Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 65
Heilsustofnun NLFÍ
Fyrirlestur um
heilsu- og bað-
stofnanir
EINN af forystumönnum samtaka
heilsuhótela og baðstofnana í Ung-
verjalandi, dr. István Fluck, er nú
staddur hér á landi í boði Heilsu-
stofnunar NLFI og Náttúrulækn-
ingafélags íslands.
Dr. Fluck hefur farið víða um
heim og flutt fyrirlestra um þróun
forvarna og heilsustofnana og hér á
landi flytur hann tvo fyrirlestra. Sá
fyrri verður í þingstofu á Hótel
Loftleiðum fimmtudaginn 4. júní kl.
16 og fjallar dr. Fluck þá sérstak-
lega um heilsu- og baðstofnanir og
ferðamennsku sem tengist þeim, en
á því sviði telur hann íslendinga
eiga mikla möguleika. Þessi fyrir-
lestur er fluttur í samvinnu viuð
Reykjavíkurborg og Ferðarriálaráð.
Hann er öllum opinn.
Á föstudag flytur dr. Fluck fyrir-
lestur í Landspítalanum í samvinnu
við Læknafélag Islands.
Dr. Fluck hefur starfað mikið
fyrir ungverska heilbrigðisráðu-
neytið og hefur verið lækningafor-
stjóri hinna þekktu Danubius hótela
um langt árabil. Þá hefur hann ver-
ið forseti heildarsamtaka bað- og
endurhæfingastofnana í Ungverja-
landi.
Dr. Fluck hefur skipulagt og gert
tillögu um læknisfræðilega þætti við
uppbyggingu heilsustofnana í Ung-
verjalandi og fleiri löndum. Hann
hefur einnig verið ráðgjafl World
Tourism Organisation og gert rann-
sóknir víða um lönd til að undirbúa
þróunarverkefni í svonefndri heilsu-
ferðamennsku.
----------------
Gengið frá
Laugarnes-
töngum að
Vogaskóla
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
verður í kvöld, miðvikudagskvöld, í
för með raðgöngu Arkitektafélags
íslands og Byggingalistadeildar í
Listasafni Reykjavíkur en kynnt
verður skipulag og húsagerð í
Reykjavík á 20. öld og fjallað um
Laugarnes og Heima að þessu
sinni.
Hafnargönguhópurinn hefur
göngu sína við Listasafn Sigurjóns
Olafssonar í Laugarnesi kl. 19.30.
Einnig er hægt að mæta við Hafn-
arhúsið kl. 20 og fara með SVR inn
að Laugarási og koma þar í göngu-
ferðina. Við lok ferðarinnar verður
val um að ganga til baka eða fara
með rútu niður í miðbæ. Allir eru
velkomnir.
----------------
Herjólfur hf.
hefur sumar-
áætlun
FERJUSIGLINGAR Herjólfs
verða samkvæmt sumaráætlun frá
1. júní til 2. september 1998.
Siglt verður frá Vestmannaeyjum
alla daga kl. 8.15 og frá Þorlákshöfn
kl. 12 og auk þess verður siglt frá
Vestmannaeyjum kl. 15.30 á
fimmtu-, fóstu- og sunnudögum og
frá Þorlákshöfn kl. 19.
Ferðir skipsins falla niður 7. júní
(sjómannadagur). Vegna þjóðhátíð-
ar Vestmannaeyinga breytist áætl-
unin sem hér segir: Sunnudagur 2.
ágúst verður aðeins ein ferð frá
Vestmannaeyjum kl. 13 og frá Þor-
lákshöfn kl. 16. Mánudaginn 3.
ágúst er brottför frá Eyjum kl. 11
og kl. 18 og frá Þorlákshöfn kl.
14.30 og kl. 21.30. Aukaferðir verða
miðvikudaginn 29. júlí og þriðjudag-
inn 4. ágúst og þá frá Vestmanna-
eyjum kl. 15.30 og frá Þorlákshöfn
kl. 19. Að öðru leyti gildir sumará-
ætlunin.
Áætlaður siglingatími milli lands
og Eyja er 2 klst. og 45 mínútur.
FRÉTTIR
J k i i 8; HI
s
i: % g ’
- . w Wm
Vormarkaður og skóg-
ræktarferð KSK
KVENFÉLAGSSAMBAND
Kópavogs heldur árlegan götu-
markað föstudaginn 5. júní í
Hainraborg, en þetta er eina
fjáröflun sambandsius. Seldar
verða garðplöntur og úti- og
inniblóm. Einnig verða seldar
kökur. Markaðurinn liefst kl. 10
og stendur fram eftir degi.
Konur eru minntar á að
hirða plöntur við grisjun í garð-
inum og afleggjara við umpottun
og koma með plönturnar og
vel þegnar kökur um kl. 10 á
markaðssvæðið, segir í tilkynn-
ingu.
Skógræktarferð sambandsins
verður farin 6. júní og verður
lagt af stað frá Félagsheimilinu
kl. 9 um morgunin. Farið verður
á einkabílum og eru þær konur
sem ætla upp eftir og ekki hafa
bflfar beðnar um að hafa sam-
band við Svönu.
HLJÓMSVEITIN Aperacia Klubnika.
