Morgunblaðið - 03.05.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ofbeldi á
Frá Vigfúsi Erlendssyni:
ÉG VAR á ferð eftir Laugavegi,
norðanmegin götu, til móts við
Laugaveg 103, ásamt 5 bömum, 7-12
ára, á leið á strætisvagnabiðstöðina á
Hlemmi sl. laugardag, 25. apríl kl.
u.þ.b. 16:50, þegar ég tók eftir hópi
fólks sem kom út úr krá, sem er við
hlið Tryggingastofnunar ríkisins
(mér hefur verið tjáð síðar að staður-
inn heiti Keisarinn). Voru þar ólæti
og slagsmál í uppsiglingu. Barst leik-
urinn út á götu fyrir framan staðinn
og tveir menn slógu og spörkuðu
hvor til annars. Voru þeir greinilega
vel drukknir og annar þeirra var
bólginn í framan og með blóðugt nef.
Kona á grænum Volkswagen
Passat, sem átti þama leið um, steig
út og bað einhvem um að hringja á
lögreglu. Þar sem ég var með far-
síma hringdi ég strax 1 112, sem
beindi símtalinu til lögreglunnar. Ég
reiknaði með að ekki gæti tekið lang-
an tíma að senda t.d. tvo menn frá
lögreglustöðinni, sem er þar nánast í
næsta húsi, en fékk þau svör að eng-
inn bíll væri tiltækur, en reynt yrði
að senda bíl um leið og einhver væri
laus.
Meðan ég var að tala við lögregl-
una gekk annar karlmaður í skrokk
á konu fyrir framan Islandsbanka,
sló hana í andlit og sparkaði í hana
liggjandi (á homi Laugavegar og
Hlemms). Vændi hann hana um að
hafa hótað sér með hnífi, sem ég sá
þó engan. Ýmsir hlutir, sennilega úr
tösku konunnar, þeyttust eins og
alfaraleið
hráviði úti um allt. Konan var einnig
dmkkin og kom úr áðumefndum
hópi fyrir framan Keisarann. Arás-
armaður konunnar virtist ekki vera
áberandi drukkinn og var þokkalega
klæddur, síðri og frekar víðri
íþróttaúlpu.
Einn maður í blárri háskólatreyju,
að því er virtist ódrakkinn, sem gat
hugsanlega verið dyravörður eða
starfsmaður á kránni, reyndi eitt-
hvað að hamla slagsmálum þessum,
en fékk lítt við ráðið
Slagsmál þessi og barsmíðar urðu
fyrir augunum á skelfingu lostnum
börnunum, sérstaklega brá þeim við
aðfarir mannsins við konuna og vora
miður sín lengi á eftir.
Ég kom börnunum, sem ég bar
fyrst og fremst ábyrgð á, sem fyrst í
strætisvagn, enda vissi ég ekki
hvemig málum myndi frekar reiða af
á svæðinu eftir daufleg viðbrögð lög-
reglu.
Það er ömurlegt að geta ekki farið
leiðar sinnar eftir fjölfarinni leið að
aðalstrætisvagnabiðstöð borgarinnar
á því sem næst miðjum degi án þess
að upplifa slíka hluti og sérstaklega
ömurlegt að þurfa að upplifa böm
verða vitni að slíkum atburðum, sem
hér að ofan er lýst.
í samtali mínu síðar sama dag við
lögregluþjón í upplýsingasíma lög-
reglunnar fékk ég upplýst að Keisar-
inn, eins og krá þessi heitir, sé lög-
reglunni mikill þyrnir í augum og
margar kvartanir hafi borist vegna
hennar.
Það skal engan undra að fólk, sem
ÞAÐ er ömurlegt að geta ekki
farið leiðar sinnar eftir fjölfar-
inni leið að aðalstrætisvagnabið-
stöð borgarinnar á því sem næst
miðjum degi án þess að upplifa
slíka hluti, segir í greininni.
á leið þama um sé óttaslegið, ef slík-
ir atburðir geta átt sér stað. Bæði er
mikið af börnum og unglingum, sem
nota strætisvagna borgarinnar og ef-
laust eiga ýmsir aldraðir og öryrkjar
leið í Tryggingastofnun, sem er
þama í næsta húsi.
Það hlýtur að vera sjálfsögð krafa
að staður eins og þessi, þar sem ým-
iss konar ógæfufólk safnast saman,
sé ekki í slíkri alfaraleið og honum
verði lokað hið snarasta.
VIGFÚS ERLENDSSON
Akurgerði 21, Reykjavík.
Um sameiningu þjóðarinnar
Frá Hjalta Jónassyni:
ÞEGAR býður þjóðarsómi era sálir
okkar sameinaðar í eina mikla sál.
Nú gerðist það fyrir nokkra að upp
komst að bankastjórar Landsbank-
ans höfðu haldið áfram á áður lagðri
braut í risnu og fiskveiðum. Síðan
hafa verið miklir gleðidagar í flest-
um fjölmiðlum. Allt frá kverúlöntum
á rás 2 til uppþomaðra rithöfúnda og
Alþingisliða hefir hljómað fordæm-
ing á risnu og fiskveiðum. Andi Þor-
leifs Kortssonar lögmanns hefir svif-
ið yfir vötnum og góð von um að
galdrabrennur verði upp teknar að
nýju enda eldiviðarleysi ekki til baga
lengur. Á svona stórum stundum er
gaman að vera íslendingur. Samtök
um þjóðareign, hvað svo sem það nú
er, era komin í málið enda auðveld-
ara við að eiga en kvótaeigendur.
