Morgunblaðið - 03.05.1998, Blaðsíða 48
W 48 SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ferdinand
Smáfólk
50 VOUR JOB 15 10
TAKE TWAT HOE AND
D16 OUT ALL THE
WEED5 AND R0CK5..
I CAN DO
THAT..UJHEN ,
DOWUWANT'
IT FINI5HEP?,
Ur
THI5
AFTERNOON
3-18
I U)A5 THINKIN6
MORE LIKE MAYBE
IN FIFTY yEAR5.
r~zr
Þetta á að
verða garður-
inn okkar...
Nú?
Svo að þitt verk er að taka
þetta hlújárn og grafa upp
allt illgresið og steinana...
Það get ég Núna í
gert...hvenær viltu eftirmið-
að því sé lokið? daginn.
Ég var nú svona meira
að hugsa um kannski
eftir fimmtfu ár...
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sfmi 569 1100 • Símbréf 569 1329
Þangað leitar
klárinn sem hann
er kvaldastur
Frá Snorra Páli Jónssyni:
JÓNAS Kristjánsson, ritstjóri DV,
grípur til líkingamáls úr hesta-
mennsku í nýlegum leiðara um borg-
arstjómarkosningarnar í Reykjavík.
Þar talar hann um að sjálfstæðis-
menn gráti í miðri á, skelfingu lostn-
ir yfir nýlegum skoðanakönnunum.
Viðbrögð ritstjórans kalla óhjá-
kvæmilega á aðra samlíkingu úr
hestamennskunni: Þangað leitar
klárinn sem hann er kvaldastur.
Þetta á einkar vel við um hvernig
Jónas keppist við að verja öfl sem
eru langt á veg komin með að eyði-
leggja það góða orð sem hann hefur
með harðfylgi skapað óháðu og
frjálsu DV á tveimur áratugum.
Erfítt er að ímynda sér hvaða
hvatir aðrar liggja að baki því að
Jónas skuli leyfa Össuri Skarphéð-
inssyni, hinum ritstjóra DV, að
flengríða blaðinu út í hin pólitísku
skítafen, þannig að aurinn slettist á
alla sem fyrir verða en þó mest á
blaðið sjálft.
Pólitísk þátttaka DV
Afneitunin hefur löngum komið að
góðum notum og sannast það í áður-
nefndum leiðara. Þar kvartar Jónas
undan því að sjálfstæðismenn skuli
gagnrýna DV (hann nefnir blaðið þó
ekki beinum orðum) fyrir að beita
sér í þágu R-listans.
Jónas segir að sjálfstæðismenn séu
að skamma sögumann fyrir ótíðindi.
Þar skjátlast ritstjóranum hrapal-
lega. DV er enginn sögumaður í þess-
ari baráttu. DV er beinn þátttakandi.
A þessu tvennu er mikill munur.
DV er áhrifamesti liðsmaður R-
listans í kosningabaráttunni í
Reykjavík um þessar mundir. Ekk-
ert heyrist frá R-listanum sjálfum,
enda eru frambjóðendur hans ennþá
að sleikja sárin eftir furðulegasta og
ólýðræðislegasta prófkjör sem fram
hefur farið í áratugi. DV er úlfurinn í
sauðargærunni í þessari kosninga-
baráttu. DV er fjölmiðillinn sem tU
skamms tíma hafði á sér orð fyrir að
veita stjómvöldum aðhald. En lengi
skal manninn reyna. Nú er DV í því
hlutverki að hefja meirihluta R-list-
ans í borgarstjóm til skýjanna en
níða skóinn af sjálfstæðismönnum
sem era í stjórnarandstöðu.
Össur Skarphéðinsson, meðrit-
stjóri Jónasar Kristjánssonar, er
höfuðpaur þess að misnota tíltrú les-
enda DV á áreiðanleika blaðsins.
