Morgunblaðið - 21.02.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998 51
BRÉF TIL BLAÐSINS
MESSUR Á MORGUN
Hvort viltu líkams-
rækt eða rafniagii?
Frá Jóni Agli Bragasyni:
TILEFNI þess að ég set þessi orð á
blað er viðtal í Morgunblaðinu
sunnudaginn 8. febrúar þar sem
blaðamaður ræðir
við Berglindi As-
geirsdóttur um
fyrirtæki hennar,
Trimform Berg-
lindar. Þar segir
Berglind meðal
annars að trim-
form sé rafnudd
sem gengur út á
það að senda öfl-
ug rafboð inn í
vöðvana. Síðan
segii' hún orðrétt: „Nógu öflug til
þess að einn tími í t.d. vöðvaþjálfun
er sambærilegur við tíu klukku-
stunda brennslu í tækjaleikfími. Og
einn tími í grenningu er á við tíu
klukkustunda pallapuð."
Þetta getur ekki verið meira rangt
og sorglegt þegar fólk lætur svona
frá sér að óathuguðu máli. Ef svo
væri væru lífeðlisfræðingar og aðrir
vísindamenn búnir að segja okkur
það að hætta að hreyfa okkur og láta
rafmagnið duga. Svona einfalt er það
nú ekki.
Það er mikil ábyi'gð að þjálfa og
leiðbeina fólki í hvers konar líkams-
rækt. Líkamsrækt getur verið
margs konar og eru leiðbeinendur
stöðugt að gefa fólki ráð um hin
ýmsu mál en ráðin vilja þó einkum
snúast um það hvernig á að losa sig
við aukakílóin. Það er það sem fólk
spyr um og er atriði númer eitt, tvö
og þrjú hjá því. Að grennast og kom-
ast í sína kjörþyngd er hið besta mál
(sem væri efni í aðra grein) en þegar
farið er að lofa fólki því að 1 tími í
rafnuddi sé sambærilegt við að
stunda 10 klst. „tækjaleikfimi“ eða
pallapuð þá er sá leiðbeinandi kom-
inn út á hálan ís.
Alhliða líkamsrækt má skipta í
þrjá meginþætti. Þeir eru: Styrktar-
þjálfun, þolþjálfun og teygjuæfíngar.
Allt þetta þrennt má fá í hefðbundn-
um pallatímum sem eru í boði á lík-
amsræktarstöðvunum (pallar (þol)
34-40 mín., styi'ktaræfingar 10-20
mín., teygjur 5-10 mín.) Trimform er
engin þolþjálfun og ekki eru teygju-
Frá Borgþóri S. Kjærnested:
Á SÍÐASTA ári voru 25 ár liðin frá
stofnun Félags leiðsögumanna. Um
450 manns eru nú í félaginu, en þeir
eru ekki margir
sem hafa leið-
sögumannastarfíð
að aðalstarfi, þó
að ferðamanna-
tíminn hafi verið
að lengjast á síð-
ustu árum.
Á afmælisárinu
var nokkuð fjallað
um framtíðarsýn
félagsins, en því
má með nokkrum
rétti halda fram að félagið standi á
krossgötum. í dag er félagið þátttak-
andi í samtökum leiðsögumanna á
Norðurlöndum IGC og alþjóðasam-
tökum leiðsögumanna, Alþýðusam-
bandi íslands, á fulltrúa í stjórn
Leiðsögumannaskólans, Ferðamála-
ráðs og er umsagnaraðili í veigamikl-
um málum sem snerta ferðaþjónust-
una almennt.
Miklir breytingartímai' eru
framundan í skipulagsmálum launa-
fólks. Nú þegar hafa nokkur félög á
almennum vinnumarkaði sameinast,
nýlega nefndu forustumenn ASI og
BSRB að réttast væri að sameina
þessi tvö heildarsamtök sem allra
fyrst. Á síðasta þingi samþykkti ASÍ
að öll félög innan þess yrðu að eiga
aðild að landssambandi fyrir árið
2000.
Skiptar skoðanir hafa verið um
æfíngar þar. Hvað varðar styrktar-
þjálfunina og rafnuddið eru rafboðin
það eins sem þar er sameiginlegt og
þar með er smanburðurinn búinn.
