Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 MORGUNBLADIÐ Tveir millj- arðar barna Til skamms tíma rédu foreldrarnir því á hvað börnin horfðu við háaltari sjónvarpsins í miðri stofunni. Nú geta fjölmörg börn sinnt sínu daglega helgi- haldi í einrúmi við eigið altari á herbergjum sínum. Hafi einhver haldið að börn og ung- menni 18 ára og yngri væru minni- hlutahópur í ver- öldinni er fróðlegt að líta á nýj- ustu tölur frá UNICEF. í heildina eru 37 prósent af jarð- arbúum 18 ára og yngri. Dreif- ingin er að sjálfsögðu misjöfn eftir heimshlutum og hlutföll aldurshópanna breytileg. í iðn- ríkjum vesturlanda eru 18 ára og yngri u.þ.b. 24 prósent íbú- anna en í þriðja heiminum er hlutfallið 40-55 VIPHORF Eftir Hávar Sigurjónsson prósent. Þess- ar tölur segja þó ekki alla söguna því ef hinir fullorðnu eru teknir útúr dæminu kemur í ljós að af þeim tveimur millj- örðum barna og ungmenna undir 18 ára aldri, sem byggja þessa jörð, þá eru einungis 13 prósent þeirra í iðnríkjunum og 87 prósent búa í þróunarlönd- unum. Þessum tölum má svo velta fyrir sér á ýmsa vegu og gleðj- ast eða hryggjast yfir þeim; t.d. má velta fyrir sér aðstöðumun þessara tveggja mjög svo mis- stóru hópa, hinn minni er auð- vitað margskiptur og innan hans eru innbyrðis möguleikar einstaklinganna til góðs lífs og uppeldis mjög misjafnir. Hvað 87 prósentin í þriðja heiminum varðar snýst málið kannski ekki svo mjög um lífsgæði og upp- eldisaðferðir; þar er fyrst og síðast spurt um að lifa af. Allt umfram það eru lífsgæði. Þegar litið er á aðgang jarð- arinnar barna að sjónvarpi og myndmiðlum snúast tölurnar hér að ofan algjörlega við. Það kemur kannski ekki á óvart. I mörgum Evrópulöndum, Bandaríkjunum, Japan og Ástralíu hafa flest börn aðgang að öllum hugsanlegum mynd- miðlum á heimilum sínum. Yfir- gnæfandi meirihluti þeirra býr við tvö eða fleiri sjónvarpstæki á heimilinu, mörg hafa sitt eigið sjónvarp í herbergi sínu, auk myndbandstækis, tölvu með ýmsum leikjaforritum ásamt aðgangi að Netinu. Hér má hyggja að þeirri breytingu sem orðið hefur á síðustu árum varðandi notkun myndmiðl- anna, til skamms tíma réðu for- eldramir því á hvað börnin horfðu við háaltari sjónvarpsins í miðri stofunni. Nú geta fjöl- mörg börn sinnt sínu daglega helgihaldi í einrúmi við eigið altari á herbergjum sínum. Stundin við skjáinn er því ekki lengur sameiginleg fjölskyld- unni nema fyrir tilviljun; glápið fer sífellt meira fram í einrúmi og foreldrarnir eiga því erfiðara um vik með að fylgjast með á hvað börnin eru að horfa, hvort efnið er æskilegt eða skaðlegt, að því hlutverki ónefndu að vera fyrirmyndir um ábyrgt gláp- I mörgum þróunarlandanna veldur hin yfirgengilega fátækt því að sjónvarpsglápið verður ekki aðeins sameiginleg stund fyrir fjölskylduna heldur er því víða svo farið að aðeins eitt sjónvarpstæki fyrirfinnst í hverju þorpi. Orkuskorturinn er einnig slíkur að þetta eina sjónvarpstæki þorpsins er knú- ið rafmótor sem er sameign þorpsbúa. Við þessar aðstæður verður sjónvarpsglápið helgi- stund allra þorpsbúa, sameigin- leg upplifun; dags- eða viku- skammturinn af amerískri glanssápu verður umtalsefni allra þorpsbúa í aðþrengdustu hlutum Afríku eða Suður-Am- eríku. Hvort er hlálegri tilhugs- un skal ósagt látið; hin vest- ræna tækjavædda fjölmiðlafjöl- skylda þar sem börnin og for- eldrarnir sitja hver í sínu her- bergi umkringd sínum persónu- legu skjám og lyklaborðum án nokkurra tengsla hvert við ann- að, eða þorpsbúar örbirgðarinn- ar sem sitja og horfa öxl við öxl á tilbúna sápuveröld hins vest- ræna heims. Hvort