Morgunblaðið - 03.05.1998, Side 56

Morgunblaðið - 03.05.1998, Side 56
56 SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Ljóðlist ís- lenskra kvenna s Asgerður Júníusdóttir, mezzósópran, tekur þátt í uppákomum Listaklúbbs Þjóðleik- húskjallarans um þessar mundir. Guð- mundur Asgeirsson átti vlð hana stutt spjall um söng, ljóðlist og sitthvað fleira. LISTAKLUBBUR Þjóð- leikhúskjallarans hefur um nokkurra ára skeið gegnt mikilvægu hlut- verki í menningarlííi borgarinnar. Á mánudaginn var stóð klúbburinn fyrir uppákomu tileinkaðri Ijóða- gerð íslenskra kvenna. Nýjasta bók Helgu Kress prófessors, „Stúlka", var uppsprettan að dagskrá kvölds- ins. Helga fjallaði um fjölda íslenskra skáldkvenna, skáld- skap þeirra og mis- hlægilega ritdóma eftir karla, milli þess sem skáldkon- umar Ingibjörg Haraldsdóttir og Vilborg Dag- bjartsdóttir lásu valin ljóð. _ Tvisvar steig Ásgerður Júníus- dóttir óperu- söngkona á svið og flutti nokkur lög við ljóð eftir konur. Iwona Jagla lék undir á píanó. Þáttur Ás- gerðar í dagskrá kvöldsins tengist verkefni sem hún vinnur að um þessar mundir, útgáfu geisladisks með lögum eftir ýmis tónskáld sem öll eiga það sameiginlegt að vera samin við ljóð kvenna. myndin að þessu ákveðna viðfangs- efni frá Helgu komin. Hún benti mér á að þama væri efni sem hefði verið vanrækt, því þrátt fyrir að mikið sé til af ljóðum eftir konur og lögum við þau, hefur sáralítið verið gert af því að taka þau mmarkvisst upp til útgáfu. Verkefnið er mjög spennandi og ég vinn um þessar mundir að því að grafa upp og velja skemmtilegt efni. Reyndar hef ég •.•••:>, itörlásuv rd0ttir «g lasu valin ljóa. s lítinn tíma einmitt núna, því ég er á fuliu í próflestri. Að prófum loknum sný ég mér hinsvegar að fullu að plötunni og ef allt fer að óskum kemur hún út fyr- ir jólin.“ Vanræktur þáttur sönglistarinnar .Diskurinn kemur til með að inni- halda lög við ljóð íslenskra kvenna frá Vatnsenda-Rósu allt til dagsins í dag,“ segir Ásgerður um sína fyrstu stóm útgáfu. „Þótt platan tengist bókinni ekki beint er hug- Leikkona eða húsmæðrakennari Ásgerður hefur stundað söng- nám í áratug og því kom á óvart að hún skyldi þurfa að standa í próftökum nú. „Ég fann að það var ákveðin hindrun að hafa ekki stúd- entspróf og dreif mig því í öldunga- ÆVINTYRI í ÚTLÖNDUM! Ertu 18-30 ára og langar að gerast skiptinemi í útlöndum? Örfá laus pláss: Honduras, Japan, Mexikó, Nýja Sjáland, Suður-Kórea, Sviss, Taiwan. Brottför í lok sumars. Alþjóðleg ungmennaskipti — AUS Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík Símar 561 4617 og 561 4674. Netfang: aus@isholf.is http://www.iearn.org/iearn.icye ALÞJÓÐLEG UNGMENNASKIPTI Morgunblaðið/Kristinn ÁSGERÐUR Júníusdóttir óperusöngkona flutti nokkur lög við ljóð eft- ir konur við undirleik Iwona Jagla. deild MH, til að ljúka stúdentsprófí sem ég var langt komin með á sín- um tíma,“ svaraði hún þegar spurt var. „Ég vil geta farið í háskóla ef mig langar til þess. Mjög ung ákvað ég að verða leikkona eins og mamma mín, sem hefur slíka menntun. Sú ákvörðun stóð öll mín æskuár, fyrir utan tímabil þegar ég var tólf ára. Þá ákvað ég einhverra hluta vegna að verða húsmæðra- kennari. Hugmyndin var nokkuð sniðug, en ég átta mig ekki alveg á því hvaðan hún kom.“ Ein í óperuflutningi „Þegar ég bjó mig undir inntöku- próf í Leiklistarskólann mörgum árum seinna fór ég í einkatíma hjá ömmusystur minni, Guðmundu Elí- asdóttur óperusöngkonu, til að fá smáæfingu í söng. Síðan hef ég ekki hætt. Ég varð fyrir einhverri opin- berun þennan dag. Frelsið og tján- ingin sem býr í sönglistinni heillaði mig algjörlega og upp frá því vissi ég að þetta vildi ég gera. Ég var í einkatímum hjá Guð- mundu í þrjú ár, fór svo í Söngskól- ann og lauk áttunda stigi þar. Að lokum endaði ég í London þar sem ég var við nám í tvö ár. Fyrir ári kom ég svo heim aftur og hef verið að koma mér fyrir síðan. Platan sem ég vinn að núna er tiieinkuð ljóðasöng, en ég hef alltaf mestan áhuga á óperunni. Þó hef ég ýmis- legt annað í huga líka. Ég er til dæmis búin að stofna óperufélag, ef félag getur kallast, því ég er ein í því enn sem komið er. Þar vil ég einbeita mér að því að setja upp minni verk, til dæmis fyrir einn söngvara og lágmarksfjölda hljóð- færaleikara." Aftur í Þjóðleikhús- kjallarann Áhugasamir þurfa ekki að