Morgunblaðið - 03.05.1998, Blaðsíða 64
|T|N|T| Express
Worldwide
__ sao 1010
íslandspóstur hf
Hraðflutningar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Langri
jeppaferð
lokið
JÖKLAJEPPARNIR, sem
notaðir voru í leiðangri Sænsku
pólstofnunarinnar á Suður-
skautslandinu í vetur, komu til
landsins í síðustu viku með
Eimskipi. Ökumennirnir Freyr
Jónsson og Jón Svanþórsson
komu heim í byrjun mars. Par
með er lokið meira en 40 þús-
und kflómetra ferðalagi sem
með nokkrum sanni má telja
lengstu jeppaferð Islendinga til
þessa.
A Suðurskautslandinu var
bflunum ekið samtals 8.168
kílómetra yfír lagnaðarís, fljót-
andi íshellu, hjarn og gaddjök-
ul hásléttunnar. Færi var oft
erfitt og kuldinn mikill.
Að sögn þeirra Jóns og Freys
reyndust jeppamir ákaflega vel
og komu að miklu gagni. Þeir
voru notaðir til flutninga á fólki
og búnaði, til vísindastarfa og
mælingavinnu og sem íveru-
staðir. Erlendir leiðangurs-
menn fengu að reynsluaka jepp-
unum og undruðust getu og
þægindi þessara farartækja við
erfiðar aðstæður.
■ íslenskt hugvit/Bl
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Sverrir Hermannsson í opnu bréfí til Davfðs Oddssonar
Segir sig úr Sjálf-
stæðisflokknum
Hyggst láta til sín taka í kvótamálinu
SVERRIR Hermannsson hefur ákveðið að segja sig úr Sjálfstæðis-
flokknum og tilkynnir það í opnu bréfí til Ðavíðs Oddssonar forsæt-
isráðherra, sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar lýsir hann einnig
yfir því að hann hyggist ganga í lið með þeim, sem vilji spyrna við
fótum gegn því að „mesta óhæfa íslandssögunnar nái endanlega
fram að ganga“ og beita sér í kvótamálinu.
„Ég kveð þig og flokkinn minn
með trega,“ skrifar Sverrir í bréfinu
og segir að ástæðan fyrir úrsögn
sinni úr flokknum sé sú að meðan
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, sé ráðherra í skjóli
Sjálfstæðisflokksins hljóti hann að
hverfa þaðan í brott.
Aðalástæðan sé hins vegar stefna
Sjálfstæðisflokksins í kvótamálinu,
„örlagaríkasta máli íslenzku þjóðar-
innar, næst á eftir og jafnhliða sjálf-
stæðismálinu". I því máli, sem hann
kallar einu stóru mistök Davíðs á
stjómmálaferli hans, hafi hann ekki
getað beitt sér er hann var banka-
stjóri sakir þess að 65% af öllum
sjávarútvegsfyrirtækjum væru í við-
skiptum við Landsbankann og hann
hafi því verið bundinn í báða skó.
„Þegar ég hugsa til þess að ég
ber næst sjálfum þér mesta ábyrgð
á að þú náðir á sínum tíma kjöri
sem formaður flokksins sýnir sig að
„Tilvera okkar er undarlegt ferða-
lag“,“ skrifar Sverrir, sem var þing-
maður Sjálfstæðisflokksins á Aust-
urlandi 1971 til 1988, iðnaðarráð-
herra 1983 til 1985 og menntamála-
ráðherra 1985 til 1987, í opna bréf-
inu til Davíðs.
Noregur
brotlegur
við EES
EFTA-dómstóllinn hefur kveð-
ið upp þann dóm að Noregur
hafi brotið gegn samnings-
skuldbindingum sínum sam-
kvæmt samningnum um Evr-
ópska efnahagssvæðið. Skuld-
bindingamar sem um ræðir
em samkvæmt tilskipun frá 3.
desember 1992 um lágmarks-
kröfur og umbætur sem varða
öryggi, hollustuhætti og heilsu
starfsmanna í jarðefnanámi á
yfirborði jarðar eða neðanjarð-
ar.
Tilskipunin var tekin inn í
viðauka EES-samningsins 21.
mars árið 1994 og var stjóm-
völdum í Noregi ætlað að setja
nauðsynleg lög, reglur og önn-
ur stjómsýslufyrirmæli sam-
kvæmt því.
