Morgunblaðið - 03.05.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 43
%
ÞORSTEINN
ÞORSTEINSSON
+ Þorsteinn Þorsteinsson fædd-
ist í Hafnarfirði 21. ágúst
1936. Hann lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 22. aprfl síðastliðinn
og fór útför hans fram frá Garða-
kirkju 29. apríl.
Góður drengur, Þorsteinn Þor-
steinsson, er látinn á sextugasta og
öðru ári, eftir harða og hetjulega
baráttu við illvígan sjúkdóm.
Þegar hans er minnst, er bjart og
fallegt bros hans, birtan og glettnin
í augum hans í fyrirrúmi. Þorsteinn
var sérlega fríður og karlmannleg-
ur á allan hátt og sópaði af honum,
hvar sem hann fór.
Fundum okkar bar fyrst saman
fyrir rúmum níu árum á sameigin-
legum kynningarfundi væntan-
legra sumarbústaðaeigenda í
Grímsnesi, á svæði, sem síðar fékk
nafnið „Bjarkarborgir" vegna legu
þess að jörðunum Minni-Borg og
Björk.
Allar götur upp frá því urðu
Þorsteinn og Svana góðir vinir
okkar með sameiginleg áhugamál
um uppbyggingu Bjarkar-borga.
Gott var að leita til Þorsteins, ef
eitthvað bjátaði á og eins að
bregða sér í kaffi og spjall til
þeirra í fallega húsið, þar sem þau
undu sér öllum stundum, meðan
heilsa gaf og alltaf var Þorsteinn
að smíða og fegra fyrir sig og
Svönu sína. Þorsteinn var í stjórn
„litlu hitaveitunnar okkar“ og eru
honum þökkuð störf þar, og var
hann líka endurskoðandi reikninga
félagsins.
Hér kveðjum við Þorstein Þor-
steinsson, mannkostamann og vin
vina sinna. Hans verður sárt sakn-
að í Bjarkarborgum og erfitt verð-
ur að trúa því að heyra ekki lengur
hláturinn hans og hnyttnu tilsvörin,
þegar kvatt var og haldið í bæinn.
Megi Drottinn vaka yfir sálu
hans og halda vemdarhendi yfir
elsku Svönu og bömum þeirra.
Farðu í friði, góði vinur.
Gerður G. og Sveinn A.
Bjarklind.
Deyr fé,
dejjafrændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Hávamál)
Komið er að kveðjustund, Steini
minn. Það er með söknuði sem ég
kveð þig, elsku frændi og vinur.
Alveg frá því ég man fyrst eftir
mér, man ég líka eftir þér. Það var
alla tíð mikill samgangur á milli
þín og foreldra minna, og seinna
meir eftir að ég cg Svenni byrjuð-
um að búa hafðir þú alltaf sam-
band við „Sissu frænku“. Við töl-
uðum nefnilega oft um það að þú
værir uppáhaldsfrændi minn og
ég uppáhaldsfrænka þín. Þetta
þykir mér mjög vænt um sérstak-
lega núna er ég rita þessi minn-
ingarorð um þig.
Eg var fimm ára gömul þegar
sími kom á mitt heimili, og alltaf á
jólunum hringdi jólasveinninn og
talaði við mig persónulega, spurði
hvort ég væri nú stillt og góð og
hvað ég væri að gera. Mér fannst
mikil upphefð í því að jólasveinn-
inn hringdi í mig en ekki vinkonur
mínar. En seinna meir komst ég að
því að ,jólasveinninn“ var enginn
annar en þú, Steini minn, ég held
að þú hafir haft jafngaman af
þessu og ég. Þótt þú byggir er-
lendis í nokkur ár gafst þú þér
ávallt tíma til þess að heimsækja
mig eða hringja til okkar þegar þú
komst til landsins. Og mikið hefur
mér þótt það notalegt að fá þig í
morgunkaffi þegar þú varst í fríi,
þá ýmist á leið til eða frá Reykja-
vík eða að koma úr sundi. Þetta
gerðir þú oft undanfarin ár. Við
ræddum sjaldan veikindi þín enda
barst þú þau ákaflega vel og sagð-
ist ætla að berjast sem þú svo
sannarlega gerðir. Þú varst ekki
sú manngerð að kvarta, enda já-
kvæður að eðlisfari, heldur þakk-
aðir fyrir það hvað þið Svana höfð-
uð getað ferðast mikið saman.
