Morgunblaðið - 21.02.1998, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason
MÖRG skip voru að veiðum á miðunum suðaustur af Papey í gærdag og fengu þar stóra og fallega ioðnu en nokkuð var um átu í henni.
* Ágæt veiði hjá loðnuflotanum suðaustur af Papey 1 gær og í fyrrinótt
Loðnuvertíðin er loks-
ins hafín fyrir alvöru
ÁGÆT loðnuveiði var í gær og í
fyrrinótt suðaustur af Papey og
binda menn vonir við að vertíðin sé
pú loks hafín fyrir alvöru. Loðnan
sem fékkst var stór og falleg en
nokkuð var um átu í henni.
Víkingur AK var á miðunum við
Papey um kvöldmatarleytið í
gærkveldi og hafði þá fengið um
1.300 tonn. Hólmaborgin var með
svipaðan afla um sama leyti og hafði
verið að veiðum frá því um tíuleytið
í gær. Loðnan var stór og falleg en
einhver áta í henni.
Tuttugu
skólastjórar
til Singapore
TUTTUGU skólastjórar frá grunn-
skólum Reykjavíkur, sem alls eru
um 30, fara í næsta mánuði í 10 daga
kynnisfór til Singapore. Hyggjast
þeir kynna sér stærðfræðikennslu
þar, sem þykir hafa skarað fram úr.
Ferð skólastjóranna er styrkt af
Fræðsluróði Reykjavíkur sem hefur
um nokkurra ára skeið boðið 5 til 7
skólastjórum á ári hverju í kynnis-
ferð til útlanda til að kynna sér ýms-
ar nýjungar í skólamálum. I ár var
ákveðið að boðið skyldi ná tO allra
skólastjóra grunnskóla Reykjavíkur.
"ríeildarupphæð styrks Fræðsluráðs
er þó svipuð og fyrri ár þar sem gert
er að skilyrði að skólastjórarnir afli
sjálfir styrkja til að greiða hluta
kostnaðar en þeir eiga möguleika á
styrkjum til slíkra kynnisferða sam-
kvæmt ákveðnum reglum.
I ferðinni er ráðgert að skólastjór-
arnir hitti ráðamenn skólamála í
ffingapore og kynni sér m.a. stærð-
fræðikennslu þar um slóðir.
Hafrannsóknaskipið Árni Frið-
riksson var að rannsóknum á
Norðfjarðardýpi í gær. Hjálmar
Vilhjálmsson fiskifræðingur sagði
að þeir hefðu orðið varir við slang-
ur af loðnu og einnig væri töluvert
mikið af henni um og utan við land-
grunnskantinn austur af Gerpi.
Hjálmar sagði að hann teldi
óhætt að segja að vertíðin væri
hafin af fullum krafti og vonandi
héldist góður gangur í veiðunum
hér eftir. Ekki væri nema lítill hluti
af hrygningargöngunni kominn inn
að landinu ennþá og því væru þeir
að athuga svæðið utar.
Nálægi; kynþroska
Hjálmar sagði að það ylli
nokkrum áhyggjum að loðnan væri
komin talsvert nálægt því að verða
kynþroska og það myndi náttúr-
lega stytta þann tíma sem yrði
hægt að veiða hana uppi við landið.
Það væri þó of snemmt að fullyrða
nokkuð þar sem einungis hluti af
hrygningargöngunni væri kominn
upp að landinu og sú loðna sem enn
væri úti á dýpinu ætti væntanlega
eftir að lengja veiðitímann.
Heildarloðnukvótinn í ár er
1.265 þúsund tonn og á eftir að
veiða af honum 430-440 þúsund
tonn. Hjálmar sagði aðspurður að
menn þyrftu að halda vel á spöðun-
um ef ná ætti öllum kvótanum, að
minnsta kosti ef verkfall skylli á
um miðjan mars. Vertíðin nú byrj-
aði óvenjuseint og kynþroskinn
væri orðinn nokkuð mikill en hann
teldi þó að hægt yrði að veiða loðnu
framyfir miðjan mars.
Grunnskólinn
á Bfldudal
Helmingur
nemenda
með flensu
STARFSEMI ýmissa stofnana á
Bíldudal er hálflömuð vegna inflú-
ensufaraldurs sem gengur yfir þorp-
ið. í gær og fyrradag var til dæmis
helmingur nemenda og kennara
grunnskólans rúmliggjandi.
Nanna Sjöfn Pétursdóttir, skóla-
stjóri grunnskólans á Bfldudal, segir
að flensan leiki skólastarfið grátt. í
skólanum eru 42 nemendur og var
helmingur þeirra veikur í gær.
Einnig helmingur kennaraliðsins.
Þrátt fyrir þetta hefur tekist að halda
skólastai'fmu gangandi fyrir þá sem á
annað borð geta mætt. I það stefndi í
gær að aflýsa yrði grímuballi sem fyr-
irhugað var að halda.
