Morgunblaðið - 03.05.1998, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Jarlinn af Hrútafjarð--
ará og prjónakonur
Flaktur I gaml > ‘t . ,
OFT veltir lítill hnykill þungum laxmanni...
Rafrænn
InSA afsláttur!
<o>
NÝHERJI
NýherjaJbúðin * Skaftahlíð 24 * Reykjavík
Gullsmiðja og listmunahús
Skólavörðustíg 5 • Reykjavík
Kaupgardur
I MJÓDD
Þönglabakka 1, Mjódd • Reykjavík
_ JL
ÓÐINSVÉ
Óðinstorgi • Reykjavík
Nethyl 2 • Reykjavík
Ceislagötu 7 • Akureyri
Hafnargötu 30 • Keflavík
Lagarfelli 2 • Egllsstöðum
Þessi fyrirtæki veita öllum sem
greiða með VISA kreditkorti
rafrænan afslátt
Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt
©
FRIÐINDAKLUBBURINN
www.fridindi.is • www.visa.is
BERGSVEINN
AUÐUNSSON
BERGSVEINN Auðunsson,
skólastjóri í Vogaskóla, er látinn
48 ára að aldri.
Bergsveinn fæddist í Reykja-
vík, 12. júní árið 1949, sonur Auð-
uns Bergsveinssonar og Ingi-
bjargar Þorbergsdóttur. Hann
lauk kennaraprófl frá Kennara-
skóla Islands árið 1971 og sótti
síðan ýmis námskeið, meðal ann-
ars í skólastjórn. Hann kenndi við
barna- og unglingaskóla Hólma-
víkur á árunum 1971-72 og við
Barna- og unglingaskólann í
Hrísey frá 1972-75. Bergsveinn
var skólastjóri á Hólmavík árið
1975-77, skólastjóri Barnaskólans
í Ólafsfirði 1977-82, skólastjóri
Barnaskólans á Isafirði 1982-85
og við Grunnskólann í Garði í eitt
ár. Þá varð hann skólastjóri við
Grunnskólann í Stóru Vogum til
ársins 1996 er hann tók við skóla-
stjórn í Vogaskóla.
Bergsveinn var formaður Fé-
lags ungra framsóknarmanna í
Kópavogi. Hann lék með
leikklúbbi Kennaraskólans og
með leikfélagi Kópavogs.
Eftirlifandi kona hans er Sig-
ríður Ólöf Þóra Sigurðardóttir.
Bergsveinn lætur eftir sig tvö
börn, Ingibjörgu og Auðun, sem
hann átti með fyrri konu sinn en
auk þess var hann fósturfaðir
þeirra Jóns Ósmann og Agústs
Inga Davíðssonar.
McDonalds reyklaus veitingastaður
Þjónuðum rúm-
lega milljón
manns í fyrra
Pétur Þ. Pétursson
FYRIRTÆKIÐ Lyst
ehf. sem rekur veit-
ingastofur McDonalds
á Islandi ætlar að banna
reykingar á sölustöðum sín-
um frá og með þriðjudeginum
5. maí næstkomandi. Fyrsti
McDonalds staðurinn var
opnaður í september árið
1993 við Suðurlandsbraut og
tveimur árum síðar var önnur
veitingastofa opnuð í Austur-
stræti, þar sem Hressingar-
skálinn var til margra ára.
- Hvers vegna ætlið þið að
banna reykingar hjá ykkur?
„Við höfum lagt áherslu á
það að veitingastofumar séu
fyrir fjölskyldur og segja má
að þetta sé gert svo bömin
geti verið hjá okkur i heil-
næmu og reyklausu umhverfi.
Tóbaksreykur og matur fara
ekki mjög vel saman og þótt
við höfum leyft reykingar frá
upphafi á afmörkuðu svæði hefur
reykurinn engin landamæri eins
og allir vita. Við höfum fengið
margar kvartanir þótt ekki hafi
verið leyft að reykja á fleiri en 4-5
borðum undanfarið og leggjum
áherslu á að þessi ákvörðun er
ekki tekin gegn reykingamönn-
um. Markmiðið er það að fólk geti
borðað matinn sinn án þess að
þurfa að anda að sér tóbaksreyk.
Einnig má nefna, þótt það sé
ekki stórt atriði í þessu samhengi,
að orðið hafa miklar skemmdir í
Austurstrætinu út frá sígarettum.
Fólk hefur drepið í þeim á matar-
bökkunum og jafnframt er sóða-
skapur af öskunni og öðru sem
fylgir tóbaksneyslu. Þótt þetta
baki reykingafólki auðvitað óþæg-
indi má segja að við séum að
svara kröfum nútímans. Aróður
gegn tóbaki og tóbaksneyslu er
mikill og McDonalds veitinga-
staðir í heiminum eru langflestir
reyklausir."
