Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ rviYrvnusT liistasaln ASÍ / Ásmundarsai MÁLVERK ÁGÚST PETERSEN Opið 14-18. Aðgangseyrir kr. 200. Sýningin stendur til 5. júní. Sýning- arskrá kostar kr. 500. ÁGÚST Petersen fæddist árið 1908 og dó haustið 1990. Hann lærði húsamálun í Iðnskólanum í Reykjavík en fór ungur að mála myndir og teikna og sneri sér al- farið að listmálun árið 1962. Á þrjátíu ára sýningarferli hélt hann tuttugu og tvær einkasýningar og tók þátt í fjölmörgum samsýning- um. Ágúst starfaði lengi í Félagi íslenskra myndlistarmanna og það er félagið sem hefur veg og vanda af þessari sýningu. Halldór Björn Runólfsson skrifar inngang í ágæta sýningarskrá. Á sýningunni eru sextíu og fímm myndir. Ágúst fór oftast sínar eigin leið- ir í myndlist þótt hann hafí lært hjá þeim Birni Bjömssyni gull- smið og teiknara og síðar hjá Þor- valdi Skúlasyni. Hann leiddi hjá sér deilur þær sem settu einna mestan svip á árin milli 1950 og 1960 - deilur þeirra sem aðhylltust afstraktmálverk annars vegar og hinna sem vildu halda sig við fólk og fjöll. Ágúst málaði reyndar fyrst og fremst fólk og landslag, en gerði aldrei veður út af því. Eins og Halldór Bjöm bendir á í sýningarskrá tengist málaralist Ágústs einna helst verkum Júlíönu Sveinsdóttur og Snorra Arin- bjamar, og svo Nínu Tryggvadótt- ur þegar kemur að mannamynd- unum sem eru viðfangsefni þess- arar sýningar. Mannamyndirnar eru að öðmm ólöstuðum það mikil- Portrettmyndir Agústs Petersens SJÁLFSMYND Ágústs Petersens frá árinu 1954. vægasta sem Ágúst skilur eftir sig og hér má sjá á sjöunda tug þeirra frá öllum ferli hans, þótt mest beri á myndum frá síðasta áratugnum á ævi hans. Ágúst málaði gjarnan aðra listamenn eða fólk sem tengdist myndlistinni á einn eða annan hátt. Þannig má hér sjá myndir af Guðmundi Benedikts- syni, Bimi Th. Björnssyni, Rrist- jáni Davíðssyni og Selmu Jóns- dóttur, svo aðeins fáir séu nefndir. Það sem mest heillar við þessar portrettmyndir Ágústs er hvernig honum tekst í einfaldri mynd að draga fram persónu þess sem hann málar án þess að beita nokkum tímann ýkjum eins og til dæmis tíðkast í skopteikningum. Á ákaflega einfaldan hátt og oftast með fölum litum tekst honum að draga fram ótvíræða mynd af per- sónu, ekki aðeins þekkjanlega mynd af andliti heldur mynd sem virðist miklu fremur byggjast á skilningi listamannsins á karakter og háttum þess sem hann málar. Þetta innsæi Ágústs var svo næmt að manni finnst jafnvel að maður læri eitthvað nýtt um fólk sem maður þekkir sjálfur vel við það að sjá það í mynd eftir hann. Uppsetning sýningarinnar í Ás- mundarsal er djörf en gengur fýllilega upp. Myndum er raðað nokkuð þétt saman en án þess þó að þær trufli hver aðra. Þannig tekst að koma upp í litlum sal svo stóru safni mynda, en að öðrum kosti hefði ekki verið hægt að koma upp verðugu yfirliti yfír þessar mannamyndir Ágústs. Með þessari sýningu ætti að sannast svo ekki verður um villst það sem Halldór Björn segir í sýningar- skrá, að Ágúst „var meðal okkar ágætustu og sérstæðustu portrett- rnálara". Jón Proppé Einleiks- tónleikar í Isafjarðar- kirkju HALLDÓR Haraldsson píanóleik- ari heldur tónleika í