Flensan er að stinga sér niður hjá
starfsfólki annarra stofnana og fyrh'-
tækja. Á einstaka stað hafa hlotist
vandræði af. Starfsemi stóru fisk-
vinnslufyrirtækjanna hefur enn ekki
raskast. Verkstjóri hjá Rauðfeldi
sagði í gær að flensan væri að byrja
þar en ekki hefðu margir tilkynnt
veikindi enn sem komið væri. Fólk
fær höfuðverk og háan hita en flensan
gengur yfirleitt yfir á tveimur dögum,
að sögn skólastjórans.
---------------
Ljósagangur
í Seljalandi
MIKILL Ijósagangur sást í Selja-
landi undir Eyjafjöllum laust eftir
klukkan hálfníu í gærkvöldi. Það
voru vegfarendur á leið um þjóðveg-
inn sem fyrst gerðu lögreglu á
Hvolsvelli viðvart, en þeir töldu að
um neyðarblys gæti verið að ræða.
Við eftirgrennslan lögreglu kom í
ljós að íbúar á a.m.k. tveimur bæjum
undir Eyjafjöllum höfðu séð grænt
ljós koma úr austri og fara mjög
hratt yfir, lárétt til vesturs.
Sigurgeir Ingólfsson, bóndi á Hlíð
undir Austur-Eyjafjöllum, sagðist í
samtali við Morgunblaðið helst geta
lýst þessu sem eldhnetti. Hann hafi
verið skærgrænn og lýst upp suður-
himininn. Þau hjónin hafi séð hann í
4-5 sekúndur áður en slokknaði á
honum. Eftir að hafa heyrt lýsingai'
sjónarvotta taldi lögregla ekki vera
um neyðarblys að ræða.
---------------
Lenti heilu
og höldnu
eftir ísingu
EINS hreyfils flugvél sem verið er
að ferja frá Evrópu til Bandaríkj-
anna lenti í erfiðleikum vegna ísing-
ar yfir hafinu milli Færeyja og Is-
lands í gærkvöld. Flugmaðurinn
lækkaði flugið, komst út úr ísingunni
og lenti heilu og höldnu á Reykjavík-
urflugvelli laust eftir klukkan 22.
Vélin, sem er af gerðinni
Beechcraft Bonanza, var í um 8 þús-
und feta hæð þegar mikil ísing hlóðst
á hana. Flugmaðurinn lækkaði flugið
í 2.500 feta hæð og komst þar í um
eins stigs hita og þar með út úr ís-
ingunni. Flugstjórnarmiðstöðin í
Reykjavík fylgdist með ferðum vél-
arinnai', lét kalla þyrlusveit Land-
helgisgæslunnai' í viðbragðsstöðu og
gaf flugmanninum upplýsingar. Þeg-
ar vélin kom nær landinu komst hún
gegnum skil og gat farið upp í 10
þúsund feta hæð síðasta spölinn.
Skartgripasýning á vegum Sotheby’s haldin hér á landi
Demantseyrnalokk-
ar fyrir 5 milljónir
SÝNING á skartgripum á vegum
Sotheby’s í samvinnu við íslands-
banka verður haldin hér á landi í
byrjun marsmánaðar, en skart-
gripirnir verða boðnir upp hjá
Sotheby’s í Lundúnum síðar í
mánuðinum.
í samvinnu
við Islandsbanka
Sigríður Ingvarsdóttir hjá Sot-
heby’s á Islandi sagði í samtali við
Morgunblaðið að sýningin væri
haldin í samvinnu við Islands-
banka, en þetta væri í fyrsta skipti
sem Sotheby’s væri með skart-
gripasýningu á Norðurlöndum. Á
Yfir fjörutíu
skartgripir frá
þekktustu hönn-
uðum í heiminum
sýningunni verða yfir 40 skart-
gripir eftir þekktustu hönnuði í
heiminum, eins og Bulgari, Carti-
er, Drayson, Van Cleef & Arpels,
Verdura og Trio.
Sigríður sagði aðspurð að ekki
væri hægt að segja til um heildar-
verðmæti þeirra skartgripa sem
verða til sýnis hér, en sýningin
verður í húsakynnum íslandsbanka
2. og 3. mars. Á meðal gripanna má
nefha demantseymalokka með
perulöguðum demöntum, 4,93
karöt og 4,65 karöt. Lokkamir eru
metnir á 42 til 48 þúsund pund eða
5-6 milljónir króna. Þá má nefna
sett sem samanstendur af hálsfesti,
armbandi og hring með litlum
demöntum sem eru alls um 40,5
karöt og smaragðar sem eru alls
um 37 karöt. Settið er metið á um 4
milljónir króna. Þá er demants-
hringur á sýningunni sem metinn
er á 3,5 milljónir kr. Á sýningunni
era einnig gripir metnir á 250 til
350 þúsund krónur.