Morgunblaðið - 03.05.1998, Síða 30

Morgunblaðið - 03.05.1998, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ 30 SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 MAGNÚS Guðmundsson framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtækisins Kaupthing Luxembourg. Morgunblaðið/Golli Haldið í víking með innlendan sparnað vrosMPn/ioviNNUiír ÁSUNNUDEGI ► Magnús Guðmundsson er 28 ára Reykvíkingnr og viðskiptafræðingur að mennt. Hann hóf störf hjá Kaupþingi daginn eftir síðasta prófið í Háskóla fslands í maí 1994 og segist hafa verið heppinn að fá að starfa hjá ört vaxandi fyrirtæki, þar sem starfsmenn voru 25 þegar hann byrjaði, en eru nú 80. Magnús fékkst fyrst við einstaklingsráðgjöf og var orðinn forstöðumaður þeirrar deildar í ársbyijun 1995. Hann hefur veitt eignastýringarsviði Kaupþings forstöðu undanfarin ár, en heldur í lok vikunnar til Lúxemborgar, þar sem hann verður framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtækisins Kaupthing Luxembourg S.A. Eiginkona Magnúsar er Lovísa María Gunnarsdóttir ferðafræðingur. eftir Ragnhildi Sverrisdóttur AUPÞING hefur haslað sér völl í Lúxemborg á undan- fomum árum, fyrst með stofnun verðbréfasjóðsfyrirtækis- ins Kaupthing Management Company fyrir tæpum tveimur ár- um. Það fyrirtæki hefur starfað með Rothschildbanka og náð þeim árangri að sjóðir þess nema nú um fimm milljörðum króna. Fyrir ári setti Kaupþing svo á laggimar svo- kallaða Islandssjóði í Lúxemborg, sem fjárfesta eingöngu í íslenskum verðbréfum, annars vegar hluta- bréfum og hins vegar langtíma- skuldabréfum. I júní tekur verð- bréfafyrirtækið Kaupthing Luxem- bourg S.A. til starfa. „Við höfum unnið að undirbún- ingi að stofnun verðbréfafyrirtækis lengi,“ segir Magnús Guðmunds- son. „Eg hef svo einbeitt mér að verkefninu frá áramótum í sam- starfi við erlenda ráðgjafa og nú er ljóst að skrifstofur Kaupthing Lux- embourg verða opnaðar í byrjun júní. Við höfum þurft að huga að ýmsu, en vomm svo lánsamir að fá gamlan ref í faginu til liðs við okk- ur, danskan hagfræðing sem heitir Nils Johansen. Hann hefur starfað um áratugaskeið í Lúxemborg fyr- ir Den Danske Bank og síðan hjá Skandinaviska Enskilda bankan- um. Hann hefur lóðsað okkur í gegnum undirbúninginn, allt frá því hvar við eigum að kaupa kaffi á kaffistofu fyrirtækisins upp í sam- skipti við bankaeftirlitið.“ Strangar kröfur ogmikil bankaleynd Við stofnun fullgilds verðbréfa- fyrirtækis í Lúxemborg krefst bankaeftirlitið þar ýmissa upplýs- inga um menntun og reynslu til- vonandi stjómenda, yfirmenn verða að vera tveir og það verða Magnús framkvæmdastjóri og Nils aðstoðarframkvæmdastjóri og eig- ið fé fyrirtækisins þarf að vera 100 milljónir íslenskra króna. Reglur um bankaleynd em strangar í Lúx- emborg, til dæmis mega bankar og verðbréfafyrirtæki ekki senda gögn til viðskiptavina sinna í merktum umslögum og tölvupóstur fyrirtækisins þarf að vera tengdur annarri vél en gagnagmnnur þess. Bankaeftirlitið setur einnig ströng skilyrði um bókhalds- og fjár- vörslukerfí. Þá mega starfsmenn ekki vera færri en fimm. Auk Magnúsar og Nils munu starfa 3-4 starfsmenn hjá Kaupthing Luxem- bourg S.A. og verið er að ganga frá ráðningu tveggja þeirra erlendis. Starfsmennimir fimm munu að lík- indum verða af fjómm þjóðemum. í stjóm íyrirtækisins sitja þeir Magnús, Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri í SPRON og Sig- urður Einarsson, forstjóri Kaup- þings, sem jafnframt er stjómar- formaður fyrirtækisins. Magnús segir að undirbúnings- tíminn hafi auðvitað tekið nokkuð á, en grundvöllur stofnunar fyrir- tækis sé alltaf hinn sami, hér á landi eða erlendis. „Við lögðum áherslu á að fjárfesta í hæfu starfs- fólki og góðri upplýsingatækni á sama hátt og Kaupþing hefur gert. Bankaeftirlitið í Lúxemborg er einnig mjög öflugt og setur fyrir- tækjum ströng skilyrði um skýrslugjöf. Það tryggir ömggt starfsumhverfi og var mikilvægur þáttur í að við völdum Lúxem- borg.