Frábær fyrirtæki
1. Leikföng, föndur-, gjafa- og ritfangavörur. Stór og glæsileg
verslun í nýrri verslunarmiðstöð, sú eina sinnar tegundar í
5000 manna umhverfi. Umboð fyrir happdrættin. Skór á sumrin.
Miklir möguleikar í fjölmennu umhverfi. Laus strax.
2. Hverfisverslun sem alltaf er stútfull af vörum og opin frá kl.
10—22 alla daga. 1 'A starf. Góð velta og góð afkoma. Upplagt
fyrir hjón sem vilja vinna saman og vera sínir eigin herrar.
Gott verð.
3. Gjafavöruverslun og blómabúð. Sérkæli- og skreytingaher-
bergi. Frábær aðstaða til allra hluta. Með stærri blóma- og
gjafavöruverslunum landsins enda í fjölmennasta hluta borgar-
innar á daginn. Miklir möguleikar og frábær staðsetning. Stöð-
ug söluaukning mánuð eftir mánuð.
4. Tölvufyrirtæki, flytur inn og setur saman tölvur og þjónustar
þær. Margir fastir viðskiptavinir og þeim fer stöðugt fjölgandi.
Góðir þjónustusamningar. Lítil yfirbygging. Selstvegna flutn-
ings eiganda úr landi.
5. Ein þekktasta ísbúð landsins til sölu. Brjálaður tími framundan.
Einnig mikil sælgætissala auk þess myndbandaleiga. Lottó
og spilakassar. Miklar tekjur. Góð staðsetning sem allir
þekkja.
6. Sérverslun með leiki og þrautir, spil og töfl. Sú eina sinnar
tegundar og mjög þekkt. Er einnig með leikföng. Staðsett
í þekktri verslunarmiðstöð. Laus strax. Selst á góðu verði.
7. Heildverslun, mjög sérhæfð með vélar. Er mjög þekkt í sinni
grein. Góð velta og mjög vaxandi velta enda með góðar vörur.
Tilbúin til afhendingar.
8. Sælgætisverslun, ein sú glæsilegasta sem til er. Opin aðeins
venjulegan verslunartíma, lokuð á sunnudögum. Gæðavara
með mikilli álagningu.
9. Heilsustúdíó með nýjustu tækin á markaðnum í dag. Mjög
mikið og vaxandi að gera. Góð staðsetning og hagstæð leiga.
Gott framtíðarfyrirtæki. Góð atvinna fyrir tvær samhentar.
10. Fiskbúð sem búin er að vera á sama stað í um 30 ár. Góð
vinnuaðstaða á bak við. Mikið um fasta viðskiptavini, t.d. leik-
skóla, dagheimili o.fl. Selst ódýrt. Húsnæðið einnig til sölu.
11. Bændur eða sumarbústaðaeigendur: Erum með nýja sundlaug
með öllum tækjum til sölu, 5x10 m á sama verði og lítill hita-
pottur er seldur á. Aðeins 1 stk. til, hafið strax samband.
Ath. Höfum góöa kaupendur að heildverslunum
og framleiðslufyrirtækjum.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAIM
SUÐURVE R I
SÍMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Tónleikar á Fógetanum
HLJÓMSVEITIRNAR Aperacia
Klubnika og Kjammarnir munu
halda tónleika á Fógetanum í Að-
alstræti í kvöld.
Hljómsveitin Kjammarnir er
skipuð Hafdísi Bjarnadóttur á
gítar, Þórdísi Claessen á bassa
og Jóni Indriðasyni á trommur.
Gestir með þeim í kvöld eru Sæv-
ar Garðarsson á trompet og
Rosmary Kaijoka á þverflautu. Á
efnisskrá Kjammanna í kvöld er
frumsamin, þjóðleg latúi-tónlist.
Aperacia Klubnika (öðru nafni
Operation Strawberry) er hljóm-
sveit skipuð þeim Ragnari Erni
Emilssyni, Ingólfi Guðmundssyni,
Birgi Kárasyni og Daníel Brandi
Sigurgeirssyni. Efnisskrá þeirra
einkennist af endurútsetningum
á ýmsum þekktum stefjum ásamt
frumsömdum jassrokkstemmum.
Tónleikarnir munu hefjast um
kl. 10 og er aðgangseyrir kr 300.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks í fastejgnaleit
www.mbl.is/fasteignir
Umboðsaðilar:
Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, s: 431 1985 • ísafjörður: Bílasala Jóels, s: 456 4712
Keflavík: B.G. Bílakringlan, s: 421 1200 • Egilsstaðir.: Bila og Búvélasalan, s: 471 2011
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aðstæður
nnifalið í verði bíLsijLS
/ 2.01 4 strokka 16 ventla léttmálmsvél
v' Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
v' Rafdrifnar rúður og speglar
/ ABS bremsukerfi
/ Veghæö: 20,5 cm
/ Fjórhjóladrif
/ Samlæsingar
/ Ryðvörn og skráning
v' Útvarp og kassettutæki
/ Hjólhaf: 2.62 m
•/ Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m
Verð á götuna: 2.285.000.- með abs
Sjálfskipting kostar 80.000,-
M
HONDA
Sími: 520 1100