Morgunblaðið - 03.05.1998, Side 18

Morgunblaðið - 03.05.1998, Side 18
18 SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Töfraflautan lævi blandin ÚR Töfraflautunni í Berlín. Uppsetning Töfraflaut- unnar í Komische Oper í Berlín býður upp á margvíslegar vanga- veltur, segir Sigrún Davíðsdóttir. STÓRBORG eins og Berlín býður ekki einungis upp á eitt, heldur heil þrjú stór óperuhús, sem keppa um athygli og áhorfendur, stundum jafnvel með sömu óperunum. Þess- ar vikurnar gengur Töfraflauta Mozarts bæði í Ríkisóperunni Unt- er den Linden og eins í Komische Oper, í uppsetningu tveggja af þekktustu óperustjórum Þjóðverja, þeirra Augusts Everdings og Harrys Kupfers. Það var uppsetn- ing hins síðamefnda í Komische Oper, sem varð ofan á í þetta skipt- ið. Komische Oper er eitt af merk- ustu óperuhúsum heims. Að utan er húsið í einföldum fúnkisstíl, en að innan er gylling og rautt pluss í kílómetratali. Því stærra því betra gildir tvímælalaust ekki í óperuhús- um og Komische Oper er af mjög vingjamlegri og viðkunnanlegri stærð. Hvað miðaverði viðvíkur sýnir það að við erum greinilega í Þýskalandi, þar sem jafn sjálfsagt þyldr að greiða niður óperumiða og aðra menntun. Fyrir ungmenni undir 26 ára aldri era stúdentamið- ar á hálfvirði. Þannig kostuðu þrír stúdentamiðar á besta stað aðeins tæplega sex þúsund íslenskar krón- ur, svo hér horfír það öðruvísi við að ala upp næstu óperakynslóð en það gerir víða annars staðar. Sjónrænn vitnisburður síðasta áratugar „Rosalega er þetta „eitís“,“ varð hinum stflnæma átjánáring að orði, þegar kom að hléinu. Og mikið rétt, uppfærslan var framsýnd vorið 1986. Síðasta-áratugs yfírbragðið lýsir sér í litavali og formum sviðs- myndarinnar, en einnig í órólegum og leitandi brag sviðsetningarinnar í heild. Sviðsmyndin samanstendur af tumlaga ferhymingum með eins og Ijósritum af byggingum frá ýms- um tímum. Þessum tumum er stöðugt ekið til, svo sviðsmyndin er á sífelldri hreyfingu, þar sem söngv- ararnir feta sig eða hlaupa til á milli þeirra og til að auka enn á hreyf- ingu og glundroða er hringsviðið notað óspart. Þannig renna atriðin saman og áfram, því jafnvel innan sama atriðis er allt á hreyfingu. „Aksjón" er lyldlorðið. En fyrst talað er um uppsetningu dæmigerða fyrir síðasta áratug vaknar auðvitað spumingin um hvemig „næntís" up’psetning líti út. Svarið er ekki einhlítt, en aimennt era uppfærslur þessi árin einfaldar, stflhreinar og með hreinum línum, eða alla vega tilraunir í þessa átt, í anda fagurfræði naumstefnunnar, „mínimalisma“, sem er áberandi í arkitektúr og innréttingum. Einnig óperauppfærslur era því háðar tískustraumum samtímans. Borgarleikur í lævi blöndnu andrúmslofti Töfraflauta Mozarts er tvímæla- laust ekki ein af þeim einfaldari að setja upp. Ein rómaðasta uppsetn- ing Töfraflautunnar seinni tíma er uppsetning Ingmars Bergmans, þar sem hann gerir nokkurs konar stofuævintýri úr óperanni. I hönd- um hans verður ævintýrið bama- leikur í heimahúsi á síðustu öld og öðram hefur vart tekist jafnvel að láta söguna ganga upp á einfaldan og snjallan hátt. Stund og staður óperannar era í lausu lofti, þrátt fyrir skírskotanir til egypskrar goðafræði. Hún er undarlega löng á svipaðan hátt og Don Giovanni, svolítið eins og á reiki, þar