Morgunblaðið - 03.05.1998, Síða 27

Morgunblaðið - 03.05.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 27 höfum við búið til æfingar sem við höfum þróað í kringum liti. Sumir ) kunna þegar á litina en aðrir, sér- staklega eldri kynslóðin, hefur I aldrei snert liti. " Og við erum að sjá fullt af litlum kraftaverkum gerast. Við vinnum með hvem einstakling; sníðum verk- efnin eftir hverjum og einum í stað þess að búa til prógram fyrirfram sem þau verða að geta ráðið við. Við notum mikið bolta og föram í ýmsa samskiptaleiki með þá. Síðan búum við til sögur og ævintýri, not- um kubba og þrautir og þroskaleik- fóng. Við urðum okkur líka út um | lítið hljómborð, og eram að eignast ' annað, svo við getum búið til tónlist. Við geram bara allt mögulegt sem okkur dettur í hug.“ En hvers vegna skiptið þið þeim upp í hópa? „Félagarnir era orðnir of margir til að hægt sé að sinna hverjum og | einum vel ef allir era saman. Við skiptum upp í hópa eftir því hvernig þau eiga saman. Hver hópur er að vinna sitt og það er mjög ólík stemmning í hópunum." En ef það koma fleiri? „Þá búum við til fleiri hópa.“ Hvemig er starfsemin fjármögn- uð? „Þátttakendurnir greiða mánað- argjald sem hefur auðvitað engan veginn dugað. Þess vegna höfum við k fengið styrktaraðila - einstaklinga og fyrirtæki til að styrkja blað sem við gefum út á næstunni og hefur að geyma myndir eftir þátttakend- urna, sögur þeirra og annan texta sem þeir hafa verið að vinna í vetur. í blaðinu verður smáklausa um hvern listamann. Nú, upp úr ára- mótunum leituðum við til ýmissa fyrirtækja til að styrkja blaðið og fengum þá peninga til að kaupa betra dót, til dæmis betri liti og | betri pappir." Klappað á bakið Hvað með fjármagn úr opinber- um sjóðum? „Nei, ekkert. Við leituðum til Iþrótta- og tómstundaráðs, Reykja- víkurborgar, Félagsmálastofnunar, skrifuðum félagsmálaráðherra per- sónulegt bréf, hringdum í mennta- málaráðuneytið til að spyrja til ; hvaða stofnana við gætum leitað | o.s.frv. Niðurstaðan er sú að ég get sótt um styrk til Reykjavíkurborgar í nóvember fyrir árið 1999. íþrótta- og tómstundaráð sagðist gjaman vilja gera eitthvað til að starfsemin gæti haldið áfram, vegna þess að við eram með hóp sem mjög lítið er í boði fyrir - það er nóg í boði fyrir þá sem geta sótt sér sjálfir það sem þeir vilja - en ráðið á ekkert fjármagn. En mér var klappað á bakið.“ Móttökurnar urðu þó síður en svo | til að draga kjarkinn úr Þóranni. Hugmyndir hennar era óþrjótandi og draumarnir skýrir. „Minn draumur er að safna saman mynd- unum þeirra, setja upp litla sýningu - til að sýna hvað þau eru æðisleg. Þetta era ekki bara líkamar sem eru til vandræða og baggi á þjóðfé- laginu. Þetta eru sálir sem fmnst gaman að lifa. Markmiðið með blað- inu er að finna litla leið til að þau ! geti tjáð sig í þjóðfélaginu og verið | sýnileg sem manneskjur. Þau eru of falin. Það er of mikið fjallað um þroskahefta í stað þess að leyfa þeim sjálfum að tjá sig. Við höfum séð myndlistarsýningar einhverfra, leiksýningar hjá Perlunni. Það eru fleiri en ég að starfa við félagsstarf þroskaheftra. Eg er að bjóða upp á enn einn möguleikann." Hver hlær? i „Hluti af þessari hugmynd varð til þegar ég var að vinna útvarps- þáttinn. Þá skrifaði frænka mín niður litla texta sem vora mjög ein- faldir og mér fannst þeir mjög fal- legir. Mig langaði til að safna text- um frá þroskaheftum og búa til litla bók. Ég bar hugmyndina undir ráðamenn í þessum geira en fékk þau viðbrögð, frá einum þeirra, að þetta gæti verið varasamt, vegna þess að einhver gæti hlegið að þeim! Frá öðrum fékk ég þetta hefðbundna klapp á bakið. Enginn vildi gefa út bókina.