“ Oflugasta íjármálamiðstöð Evrópu Kaupthing Luxembourg verður í hringiðu alþjóðlegra viðskipta. „í Lúxemborg starfa rúmlega 220 al- þjóðlegar bankastofnanir og landið er tvímælalaust öflugasta fjórmála- miðstöð Evrópu,“ segir Magnús. „Þar er ekki lagður á fjár- magnstekjuskattur, eignarskattur eða erfðafjárskattur og umhverfið hagstætt fjárfestum og sparifjár- eigendum. Þessir 220 bankar greiddu 70 milljarða íslenskra króna í tekjuskatt á síðasta ári, sem hefur að sjálfsögðu þýðingu fyrir litla þjóð eins og íbúa Lúxem- borgar. Tíundi hver maður á vinnu- markaði starfar í banka og 70 þús- und manns koma daglega yfir landamærin frá nágrannalöndun- um til vinnu sinnar. Þetta er hið rétta umhverfi fyrir alþjóðleg fjár- málaumsvif og um leið er þetta um- hverfi sem Islendingar þekkja og treysta, enda er þama öflug Is- lendinganýlenda." Magnús kveðst reikna með að í fyrstu verði viðskiptavinir Kaup- thing Luxembourg aðallega Is- lendingar, bæði einstaklingar, fyr- irtæki og sjóðir sem vilja láta fyrir- tækið stjóma verðbréfasöfnum sín- um. „Við ætlum jafnframt að vera milliliðir í að skrá íslensk fyrirtæki á erlenda markaði og þar em hæg heimatökin, því Kaupthing Luxem- bourg verður aðili að kauphöllinni í Lúxemborg." Magnús segist fullviss um að ís- lendingar muni nýta sér þjónustu fyrirtækisins, „ekki síst af þeirri ástæðu að við tölum íslensku og er- um fulltrúar fyrirtækis sem fólk þekkir og treystir. Þegar fólk talar móðurmálið er auðveldara að skil- greina markmið sín og ná sem bestum árangri. íslenska hagkerfið hefur á þessum áratug verið opnað veralega og íslensldr fjárfestar huga jafnt að möguleikum til ávöxtunar erlendis sem hérlendis. Með tilkomu samningsins um EES opnaðist greið leið inn á Evrópu- markað fyrir íslensk fyrirtæki. Mikilvægt er fyrir íslendinga að stýra sjálfir ráðstöfun innlends spamaðar, hvort sem það er gert á erlendum fjármálamörkuðum eða á heimamörkuðum. Hagnaðinum er haldið í landinu í stað þess að færa hann úr landi til erlendra fjármála- fyrirtækja. Við eigum í vaxandi samkeppni um ávöxtun innlends spamaðar við erlend fyrirtæki eins Það er vissulega stórt skref að stofna verðbréfa- fyrirtæki erlendis og þarf þor til að hrinda þeirri hug- mynd í fram- kvæmd. Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, er maðurinn á bak við hugmyndafræði okkar um starf- semi erlendis, sem og Guð- mundur Hauksson stjórnarformaður. og JP Morgan, Den Danske Bank, Morgan Stanley og fleiri.“ Uppfylla þörf viðskiptavina Kaupthing Luxembourg mun leggja mikið kapp á að kynna Is- lendingum þá möguleika sem bjóð- ist til fjárfestinga. „Kostimir sem bjóðast í alþjóðlegu viðskiptaum- hverfi eru svo miklu fleiri en hér heima,“ segir Magnús. „Við mun- um byggja á reynslu Kaupþings af erlendum fjárfestingum. Við eram ekki að búa til þörf, heldur uppfylla þá þörf sem verið hefur fyrir ís- lenskt þjónustufyrirtæki á alþjóða- markaði. Það er betra fyrir ís- lenska aðila að vera stór viðskipta- vinur hjá okkur en lítill hjá stóram alþjóðlegum fyrirtækjum. Þá búa sextán þúsund Islendingar erlend- is, ætla sér áreiðanlega margir að koma heim aftur og vilja eiga við- skipti við íslenska fjármálastofnun. Eg hef því alls enga ástæðu til að óttast skort á viðskiptavinum og síðar meir getum við svo aukið áherslu á þjónustu við erlenda fjár- festa. Eg set mér það markmið að Kaupthing Luxembourg nái jafn góðum árangri og Kaupthing Management Company. Þá megum við vel við una.“ Frelsi fagfjárfesta Verðbréfafyrirtækið í Lúxem- borg er enn eitt afsprengi þeirra miklu breytinga sem orðið hafa á íslenskum fjármagnsmarkaði. „Fyrir sjö áram vora tvö fyrirtæki skráð á Verðbréfaþingi íslands, en nú era yfir hundrað fyrirtæki skráð þar og á Opna tilboðsmark- aðnum,“ segir Magnús. „Fyrir fjór- um áram máttu íslenskir sparifjár- eigendur og fjárfestar fyrst fjár- festa frjálst erlendis og erlendir aðilar hér. Margir óttuðust að pen- ingar myndu streyma til Islands og að útlendingar myndu kaupa allt landið. Þetta hefur ekki orðið að veraleika, þar sem erlendir fjár- festar mega ekki fjárfesta í þeim greinum þar sem mesta ábatavonin liggur. Hins vegar hefur þetta frelsi komið Islendingum mjög vel. Ekki er langt síðan fagfjárfestar, eins og lífeyrissjóðirnir, máttu ekki velja hvaða verðbréf þeir keyptu og var skömmtuð ávöxtun. Þeir geta nú leitað hvert sem þeir vilja og hafa verið mjög fljótir að til- einka sér ný vinnubrögð." Skrifstofa Kaupthing Luxem- bourg verður í hjarta Lúxemborg- ar, við Rue Guillaume Schneider. „Við höfum 240 fermetra skrif- stofuhúsnæði, sem er auðvitað allt of stórt fyrir okkur til að byrja með, en við stefnum að öram vexti fyrirtækisins. Við leigjum húsnæð- ið og þrátt fyrir að leigan sé öllu hærri en fyrir sambærilegt hús- næði hér á landi, þá er hún samt töluvert lægri en við reiknuðum með.“ Þarf þor til að stíga fyrsta skreflð Kaupþing er eina íslenska fjár- málafyrirtækið, sem rekur verð- bréfasjóðsfyrirtæki og fullgilt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.