Þegar við beitum vöðvaafli gegn
fastri eða hreyfanlegri mótstöðu
(styrktarþjálfun) er ýmislegt annað
sem gerist í líkamanum en bara raf-
boð frá heila. Við styrkjum vöðva,
sinar, liðbönd og bein (bráðnauðsyn-
legt fyrii' konur til að vinna gegn
beinþynningu) og minnkum um leið
hættu á hvers konar meiðslum. Við
aukum vöðvamassa sem aftur leiðir
svo til aukinnar grunnefnabrennslu.
Hefur þá fátt eitt verið nefnt sem
gerist við styi'ktarþjálfun. Þetta er
semsagt sitt hvor hluturinn, rafnudd
og líkamsrækt.
Árangur af alhliða líkamsrækt er
heldur ekki alltaf sýnilegur. Felst
það meðal annars í eftirtöldum atrið-
um. Hjarta, lungna- og æðakerfi
styi’kjast, vöðvastyrkur eykst og lið-
leiki eykst. Líkamsrækt vinnur
einnig gegn of háum blóðþrýstingi,
háu kóleresteróli og styrkir ónæmis-
kerfið. Starfsorka verður meiri,
lundin léttari, sjálfsímyndin styrkist
og þú berð þig betur líkamlega.
Stresseinkenna verður síður vart. Þá
má ekki gleyma því að fituprósenta
líkamans lækkar.
Með skynsamlegu mataræði og
reglulegi'i þjálfun má ná fram öllum
þessum þáttum og dæmi nú hver
fyrir sig um hvort rafnudd eða lík-
amsrækt sé áhrifaríkara.
Við leiðbeinendur verðum að
vanda orð okkar þegar við tölum til
almennings og vita hvað við erum að
tala um enda á almenningur ekkert
annað skilið. Þessi ofuráhersla í
þjóðfélaginu á það að grennast er
orðin svo mikil að nú er svo komið að
tilgangurinn helgar meðalið. Mikið
um fögur loforð sem standa ekki. Ef
við beinum athygli okkar að því sem
skiptir máli, þ.e. þoli, styrk, teygjum
að viðbættu skynsamlegu mataræði
þá fylgir annað í kjölfarið, s.s. eins
og að grennast.
Eg óska Berglindi velfarnaðar í
leik og starfi og býð hana velkomna í
tíma.
JÓN EGILL BRAGASON,
einkaþjálfari og þolfímileiðbeinandi.
það innan FL hvort vera skuli í ASÍ
eða hvort gengið skuli til liðs við ein-
hver önnur heildarsamtök. Sú um-
ræða er mikilvæg og hana ber að
efla áður en afgerandi ákvarðanir
eru teknar. Á fundi um framtíðarsýn
FL var m.a. bent á mikilvægi þess að
eiga aðild að ASÍ vegna samruna-
ferlis stéttarsamtakanna á næstu ár-
um, til að standa megi vörð um hags-
muni FL í þeirri þróun. Á nýaf-
stöðnu þingi VMSÍ var samþykkt að
efla stöðu Verkamannasambandsins
í ferðaþjónustunni. Þessi samtök og
væntanlega fleiri verða örugglega
tilbúin til að róa á mið leiðsögu-
manna í leit að nýjum félagsmönnum
og nýjum tekjustofnum. Þessi við-
leitni þjónar væntanlega einhverjum
hagsmunum slíki'a samtaka, en ekki
hagsmunum leiðsögumanna.
Það þarf að ríkja stórhugur og
framsækni í forustusveit leiðsögu-
manna. Nú þarf að takast á við pý
verkefni, standa föstum fótum á
jörðinni og efla samstarfíð innan fé-
lagsins. Það þýðir að tengsl félagsins
og Leiðsögumannaskólans þarf að
efla til mikilla muna, félagið þarf að
láta til sín taka við mótun ferðamála-
stefnu, á vettvangi Ferðamálaráðs
og víðar, þar sem sjónarmið og skoð-
anir félagsins eiga erindi.
Þessi og fleh'i atriði þarf að hafa
ofarlega í huga á næsta aðalfundi fé-
lagsins 26. febrúar nk. Mætum sem
flest. Framtíðin byggist á okkur.
BORGÞÓR S. KJÆRNESTED,
leiðsögumaður.
Guðspjall dagsins:
Skírn Krists.
(Matt. 3.)
ASKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum.