bíða þess lengi að heyra í Ásgerði. Hún stjórnar næstu uppákomu Lista- klúbbsins í Þjóðleikhúskjallaranum mánudaginn 4. maí. Dagskráin verður tileinkuð vorinu og þar munu „skáld og rithöfundar flytja frumsamið og gamalt efni, allt til dýrðar hækkandi sól“, eins og segir í kynningu. Auk Ásgerðar koma þar fram Sjón, Hallgrímur Helga- son, Bragi Olafsson, Margrét Lóa Jónsdóttir, Guðrún Guðlaugsdóttir, Áshildur Haraldsdóttir, Linda Vil- hjálmsdóttir og Gunnlaug Þor- valdsdóttir sem hefur þjálfað sig í að herma eftir ýmsum fuglategund- um með blístri. Forsýning á hinni umdeildu mynd „Lolita“ BRESKI leikarinn Jeremy Irons mætti á forsýningu myndarinnar „Lolita“ í Warwick listamiðstöð- inni í Coventry á dögunum. Mynd- in hefur valdið miklum deilum um barnaklám og sifjaspell en í mynd- inni leikur Irons prófessor nokkurn sem á í kynferðislegu sambandi við stjúpdóttur sína sem er leikin af Dominique Swain. Myndin er byggð á skáldsögu Vladimirs Nabakov sem vakti hneykslan og reiði manna þegar hún var fyrst gefín út. Það er leik- stjórinn Adrian Lynne sem leik- stýrir „Lolitu" en hann gerði með- al annars myndirnar „9 !4 Weeks“ og „Fatal Áttraction" sem báðar vöktu athygli og umtal á sínum tíma. MYNDBÖND s Astin er máttug Brimbrot (Breaking the Waves) Drama ★★★★ Framleiðandi: Zentropa Entertain- ment. Leikstjóri og handritshöfund- ur: Lars von Trier. Kvikmyndataka: Robby Miiller. Umsjdn með tónlist: Joachim Holbek. Aðalhlutverk: Emily Watson, Stellan Skarsgárd, Katrin Cartlidge, Jena-Marc Barr og Adrian Rawlins. Danmörk 1996. Zentropa/Háskólabíó. Myndin er bönnuð innan 16 ára. ÞÁ ER komið að meistarastykki Danans furðulega Lars von Trier. Fyrir mér er kvikmyndin Brimbrot algjört snilldarverk og ég minnist þess ekki síðan í æsku að hafa horft á nokkuð sem hefur haft jafnmikil áhrif á mig. Þegar ég sá myndina á opnun Kvikmyndahátíðar Reykja- víkur 1996 þá grét ég svo mikið að ég var að hugsa um að fara heim í hléi, en svo gat ég ekki togað mig frá þessari mynd sem er dásemdin ein. Staður og stund er afskekktur smábær í Skotlandi í upphafi átt- ™ unda áratugar- ins, þar sem kirkjan ræður öllu og dæmir lif- endur og dauða. Bess er ung kona sem fellur fyrir aðkomu- manninum Jan og giftist honum þrátt fyrir að hann sé litinn hornauga af samfélaginu. Hún er fullviss um að geta axlað þá ábyrgð sem fylgir því þegar tvær mann- eskjur sameinast í Guði. Hjóna- bandið byrjar vel en Jan lendir í slysi og lamast fyrir neðan háls. Jan vill að Bess haldi áfram að lifa lífínu lifandi og krefst þess að hún fái sér elskhuga. Fyrst óar henni við því, en síðan reynir hún að uppfylla óskir eiginmannsins viss um að það muni lækna hann. Bess er einlæg og góðmennskan ein frá hjartarótum. Því miður eru samfélagsreglur, og sérstaklega ekki á þessum stað, settar til að henta fólki eins og henni sem þríft á ástinni og trúnni. Því fær hún að finna fyrir þegar hún reynir að bjarga lífi eiginmannsins. En sann- ast í lokin að þeir deyja ungir sem guðimir elska. í þessari mynd er allt sem segja þarf um hræsni trúar- innar og samfélagsins, og kristallast það í atriðinu þegar Bess liggur í yf- irliði fyrir framan kirkjuna og prest- urinn gengur í burtu án þess að rétta henni hjálparhönd. Lars von Trier hefur valið til liðs við sig úrval bestu leikara Evrópu. Mest mæðir á Emily Watson í hlut- verk Bess, Stellan Skarsgárd sem leikur Jan og Katrin Cartlidge sem er Dodo mágkona Bess og hennar vemdari í einu og öllu. Þau sýna öll framúrskarandi leik hvert og eitt, og er samleikur þeirra sérstaklega raunsær og áhrifaríkur. Watson er án nokkurs efa stjarna myndarinn- ar, og þvílíkur leikur hefur ekki sést í háa herrans tíð. Hún hlaut tilnefn- ingu til óskarsverðlaunanna fyrir vikið sem hún hreppti reyndar ekki, og það er hneyksli að mínu áliti. Það verður erfitt fyrir hana að gera bet- ur en þetta, enda eru þvílík hlutverk ekki skrifuð á hverjum degi. Einlægnin, tilfinningasviftingam- ar og það hversu persónuleg myndin er gerir hana einstaka og ótrúlega heillandi. Sá sem ekki lætur hrífast af þessum mannlega harmleik sem byggir á grunntOfinningum mann- eskjunnar í einfaldleika sínum hlýt- ur að eiga við vandamál að stríða. Brimbrot er mynd sem allir kvik- myndaunnendur verða að sjá. Hildur Loftsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.