Morgunblaðið - 03.05.1998, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 51
I' DAG
BRIDS
Umsjón (iuðiiiiiiiihir
l’áll Arnarson
GENERAL Masters-ein-
menningskeppnin var
fyrst haldin árið 1992 í
París. Pá vann Pólverjinn
Piotr Gawrys. Tveimur
árum síðar vann Jón
Baldursson og Norðmað-
urinn Geir Helgemo árið
1996. Keppnin fór fram í
fjórða sinn á eynni Kor-
síku í þessum mánuði og
nú var það Frakkinn
kunni, Paul Chemla, sem
stóð uppi sem sigurvegari.
Helgemo gekk hins vegar
illa í keppninni á Korsíku
og byrjaði á tærum botni í
þessu spili:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Vestur
A G1092
VÁDG854
♦ D9
*4
Norður
* KD76
V 9
♦ -
* ÁKDG10632
Austur
* 43
V 107632
* G10764
* 8
Suður
*Á85
»K
♦ ÁK8532
+ 975
Vestur Nordur Austur Suður
Quantin Sharif Helgemo ADegært
llauf Pass 1 tígull
ll^arta 2spaðar 41\jörtu ögrrnd
Pass 71auf Pass Pass
71\jörtu Dobl Pass Pass
Pass
Omar Sharif tók fimm
grönd félaga síns sem
áskorun í alslemmu, en
Allegaert taldi sig vera að
leita eftir réttu hálf-
slemmunni. Quantin bjóst
við hjartaeyðu í suður og
ákvað að fóma.
Vömin var veik, en Qu-
antin færði sér það ekki í
nyt og fór 1100 niður, sem
var hreinn botn. Sharif
kom út með spaðasjöuna,
væntanlega til að þvinga
makker til að drepa og
spila tígli. Allegaert tók á
ásinn og síðan AK í tígli.
Nú hefði verið best að
taka tvo svarta slagi í við-
bót, en Allegaert freistað-
ist til að spila tígli. Ef
sagnhafi trompar með
drottningu kemur kóng-
urinn næst í ásinn og þá
má komast inn í borð til
að henda laufi niður í frí-
tígul. En Quantin kaus að
henda laufi, trúr þeirri
sannfæringu sinni að suð-
ur væri með hjartaeyðu.
Sharif fékk því á trompní-
una og annan á spaða: 5
niður.
GULLBRÚÐKAUP. í gær, laugardaginn 2. maí, áttu
gullbrúðkaup Gunnar Jóhannsson og Jóhanna Þór-
hallsdóttir, Hæðargarði 35, Reykjavík.
/»/\ÁRA afmæli. Á
Ovlmorgun, mánudag-
inn 4. maí, verður sextug
Edda Björg Jónsdóttir,
kennari, Kirkjuvegi 25,
Selfossi. Hún og eigin-
maður hennar, Jón Ingi
Sigurmundsson, verða að
heiman á afmælisdaginn.
Með
morgunkaffinu
SKAK
Umsjón Margeir
Pélursson
ÞETTA er afar óvenjulegt
skákdæmi, svo ekki sé
meira sagt. Höfundurinn er
Þjóðveiji, dr. Karl Fabel,
og birti hann það fyrst árið
1952. Skákþrautir eru
venjulega fólgnar í því að
finna leið til að máta and-
stæðinginn, en hér á að
finna eina löglega leikinn
sem ekki mátar svai-t!
Lausnin er 1. Hc6+!
Svartur er ekki mát, því
hann getur leikið 1. -
Hxh7.
Glöggir lesend-
ur hafa e.t.v. tekið
eftir því að báðir
hvítu biskuparnir
ganga á hvítu
reitunum og hlýt-
ur hvítur því að
hafa komið peði
upp í borð og vak-
ið upp biskup!
Að sögn hol-
lenska skákblaða-
mannsins Jules
Welling gekk
dæmið manna á
milli á Hoogo-
vens-mótinu í
Wijk aan Zee í janúar. Það
fylgdi sögunni að stór-
meistarar sem spreyttu sig
á þrautinni hefðu að með-
altali þurft fjórar mínút-
urm til að finna lausnar-
leikinn, sem er furðulang-
ur tími.
HVITUR leikur og mátar ekki!
STJÖRNUSPA
cftir Frances llrakc
NAUT
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert gæddur ríkum hæfdeik-
um á sviði bókmennta og
lista sem þú þarft að nýta
þér á sem farsælastan hátt.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Gættu þess að ganga ekki á
hlut annarra, hvorki í einka-
lífi né í starfi. Vertu á varð-
bergi í fjármálunum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vinnan göfgar manninn, en
það er fleira sem gefur lífinu
gildi. Sinntu hugðarefnum
þfnum líka.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er ekki farsælt að hrapa
að lausnum viðkvæmra
mála. Farðu þér hægt og
skoðaðu alla þætti.
KmbbÍ r
(21. júní - 22. júlí)
Gættu þess að fylgja skoð-
unum þínum ekki of fast eft-
ir. Hóf er best á hverjum
hlut. Þiggðu heimboð í
kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gættu þess að láta ekki til-
fmningamar hlaupa með þig
í gönur. Þú þarft að hafa
fæturna á jörðinni.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) VtXL
Þú þarft að fá útrás fyrir
sköpunargleði þína. Nú er
tíminn til að undirbúa garð-
inn fyrir sumarkomuna.