Foreldrar hvattir til þátttöku með
börnunum. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmars-
son. Yfirskrift messunnar er „Fórn á
föstu". Organleikari Marteinn H. Frið-
riksson, sem stjórnar söng Dómkórs-
ins. Að lokinni messu verður boðið til
samráðsfundar í safnaðarheimilinu,
þar sem fjallað verður um viðfangs-
efnið „Ráð í vanda" og reiddur fram
léttur málsverður gegn vægu gjaldi.
Bænaguðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Jakob Á. Hjálmarsson. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Barnasam-
koma kl. 11 í safnaðarheimilinu í um-
sjá Auðar Ingu Einarsdóttur.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10.15. Organisti Kjartan
Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf yngri
og eldri kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11
með þátttöku skáta. Organisti Árni
Arinbjarnarson. Sr. Ólafur Jóhanns-
son.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorg-
unn kl. 10. Fórn á föstu. Hvað er
Hjálparstofnun kirkjunnar að gera?
Anna Ólafsdóttir, fræðslufulltrúi.
Barnasamkoma og messa kl. 11.
Organisti Hörður Áskelsson. Sr. Sig-
urður Pálsson. Orgeltónleikar kl. 17.
Matthias Wager frá Svíþjóð leikur
fjölbreytta efnisskrá.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr.
Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Organisti mgr. Pavel
Manasek. Sr. Helga Soffía Konráðs-
dóttir. Messa kl. 14. Organisti mgr.
Pavel Manasek. Sr. María Ágústs-
dóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11. Ragn-
heiður Jónsdóttir, guðfræðingur, pré-
dikar. Björk Jónsdóttir syngur ein-
söng, stúlkur í Gradualekórnum leika
á hljóðfæri og Svala Sigríður Thom-
sen, djákni, les ritningalestra. Prestur
sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti
Jón Stefánsson. I tilefni af konudegi
munu karla úr söfnuðinum bjóða upp
á vöfflukaffi í safnaðarheimilinu eftir
messu. Barnastarf kl. 11 í safnaðar-
heimilinu. Umsjón Lena Rós Matthí-
asdóttir.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Fermingarbörn aðstoða.
Barnastarf á sama tíma. Félagar úr
Kór Laugarneskirkju syngja.
Organisti Gunnar Gunnarsson. Prest-
ur sr. Halldór S. Gröndal.
NESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Starf fyrir 8-9 ára börn á sama
tíma. Opið hús frá kl. 10. Kirkjubíllinn
ekur. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Frank
M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Konu-
dagurinn. Messa kl. 11. Konur úr
Kvenfélaginu Seltjörn aðstoða við
messugjörð og sjá um hádegisverð í
safnaðarheimilinu á eftir. Sr. Jón Dal-
bú Hróbjartsson, prófastur, setur sr.
Sigurð Grétar Helgason inn í embætti
prests við kirkjuna. Sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir þjónar fyrir altari og
sr. Sigurður Grétar Helgason prédik-
ar. Organisti Vera Manasek. Barna-
starf á sama tíma í umsjá Guðrúnar
Karlsdóttur, Agnesar Guðjónsdóttur
og Benedikts Hermannssonar.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjón-
usta kl. 14. Barnastarf á sama tíma.
Kaffi eftir messu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árdegis. Organleikari Violeta
Smid. Barnaguðsþjónusta kl. 13. For-
eldrar velkomnir með börnum sínum.
Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Skátaguðsþjónusta
kl. 14. Jón Ingvar Haraldsson félags-
foringi prédikar. Skátar aðstoða í
guðsþjónustunni. Tómasarmessa kl.
20. Herra Karl Sigurbjörnsson biskup
íslands prédikar. Fjölbreytt tónlist,
fyrirbæn og máltíð Drottins. Organisti
Daniel Jónasson. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Sunnudagaskólinn á sama tíma.
Organisti Kjartan Sigurjónsson. Létt-
ur málsverður eftir messu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson. Organisti Lenka
Mátéová. Barnastarf á sama tíma.
Umsjón Ragnar Schram. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í Grafarvogskirkju.
Umsjón sr. Sigurður, Hjörtur og Rúna.
Jón Egill
Bjarnason
Félag leiðsögumanna
á krossgötum
Barnaguðsþjónusta kl. 11 í Engja-
skóla. Umsjón sr. Anna Sigríður,
Signý og Sigurður H. Barnakór Graf-
arvogskirkju syngur undir stjórn Ás-
laugar Bergsteinsdóttur. Skátaguðs-
þjónusta kl. 14 í Grafarvogskirkju. 10
ára afmæli skátafélagsins Vogabúa.
