Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 11 FRÉTTIR Stærsti útskriftar- hópurinn frá upphafi FLENSBORGARSKÓLI braut- skráði 69 stúdenta og 1 nem- anda með próf af uppeldisbraut síðastliðinn laugardag. Þetta er stærsti stúdentahópurinn sem hefur hingað til útskrifast frá skólanum og eru stúdentar frá Flensborg nú orðnir 1.754 tals- ins. Finnbogi Óskarsson var með hæstu meðaleinkunn, 9,24, en hann útskrifaðist af eðlis- og náttúrufræðibraut. Finnbogi var einnig með flestar einingar eða 218 en 140 einingar nægja til stúdentsprófs. Næst Finn- boga voru þau Sigríður Sigurð- ardóttir af náttúrufræðibraut en hún hlaut 9,1 í meðaleinkunn og Bjarki Jónas Magnússon af eðlisfræðibraut sem útskrifaðist með 9,0 í meðaleinkunn. Athöfnin fór fram í Víði- staðakirkju og settu tónlist og ræðuhöld mikinn svip á hana. Meðal annars söng Kór Flens- borgarskóla undir stjórn Hrafn- hildar Blomsterberg í upphafi samkomunnar, milli dagskrár- liða og í lok hennar. Freyr Gígja Gunnarsson flutti ávarp fyrir hönd nýstúd- enta en auk hans fluttu ávörp fulltrúar eldri útskriftarhópa. Herdís Hjörleifsdóttir talaði fyrir hönd 25 ára gagnfræð- inga, Arni M. Mathiesen fyrir hönd 20 ára stúdenta og Valdi- mar Svavarsson fyrir hönd 10 ára stúdenta. Ræðumenn færðu stúdentum góðar gjafír og munar þar mestu um gjöf 20 ára stúdenta sem hafa boðist til að vinna með skólanum að því að gera tölvu- kerfí skólans eins fullkomið og völ er á. Morgunblaðið/ívar Brynjólfsson KRISTJÁN Bersi Ólafsson skólameistari í hópi fóngulegra nýstúdenta. Bflvelta á Snæ- fellsnesi UNGUR ökumaður missti stjórn á bifreið sinni skammt frá Helgafelli á Snæfellsnesi síðdegis á laugardag, lenti úti í vegkanti, sveigði inn á veginn og valt út af hinumegin. Tvær stúlkur sem voru með piltinum í bílnum voru fluttar á sjúkrahús í Stykkishólmi en bíl- stjórinn slapp ómeiddur, að sögn lögreglu í Stykkishólmi, en ekkert þeirra var í öryggis- belti. ÚTSKRIFTARHÓPUR Iðnskólans í Reykjavík vorið 1998. Skólaslit Iðnskól- ans í Reykjavík SKÓLASLIT Iðnskólans í Reykja- vík fóru fram í Hallgrímskirkju miðvikudaginn 27. maí. 1.940 nem- endur voru skráðir í skólann á haustönn, þar af 1.617 í dagnám og 323 í kvöldnám. Milli ára hafði fjölgað um liðlega 40 nemendur. A vorönn voru nemendur í dagnámi 1.497 og 320 í kvöldnámi eða alls 1.817 sern var 124 fleiri en árið á undan. Á skólaárinu luku 329 nem- endur burtfararprófi og hafði fjölg- að um rúmlega fjórðung frá fyrra skólaári. I ræðu Ingvars Ásmundssonar, skólameistara, kom fram að ýmsar breytingar upðu á námsskipulagi í skólanum. Á vorönn var hafín kennsla í símasmíði sem hlaut til- tölulega nýlega löggildingu sem iðngrein. Á þessu skólaári voru út- skrifaðir nemendur í hárskurði samkvæmt nýrri námsskrá. Þar með voru iðngreinarnar hárgreiðsla og hárskurður sameinaðar í eina grein og skólanámið lengt úr þrem- ur önnum í fjórar. Rafeindavirkjar útskrifuðust einnig í fyrsta skipti samkvæmt nýrri námsskrá. Ýmsar iðngreinar hafa verið fluttar á undanförnum árum úr skólanum í aðra framhaldsskóla. Þrátt fyrir það hefur nemendum ekki fækkað