Vog m
(23. sept. - 22. október) 4) V
Oll verk vinnast betur þegar
margai- hendur eru lagðar á
plóginn. Sýndu samstarfs-
mönnum þínum lipurð.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Gættu þess að trana ekki
sjálfum þér um of fram í
813145. Hlustaðu á og taktu
tillit til skoðana samstarfs-
fólks þíns.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) Sid
Það eru ekki allir dagar sól-
skinsdagar. En mundu að öll
él styttir upp um síðir og þá
mun framtíðin brosa við þér.
ORÐABÓKIN
Stakkur
ÞAÐ fyrirbæri er vel
þekkt, að ýmis orð eða
orðasambönd verða
eins konar tízkuorð og
þá oft ofnotuð, ef svo
má segja, um lengri
eða skemmri tíma. Svo
hafa þau á stundum
fengið aðra eða rýmri
merkingu en hina upp-
runalegu. Eitt þessara
orða er no. stakkur í
orðtakinu að vera í
stakk búinn... Halldór
Halldórsson próf. skýr-
ir það svo í Islenska
orðtakasafni sínu:
„vera (vel, illa) stæður,
vera (vel, illa) fær, við-
búinn. Enn fremur seg-
ir Halldór: „Orðtakið
merkir í rauninni ,að
vera klæddur í þess
konar föt (stakk), sem
hæfir hverju sinni“.“
Kemur þessi merking
vel fram í lýsingu af
Atla í Otradal í
Hávarðar sögu ísfirð-
ings, þar sem honum er
svo lýst: „Atli var svá
búinn, at hann var í
hvítum stakki.“ Tvö
dæmi eru um orðtakið
frá 19. öld og bæði í
OH. Eni þau bundin
lifandi fólki, enda orð-
takið oftast notað
þannig. Menn eru vel
(eða illa) í stakk búnir
að mæta áfóllum. En
nú er farið að nota orð-
takið í rýmri merkingu.
Talað er um, að félag
eða fyrirtæki sé vel eða
illa í stakk búið til að
taka að sér ákveðið
verkefni. Þegar frum-
merkingin er athuguð,
er ljóst, hversu illa
hentar í rauninni að
nota orðtakið í sam-
bandi við samtök eða
félög. Þar ætti að duga
að segja sem svo, að fé-
lagið eða fyrirtækið
geti (vel eða illa) tekið
að sér verkefnið. -
J.A.J.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) +8?
Það er brýn nauðsyn á að
sýna hófsemd á öllum svið-
um. Mundu að aðgát skal
höfð í nærveru sálar.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) Cfint
Ef þú heldur þínum málum
fram af festu muntu ávinna
þér virðingu annarra.
Gleymdu þó ekki þínum
nánustu.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) IW>
Fátt er dýrmætara en
tryggð góðs vinar. Hafðu
það hugfast þegar vinur
þinn leitar til þín í erfiðleik-
um.
Stjömuspána á að iesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KAFFIHLAÐBORÐ I DAG
FRÁ 14 TIL 17
Skíðaskálinn Hveradölum
Veitingahús og veisluþjónusta frá 1935
Hveradölum, 110 Reykjavík, borðapantanir 567-2020, fax 587-2337
TILB0Ð
Sumarúlpur, stuttkápur kr. 7.900.
Stuttar og
síöar kápur
Sumarhattar
Opið laugardag 10-16
Mörkinni 6, sími 588 5518
NAMSKEIÐ UM
VISTMENNINGU
(Pi.RMACIJLTURK I )EMGN COl JPSE)
Er þér annt um umhverfið og kynslóðirnar sem eiga að taka
við því? Viltu sjá mannlegt samfélag taka meira mið af
verndun umhverfisins. Viltu læra að breyta lifnaðarháttum
þínum í vistvænna horf og fá þjálfun í að flétta saman nútíma
tækni og gömlum náttúrulegum aðferðum við að lifa vel af
jörðinni og hlúa að henni; rækta jörðina og samskipti við
náungann um leið.
Vistmenning hentar þeim sem vilja gera eigið heimilishald
sjálfbært en einnig þeim sem vinna með stærri
skipulagsheildir og vilja sjá meira af náttúrunni 1 nánasta
umhverfi mannsins.
I^orJiefst^á^SólheimuinJ^sH
námskeið á íslandi um
VISTMENNINGU
Námskeiðið er í tveimur hlutum: Fyrri hluti 1.-7.
júní, síðari hluti 30. ágúst - 6. september. Samtals
72 klst.
Námskeiðið fer að mestu fram á ensku, en íslenskir
sérfræðingar koma einnig að námskeiðinu.
Aðalkennari verður Graham Bell, þaulreyndur kennari
í "Permaculture" um allan heim.
Fræðslumiðstöðin á Sólheimum og byggðakjarninn
þar verður vettvangur námskeiðsins og verklegra
verkefna.
Upplýsingar:
Aðstaða, fyrirkomulag og verð,
sími 486 4468 - 112 eða 486 4430, Óðinn Helgi.
Efni námskeiðsins, sími 561 6260, María.
Global1 _ __
Eco-vtllage
Network
FRÆÐSLUMIÐSTOÐ
SÓLHEIMA