Ræðumaður Stefán Már Guðmunds-
son skátaforingi. Sr. Vigfús Þór Árna-
son þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Organisti og kórstjóri
Hörður Bragason. Að lokinni guðs-
þjónustu verður gengið frá Grafar-
vogskirkju að félagsheimili Vogabúa
við Logafold, þar sem boðið verður
upp á kaffi og veitingar. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Kristján Einar
Þorvarðarson þjónar. Magnús Magn-
ússon guðfræðinemi prédikar. Yngri
kór Digranesskóla kemur í heimsókn.
Stjórnandi Kristín Magnúsdóttir.
Organisti Kristín Jónsdóttir. Barna-
guðsþjónusta kl. 13. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 11. Altarisganga.
Börn úr 8-9 ára starfi kirkjunnar og
10-12 ára starfi taka þátt í guðsþjón-
ustunni, syngja og sýna helgileik.
Organisti Örn Falkner. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Irma
Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Guðs-
þjónusta í Skógabæ kl. 16. Sr. Irma
Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Sóknarprest-
ur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.15. Guðsþjónusta kl. 14.
Kór Fríkirkjunnar syngur, organisti
Pavel Smid. Prestur sr. Magnús B.
Bjömsson.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Al-
menn samkoma og barnastundir kl.
17. Ræðumaður Ragnar Gunnarsson.
Munið Tómasarmessuna í Breið-
holtskirkju kl. 20.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía:
Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu-
maður Vörður Traustason. Allir hjart-
anlega velkomnir.
KLETTURINN: Krakkakirkja kl. 11,
börn á öllum aldri velkomin. Sam-
koma kl. 20, lofgjörð, fyrirbæn og
prédikun orðsins. Allir velkomnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarárstíg
26, Reykjavík. Guðsþjónusta sunnu-
dag kl. 11 og fimmtudag kl. 20.
Prestur sr. Guðmundur Örn Ragnars-
son.
ISLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morg-
unsamkoma að Bíldshöfða 10, 2.
hæð, kl. 11. Fræðsla dagsins er: „Þú
ert einstakur frá hendi Guðs“. Friðrik
Schram kennir. Sér fræðsla fyrir börn-
in. Við borðum saman eftir stundina.
Allir koma með mat með sér, sem við
setjum á hlaðborð. Kl. 20 vitnisburð-
arsamkoma, þar sem Drottinn verður
lofaður og tignaður. Einnig verður
heilög kvöldmáltíð. Allir velkomnir.
FRfKIRKJAN VEGURINN: Morgun-
samkoma kl. 11. Barnastarf í fjórum
deildum og kennsla fyrir fullorðna.
Kvöldsamkoma kl. 20. Bill Jameson
prédikar og spámannaskólinn þjónar.
Allir hjartanlega velkomnir.
KAÞOLSKA KIRKJAN:
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messur
sunnudaga kl. 10.30, 14. Messa kl.
18 á ensku. Laugardaga og virka
daga messur kl. 8 og 18.
MARfUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa laug-
ardag og virka daga kl. 18.30.
GARÐABÆR, Holtsbúð 87: Messa
sunnudag kl. 10 á þýsku.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 14. Messa virka
daga og laugardaga kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði:
Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa
laugardaga og virka daga kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7:
Messa sunnudag kl. 10. Messa laug-
ardag og virka daga kl. 18.30.
RIFTÚN, Ölfusi. Messa sunnudag kl.
17.
ORÐ LfFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma kl. 11. Ræðumaður
Ásmundur Magnússon. Fyrirbæna-
þjónusta/bænaklútar. Allir hjartan-
lega velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 17.
BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalar-
nesi: Messa kl. 14. Gunnar Kristjáns-
son, sóknarprestur.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Barnastarf í safnaðarheimilinu
kl. 11. Bíll frá Mosfellsleið fer venju-
legan hring. Jón Þorsteinsson.
VÍDALINSKIRKJA: Útvarpsguðs-
þjónusta kl. 11. Kór kirkjunnar syngur
undir stjórn organistans Jóhanns
Baldvinssonar. Séra Hans Markús
Hafsteinsson prédikar. Séra Bjami
Þór Bjarnason þjónar fyrir altari.
