Morgunblaðið - 03.05.1998, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 03.05.1998, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Frá Ásljörn. hlýtt er í veðri og sólin skín er synt í Innritun hafín að Astjörn INNRITUN er hafin í sumarbúðim- ar við Ástjörn, sem eru í skógivöxn- um þjóðgarði við Jökulsárgljúfur í Kelduhverfi, skammt frá Ásbyrgi. Frá 13. júní til 15. ágúst í sumar munu 6-12 ára drengir og stúlkur dvelja þar. Flest börnin dvelja í tvær vikur, en hægt er að dvelja þar í allt að átta vikur. Hinn 16.-23. ágúst verður ungiingavika fyi'ir 13-16 ára. Starfið við Ástjörn er byggt á kristilegum grundvelli. Á kvöld- stundum er mikið sungið, börnin heyra sögur úr Biblíunni og er kennt Guðs orð og góðir siðir. Skógurinn, sem umlykur tjömina og svæðið, veitir fjölmarga möguleika til úti- vem og leikja. Vatnið er sívinsælt enda em meira en 25 bátar af ýms- um gerðum á staðnum og hornsíla- veiðar eru löngu sígild íþrótt. Þegar tjörninni. Af og til er farið í göngu- ferðir og skoðunarferðh’ í Ásbyrgi, Hljóðakletta og fleiri staði. Stutt frá Ástjörn er hestaleiga. Við Ástjörn er körfubolta-, knatt> spymu- og blakvöllur og nýtt íþróttahús. Einnig era ýmis leiktæki í húsunum. Hægt er að greiða dvöl með VISA eða EURO. Á hverju ári koma mörg börn frá höfuðborgarsvæðinu og Flugfélag íslands býður sérstakt sumarbúðafargjald frá Reykjavík. Allar nánari upplýsingar eru veitt- ar hjá forstöðumanni, Boga Péturs- syni, Víðimýri 16, Akureyri, og á skrifstofu Ástjarnar á Akureyri. Atskák- kvöld Hellis TAFLFÉLAGIÐ Hellir heldur at- kvöld mánudaginn 4. maí. Fyrst em tefldar þrjár hraðskákir þar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til að ljúka skákinni og síðan þrjár at- skákir, með tuttugu mínútna um- hugsun. Mótið fer fram í Hellisheimilinu í Þönglabakka 1 í Mjódd, efstu hæð. Sami inngangur og hjá Bridgesam- bandinu og Keilu í Mjódd. Mótið hefst kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri), en kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri). Rétt er að vekja athygli á ný- breytni í verðlaunaveitingu á at- kvöldunum. Sigurvegarinn fær mál- tíð fyrir tvo hjá Pizzahúsinu. Þá hef- ur einnig verið tekinn upp sá siður að draga út af handahófi annan keppanda, sem einnig fær máltíð fyi-ir tvo hjá Pizzahúsinu. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til ár- angurs á mótinu. Mótið er öllum opið. Hafnarfjörður Fundur um um- hverfís- og skipulagsmál FRAMSÓKNARMENN í Hafnar- firði boða til opins fundar þriðju- daginn 5. maí um umhverfis- og skipulagsmál í bænum undir yfir- skriftinni Hvernig bætum við og efl- um byggð í Hafnarfirði? Frummælendur verða Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra, Þor- steinn Njálsson heimilislæknir og Ingvar Kristinsson verkfræðingur. HAFÐU SAMBAND! Allar nánari upp- lýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar auglýsingadeildar Morgunblaðsins en þeir verða á skrifstofu Morgun- blaðsins á Akureyri í Kaupvangsstræti 1 dagana 5.-7. maí nk. á Akureyri < cc * O) 0c < o í tengslum við vöru- og þjónustusýninguna í íþróttahöllinni á Akureyri dagana 15.-17. maí nk. gefur Morgunblaðið út sérstaka sýningarskrá sem mun fylgja sérblaðinu Daglegu lífi. Skránni verður dreift á öllu dreifmgarsvæði blaðsins frá Hvammstanga og austur á Egilsstaði og á sýningunni. Þá verður Morgunblaðinu dreiff inn á öll heimili á Akureyri föstudaginn 15. maí nk. Daglegt líf verður þennan dag helgað fjölbreyttu mannlífi á Akureyri (/) með margvíslegum viðtölum og greinum. Pantana- og skilafrestur auglýsinga er til kl. 12.00 föstudaginn 8. maí. Simanúmer á skrifstofu Morgunblaðsins á Akureyri er 461 1600, bréfasími 461 1603 • Símanúmer í söludeild sérauglýsinga er 5691111, bréfasími 5691110 Þorsteinn skipar 1. sæti á B-listan- um en Ingvar það fjórða. Pall- borðsumræður verða á eftir og verður stjórnandi pallborðsins Hjálmar Árnason alþingismaður. Fundurinn verður haldinn í Hraunholti, Dalshrauni 15, og hefst hann klukkan 20.30. Fundur um rannsóknir á lækningajurtum MANNELDISFÉLAG íslands boð- ar til fræðslufundar um rannsóknir á íslenskum lækningajurtum þriðju- daginn 5. maí kl. 20.30 í Norræna húsinu. Steinþór Sigurðsson, lífefnafræð- ingur á Raunvísindastofnun Háskóla Islands, mun flytja fyrirlestur. Hann vinnur nú ásamt fleiri vísindamönn- um að rannsóknum á íslenskum lækningajurtum. Tuttugu ár era nú liðin frá stofnun Manneldisfélagsins og heldur það aðalfund sinn kl. 20. Námskeið um Kjalnesingasögu BJARKI Bjarnason íslenskukennari heldur þriggja kvölda námskeið um Kjalnesingasögu á veitingastaðnum Álafoss föt bezt í Mosfellsbæ og hefst það mánudaginn 4. maí kl. 20 og verður síðan framhaldið 6. maí og 11. maí. Á námskeiðinu verður farið yfir efnisatriði sögunnar, rætt um ís- lendingasögur almennt og þann hugai'heim sem þær em sprottnar úr. Gerð verður grein fyrir tengingu sögunnar til allra átta s.s. við rímur eftir Grím Thomsen og tónlist Ed- vards Grieg. Eftir námskeiðið verður farið í fjölskylduferð á slóðir sögunnar á Kjalarnesi og í Kjós með tilheyrandi grilli. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram en þátttökugjald er 1.500 kr. Vorfundur Fjall- kvennanna KVENFÉLAGIÐ Fjallkonurnar heldur vorfund þriðjudaginn 5. maí kl. 20.30 í Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju. Kvenfélag Árbæjar kemur í heim- sókn. Skemmtiatriði og happdrætti. Konur eru hvattar til að mæta með hatta og taka með sér gesti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.