Isafjarðar- kirkju miðvikudaginn 3. júní kl. 20.30. Tónleikarnir eru fjórðu og síðustu áskrift- artónieikar Tón- listarfélags Isa- fjarðar á þessu starfsári. Á efnisskránni eru tvær píanó- sónötur, sónata í B-dúr eftir Franz Schubert og í f-moll eftir Johannes Bra- hms, en Halldór æfði þessa efnisskrá á síðasta ári, en þá voru liðin 200 ár frá fæðingu Schuberts og 100 ár frá andláti Brahms. Halldór Haraldsson stundaði pí- anónám bæði í Reykjavík og í London. Hann hefur haldið fjölda tónleika bæði heima og erlendis, einn og með öðrum. Árið 1988 stofnaði hann Tríó Reykjavíkur ásamt Guðnýju Guðmundsdóttur og Gunnari Kvaran. Þá hefur hann leikið marga píanókonserta með Sinfóníuhljómsveit Islands. Halldór hefur kennt við Tónlist- arskólann í Reykjavík frá árinu 1966. Hann var í mörg ár deildar- stjóri píanókennaradeildar og pí- anódeildar og frá árinu 1992 hefur hann verið skólastjóri skólans. Tónleikarnir í kvöld eru fyrstu einleikstónleikar á píanó, sem haldnir eru í kirkjunni. Ilalldór Haraldsson Dæmi um hvaö vítamín og steinefni gera fyrir þíg A-vítamín Nauösynlegl lil vaxlar og viöhalds velja. viöheldur mykl og heilbrigöi hörunds. Ver slfmhúö í munni. nefi. halsi og lungum. Eykur viönam gegn sýkingum og bætir sjónina. Hjálpar viö myndun beina. B2-vítamín (Ribófiavin) Hjálpar viö aö nýta orkuna í fæöu. hjálpar viö myndun mólefna og rauöra blóökorna. Nauðsynlegl til aö viöhalda hörundi, nöglum. hári og góöri sjón. Niacin (Nlasín-vítamín B3) Bælir blóörásina og lækkar kólestról I blóði. Viöheldur taugakerlinu. lækkar háan blóðþrýsting, hjálpar viö meltingu og stuölar aö heilbrigöi húöar. Zink Mjög mikilvægt fyrir ónæmiskerliö, flýtir fyrir aö sar groi og er mikilvægt fyrir stööugleika bloösins, Viöheldur alkaline jatnvægi likamans. www.mbl.is Build-up dagskammti (RDS) af 12 vítamínum og 6 steinefnum auk prótíns og orku Nestlé V V3 m; >l f Vitmtn. A Mimtraísj Slmply i Build-Up fyrir alla Góö aöferð til þess aö auka neyslu vítamína og steinefna þegar þú þarft á aukakrafti aö halda. Hentar börnum (eldri en 3ja ára) sem eldra fólki og öllum þar á milli. Build-Up á meögöngu og meö barn á brjósti Tryggir aö nægilegt magn næringarefna sé til staðar á þessum mikilvæga tíma Build-Up eftir veikindi Sér til þess aö þú færö öll réttu næringarefnin til þess aö ná skjótum bata Build-Up - fljótlegur drykkur Eitt bréf út í kalda eöa heita mjólk eöa ávaxtasafa gefur þér fljótlegan og bragðgóðan drykk stútfullan af næringarefnum Upplýsingar um næringarinnihald: f 38 gr. bréfi blönduöu ( 284 ml. af mjólk % af RDS Orka 1395 330 Prótln 9 18,0 Kolvetni 9 37,1 þar af sykur 9 36,5 Fita 9 12,4 þar af mettuð 9 7,5 Trefjar 9 0,6 Natríum 9 0,4 Kalíum mg 810 ftamln A-vítamín U9 300,0 38% B1-vftamin mg 0,6 43% B2-vítamín mg 1,0 63% B6-vítamín mg 0,9 45% B12-vítamín 99 1,7 170% C-vítamín mg 23,0 38% D-vítamín 99 1,8 36% E-vítamín mg 3,3 33% Bíótín mg 0,06 40% Fólín 99 84,0 42% Níasln mg 6,2 34% Pantótenat mg 3,0 50% teinefni Kalk mg 607,0 76% Joö 99 94,0 63% Járn mg 5,5 39% Magnesíum mg 132,0 44% Fosfór mg 534,0 67% Zink mg 6,3 44% súkkulaöi jaróaberja vaniilu bragólaust
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.