Sverrir sendir Ólafi G. Einars-
syni, forseta Alþingis, einnig opið
bréf, sem birtist í Morgunblaðinu í
dag, og kveðst vilja vekja athygli
hans á starfsaðferðum Ríkisendur-
skoðunar. Sverrir heldur því fram
að Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi hafi lotið leiðsögn Finns
Ingólfssonar bankamálaráðherra og
Helga S. Guðmundssonar, formanns
bankaráðs Landsbankans, við
vinnslu greinargerðar sinnar til
bankaráðsins um laxveiðiferðir á
vegum Landsbankans, risnu- og
fleira og þar með hafi hann brotið
gegn lögum um stofnunina. I 3. gr.
laga nr. 86 frá 1997 segi að Rflds-
endurskoðun sé engum háð í störf-
um sínum: „Starfsmenn Rfldsendur-
skoðunar skulu í einu og öllu óháðir
ráðuneytum og stofnunum sem þeir
vinna að endurskoðun hjá.“
■ Opið bréf/20
Góð byrjun
í Elliða-
vatni
NOKKUÐ á þriðja hundrað
manns hóf silungsveiði á fyrsta
veiðidegi í Elliðavatni í fýrradag,
að sögn Vignis Sigurðssonar eft-
irlitsmanns og sagði hann vel
hafa veiðst. Sagði hann einn hafa
verið kominn með 11 flska og
annan 9 um hádegisbilið og veið-
in í gærmorgun fór einnig vel af
stað. Dagsleyfi kostar 750 krón-
ur en 12-16 ára unglingar og þeir
sem eru eldri en 67 ára mega
veiða endurgjaldslaust og þurfa
allir að fá leyfi í Elliðavatnsbæn-
um eða á Vatnsenda. Veiðitíminn
stendur til 15. september og seg-
ir Vignir oft von á laxi með
haustinu. Vignir segir að kring-
um fjögur þúsund manns veiði
jafnan í Elliðavatni á hverju
sumn.
Meðferðarúrræði hjá Barnaverndarstofu
Um 30 ungiiienni bíða vist-
unar á meðferðarheimilum
FRÁ ÁRAMÓTUM hefur biðhsti
eftir meðferðarúrræðum hjá Bama-
verndarstofu lengst verulega og bíða
nú um 30 ungmenni vistunar. Bið-
tíminn var að meðaltali innan við
tveir mánuðir allt árið í fyrra en nú
stefnir í 5-6 mánaða biðtíma, að sögn
Braga Guðbrandssonar forstjóra
B arnaverndar stofu.
Hann segir að ástandið sé skelfi-
legt og þrátt fyrir að nú sé verið að
semja við heimamenn í Borgarfirði
um nýtt meðferðarheimili dugi það
engan veginn. Hann hefur sent fé-
lagsmálaráðherra greinargerð og átt
fundi með honum til að fara yfir þá
kosti sem koma til greina. Meðal
þeirra er Krýsuvíkurheimilið. Jafn-
framt kveðst Bragi hafa átt fundi
með yfirlækni geðdeildar Landspít-
ala og yfirlækni SÁÁ.
Davíð Bergmann unglingaráðgjafi
hjá Félagsmálastofnun hefur í sam-
vinnu við lögreglu, slökkvilið, Fang-
elsismálastofnun og fleiri verið með
forvarnarstarf fyrir unglinga, sem
taldir eru í áhættuhópi um afbrota-
hegðun. Segir hann að starfið hafi
skilað verulegum árangri og þriðj-
ungur drengjanna hafi ekki komist í
kast við lögin eftir hópstarfið, en
lögreglan eða félagsmálayfirvöld
hafi haft afskipti af flestum þeirra
áður. Hann segir forvarnastarf með-
al unglinga, sem eru komnir lengra
á afbrotaferlinum, vera erfitt viður-
eignar, meðan síbrotamenn gangi
inn og út úr yfirheyrslum á milli
þess sem þeir haldi áfram að fremja
afbrot.
I viðtali í Morgunblaðinu í dag
skorar hann á Pál Pétursson félags-
málaráðherra og Þorstein Pálsson
dómsmálaráðherra að mæta sér á
opinberum vettvangi til að ræða
þessi mál.
■ Tvöföld skilaboð/10