Nanna Guðrún Zoéga, djákni, les
ritningarlestra. Sunnudagaskólinn á
sama tíma í safnaðarheimilinu. Bíl-
ferð frá Hleinunum kl. 10.40.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í
dag, laugardag, í Stóru-Vogaskóla,
kl. 11 í umsjá séra Bjama, Sesselju
og Franks. ,
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudaga-
skóli í íþróttahúsinu kl. 13 í umsjá
Kristjönu og Nönnu Guðrúnar. Rúta j
ekur hringinn fyrir og eftir athöfn. |
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Kór Víðistaðasóknar og Barnakór
Setbergsskóla syngja. Organisti Guð-
jón Halldór Oskarsson. Sigurður I
Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Kl. 11
sunnudagaskólar í kirkju, Hvaleyrar-
skóla og Setbergsskóla. Kl. 11
messa við upphaf aðalsafnaðarfund- i
ar. Allir prestar kirkjunnar þjóna. Kl.
12 aðalsafnaðarfundur.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Barnakór kirkjunnar syngur,
stjórnandi Sigriður Ása Sigurðardótt-
ir. Halldór V. Halldórsson flytur hug-
leiðingu. Organisti Þóra Guðmunds-
dóttir. Kaffiveitingar í safnaðarheimili
að lokinní guðsþjónustu.
INNRI-NJARÐVIKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11 í Ytri-Njarðvík-
urkirkju. Börn sótt að safnaðarheimil-
inu kl. 10.45. Helgistund með léttri
sveiflu sunnudag kl. 13.30. Hljóm-
sveit skipuð þeim Baldri Jósefssyni,
Steinari Guðmundssyni, Söru Vil-
bergsdóttur og Þórólfi Þórssyni leik-
ur. Kirkjukór Njarðvíkur syngur m.a.
texta eftir Söru Vilbergsdóttur. Bald-
ur Rafn Sigurðsson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Brúðuleikhús. For-
eldrar hvattir til að mæta með börn-
unum og eiga góða stund saman.
Baldur Rafn Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11 árd. Munið skólabílinn.
Skátaguðsþjónusta kl. 14 í tilefni af
Baden Powel degi. Ylfingavígsla.
Prestur sr. Sigfús Baldvin Ingvason.
Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organ-
leikari Einar Örn Einarsson.
KIRKJUVOGSKIRKJA, Höfnum:
Messa kl. 14, altarisganga. Ferming- '*
arbörn aðstoða við helgihaldið.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 14. Konudagurinn.
Sr. Anna S. Pálsdóttir, prestur i Graf-
arvogskirkju, prédikar. Konur lesa
lestra. Kaffi eftir messu í boði Kven-
félags Þorlákshafnar.
SELFOSSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 14. Hádegisbænir kl.
12.05 þriðjudag til föstudag. Les-
hringur kl. 20 fimmtudag. Kvöldbænir
kl. 21.30. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl.
14. Séra Kjartan Jónsson, kristniboði,
prédikar og kynnir kristniboðið eftir
messu og sýnir muni frá Afríku.
Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Öskudagsmessa miðviku-
dagskvöld 25. febrúar k. 21. Sóknar-
prestur.
HAUKADALSKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 14. Aðalsafnaðarfundur
verður að messu lokinni. Sóknar-
prestur, sóknarnefnd. *
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Kl. 11 sunnudagaskólinn, strákurinn
Silli kemur í heimsókn. Kl. 14 almenn
guðsþjónusta, skátamessa! Ólafur
Asgeirsson, skátahöfðingi, stígur í
stól. Ingveldur Ýr Jónsdóttir sópran-
söngkona flytur einsöng.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta verður í Borgarnes-
kirkju kl. 11.15. Messa í Borgarkirkju
kl. 14. Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason.
HALLGRÍMSKIRKJA f SAURBÆ:
Messa sunnudag kl. 14. Tilvonandi
fermingarböm og foreldrar þeirra eru
sérstakiega minnt á að mæta.
r 1 Fnkirkjan Reykjavík
Barnaguðsþjónusta kl. 1' Guðsþjónusta kl. 14:00 Kór Fríkirkjunnar syngur, organisti Pavel Smid. x Prestur sr. Magnús h B. Björnsson I' 1:15 í\ 0 f i
cd í
D SÐ BD|\ 8® ffl® ®ffl ffl® fflffl 8® fflffl _ íffi íO dii íQj Æh fflfflfflp L