Fyrir Össuri vakir það eitt að þessi
tiltrú endist fram að kjördegi þann
23. maí næstkomandi. Ossur er trú-
boði svilkonu sinnar Ingibjargar Sól-
rúnar og markmið hans í ritstjóra-
stóli DV er áframhaldandi valdaseta
R-listans.
Blaðamaður með kfkinn
fyrir blinda auganu
Með ólíkindum er að Jónas Krist-
jánsson skuli taka þátt í þessum hrá-
skinnaleik. Hann gengur meira að
segja svo langt í leiðara sínum að
telja það Ingibjörgu Sólrúnu tU
tekna að hafa gabbað almenning tU
að trúa því að kona sem býr í vestur-
bæ Reykjavíkur sé frambjóðandi
Grafarvogs á R-listanum.
Það færi Jónasi betur að taka Idk-
inn frá blinda auganu. Þannig þekkj-
um við lesendur DV hann. Við þekkj-
um hann sem ákæranda, blaðamann
sem veitir yfirvaldinu aðhald, blaða-
mann sem hjálpar almenningi að sjá
í gegnum blekkingaleik stjómar-
herra á hverjum tíma. Við eigum
erfítt með að skilja þann Jónas Kri-
stjánsson sem tekur þátt í ofsóknum
á hendur valdalausri stjómarand-
stöðu í borgarstjóm Reykjavíkur en
lætur svikulann meirihlutann í friði.
SNORRI PÁLL JÓNSSON,
Fjarðarási 10, Reykjavík.
Allan flokkinn á pólinn
Frá Guðmundi Bergssyni:
MAÐUR að nafni Ólafur Öm, auk
þess nú alltaf titlaður pólarfari, er
sagður hafa haldið mikinn og góðan
fund um hálendi íslands og náttúra-
vernd og ber að þakka það, því ekki
hefur verið svo mikil umræða um
jafnstórt og mikið mál sem snýst um
velferð lands og þjóðar.
Ef Ólafur pólarfari hefur fengið
einhverja sýn við að fara á pólinn,
þá væri æskilegt að allur þingflokk-
urinn færi á pólinn í þeirri von að
hann yrði eins og Ólafur, þegar þeir
kæmu til baka. Menn hafa verið
styrktir í ferðir þó minna væri í húfí
en að bjarga landi og þjóð (Kannski
myndi fólkið í Hvalfirði styrkja þá,
því þótt Hvalfirði verði ekki bjargað
þá gæti það bjargað öðrum fjörðum
frá álverum og olíuhreinsunarstöðv-
um.). Annað var hljóðið í þingliði
framsóknar þegar Straumsvíkurál-
verið var á dagskrá en nú era nýir
menn og það eru stóriðjumenn.
Engan af þeim sem ég hef talað við
rekur minni til að Ólafur pólarfari
hafi verið annarrar skoðunar en
aðrir í þingflokknum áður en hann
fór á pólinn. Þá var hann samþykk-
ur því að stór hluti þjóðarinnar sem
býr á suðvesturhorni landsins hefði
vægast sagt mjög takmarkaðan um-
gengnisrétt um hálendið enda áttu
bændur að mega girða sitt land frá
sínu túni og upp á hæstu tinda og
hafa stjómunarrétt á landinu og var
hann sáttur við að t.d. engjarnar á
Höllustöðum næðu upp á Hvera-
velli. Norðanmenn máttu leggja
Hveravelli undir sig og hrekja
Ferðafélagið í burtu með hús sem
búinn eru að standa þar áratugum
saman opin almenningi og er það
stórfurðulegt ef t.d. hús F.F.I eru
algjörlega réttlaus og verða að víkja
vegna laga sem verið er að semja.
Eins átti Hornafjörður að ná upp á
Bárðarbungu og þótti mörgum
skrítið. En svona er nú í raun nú-
tímaframsóknarmennskan á Alþingi
Islendinga á þvi herrans ári 1998.
Við verðum að vona að hinir fornu
landvættir reynist okkur hliðhollir
og bjargi okkur enn sem fyrr inn í
eina öldina enn.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.