Ég tel það hafa verið mikla gæfu
fyrir þig, þegar þú kynntist henni
Svönu þinni. Þegar þú talaðir um
hana sagðir þú ávallt „hún Svana
mín“.
Hennar missir er mikill enda var
það ást, virðing og einstök sam-
vinna sem einkenndi samband ykk-
ar, það sést nú best á sumarbú-
staðnum ykkar sem þið byggðuð
austur í Grímsnesi. Oftast um helg-
ar og í fríum á meðan kraftur og
heilsa entust, fóruð þið austur í bú-
stað að rækta upp og smíða ýmis-
legt utandyra sem innan enda varst
þú mikill hagleiksmaður, allt lék í
höndunum á þér. Það var ánægju-
legt að koma í heimsókn til ykkar í
bústaðinn.
Ég veit að elskuleg amma mín og
móðir þín hefur tekið vel á móti
þér. Blessuð sé minning þín, Steini
minn, ég geymi hana í hjarta mínu.
Svönu og öðrum aðstandendum
sendi ég mínar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Sesselja Signý Sveinsdóttir.
2
1
2
1
2
1
o
(DaCta
i bara blómabtá
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tækifœri
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fáka\eni 11, sími 568 9120
2
1
2
1
2
|
o
OIOÍ#IOÍ#ÍOIO
STEINAR
Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró
íslensk framleiðsla
MOSAIK
Hamarshöfói 4 - Reykjavik
simi: 587 1960 -fax: 587 1986
Skila-
frestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útfór er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: I sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á fostudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
AUÐUR ÞORBJARNARDÓTTIR,
Skúlabraut 14,
Blönduósi,
er lést 26. apríl í Sjúkrahúsi Reykjavíkur, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 5. maí kl. 13.30.
Guðrún Steingrímsdóttir,
Benedikt Steingrímsson,
Guðmann Steingrímsson,
Þorbjörn Ragnar Steingrímsson.
og fjölskyldur.
t
Frænka okkar,
INGVELDUR SVEINSDÓTTIR
Hringbraut 50,
(áður Öldugötu 9),
andaðist 29. apríl í Sjúkrahúsi Reykjavíkur
á 95. aldursári.
Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni,
fimmtudaginn 7. maí kl. 13.30. Bálför fer fram
að lokinni útför.
Þeir, sem vildu minnast hennar, eru beðnir að
þess.
Guðborg Kristjánsdóttir,
Höskuldur Ólafsson.
Fjölmiðlar sýni
börnum nærgætni
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá umboðsmanni
barna:
„Umboðsmaður barna beinir því
tU fjölmiðla að sýna börnum nær-
gætni þegar fjallað er um persónu-
leg og viðkvæm mál sem þau varða.
I tilefni erindis frá Miðgarði, Fjöl-
skylduþjónustu í Grafarvogi, er mér
barst 24. þessa mánaðar, í kjölfar
fréttaflutnings á Stöð 2 mánudags-
kvöldið 20. sama mánaðar, hef ég í
dag látið í Ijós álit mitt á því, hvort
fjölmiðlar geti tekið viðtöl við böm
án leyfis forráðamanna þeirra.
í áliti mínu til Miðgarðs segir
m.a.:
f 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinn-
ar er svo fyrirmælt: „Börnum skal
tryggð í lögum sú vemd og umönn-
un sem velferð þeirra krefst.“ í sam-
ræmi við þessi fyrirmæli sjálfrar
stjórnarskrárinnar og samsvarandi
ákvæði í 3. gr. Barnasáttmála Sa-
meinuðu þjóðanna verður að telja að
sú grundvallarregla gildi hér á landi
að öllum aðilum, jafnt opinberum
sem einkaaðilum, beri í skiptum sín-
um við börn að hafa í fyrirrúmi það,
sem þeim er fýrir bestu, og forðast
að skaða hagsmuni þein-a.
í ljósi þessa tel ég að fjölmiðlum,
sem fara að mínum dómi með mikil-
væg hlutverk í þjóðfélaginu og hafa
stefnumótandi áhrif á þróun þess,
beri skylda til þess að taka mið af
fyirgreindum meginreglum þegar
þeir fjalla um mál sem varða böm á
einn eða annan hátt. Þessu til árétt-
ingar vísa ég til ummæla Thomas
Hammerberg, sem á sæti í Barna-
réttamefnd Sameinuðu þjóðanna,
þar sem hann gerir grein fýrir um-
fjöllun á fundi nefndarinnar nýlega
um efnið: „Barnið og fjölmiðlarnir".