sem skýtur upp atriðum, sem koma örlítið þvert á söguþráð- inn. Hún er ævintýri, en líka sið- ferðisdæmi og það hefur ekki svo lítið verið skrifað um frímúratilvís- anir hennar. Óperan, sem var frum- sýnd 1791 byggðist á austurlensk- um ævintýram, sem komu út í Þýskalandi fimm áram áður. A þessum tíma var Evrópa í uppnámi vegna frönsku byltingarinnar tveimur áram áður, alls kyns orðrómur á kreiki og alls staðar leitað að huldum, pólitískum skoð- unum. Þegar árið 1795 lét leyni- þjónustan í Vín dreifa bæklingi, þar sem því var haldið fram að Töfraflautan væri ein alls herjar al- legóría um frönsku byltinguna. Það er þetta andrúmsloft, sem Kupfer virðist taka mið af að hluta í upp- setningu sinni. Á yfirborðinu fer Kupfer leiðina að ævintýrinu, sem hann setur upp á ævintýralegan og viðburðaríkan hátt, þar sem hreyfingin er hinn einkennandi þáttur eins og áður er nefnt. Hvorki í sviðsmynd né bún- ingum ræður nein ein lína hvað varðar umhverfi, stund og stað, heldur era þar vísanir til samtím- ans, klassískrar menningar og æv- intýraútgáfa 18. aldar. Persónur Bergmans hlupu um í stofunum, en hjá Kupfer hlaupa þær um innan um myndir af húsum frá ýmsum tímum. Óperan verður ekki stofu- leikur, heldur borgarleikur, er eins og áður er nefnt gæti leitt hugann til andrúmsloftsins á tflurðartíma óperannar, þar sem orðrómur og gransemdir ullu fram á hverju götuhomi. Og til að undirstrika þennan anda era persónumar stöðugt að skjótast fyrir hom, hitt- ast á strætum og það er órói og lævi blandin undiralda allt um kring. Mistækur sönghópur Það virðist kannski í fljótu bragði að mikið sé til af söngvuram, en það er líka mikið til af óperahúsum, sem sýna í gríð og erg og þurfa sitt til að halda sér og sýningum sínum gang- andi. Jafnvel stór og virt hús eins og Komische Oper eiga ekki alltaf auðvelt með að skipa vel í hlutverk- in. Það reyndist svo á þessari sýn- ingu Töfraflautunnar, því söngvar- amir vora alls ekki slíkt einvalalið sem óska mætti. Matthias Hölle er margreyndur söngvari og gnæfði bæði líkamlega og sönglega langt yfir ýmsa af meðsöngvuram sínum þetta kvöld í hlutverki Sarastros. Islenskir áheyrendur hafa gjarnan Kristin Sigmundsson sem sína Sarastroviðmiðun, bæði frá flutn- ingi Islensku óperunnar og fjarska fallegri upptöku frá Drottningholm 1992. Hölle er ögn grófari og bassa- kenndari en Kristinn og hefur ekki milda dulúð hans, en er annars firna áhrifamikill á sviði. Pamina var sungin af Melbu Ross á látlausan og fallegan hátt, en sama var ekki hægt að segja um Tamino, sunginn af Sangho Choi, þar sem söngurinn var áhrifalítfll og túlkimin vandræðaleg. Ross hefði átt auðveld- ara uppdráttar ef hún hefði haft mótsöngvara á sama plani og hún sjálf. Það sást ekki síst í atriðunum með Sarastro, þar sem hún naut sín til fulls. Ójafnvægið á þeim Ross og Choi dró sýninguna veralega niður. Karsten Mewes sem Papageno var ekki aðeins stórgóður og sterkur söngvari, heldur einnig leikari af Guðs náð, án þess þó að falla í þá gryfju að ofgera fuglaveiðimanninn. Og Johanna Stinnez sem Papagena veitti honum verðugan mótleik, söng jafn fallega og hann og lék á sömu léttu og leikandi nótunum og Mewes, svo það gneistaði af þeim. Aríur Næturdrottningarinnar era alltaf gríðarlegt