tveggja er jafn fáránlegt og það er raun- verulegt. Litil tengsl sjónvarpsefnis við raunveruleikann birtast í ýmsum myndum. í ljósi þeirrar tölfræði sem hér hefur verið tínd til, má benda á að hlutfall bama og ungmenna í íbúafjölda hverrar þjóðar birtist engan veginn í sjónvarpsefninu. Börn og ungmenni sem þátttakendur í leiknu sjónvarpsefni (eða heimildarmyndum) eru afskap- lega lítilfjörlegur hluti af heild- inni. Sumir fjölmiðlafræðingar vilja ganga svo langt að telja þetta táknræna kúgun á börn- um. Þau fái með þessu ranga hugmynd um hlutverk sitt í þjóðfélaginu; þeim bregður svo sjaldan fyrir í sjónvarpinu að þau virðast nánast ekki skipta neinu máli í veröldinni. Þau sjást sjaldan, þau heyrast sjald- an og fullorðnu persónurnar tala sjaldan um þær. Eina efn- isformið í sjónvarpinu sem ger- ir sér verulegan mat úr börnum eru auglýsingar. Þar eru börn títt notuð, enda vita þeir sem þar um véla að börn eru dygg- ustu áhorfendur sjónvarps og horfa á auglýsingar af sömu einbeitni og annað efni sem fyr- ir ber. Og börn í auglýsingum selja ekki bara jafnöldrum sín- um í hópi áhorfenda heldur hafa þau einnig söluvæn áhrif á hina fullorðnu. Þessi „áhersla" auglýsinganna á notkun á börn- um styður reyndar einnig þá kenningu að frá þjóðfélagslegu sjónarmiði gegna börnin fyrst og fremst neysluhlutverki, þau hafa meiri áhrif á neyslu fjöl- skyldnanna en margt foreldrið er sjálfsagt tilbúið að viður- kenna. Markaðsfræðingarnir vita þó betur. Það er gott að vita til þess að á einhverjum póstum er mikilvægi barnanna viðurkennt í verki og hugsun og fjármunum beint að þeim á svo markvissan hátt. Morgunblaðið/Arnór SVEITIR Norðurlandskjördæmis eystra, kjördæmameistarar 1998. Talið frá vinstri: Skúli Skúlason, Guðmundur Jónsson, Stefán Stefánsson, Jón Jónsson, Sveinn Aðalgeirsson, Þórólfur Jónasson, Sveinn Pálsson, Sigurbjörn Haraldsson, Magnús Magnússon, Hróðmar Sigurbjörnsson, Bjarni Sveinbjörnsson, Jóhann Magnússon, Kristján Þorsteinsson, Anton Haraldsson, Eyþór Gunnþórsson, Hermann Friðriks- son, Þorsteinn Friðriksson, Stefán Sveinbjörnsson og Jóhannes Jónsson. Sveit Norðurlands eystra kj ördæmameistari BRIDS Flughótel Keilavík KJÖRDÆMAMÓT Fjórar sveitir frá hverju kjördæmi. 30.-31. maí. Aðgangur ókeypis. SVEIT Norðurlands eystra sigraði með nokkrum yfirburðum í kjördæmakeppninni og varði þar með titilinn frá síðasta móti. Sveitin hlaut samtals 490 stig, 36 stigum meira en sveit Reykvík- inga sem varð í öðru sæti með 454. Sunnlendingar urðu í þriðja sæti með 450 og Norðurland eystra í því fjórða með 436 stig. Allar sveitir Norðurlands vestra spiluðu mjög vel í mótinu eins og lesa má út úr meðaltalinu en sveitirnar voru með 17,5 stig að meðaltali úr leik. Að venju var tvímenningsút- reikningur (Butler) og urðu norð- anmenn í 1. og 3. sæti. Efstir urðu Kristján Þorsteinsson og Jóhann Magnússon með 18,77 í 6 leikjum. Hjálmtýr Baldursson og Svavar Bjömsson, Reykjavík, urðu í öðru sæti með 18,61 í 7 leikjum og landsliðsbræðurnir Anton og Sig- urbjöm Haraldssynir þriðju með 18,49 í 7 leikjum. Skipulag mótsins þótti takast mjög vel. I fararbroddi Suður- nesjamanna var Kjartan Olason og helztu aðstoðarmenn hans Garðar Garðarsson og Svala Páls- dóttir en þau afhentu verðlaunin í mótslok. Keppnisstjóri var Isak Sigurðsson og reiknimeistari Trausti Harðarson. Aðstaða á Flughóteli var hin ákjósanlegasta en veg og vanda af þjónustunni við spilarana hafði Axel Jónsson aðstoðarhótelstjóri og veitinga- stjóri. 54 sveitir spila í bikarkeppni BSÍ 1998 Um helgina var dregið í bikar- keppni Bridssambandsins og voru 54 sveitir í pottinum. 