- Hvað er kennt í hamborgara-
háskólanum?
„Það er ætlast til þess að allir
yfirmenn McDonalds kunni öll
störf hjá fyrirtækinu og geti
þannig gengið í hvaða verk sem
er. Byrjað er á byrjuninni þar
sem maður er látinn vera úti í sal
að þrífa, pússa og skúra gólf.
Markmiðið er að viðkomandi
kunni skil á öllum störfum til þess
að geta leiðbeint öðrum og sagt
þeim til. Tilgangurinn er líka sá
að komast að því hvort þetta svið
sé eitthvað sem maður getur
hugsað sér að starfa við. Skrif-
stofum McDonalds er líka lokað
einu sinni á ári svo starfsfólkið
geti unnið á veitingastöðunum,
svo dæmi sé tekið. Með þessu
móti gerir fólk sér stöðuga grein
fyrir því hverjar rætur
íyrirtækisins eru og
hvaðan tekjumar
koma.“
- Hverjir beina við-
skiptum sínum helst tii
McDonalds á íslandi?
„Það er fólk á öllum aldri. Við
höfum lagt miklu áherslu á að
reyna að gleðja börnin og greini-
lega mikil eftirspum eftir þeirri
þjónustu sem við veitum þeim.
Fyrirtækið hefur sem betur fer
gengið afskaplega vel og veitinga-
stofumar tvær þjónuðu vel yfir
einni milljón manns í fyrra. Suð-
urlandsbrautin er farin að nálgast
fulla nýtingu og því er fyrirséð að
við munum færa út kvíarnar í
framtíðinni."
- Valda McDonalds-veitinga-
staðirjafnan fjaðrafoki þegar þeir
eru opnaðir?
► Pétur Þ. Pétursson fæddist
árið 1954. Hann lauk stúdents-
prófi frá Verslunarskóla íslands
árið 1975 og stundaði atvinnu-
rekstur til ársins 1992. Pétur
stundaði jafnframt sex mánaða
starfsþjálfun og nám við
„Hamburger University" í
Englandi. Hann hefur starfað
hjá Lyst ehf. frá 1993. Eiginkona
Péturs er Kristín Jónsdóttir,
sem starfar á skrifstofu, og eiga
þau tvö böm. Hann er markaðs-
stjóri Lystar ehf. en fyrirtækið
er með viðskiptafeyfi fyrir
McDonalds á Islandi.
„Opnun hjá McDonalds vekur
ævinlega gífuriega athygli, sama
hvar er í heiminum, og allt að því
uppþoti sums staðar. Maður hef-
ur sér myndir af slíku, til dæmis í
Austur-Evrópu þar sem þúsundir
manna bíða í röð.“
- Er það rétt að McDonalds
eigi vondir menn sem vilja spilla
heilsu almennings í gróðaskyni?
„Þetta era fordómar sem sumir
hafa en staðreyndin er sú að
McDonalds hefur tekist að aðlaga
sig vel hverju landi þar sem fyrir-
tækið starfar. Gott dæmi er Sví-
þjóð þar sem McDonalds veit-
ingastofa var opnuð árið 1972
mitt í andstöðunni við Víetnam-
stríðið. í dag er McDonalds-keðj-
an vinsælasti vinnuveitandi í Sví-
þjóð og Svíar líta á hana sem
sænskt fyrirtæki. í byrjun var
hinsvegar reynt að sprengja
þessa staði.“
- Hvað með hina neikvæðu um-
ræðu um skyndibitafæði?
„Við höfum ráðið næringar-
fræðing til þess að aðstoða okkur
við að upplýsa almenning um
næringargildi matarins. Van-
þekkingin er mikil og ekki er
sama hamborgari og
hamborgari. Við vitum
hvað við emm að selja;
góðan mat úr fýrsta
flokks hráeftii og með-
höndlun okkar er eins
og best verður á kosið.“
- Þannig að McDonalds ham-
borgarar eru ekki óhollir?
„Nei. Það er auðvitað alltaf
hægt að rökræða um smekk en
tæknilega er hægt að vanda til
verka.“
- Myndir þú segja að þeir væru
hollir?
„Við eram að selja kjöt, brauð
og kartöflur og það er ekkert
óhollt við þá fæðu. Hins vegar er
þetta alltaf spurning fyrir hvern
og einn að gæta þess að fæðuvalið
sé fjölbreytt. Enginn lifir á ham-
borguram einum saman, frekar
en öðru.“
Næringargildi
hamborgara í
rannsókn