Allir fordæmendur hafa beint spjót-
um sínum að Sverri Hermannssyni
og flestir ef ekki allir sótt að honum
eins og hann einn væri upphafsmað-
ur risnutöku og fiskveiða. Nú er það
svo að allt þetta réttláta fólk sem
ausið hefir úr skálum reiði sinnar
virðist telja rétt að Sverrir Her-
mannsson verði látinn einn og
óstuddur taka á sig allar sakir. Ef nú
samtök um þjóðareign eða þjóðarsál
meina eitthvað með kröfum sínum
um réttlæti verður að fara a.m.k. 30
ár aftur í tímann og reikningana og
ekki eingöngu í Landsbankanum
heldur í öllum musteram Mammons.
Undirritaður, sem telur sig ekki
þurfa að gerast félagi í nefndum
samtökum til að eiga h'tinn hlut í
þjóðareigninni, gerir þessa kröfu.
Það er ósanngjamt að ráðast að
Sverri Hermannssyni og Kjartani
Gunnarssyni, það er fyrirkomulagið
sem verður að breyta, það bauð upp
á þau mistök sem gerð vora mörg sl.
ár. Enginn vill muna þau ágæt verk
sem Sverrir Hermannsson vann, t.d.
að hreinsa út það mein sem SÍS var í
Landsbankanum og varla er sann-
gjarnt að skrifa á hans reikning þær
miklu fjárhæðir sem misvitrir
stjómmálamenn með sjálftökuvald
létu bankann leggja í vonlaus fyrir-
tæki.
HJALTIJÓNASSON,
Hlunnavogi 3, Reykjavík.
Magni Sigurhansson
Framkv.»tjóri Alrrabæ
Kennt er þrisvar í viku í fjórar vikur.
Windows 95, Word 97, Excel 97, og
notkunarmöguleikar Internetsins.
Samtals 48 klukkustundir.
Næstu nómskeið byrja 12. maí.
„Með nóminu fékk ég mjög
góða yfirsýn yfir möguleika
PC tolvunnar og góða
þjólfun í notkun þess
hugbúnaðar sem ég nota
hvað mest I starfi mínu.þ.e.
ritvinnslu, tóflureikni og
Internetinu. Oll aðstaða,
tskjabúnaður og
frammistaða kennara hjó
NTV var fyrsta flokks og
nómið hnitmiðað og
órangursríkt."
Vönduð námsgögn
og bækur fylgja
öilum nómskeiðum
upp ■ Víub & Euro
ruilgreiðslur
Nýi tðlvu- &
viðskiptaskálinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Simi: 555 4980 - Fax: 555 4981
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasiöa: www.ntv.is
Edenborg
Kjörgarði, Laugavegi
Gólfmottur frá kr. 1.700
Terylene herrabuxurnar vinsælu, sama lága verðið kr. 1.990
Köflóttar herraskyrtur, bómull, 2 stk. á kr. 1.500
Dömubolir kr. 1.200
Úrval af barnafatnaði.
Munið allt á Edinborgarverði!
Innkauparáðstefnan ^ ggg
Innkauparáðstefna Ríkiskaupa og stjórnar opinberra innkaupa verður haldin þriðjudaginn 5. maí kl. 13:00-16:30 á Hótel Loftleiðum.
Dagskró:
13:00 Setning Þórhallur Arason tormaður stjórnar opinberra innkaupa
13:05 Útboð á rekstrarverkefnum Raunhœf dœmi úr opinberum innkaupum um vel heppnuð þjónustuútboð Jón H. Ásbjörnsson deildarstjóri hjá Ríkiskaupum
Reynsla af útboðum á þjónustuverkefnum úr einkngeiranum Kristinn Guðjónsson rekstrarhagfrœðingur hjá VSÓ hf. Rekstur og leiga tölvukerfa Marina Candi hjá Áliti hf. Nýjar tegundir þjónustu vegna reksturs töivukerfa fyrirtœkja og stofnana Stefán Kjœrnested markaðsstjóri hjó Skýrr hf.
14:20-14:35 Fyrirspurnir og hlé
14:35-14:50 Heimsíða Ríkiskaupa á veraldarvefnum Þjónusta Ríkiskaupa við upplýsingaleit á veraldarvefnum Ægir Sœvarsson markaðsstjóri hjá Ríkiskaupum
14:50-15:05 SIMAP
Útboðsauglýsingar sendar á EES með rafrœnum haetti Helgi Bogason verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum
15:15-15:45 Fyrirspurnir og hópumrœður
15:50-16:20 Hópar skila niðurstöðum
16:30 Ráðstefnulok
Hópar í hópumrœðum rœða:
1. Þjónustuútboð
2. Notagildi heimasíða og upplýsingatœkni á netinu I 3. Útboð á netinu; útvegun gagna og sending tilboða Þómökugjald aðeins kr. 2.000.- Illif RftrtókATTP Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 552 6844, W ÍÍ'AÍMÍAu.V.h
j simbréf 562 6739 eða netfang rikiskaup@rikiskaup.is
1