Bradbury,
Englandi AM 2360, John Richards-
son, Englandi 2315, Þorsteinn Þor-
steinsson 2310, Guðmundur Gísla-
son 2305, Bragi Halldórsson 2285,
Ulf Dewenter, Þýskalandi 2260,
Stefán Kristjánsson 2255, Pertti
Lehikoinen 2250, Björn Freyr
Björnsson 2240, Arinbjörn Gunn-
arsson 2240, Tómas Bjömsson 2235,
Sigurður Daði Sigfússon 2215,
Gunnar Finnlaugsson 2215, Júlíus
Friðjónsson 2215, Rogvi Rasmus-
sen, Færeyjum 2215, Kristján
Eðvarðsson 2205, Ólafur B. Þórsson
2205, Arnar E. Gunnarsson 2195,
Stefán Briem 2185, Hans Joachim
Wiese, Þýskalandi 2165, Torfí Leós-
son 2160, Andreas Schmied, Þýska-
landi 2145, Heimir Ásgeirsson 2140,
Hubert Petermann, Þýskalandi
2125, Jóhann H. Ragnarsson 2110,
Björn Þorfínnsson 2100, Davíð
Kjartansson 2100, Einar K. Einars-
son 2085, Hans Joachim-Schubert
2070, Þorvarður F. Ólafsson 2015,
Hrannar Baldursson, Eiríkur K.
Björnsson, Guðjón Heiðar Val-
garðsson, Halldór Pálsson, Helgi E.
Jónatansson og Sigurður Páll Stein-
dórsson.
Sex síðasttöldu eru ekki með al-
þjóðleg skákstig.
íslandsbanki efstur
í Hellisdeildinni
Hellisdeildin er árleg innanfé-
lagskeppni hjá Taflfélaginu Helli. í
keppninni taka þátt fjögurra manna
sveitir skipaðar félagsmönnum
Enski stórmeistarinn Anthony
Miles teflir á Reykjavíkurskák-
mótinu.
Hellis, auk þess sem hverri sveit er
heimilt að bjóða gesti úr öðru taflfé-
lagi. Átta sveitir tefla einfalda um-
ferð, allir við alla. Að þessu sinni
urðu sveitirnar reyndar sjö þar sem
ein sveitin heltist úr lestinni á síð-
ustu stundu.
Hellisdeildin er nú haidin í sjötta
skipti og eins og fyrr eru sveitirnar
afar sterkar. Þannig státa þrjár
þeirra af stónneistara á fyrsta
borði, en þar eru á ferðinni þeir
Margeir Pétursson, Hannes Hlífar
Stefánsson og Helgi Áss Grétars-
son.
Fyrstu þrjár umferðirnar voru
tefldar fimmtudaginn 12. febrúar og
að þeim loknum er staðan þessi:
1. íslandsbanki 8 v.
2. VISA ísland 7 v.
3. -4. Puma 5 v.
3.rf. ísafold 5 v.
5. VKS hf. 4 v.
6. -7. íslensk miðlun 3‘/z v.
6.-7. Hvassaleitisstormsveitin 3‘/2 v.
VISA ísland, sem er í öðru sæti á
eftir Islandsbanka, sat hjá í fyrstu
umferð. íslandsbanki hefur hins
vegar teflt þrjár viðureignir. VISA
á því vafalítið eftir að velgja ís-
landsbanka undir uggum í seinni
hluta keppninnar sem fram fer 25.
mars þegar síðustu 4 umferðirnar
verða tefldar.
Fyrirtækjakeppni
Hellis
Taflfélagið Hellir efnir til Fyrir-
tækjakeppni í hraðskák og hefst
keppnin mánudaginn 23. febrúar
klukkan 20. Aðgangur er ókeypis og
eru allir skákmenn velkomnir.
Keppnin verður haldin í Hellisheim-
ilinu, Þönglabakka 1, Mjódd. Veitt
verða verðlaun fyrir besta saman-
lagða árangur í þremur mótum. Að-
alverðlaun: 1. sæti 15.000, 2. sæti
10.000, 3. sæti 5.000 Unglingaverð-
laun (15 ára og yngri): 1. sæti 3.000,
2. sæti 2.000, 3. sæti 1.000. Keppn-
inni verður fram haldið miðvikudag-
inn 25. febrúar og fímmtudaginn 26.
febrúar. Framhald verður síðan
auglýst nánar. Taflið hefst klukkan
20 öll kvöldin.
Skákþing íslands,
barnaflokkur
Keppni í barnaflokki á Skákþingi
íslands 1998 fór fram 14.-15. febrú-
ar. Guðmundur Kjartansson varð
Islandsmeistari bama, hlaut 8V2
vinning í 9 umferðum. Röð efstu
keppenda varð þessi:
1 Guðmundur Kjartansson 8/2 v.
2 Dagur Ai-ngrímsson 7 v.
3 Hilmar Þorsteinsson 6/2 v.
4 Víðir Petersen 6/2 v.
5 Hjörtur Jóhannsson 6/2 v.
6-8 Amar Már Guðjónsson, Andri Þór
Sigþórsson og Heimir Einarsson 6 v.
9-12 Reynir H. Sigtryggsson, Stefán
Ingi Arnarson, Atli Freyr Kristjánsson
og Daníel Freyr Andrésson 5/2 v.
Deildakeppnin
6.-7. mars
Nú fer að líða að seinni hiuta
Deildakeppni SÍ 1997-8, en keppnin
fer fram 6. og 7. mars. Að þessu
sinni verður teflt í húsnæði Taflfé-
lagsins Hellis, Þönglabakka 1.
Fimmta umferð verður tefld
föstudaginn 6. mars klukkan 20,
sjötta umferð laugardaginn 7. mars
klukkan 10 og sjöunda umferð sama
dag klukkan 17.
Eftir fyrri hluta Deildakeppninn-
ar er Taílfélag Reykjavíkur með ör-
ugga forystu í 1. deild, hefur fengið
29 vinninga af 32 mögulegum. I 2.
deild er B-sveit Hellis efst með 19
vinninga af 24 og Skákfélag Reykja-
nesbæjar er efst í 3. deild með I8V2
vinning.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson
GJÖF fylgir þegar keyptir eru Mömmu sultur, 400 gr ....................
tveir pakkar af Kellogg's cv ^
49- lÆQS
Rababara
sulta
Ab mjólk, 11tr
I fíMií
■ • '■J'+JI -'ifb -njr
119-
Allíraagar eru tHboðsdagar hjá okkur
149- 79-
Jarðaberjasulta búðingar, 90 gr
PFA F
(HeimilMœkjaverslim
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222
fyrirnýjurn árgerðum
Helluborð og bakarofiiar á stórlækkuðu verði núna