Orðrétt segir hann (í lauslegri þýð-
ingu): „í stuttu máli var lögð áhersla
á að fjölmiðlar gegna þýðingarmiklu
hlutverki við að vekja athygli á al-
mennum mannréttindum og sjá til
þess að þau séu virt. Fjölmiðlar
ættu sérstaklega að gæta þess að
ganga ekki of nærri börnum. Svo að
dæmi séu nefnd ættu fjölmiðlar að
hafa í huga hagsmuni barna þegar
þau eru heimildarmenn, til dæmis
þegar rætt er við þau eða atburðir
eru settir á svið þar sem þau hafa
orðið fómarlömb ofbeldis og mis-
notkunar." (Ur ritinu: Children and
Media Violence, útgefnu af
UNICEF 1998, bls 32.)
Með vísun til þess, sem fyrr
greinir, er það álit mitt að bæði sé *
sjálfsagt og eðlilegt að bömum sé
gefinn kostur á að tjá sig í fjölmiðl-
um sem annars staðar um mál sem
þau varðar. Þó verður sú megin-
regla að sæta undantekningum þeg-
ar hagsmunir þeirra sjálfra eru í
húfi, eins og þegar til umfjöllunar
eru persónuleg og viðkvæm mál sem
þau bera ekki fyllilega skynbragð á
vegna ungs aldurs og skorts á lífs-
reynslu. I því sambandi má og vísa
tU 3. gr. Siðareglna Blaðamannafé-
lags Islands sem er svohljóðandi:
„Blaðamaður vandar upplýsingaöfl-
un sína, úrvinnslu og framsetningu
svo sem kostur er og sýnir fyllstu
tillitssemi í vandasömum málum.
Hann forðast allt, sem valdið getur
saklausu fólki, eða fólki sem á um
sárt að binda, óþarfa sársauka eða
vanvirðu.“
í kjölfar þessa álits vU ég hér með
beina því til fjölmiðla að þeir sýni
bömum nærgætni þegar fjallað er
um persónuleg og viðkvæm mál,
sem þau varða, þar á meðal verði
framvegis fylgt þeirri meginreglu af
hálfu fjölmiðla að birta ekki viðtöl
við böm undir sakhæfisaldri, sem
tengjast ætluðum afbrotum, og alls
ekki nema með samþykki foreldra __
þeirra eða annarra forsjáraðila."
Miðlun upplýsinga um umhverfismál
í ár veitir Noröurlandaráö umhverfisverölaun í fjóröa sinn.
Verölaunin nema 350.000 dönskum krónum og veröa
veitt fyrirtæki, stofnun, hópi eöa einstaklingi sem sýnt
hefur frumkvæöi á sviöi náttúru- og umhverfisverndar.
Aö þessu sinni veröa verölaunin veitt fyrir miölun
þekkingar á ástandi umhverfisins eöa viöhorfum til
þess. Ekki er einungis miöaö viö prent- eöa myndmiöla
og er öllum heimil þátttaka.
Tilgangur verölaunanna er að vekja athygli á
umhverfismálum á Noröurlöndunum.
Viðfangsefnið að þessu sinni er:
Miðlun þekkingar eða viðhorfa um ástand
og verðmæti náttúru og umhverfis ásamt
þeirri ógnun sem þar steðjar að.
Öllum er heimilt aö koma meö tillögur um
verðlaunahafa. Tillögum skal fylgja rökstudd verk-
efnislýsing ásamt upplýsingum um hver vinnur eöa
hefur unniö verkiö. Verkefniö veröur aö standast kröfur
um sérfræöiþekkingu og höföa til sem flestra í einu
eöa fleirum Noröurlandanna. Verkefnislýsingin má ekki
vera lengri en tvær A-4 blaösföur.
Verölaunahafinn veröur valinn af dómnefnd sem í sitja fulltrúar
allra Noröurlandanna og fulltrúar sjálfstjórnarsvæöanna Færeyja,
Grænlands og Álandseyja.
Tillagan veröur aö hafa borist eigi síöar en föstudaginn 29.
maí 1998 til:
Nordisk Rád
Den Danske Delegation
Christiansborg, 1240 Kdbenhavn K
Sími 0045 33 37 59 58, fax 0045 33 37 59 64
<
jr