Morgunblaðið - 03.05.1998, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 31
verðbréfafyrirtæki í útlöndum.
Magnús kveðst ekki kunna algilda
skýringu á því, af hverju önnur ís-
lensk fjármálafyrirtæki hafa ekki
farið sömu leið og Kaupþing. „Það
er vissulega stórt skref að stofna
verðbréfafyrirtæki erlendis og þarf
þor til að hrinda þeirri hugmynd í
framkvæmd. Sigurður Einarsson,
forstjóri Kaupþings, er maðurinn á
bak við hugmyndafræði okkar um
starfsemi erlendis, sem og Guð-
mundur Hauksson stjómarformað-
ur. Kaupþing er að fjárfesta fyrir
100 milljónir króna með stofnun
Kaupthing Luxembourg, en sú
ákvörðun var samt auðveldari en
þegar ráðist var í að stofna Kaup-
thing Management Company, því
þá renndum við blint í sjóinn. Núna
þekkjum við þetta viðskiptaum-
hverfi vel.“
Magnús er spenntur að takast á
við ný verkefni og segist hafa orðið
þeirri stundu fegnastur þegar
skýrt var frá stofnun Kaupthing
Luxembourg í fréttum. „Þegar ný
viðskiptahugmynd kviknar þá fylg-
ir því mikið pukur. Margir bestu
vina minna starfa hjá samkeppnis-
aðilum hér heima og það gerir
mágkona mín líka. Ég gat auðvitað
útskýrt tíðar ferðir mínar til Lúx-
emborgar með því að ég væri að
vinna fyrir Kaupthing Mana-
gement Company, en það var mik-
ill léttir þegar sannleikurinn var
gerður opinber. Við auglýstum
einnig eftir starfsfólki í blöðum í
Lúxemborg, að vísu ekki undir
nafni heldur sem „íslenskur
banki“, svo ég var smeykur um að
þetta spyrðist of snemma út.“
Hjón með útþrá
Ekki þurfti að leggja hart að
Magnúsi að taka að sér fram-
kvæmdastjórastöðuna í Lúxem-
borg. „Ég hafði alltaf hugsað mér
að fara til útlanda í framhaldsnám,
aðallega til að kynnast menningu
annarra þjóða og læra tungumál
þeirra. Enska er alþjóðlegt banka-
mál og því auðvelt að vinna í slíku
umhverfí. Hins vegar er Ijóst að við
hjónin verðum að læra meira í
frönsku, til þess að geta gert okkur
skiijanleg í öðru en að biðja um
reikninginn á veitingahúsum.“
Magnús segir að bæði hann og
Lovísa María kona hans hafí verið
haldin töluverðri útþrá. „Þar sem
við erum bamlaus eigum við auð-
velt með að losa landfestar. Núna
fáum við tækifæri til að þroskast
og læra. Ég fæ að byggja upp öfl-
ugt fyrirtæki og Lovísa María, sem
hefur stundað nám í útflutnings-
og markaðsfræðum við Endur-
menntunarstofnun Háskólans, ætl-
ar að læra meira úti. Við höfum
þegar fengið húsnæði í 3.500
manna þorpi rétt utan Lúxemborg-
ar. Frá Lúxemborg er stutt í allar
áttir og sunnudagsbíltúrinn getur
endað í Þýskalandi, Belgíu eða
Frakklandi. Margir íslendingar
búa í Lúxemborg og þar af tvær
fjölskyldur í sömu götu og við, svo
við ættum að geta bægt heim-
þránni frá, ef hún gerist ágeng.“
Nú er vetur úr bæ og ruslið úr görðunum á að fara sömu leið.
Tökum höndum saman með hækkandi sól og fegrum lóðirnar
okkar fyrir sumarið.
Eins og undanfarin ár leggjum við okkar af mörkum og
verðum með sérstaka hreinsunardaga frá laugardeginum
2. maí til sunnudagsins 10. maí. Pessa daga fara
borgarstarfsmenn um hverfin og hirða fulla ruslapoka.
Pokar verða afhentir í hverfabækistöðvum gatnamálastjóra.
Þeim sem þurfa að losa sig við annað en garðaúrgang er bent á
endurvinnslustöðvar Sorpu.
Atak í sötnun
Spilliefna
Sumartími endurvinnslustöðva Sorpu hefst laugardaginn 2. maí.
Þá er opið þar alla daga frá kl. 12:30 til 21:00.
Endurvinnsiustöðvarnar í Reykjavík eru á fjórum stöðum:
Við Ánanaust gegnt Mýrargötu.
Við Sævarhöfða gegnt malbikunarstöðinni.
Við Gylfaflöt austan Gufunesvegar.
Við Jafnasel í Breiðholti.
Látum ekki spilliefni safnast saman í heimahúsum, geymslum
eða á lóðum. Notum nú tækifærið, gerum hreint fyrir okkar
dyrum og komum hættulegum efnum í öruggar hendur.
Borgaryfirvöld, í samvinnu við spilliefnanefnd, standa fyrir
móttöku spilliefna laugardagana 2. og 9. maí á eftirtöldum
stöðum:
Skeljungur v/Birkimel og Hraunbæ.
Olís v/Álfabakka, Gullinbrú, Álfheima og
Sæbraut/Kleppsveg.
Esso v/Stóragerði.
Endurvinnslustöðvar Sorpu.
Skorað er á forráðamenn fyrirtækja að taka til á lóðum sínum.
Fyrir stóra og fyrirferðarmikla hluti er bent á Geymslusvæðið
í Hafnarfirði, sem hreinsunardeild gatnamálastjóra leigir út.
Við tökum pokann þinn
Verum samtaka í söfnun spilliefna.
vh/riitJ * vci*1
$ýiuvh visfvcn'
Borgarstjórinn í Reykjavík
-hreinsunardeild gatnamálastjóra