Morgunblaðið - 03.05.1998, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 03.05.1998, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ r . \ HÁSKÓLABÍÓ HASKOLABIO jaanBHifflii -swbi!^! mwhmbh swbwwii «MB»iig»[ swbwbiíi www.áamtBm.is og mbl.is Ástir og undirföt á mánudögum ÞEGAR gamanþátturinn „Veron- ica’s Closet", eða Astir og undirfót, var frumsýndur í Bandaríkjunum í fyrra var talið nær öruggt að hann myndi njóta vinsælda vegna þess að þátturinn var settur á milli hinna geysivinsælu gamanþátta „Sein-. feld“ og íæknadramans „ER“. Þættirnir snúast um Veronicu Chase, sem er hátt skrifuð í heimi undirfataiðnaðarins, en hún hafði einu sinni verið sýningarstúlka og notfært sér frægðina til þess að j koma á fót sinni eigin undirfata- framleiðslu og þarf hún að kljást við ýmiss konar vandamál í einka- lífinu og á vinnustaðnum. Það er leikkonan Kirstey Alley sem fer með hlutverk Veronicu og hafa gagnrýnendur lofað leik henn- ar í þáttunum í hástert, hún þykir hafa öðlast aftur þá persónutöfra sem hún sýndi í Staupasteini forð- um daga, en Alley fékk Emmy- verðlaunin fyrir hlutverk sitt, sem Rebecca, í þeim þáttum. Kvikmyndaferill Alley hefur ekki verið upp á marga fiska en myndir eins og „Madhouse" „Sibling Ri- valry“ og „Look Who’s Talking“ hafa ekki hjálpað ferli hennar mjög mikið. Mótleikarar Alley í „Veronica’s Closet" eru ekki af verri endanum en þeir eru Wallace Langham, sem er þekktastur úr „Larry Sanders Show“ en þeir þættir hafa notið mikilla vinsælda vestanhafs þótt þeir hafi ekki enn borist hingað til lands. Langham er í hlutverki að- stoðarmanns Veronicu, sem virðist aldrei ná langt í kvennamálum og þvi kemst sá orðrómur á kreik að hann sé samkyrihneigður og reynir hann staðfastlega að neita því. Dan Cortese leikur fyrrverandi nærfatamódel sem orðið er að kynningarfulltrúa íyrirtækisins og svo virðist að minna sé í höfðinu á honum en var í gamla fataskápnum hans. Kathy Najimy, sem margir ættu að kannast við úr „Sister Act“ myndunum er háttsettur yfirmaður í fyrirtækinu og er ekki feirnin við LEIKARAR þáttarins „Veronica’s Closet'* sem hefur göngu sína á rík- issjónvarpinu á mánudagskvöldið. N autin heiðruð ► ÞAÐ voru leikrænir tilburðir sem spænskir nautabanar sýndu á ráðstefnu í Sevilla á dögunum þegar þeir lyftu í sameiningu kálfi einum. Sýningunni var ætl- að að heiðra nautin sem eru not- uð í hinu þjóðlega nautaati Spán- verja en alþjóðleg hátíð var opn- uð í Sevilla sama dag. Nýjung! Þýsk gæðavara Ekta augnahára- og augna- brúnalitur sem samanstendur af litakremi og geli sem blandast saman, allt í einum pakka. Mjög auðveldur í notkun, fæst í þremur litum og gefur frábæran árangur. Útsölustaðir snyrtivöruverslanir og apótek: Nana Lóuhólum, Libia Mjódd, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Andorra Hafnarfirði, Spes Háaleitisbraut, Sandra Smáratorgi, Ingólfs Apótek, Apótekið Skeifan ehf, Holtsapótek, Vesturbæjar Apótek, Borgar Apótek, Lyfjakaup Mosfellsbæ, Hringbrautar Apótek, Austurbæjar Apótek, Árbæjar Apótek, Húsavíkur Apótek, Stjörnu Apótek Akureyri, Dalvíkur Apótek, Borgarness Apótek, (safjarðar Apótek, Kaupfélag Hvammstanga, Hafnarapótek Höfn. TANA Cosmetics Einkaumboð: S. Gunnbjörnsson ehf., s. 565 6317 * www.mbl.is að láta Veronicu og aðra heyra það. Gamla brýnið Robert Prosky, úr þáttunum „Hill Street Blues“ og mörgum kvikmyndum, leikur foður Veronicu, sem einnig er einkabílstjóri hennar. Christopher McDonald leik- ur svo eiginmann Veronicu, sem gefur mörgum sýning- arstúlkunum hýrt auga. McDonald sást síðast í myndinni „Flubber11 á móti Robin Williams. Framleiðendur þáttanna eru þau Kevin Bright, Da- vid Crane og Martha Kauffman en þau standa einnig að baki þáttunum um Vini. Það er hinn kunni sjónvarpsþáttaleik- stjóri James Burrows (Vinir, Staupasteinn) sem leikstýrir fyrsta þættin- um um Veronicu. KIRSTIE Alley er siálf V • irfatafyrirtækinu. ---------- Heiðursdoktor í lögfræði ► GAMANLEIKARANUM BiU Cosby var veitt heiðursdoktors- nafnbót í lögfræði við Pepperdi- ne háskólann í Kaliforníu nú á dögnnum. Það var rektor skól- ans, David Da- venport, sem rakti feril Cos- bys áður en hann sæmdi hann nýju nafn- bótinni. Það kom svo í hlut leikarans að þakka fyrir sig og ávarpa út- skriftarárgang Pepperdine. Al- gengt er að sljörnur Hollywood fái nafnbót sem þessa í heiðurs- skyni fyrir vel unnin störf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.