að ráði enda brautir á borð við tölvufræðibraut og hönnun í örum vexti. Veittar voru viðurkenningar fyr- ir góðan námsárangur. Hrafnkell Elísson, húsasmíði, hlaut verðlaun fyrir bestan árangur á burtfarar- prófi en hann var með meðalein- kunnina 9,7. Kristbjörg Góa Sig- urðardóttir, kjötiðn, náði öðrum besta árangri á burtfararprófi. Morgunblaðið/Þorkell NÝSTIJDÍNUR virða fyrir sér prófskírteinin. Fj ölbrautaskólanum í Breiðholti slitið FJÖLBRAUTASKÓLANUM í Breiðholti var slitið í 44. sinn föstu- daginn 29. maí síðastliðinn. Alls fengu 239 nemendur afhent loka- prófsskírteini, þar af 80 nemendui- á starfsnámsbrautum. Á skólaárinu hafa því alls 412 nemendur fengið lokaprófsskírteini, þar af 156 starfsnámsskírteini. Athöfnin fór fram í Iþróttahúsi FB og hófst með því að einn af kennurum skólans, Pálmar Ólason, lék nokkur lög á píanó. Síðan flutti Stefán Benediktsson aðstoðar- skólameistari ávarp og skólameist- ari, Kristín Ai-nalds, ræðu. I ræðu sinni gerði skólameistari grein íyrir starfí og prófum í dag- og kvöldskóla, Við skólann starfa nú 140 starfsmenn. Nemendur í dagskóla voru 1.378 og í kvöldskóla 830. Bestum árangri á stúdents- prófi náði Sveinn Hákon Harðar- son, sem útskrifaðist af eðlis- og náttúrufræðibrautum, með ein- kunnina 9,78. Mikil fjölbreytni var í nemenda- hópnum nú sem endranær. Nokkrir skiptinemar dvöldu við nám í skól- anum frá Þýskalandi, Argentínu og Venesúela. Einnig var nokkuð um nemendaskipti, bæði frá Belgíu, Portúgal og Italíu. Auk þess komu sjúkraliðanemar frá Svíþjóð. I lok athafnarinnar ávarpaði skólameistari útskriftarnema og sagði: „Reynið því í hverju fótspori að bera bagga að altari hamingju ykkar, lífshamingju sem mölur og ryð fá ekki grandað." Að lokum sungu allir viðstaddir og skóla- meistari sleit skólanum. Hljóðfæraleikarar: Gunnar Þórðarson Vilhjálmur Guðjónsson Gunnlaugur Briem Jóhann Ásniundsson Mrir Ulfarsson Kristinn Svavareson Kjartan Valdimareson djómannadagurinn \t£-.' — ii » j\ r _ _ _ i ■ i f r • Njáiu O' Dagskrá: Húsið opnað kl. 19:00. Guðmundur HaUvarðsson, formaður sjómarmadagsráðs, seturhófið. Kynnir kvöldsins: Geirmundur Valtýsson. Fjöldi glæsilegra skenuntiatríöa: Kvöldverðartónai: Haukur Heiðar Ingólfsson. , „Lestarstrákamir" Afmælishóf Sjómannadagsins á Broadway, laugardaginn uyaiuaymn nú mæta aUir sem vettlingi 6. júní 1998 geta valdib og fagna stórafmæli. Frábærir söngvarar!| ; Sviðssetning: 1 Egill Eðvarðsson. 1 Hljómsveitarstjóri: I Gunnar Þórðarsnn. I Danssljórn: 1 Jóhann Örn. „Les Souillés de Fond de Cale, franskir ] listamenn frá Pompól, skemmta meö frönskum“shanties“. Hljómsveit Geirmundar leikur fyrir dansi tilkl. 03:00. jtíatseSill Xoníafíslöýuð sjávarréttasúpa. (■Jlóðarsttifctur lambavöm m/jarðepla-souffle, gljáðu grœnmeá oq piparsósu. ístvenna í sykurkörfu, m/fershim ávöxtum og rjóma. muvni Miðasala og borðapantanir alla daga kl.13 -17. - Sími 533 1100. 4ÓTEL ÍSLANDI ími 533 1100-Fax 5331110 r ^ HÓTEL | Sími 533 1100-Fax 5331110 Verð 4.900, matur og sýning. 1.950, sýning. 950, dansleikur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.