22 leikir verða í fyrstu umferðinni en 10 sveitir sitja yfir. Karl G. Karlsson, Sandgerði - Víkursveit- in/Kristján Þorsteinsson, Dalvík Hafdís/Orn Ragnarsson, Hornafirði - Jasmín/Ólöf Þorsteinsdóttir, Rvk NotaBene/Sigmundur Stefánsson, Rvk - Húsavíkursveitin/Friðgeir Guðmundsson Sparisjóður Mýrasýslu/Kristján Snorrason, Borgarnes - Soffla Daníelsd., Rvk Hótel Bláfell/Ríkharður Jónsson, Breiðdalsvík - SveinnAðalgeirsson, Húsavík Nýherji/Isak Om Sigurðsson, Rvk. - Vélaleiga SímonarJ’áll Bergsson, Rvk Bjöm Theódórsson, Rvk - Strengur/Hrannar Erlingsson, Rvk Herðir hfJPálmi Kristmannsson, Egilsstaðir - Jón N. Gíslason, Hafnaifjörður Landsbréf/Björn Eysteinsson, Rvk. - Kaup- þing Norðurl/Anton Haraldsson Akureyri Unnar Atli Guðmundsson, Hvammstanga - Þórður Sigurðsson, Selfoss Bragi Bjamason, Hornafjörður - Vignir Sig- ursveinsson, Sandgerði Aðalsteinn Sveinsson, Skógum - Erla Sigur- jónsdóttir, Hafnarijörður Samvinnuferðir/Landsýn/Helgi Jóhannsson, Rvk - Ragnar Mapússon, Rvk. TVB 16/Sigurður Sigurjónsson, Rvk. - Baldur Bjartmarsson, Rvk. Samskipti/Haukur Amason, Hafnarfjörður - Rúnar Einarsson, Rvk. Stefán Vilhjálmsson, Akureyri - Garðsláttu- þjón. NorðuriyStefán G. Stefáns. Akureyri Háspenna/Jón Hjaltason, Rvk. - Kjötvinnsla Sigurðar/Ragnh. Nielsen, Rvk. IceMac/Hlynur Garðarsson, Rvk. - Om Arn- þórsson, Rvk. Hreinn Björnsson, Akranes - Sjóvá Almenn- ar/Stefán Ólafsson, Blönduós Brynjar Jónsson, Rvk. - Stefanía Skarphéð- insdóttir, Skógum SP Fjármögnun/Randver Ragnars, Keflavík - ABB Endurskoðun/Jóhannes Agústsson Rvk Kjartan Ólason, Keflavík - Guðlaugur Sveins- son, Rvk. Sveitir í yfirsetu í fyrstu umferð: Eimskip/Stefán Kalmannsson Sævar Þorbjömsson, Rvk. Ólafur Steinason, Selfoss Lítið spil/Ómar Olgeirsson, Rvk. Stilling/Sigtryggur Sigurðsson, Rvk. Keiko/Guðjón Bragason, Hella Bjarni Ág. Sveinsson, Egilsstaðir Jóhann Magnússon, Rvk. Tölvulínan/Aróra Jóhannsdóttir, Rvk. Þristarnir/Þorsteinn Kristmundsson, Rvk. Síðasti spiladagur í 1. umferð er sunnudagurinn 21. júní. Sumarbridge 1998 Fimmtudagskvöldið 28. maí var spilaður Mitchell. 22 pör mættu og voru spilaðar 9 umferð- ir, 3 spil á milli para. Þessi pör urðu efst: (Meðalskor 216). NS: Eðvarð Hallgrímsson - Valdimar Sveinsson 278 Svavar Bjömsson - Hjálmtýr Baldursson 249 Jón Viðar Jónmundsson - Þórir Leifsson 244 AV: Soffía Daníelsdóttir - Hrafnhildur Skúlad. 257 Óli Bjöm Gunnarsson - Þorsteinn Joensen 252 Þórður Sigfússon - Ingvar Ingvarsson 241 Föstudagskvöldið 29. maí var þátttakan 26 pör og spilaformið aftur Mitchell. Þá urðu þessir spilarar efstir: (Meðalskor 216) NS: _ María Asmundsd. - Steindór Ingimundarson 278 Guðlaugur Bessason - Jón St. Ingólfsson 255 Jóhannes Guðmannss. - Unnar Atli Guðmss. 238 Lárus Hermannsson - Guðlaugur Sveinsson 278 Eyþór Hauksson - Helgi Samúelsson 264 Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 256 Að loknum tvímenningi var að venju spiluð útsláttarsveita- keppni. Sex sveitir tóku þátt. Sigurvegari varð sveit Nicolai Þorsteinssonar (Böðvar Magnús- son, Unnar Atli Guðmundsson og Jóhannes Guðmannsson, auk Nicolai) eftir úrslitaleik við sveit Torfa Sigurðssonar (Ragnar Haraldsson, Alda Guðnadóttir og Kristján B. Snorrason, auk Torfa). Spilað er öll kvöld nema laug- ardagskvöld, alltaf byrjað klukk- an 19.00. Spilað er í húsnæði Bridgesambands Islands, Þöngla- bakka 1, í Mjódd. Keppnisstjór- inn, Matthías Þorvaldsson, að- stoðar við myndun para þegar menn mæta stakir. Allir eru vel- komnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.