“ Þórann segist eiga mjög erfitt með að sldlja svona afstöðu. „Hver hlær?“ spyr hún og bætir við: „Mér finnst skilningur almennings og virð- ing við þroskahefta miklu meiri en áður var. Ég hef alist upp með móð- ursystur minni og það hafa gríðar- legar viðhorfsbreytingar átt sér stað í samfélaginu. Þegar við fóram út á kaffihús, eða út að borða, finnst mér fólk almennt mjög jákvætt. Það hjálpar okkur, hliðrar tO og sýnir okkur elsku- legt viðmót. Þroska- heftir finna hvað að þeim snýr. Þeir hafa sjálfsmat eins og aðrir. Þeir hafa sömu þörf fyrir að tjá sig, styrkja sjálfsmatið og efla sjálfsvirðinguna. Þeir hafa líka sömu þörf og aðrir fyrir að skilja eitthvað eftir sig.“ Finnst þér gæta of lítils skilnings á þessum þáttum? „Já, mér finnst vanta að fólk sjái fegurðina í þroskaheftum. Þetta era manneskjur sem hafa allar sömu til- finningarnar og við, eiga sér drauma og langanir. En þau eru berskjaldaðri. Við höfum mætt skilningi á þess- um þáttum hjá fjölmörgum fyrir- tækjum og stofnunum sem við höf- um leitað til. í Þjóðleikhúsinu hefur verið tekið vel á móti okkur. Við höfum fengið að koma á forsýningar - því það getur verið traflandi að koma með suma einstaklingana á al- menna sýningu. Þau sitja ekki öll kyrr og hafa ekki öll steinhljóð. í Loftkastalanum hafa líka allar dyr staðið okkur opnar og þar hjálpa menn okkur fram og til baka með hjólastólana og snúast í kringum okkur. Það sama má segja um Sin- fóníuhljómsveitina sem leyfði okkur að koma á æfingu. Síðan hringdum við í Fóstbræður og Stuðmenn og spurðum hvort við mættum koma á æfingu hjá þeim - og þeir voru svo jákvæðir og skemmtilegir að það verður lengi í minnum haft. Svo er það nú uppáhaldsveitingastaðurinn þeirra, Hard Rock. Þar er helm- ingsafsláttur fyrir fatlaða og fylgd- armenn þeirra. Okkar fólki finnst óskaplega gaman að fara þangað." Þetta er alltaf gefandi Maður þarf ekki að spjalla lengi við Þórunni til að heyra að hún veit um hvað hún er að tala. En hvernig vissi hún að hennar aðferðir myndu reynast haldgóðar? „Ég fór í eins árs nám í leiklistar- leiðsögn í Svíþjóð," segir hún. „Þar í landi fara menn með þetta nám og setja upp áhugamannasýningar víða um landið, hjá verkalýðsfélögum og skólum. Eftir að ég kom heim vann ég við leiklistarkennslu barna, bæði í skólakerfinu og með einkanám- skeið. En mig grunaði alltaf að þetta nám nýttist mér vel í starfi með þroskaheftum - sem það hefur líka gert. En aðalatriðið er þó að hafa hugmyndir og innsæi. Það er ekki hægt að nota neina formúlu í þessu starfi - einstakling- amir era svo ólíkir og á svo mis- munandi hæfnistigi. Það eina sem þarf að vera hundrað prósent fyrir hendi, er kærleikurinn.“ Er þetta ekki erfitt? „Það era tvær mýtur í gangi í sambandi við þroskahefta. Önnur er sú að þau séu alltaf glöð og bros- andi, eigi aldrei góða og slæma daga. Hin er að þau séu svo erfið. Þetta er ekki alltaf auðvelt - en mjög gefandi og mér þykir alltaf rosalega gaman að vera með þeim. Þegar maður nær til þeirra, er það engu líkt.“ If at first you don’t succeed - change the rules. - Ókunnur höf. „Já, mér finnst vanta að fólk sjái fegurðina í þroskaheftum. Þetta eru í manneskjur sem hafa allar sömu tilfinningarnar og við, eiga sér drauma og langanir. En þau eru ber- skjaldaðri. | Kolagrill á hjólum Maí

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.