Morgunblaðið - 03.06.1998, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ný dómstólalög taka gildi 1. júlí
Dómstólaráð sér
um stjórnsýslu
héraðsdómstóla
B-757-300 hleypt
af stokkunum
Seattle. Morgunblaðið.
DÓMSTÓLARÁÐ, skipað fimm
mönnum, tekur til starfa 1. júlí nk.
þegar ný dómstólalög taka gildi.
Auk ráðsins hefur verið skipað í
nefnd um dómarastörf og nefnd um
hæfí héraðsdómara og tekur sú
skipan gildi um leið og lögin.
Dómstólaráð sér um stjómsýslu
héraðsdómstólanna eftir gildistöku
laganna. í lögunum segir m.a. um
hlutverk ráðsins að það fari með
fjárreiður héraðsdómstóla, geri til-
lögur til dómsmálaráðherra um
sameiginlega fjárveitingu til þeirra
og skipti á milli þeirra fé sem þeir
fá á fjárlögum. Ráðið ákveður fjölda
dómara og annarra starfsmanna við
hvem héraðsdómstól og setur al-
mennar reglur um flutning dómara
á milli þeirra. Ráðið safnar upplýs-
ingum um fjölda og afgreiðslu mála
við héraðsdómstóla og gerir eftir
þörfum ábendingar af því tilefni og
stuðlar að öðm leyti að því að gætt
sé skilvirkni og hraða við rekstur
dómsmála. Ráðið kemur fram gagn-
Lögreglan
hafði
samband
við Sverri
RANNSÓKNARDEILD lög-
reglunnar í Reykjavík hafði
samband við Sverri Her-
mannsson, fyrrverandi banka-
stjóra, í fyrrakvöld í fram-
haldi af orðum sem hann lét
falla í útvarpsfréttum fyrr um
daginn, en þar sagði Sverrir
m.a. að hann hefði ekkert við
það fólk að tala sem hefði
barist gegn sér, næst væri að
draga fram haglabyssuna.
Guðmundur Guðjónsson yf-
irlögregluþjónn sagði að í
framhaldi af þessum ummæl-
um Sverris hafí lögreglan
skoðað málið. ,^Að þeirri rann-
sókn lokinni sáum við ekki
ástæðu til neinna aðgerða,“
sagði Guðmundur. Sverrir
staðfesti að lögreglan hefði
haft samband við sig í fyrra-
kvöld en vildi ekkert tjá sig
um málið.
vart stjómvöldum og öðrum í þágu
héraðsdómstólanna sameiginlega
og gerir tillögur um það sem getur
orðið til úrbóta í störfum héraðs-
dómstóla eða löggjöf sem um þá
gildir. Dómstólaráð á skv. lögunum
að gefa út ársskýrslu um starfsemi
sína og héraðsdómstólanna.
Ráðið hefur verið skipað þeim
Sigurði Tómasi Magnússyni og Val-
tý Sigurðssyni, sem voru kosnir úr
hópi héraðsdómara, dómstjórar
kusu Frey Ófeigsson og Friðgeir
Bjömsson og fulltrúi ráðherra er
Snjólaug Ólafsdóttir, forstöðumað-
ur íslensku ráðherraskrifstofunnar
hjá Norðurlandaráði.
Nefndir um hæfi og
störf dómara
Nefnd um hæfí héraðsdómara
hefur verið starfandi og starfar
áfram á sama girnnni og verið hefur.
Hana skipa frá 1. júlí Þórunn Guð-
mundsdóttir, tilnefnd af Lögmanna-
félaginu, Sigríður Ingvarsdóttir, til-
nefnd af Dómarafélaginu, og Hrafn
Bragason, tilnefndur af Hæstarétti.
I nefnd um dómarastörf hafa ver-
ið skipuð Gunnlaugur Claessen
hæstaréttardómari, tilnefndur af
ráðherra, formaður, Helgi I. Jóns-
son héraðsdómari, tilnefndur af
Dómarafélagi íslands, og Sigurður
Líndal prófessw, tilnefndur af laga-
deild Háskóla Islands.
