Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 59
MINNINGAR
MARGRET JOHANNA
HANSEN
+ Margrét Jó-
hanna Hansen
fæddist í Holtsfit á
Barðaströnd 22.
febrúar 1897. Hún
andaðist í Sjúkra-
liúsi Reykjavíkur
hinn 24. maí síðast-
liðinn. Margrét var
dóttir Jóns Bjarna-
sonar, bónda og
verkamanns, f.
15.4. 1864, d. 13.3.
1911, og Þórdísar
Teitsdóttur, hús-
móður, f. 25.4.
1864, d. 2.11. 1924,
en þau voru bæði ættuð úr
Breiðafirði. Systkini: Gísli J.
(síðar Eyland), f. 27.6. 1886, d.
27.8. 1972, Guðbjörg, f. 2.5.
1889, d. 15.4. 1924, Teitur (síð-
ar Hartmann), f. 5.6. 1890, d.
18.4. 1947, Ólafur, f. 14.6. 1898,
d. 26.12. 1919, Sigríður, f. 9.9.
1903, d. 26.3. 1998, Magnús (frá
Skógi), f. 12.7. 1905, d. 30.4.
1975. Fjögur systkini hennar
dóu ung.
Margrét giftist 6. mars 1926
Nfls Hansen, lifrarbræðslu-
manni, f. 14.9. 1889, d. 19.12.
1952. Foreldrar hans: Olav M.
Hansen, hattagerðarmaður, og
Jóm'na Soffía Jónsdóttir. Mar-
grét og Nfls reistu sér hús árið
1926 sem gefið var nafnið Klett-
Stefánsblóm
Laugavegí 178
S: 561 0771
ur eins og þá tíðk-
aðist, og stóð það
við Köllunarkletts-
veg (Kleppsveg) í
Reykjavík. Börn
þeirra: Jónína Soff-
ía, f. 8.12. 1926, d.
23.3. 1979, maki
hennar Axel Aðal-
steinn Þorkelsson,
látinn, þau áttu sex
börn, Ólafur Þórir,
f. 21.4. 1928, d. 1.10.
1992, maki Ingi-
björg Jónsdóttir,
þau áttu fimm börn,
Níels Hafsteinn, f.
13.6. 1930, d. 19.7. 1996, maki
Sigríður Guðmundsdóttir, þau
áttu sex börn en eitt barn dó
ungt, Margrét Lilja, f. 12.6.
1932, maki John Dailey, látinn,
þau áttu tvo syni. Óskírður
drengur dó þriggja vikna gam-
all 1934. Aður átti Margrét
dóttur: Unnur, f. 22.6. 1923,
maki Wayne Clendening, látinn,
þau áttu einn son. Faðir hennar
var Magnús Guðmundsson, f.
11.10. 1887, d. 30.9. 1946.
Margrét var meirihluta ævi
sinnar húsmóðir en stundaði
auk þess ýmis almenn störf um
ævina.
Bálfór Margrétar fer fram í
Laugarneskirku í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Elskuleg amma mín hefur nú
lokið langri lífsgöngu, umvafin ást
og þakklæti eftirlifandi afkomenda
og vina. Minning hennar er tær og
björt. Andlegri reisn hélt amma
allt þar til yfir lauk. Létt veittist
henni að miðla til annarra jafnt af
langri lífsreynslu sinni sem og
kærleik. í fyrra Korintubréfinu
segir: „Kærleikurinn er langlynd-
ur, hann er góðviljaður; kærleikur-
inn öfundar ekki; kærleikurinn er
ekki raupsamur, hreykir sér ekki
upp; hann hegðar sér ekki ósæmi-
lega, leitar ekki síns eigin; hann
reiðist ekki, tilreiknar ekki hið illa;
hann gleðst ekki yfir óréttvísinni,
en samgleðst sannleikanum; hann
breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar
allt, umber allt. (I. Kor.13.1.)
Þegar ég minnist ömmu minnar
er eins og öll hennar helstu lífsgildi
falli innan þessarar lýsingar á kær-
leikanum. Lífsgleði hennar var ein-
læg og sá eiginleiki hennar varð til
þess að hún eignaðist marga og
trygga vini, margir eru nú horfnir
héðan sem hún minntist ávallt með
þakklæti og eftirsjá. Engin áhrif á
létta lund hennar höfðu margvísleg
ytri áfóll, t.d. missti hún fóður sinn
ung að árum og vegna heilsuleysis
móður hennar lögðust ýmsar
skyldur á hennar ungu herðar. Hin
Helga Bók var vegvísir ömmu allt
frá barnæsku og þangað var leitað
huggunar og styrks í andstreymi
lífsins. Jafnframt lagði hún líf sitt,
örlög og allt sitt traust í hendur
þess sem öllu ræður, og uppskar
samkvæmt því. Amma var félags-
lynd og lagði alúð við þau félags-
störf sem hún tók sér fyrir hendur.
Þegar ákveðið var að hefja bygg-
ingu sóknarkirkju í Laugarnes-
hverfmu, hverfinu hennar, þá
fyrstu í Reykjavík utan Dómkirkj-
unnar, vann amma ötullega að fjár-
söfnun til kirkjubyggingarinnar,
ásamt fleiri sóknarkonum og vin-
um. Laugarneskirkju var hún því
alltaf bundin sterkum böndum og
þaðan verður hún kvödd í dag.
Þjóðmál voru henni hugleikin og
studdi hún af einurð Sjálfstæðis-
flokkinn og sat m.a. í fulltrúaráðinu
um skeið. Á dánarbeði hennar
ræddum við útlit og horfur í kosn-
ingum um stjóm borgarinnar, bæði
Blómcibúðin
öa^ðskom
v/ PossvogsUii'kjugai'ð
Sími: 554 0500
lonymflo oflflöflflt) uflym
uíinmua
4IÓTÍL flOflC
ÍISTflUMNT • (flfl
Upplýsingar í s: 551 1247
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olsen,
útfararstjóri
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Utfararstofa Islands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn.