tilhlökkunar- efni, en svo reyndist ekki þetta kvöld. Elsbeth Reuter hefur radd- burði til að takast á við hlutverkið, en það misgengi, sem var milli hennar og hljómsveitarinnar hlýtur að skrifast á kostnað hljómsveitar- stjórans Michail Jurowski. Almennt gerði hann söngvurunum erfitt fyrir með sterkum leik, en það er því miður næstum viðtekinn galli á óp- erauppsetningum. Hljómur hússins er himnafagur, en af einhverjum ástæðum virtust blásturshljóðfærin, einkum klarínettið, liggja undarlega ofan á og það kom illa út í aríum Næturdrottningarinnar. Það er alltaf upplifun að koma í nýtt óperahús og heimsóknin í Komische Oper var engin undan- tekning. Ný uppsetning gefur alltaf tækifæri tfl vangaveltna og það er líka áhugavert að sjá að jafnvel hús á borð við Komische Oper getur ekki alltaf boðið upp á ósvikið ein- valalið. Óperan er erfið listgrein, án tillits til fjármuna og reynslu. UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Valhöll, Háaleitsbraut 1, 3. hæð, 105 ReyKIavík Símar: 515 1735, 515 1738 Farsími: 898 1720 Bréfasfmi: 515 1739 Netfang: utankjorstada@xd.is Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumanninum ( Reykjavík, Skógarhlíð 6, 3. hæð, virka daga kl. 9.30 - 15.30. Skrifstofan gefur upplýsingar um allt sem lýtur að sveitarstjórnakosningunum 23. maí n.k. SJÁLFSTÆÐISFÓLK! Hafið samband ef þið verðið ekki heima á kjördag Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur www.mbl.is/fasteignir Sinfónían í heimsókn til Grundar- fjarðar GrundarQörður. Morgunblaðið. HEIMSÓKN Sinfóníuhljómsveitar íslands í lítil sjávarþorp er stórvið- burður í augum þorpsbúa. Sjötíu manns með hljóðfæri fylltu íþróttahúsið í Grandarfirði og spil- uðu fyrir nemendur grannskólans á skólatíma, en um kvöldið vora tón- leikar sem höfðuðu bæði tfl barna og fullorðinna. Efnisskráin var löguð að tónlistar- iðkun þorpsbúa, kirkjukórinn fékk tækifæri til að syngja með hljóm- sveitinni en mesta athygli vakti frammistaða bamakórsins. Hann söng syrpu af bamalögum með hljómsveitinni og fengu þar nokkrir ungir og efnilegir einsöngvarar tæki- færi til að syngja einir með hljóm- sveitinni. Þetta þótti takast mjög vel og ánægðust vora börnin sjálf. í hléinu var tíminn nýttur til að sýna bömunum hljóðfærin. Mesta athygli vakti harpan og hópuðust bömin í kringum hana og fengu að slá strengi hennar undir leiðsögn hörpuleikarans Moniku Abendroth. Búast má við að heimsókn sem þessi opni augu margra bama fyrir gildi tónlistar og hvetji þau til dáða. Morgunblaðið/Halldór Vorhátíð í Listaklúbbi L eikhúskj allar ans NOKKRIR listamenn halda há- tíð í tilefni vorsins mánudags- kvöldið 4. maí kl. 20.30 í Lista- klúbbi Leikhúskjallarans. Fjöl- breytt dagskrá er i boði. Skáldin Linda Vilbjálmsddtt- ir, Guðrún Guðlaugsdúttir, Bragi Ólafsson, Sjdn, Margrét Lóa Jónsdóttir, Hallgrímur Helgason og Krislján Þórður Hrafnsson lesa úr verkum sfn- um. Áshildur Haraldsdóttir leikur á flautu, píanóundirleik annast Iwona Jagla. Sópransöngkonan Ásgerður Júníusdóttir syngur lög um vor- ið við undirleik Iwonu Jöglu. Kynnir verður Inga María Valdimarsdóttir, leikkona. Dagskráin hefst sem fyrr segir kl. 20.30 en húsið er opn- að klukkustund fyrr eða kl. 19.30.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.