Nefnd um dómarastörf setur
m.a. almennar reglur um hvers
konar aukastörf geti samrýmst
embættisstörfum dómara og reglur
um að hvaða marki samrýmanlegt
sé embætti dómara að hann eigi
hlut í félagi eða atvinnufyrirtæki.
Kvörtunum þeirra, sem telja að
dómari hafí gert á hlut sinn með
störfum sínum, skal beint til nefnd-
ar um dómarastörf og telji nefndin
slíka kvörtun tæka til meðferðar
skilar hún rökstuddu áliti um málið.
Nefndin getur fundið að störfum
viðkomandi dómara eða veitt hon-
um áminningu.
BOEING-verksmiðjumar
hleyptu af stokkunum síðastlið-
inn sunnudag nýrri þotu, B-757-
300, að viðstöddum fulltrúum
tveggja fyrstu kaupendanna,
sem eru Flugleiðir og þýska
leiguflugfélagið Condor, og
fjölda starfsmanna. Þýska félag-
ið, sem hefur pantað 12 þotur,
fær þá fyrstu afhenta í janúar
1999 og Flugleiðir fá sína í árs-
byijun 2001 en fyrirtækið hefur
ákveðið kaup á tveimur.
„Við erum ánægð með að
þessi tvö evrópsku fyrirtæki
skuli hafa sýnt þessa framsýni
að vera fyrstu kaupendur,"
sagði Tom Basacchi, yfirmaður
sölu Boeing í Evrópu við athöfn-
ina. Row Woodard, forstjóri
Boeing, kvaðst vona að banda-
rísku flugfélögin sigldu í kjölfar-
ið þegar þotan væri komin í
gagnið.
„Flugleiðir hafa verið að leita
leiða til að lækka kostnað, sér-
staklega í fluginu yfir N-Atlants-
hafið og þess vegna höfum við
síðustu misserin rætt við full-
trúa Boeing um hvað tæki við af
henni,“ sagði Hörður Sigur-
gestsson, stjómarformaður
Flugleiða, í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins við at-
höfnina í Seattle. „Við höfum
líka verið að leita að stærri vél,
t.d. fyrir New York og
Baltimore, og þetta varð til þess
að Flugleiðir ásamt Condor hófu
viðræður við Boeing um að
smíða vél sem væri hagkvæmari
en þær sem við erum með
núna.“
Aukin tíðni ferða til New York,
Baltimore og Boston
Hörður sagði viðræður við
Boeing hafa staðið lengi áður en
kaupin á 757-300 vom afráðin
og ýmsir möguleikar skoðaðir.
Flugleiðir fá sínar þotur afhent-
ar 2001 og 2002.
„Þetta er hugsað þannig að
við emm að auka tíðnina á New
York, Baltimore og Boston og ef
við gemm ráð fyrir að vöxtur
verði almennt 5% á næstu 4 ár-
um myndi það þýða að 300-gerð-
in myndi þá henta þar sem 200-
gerðin dugar í dag og þess
vegna er þessi tímasetning
ákveðin,“ sagði Hörður.
B-757-300-gerðin er 7,10
metmm lengri en 200-gerðin og
tekur um 40 fleiri farþega. For-
stjóri Condor, Pietman
Kirchner, staðhæfði við athöfn-
ina að kostnaður á hvert far-
þegasæti væri sá lægsti af sam-
keppnisfærum þotum og lægri
en hjá mörgum breiðþotum.
Flugprófanir eiga að hefjast í
júlí og verða notaðar í það þijár
fyrstu þotumar.
Morgunblaðið/Jóhannes Tómasson
LEIFUR Magnússon, framkvæmdasljóri þróunarsviðs, Hörður Sigurgestsson, sljórnarformaður, Kristinn Halldórsson, yfirmaður viðhaldsstöðvar,
og Joe Herron, fulltrúi Flugleiða hjá Boeing, fyrir framan nýju vélina.