írjiírjíkj
ur
í gamni og alvöru. Nú sem fyrr var
hún staðföst og fýlgin þeim kjarna
sem felst í þeirri stjómmálastefnu
sem hún aðhylltist alla tíð, þ.e.
virðingu fyrir mannréttindum,
framtaki og ábyrgð einstakling-
anna sjálfra. Amma tók einnig
virkan þátt í félagsstarfi á vegum
Hjálpræðishersins og studdi störf
hans í þágu kristni og mannúðar-
mála af heilum hug. Líf sitt og
krafta helgaði amma þó fyrst og
fremst fjölskyldu sinni, uppeldi
bamanna og afkomenda þeirra.
Mér og systkinum mínum reyndist
hún sem önnur móðir í margvísleg-
um veikindum móður minnar en
hún lést fyrir aldur fram aðeins 52
ára að aldri. Ástúð hennar þökkum
við nú þegar við kveðjum hana
hinstu kveðju svo og umhyggju
hennar gagnvart bömum okkar.
Löngu og farsælu ævistarfi er lok-
ið. Við sem eftir stöndum þökkum
þá fyrirmynd sem amma var okk-
ur. Þökkum henni fyrir allt það
sem hún var, þökkum þá gleði og
bjartsýni sem hún reyndi að inn-
ræta okkur svo og kærleika til ná-
unga okkar.
„Hver sá sem því heyrir þessi
orð mín og breytir eftir þeim, sagði
Drottinn vor Jesú Kristur, honum
má líkja við hygginn mann, sem
byggði hús sitt á bjargi.“
Þannig var líf Margrétar.
Guð blessi minningu ömmu
minnar, Margrétar Hansen.
Tryggvi Axelsson.
Okkur langar með nokkmm orð-
um að minnast hennar langömmu,
langalangömmu og góðrar vin-
konu, Margrétar Hansen. Efst í
huga okkar er þakklæti og virðing
CjrficfryJtJijur
VEISLUSALURINN SÓLTÚNI 3
AKOGESHÚSIÐ
sfml 562-4822
Brynjar Eymundsson
matreiðslumeistari
Guðbjörg Elsa Guðmundsdóttir
smurbrauðs|ómfrú
VEISLAN
A
VEITINGAELDHÚS
Frábærar veitingar Sfmi: S6I 2031
Fyrirmyndar þjónusta
/
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn
Glæsileg kaffihlaðborð
FALLEGIR SALIR
OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
Upplýsingar í símum
562 7575 & 5050 925 ýíS
HOTEL LOFTLEIÐIR ^ .-gjfc. Hl
ICF. LANDAIR HOTELS
fyiár konu sm hafði svo mikið að
gefa og svo miklu að miðla enda
hafði hún lifað heila öld og þvi upp-
hfað ótrúlega hluti sem átt hafa sér
stað í þjóðfélagi okkar.
Elsku langamma. Mig langar að
þakka þér fyrir alla hlýjuna sem þú
sýndir mér og uppeldið sem þú
veittir mér, fyrsta langömmubarn-
inu þínu. Það var alltaf svo gott að
koma til þín í Víðihvamminn, þú
hafðir alltaf þolinmæði og hlýju
gagnvart okkm- systkinunum og
tókst á móti okkur úr skólanum
þegar mamma fór að læra. Minn-
ingarnar eru ótalmargar og þær
varðveiti ég enda naut ég þeirra
forréttinda að hafa þekkt þig allt
mitt líf og þú bjóst hjá okkur í Víði-
hvamminum þegai' ég var að alast
upp.
Kæra vinkona, mig langar að
þakka þér fyrir hversu vel þú
tókst mér þegar ég kynntist þér
fyrir tæpum fimm árum, og fyrir
vináttuna. Þrátt fyrir ríflega 70
ára aldursmun á okkur skildum
við hvor aðra svo vel. Þriðjudags-
stundirnar okkar í vetur voru mér
gefandi og lærdómsríkar, enda
varst þú snillingur í að gefa góð
ráð á þinn jákvæða hátt, án þess
að predika.
Elsku Margrét langamma, við
þökkum þér fyrir samfylgdina. Líf-
ið var þér ekki alltaf auðvelt. Þú
varst búin að lifa manninn þinn,
horfa á eftir börnum, bamabörnum
og vinum yfir móðuna miklu. Nú
hefur þú fengið hvfldina, við sökn-
um þín en vitum að þínu hlutverki
var lokið hér.
Sævar Kristjánsson,
Signrbjörg Vilmund-
ardóttir og börn.
Elsku langamma mín og vin-
kona, Margrét Jóhanna Hansen, er
látin. Mig langar að kveðja hana
með nokkrum orðum. Eg fæ
langömmu aldrei fullþakkað allt
sem hún gerði íýrir mig, öll heil-
ræðin sem hún gaf mér, allar sög-
urnar sem hún sagði mér, allar litlu
dýrmætu stundirnar okkar. Eg
gæti ekki beðið um meira.
Eg kveð hana langömmu mína,
glöð og þakklát fyrir tímann sem
við áttum saman, og ég veit að
henni líður vel og hún fær góð-
mennsku sína launaða á himnum.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt.
Nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er guðs að vilja,
og gott er allt, sem guði er frá.
(V. Briem.)
Guðmunda Kristjánsdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. I’að eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
A GOÐU VERÐI
10% staðgreiðslu
afsláttur
Stuttur afgreiðslufrestur
Frágangur á legsteinum
í kirkjugarð á góðu verði