35 ára karlmaður flutti til landsins 130,5 grömm af amfetamíni í iðrum sér
Dæmdur í eins árs
fangelsi í Héraðsdómi
35 ÁRA karlmaður var í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær dæmdur í
eins árs fangelsi fyrir innflutning á
130,5 grömmum af amfetamíni frá
Amsterdam hinn 14. janúar sl. Mað-
urinn hafði gengist við innflutningi
en ekki sölutilgangi.
Hinn 14. janúar sl., kl. 15 30, kom
ákærði til landsins með flugvél frá
Amsterdam. Hann kvaðst ekkert
hafa meðferðis sem sér þætti skylt
að gefa upp við tollgæslu. Tollgæsl-
an á Keflavíkurflugvelli tók hann til
skoðunar. Ekkert fannst við hefð-
bundna leit en við röntgenskoðun
kom í Ijós aðskotahlutur í enda-
þarmi. Ákærði kvaðst einungis vera
þar með eina pakkningu og losaði
hann sig við hana. Síðan kannaðist
hann við að vera með aðra en að
lokum komu alls fímm pakkningar í
ljós. Við rannsókn reyndust þar
vera 130,5 grömm af amfetamíni.
Tekið var sýni til greiningar og
reyndist magn amfetamínsúlfats í
því 74% sem svarar til 54% af am-
fetamínbasa. Ákærði synjaði fyrir
sölu fíkniefna. Hinn 15. janúar sl.
gekkst ákærði við innflutningi am-
fetamíns, sem hann taldi liðlega 100
grömm. Ákærði kvaðst hafa keypt
efnið fyrir 1.300 gyllini til eigin
nota.
Ákærði gaf skýrslu fyrir dómin-
um efnislega samhljóða því sem að
ofan greinir. Hann segist hafa farið
i helgarferð til Amsterdam á fóstu-
degi sér til skemmtunar, verið í am-
fetamínneyslu í ferðinni og farið að
reyna að verða sér úti um efnið.
Hann kveðst hafa hitt mann á bar
og keypti af honum amfetamín íyrir
sem svarar um 45.000 krónum en þá
hafði kviknað sú hugmynd með
ákærða að spara sér kaup á efninu
hér heima en hann kveðst neyta
amfetamíns að staðaldri. Hann
kveðst hafa pakkað efninu inn í
einnota gúmmíhanska og komið því
fyrir í endaþarmi. Hann viðurkenn-
ir að hafa neitað sök í byrjun en
segist hafa komist að samkomulagi
við aðstoðarlandlækni um að gang-
ast við þessu. Hann segist ekki hafa
vitað nákvæmlega um magn efnis-
ins en rengir ekki að það sé 130,5 g.
Hann segist ekki hafa vitað um
styrkleikann, segir það ekki hafa
komið til tals. Hann segist ekki hafa
gert sér grein fyrir að um var að
ræða sterkara efni en hér er á
markaði.
Samkvæmt því sem rakið hefur
verið telst fullsannað, með játningu
ákærða og sýnilegum sönnunar-
gögnum, að ákærði hafí flutt 130,5
grömm af amfetamíni til landsins
eins og greinir í ákæru. Þegar litið
er til styrkleika efnisins, magns
þess og allra aðstæðna þykir annað
ekki verða álitið en að ákærði hafí
ætlað efnið til sölu að verulegu
leyti. Telst ákærði því hafa framið
brot það sem honum er gefíð að
sök, að því er fram kemur í dómn-
um.
Ákærði hefur sjö sinnum sætt
refsingum samkvæmt sakavottorði.
Hinn 23. maí 1997 hlaut hann 6
mánaða fangelsisdóm fyrir brot á
1. mgr. 226. gr. almennra hegning-
arlaga og lögum og reglum um
ávana- og fíkniefni og hinn 17.
október sl. hlaut hann 70.000 króna
sekt fyrir umferðar- og fíkniefna-
brot og var sviptur ökurétti frá 17.
október 1997. Hinn 13. febrúar sl.
hlaut hann loks 50.000 króna sekt,
hegningarauka, fyrir fíkniefnabrot
og var lögreglustjórasátt 6. desem-
ber 1996 fyrir sakarefni sem ákært
var út af felld úr gildi með dómin-
um.