Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 2£
ERLENT
Reuters
MILO Djukanovic, forseti Svartfjallalands, á kjörstað í Podgorica, höf-
uðborg lýðveldisins. Hugsanlegt er talið, að kosningarnar sl. sunnudag
muni verða til að herða á kröfum þeirra, sem vilja fullt sjálfstæði og
segja sig úr lögum við Serbíu og júgóslavneska sambandsríkið.
Umbótasinnar
sigruðu í
S vartQ allalandi
Áfall fyrir Milosevic og getur haft
áhrif á sambandsþinginu
Podgorica. Reuters.
UMBÓTASINNAR í Svartfjalla-
landi hrósuðu sigi’i í kosningunum á
sunnudag og hafa nú hreinan meiri-
hluta á þingi. Eru úrslitin jafnframt
áfall fyrh- Slobodan Milosevic, for-
seta Júgóslavíu.
Samtök umbótasinnaðra flokka
undir forystu Milos Djukanovic, for-
seta Svartfjallalands, fengu 49,5%
atkvæða en helsti keppinauturinn,
sósíalistinn Momh’ Bulatovic, skjól-
stæðingur Milosevic, fékk 36%.
Frjálslynda bandalagið fékk 6% og
það, sem upp á vantar, skiptist á
milli nokkurra smáfiokka.
James Rubin, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, fagnaði
kosningunum í gær sem mikilvægu
skrefí í átt til fulls lýðræðis í Jú-
góslavíu, Serbíu og Svartfjallalandi,
og eftirlitsmenn ÓSE, Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu, sögðu,
að þær hefðu farið heiðarlega fram.
A þinginu í Svartfjallalandi sitja
78 menn og er búist við, að Umbóta-
samtökin fái 42-43 menn á móti 30-
31 Sósíalistaflokksins. Djukanovic
getur einnig reitt sig á stuðning
frjálslyndra og fulltrúa albanska
minnihlutans í Svartfjallalandi.
Aukin andstaða við
Milosevic á þingi
Þessi niðurstaða er mikið áfall fyr-
ir Milosevic, sem beitti sér gegn
Djukanovic með ýmsum hætti. Skjól-
stæðingur hans, Bulatovic, var áður
forseti Svartfjallalands og nýlega
skipaði Milosevic hann forsætisráð-
herra Júgóslavíu í því skyni að
styrkja stöðu hans.
Serbar og Svartfellingar eiga jafn
marga fulltrúa í efri deild sambands-
þingsins og líklegt er, að Djukanovic
fái alla svartfellsku fulltrúana þar
sem flokkurinn er í meirihluta á
þingi lýðveldisins. Getur hann því
hugsanlega gert alríkisstjórninni
erfitt fyrir á ýmsa lund.
Djukanovic er 35 ára gamall, fyiT-
verandi kommúnisti og áður banda-
maður þeirra Milosevic og Bulatovic.
Hann sneri við þeim baki og segir,
að Svartfellingar hafí þjáðst mikið
vegna hernaðarbrölts Milosevic, úti-
staðna hans við Vesturlönd og með-
fylgjandi refsiaðgerða. Eitt af helstu
slagorðum hans í kosningunum á
sunnudag var þetta: „Viljið þið búa
við einræði Milosevic; vera eins og
bandingjar á botninum? Kjósið þið
kannski heldur að búa með reisn í
lýðfrjálsu ríki í nánu samstarfi við
hið alþjóðlega samfélag?"
IÐNSKÓLINNI REYKJAVfK
vekur athygli á nýrri
námsskipan:
Málmtæknibraut,
fyrri hluti, 4 annir
Grunndeild bíliðna,
2 annir.
^úðkaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og fl. og fl. og II.
(fcípOá = wiSsluti®Oác
/^ÍN aO "°9 ýmsir fy|9*h|wt*r
' skÍDuleaaia á efti
' Ekki treysta á veðrið þegar
skipuleggia á eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leiglð stórt tjald á
staðinn - það marg borgar sig.
f Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2.
Elnnig: Borð, stólar, tjaldgólf og
tjaldhitarar.
ö Tíö|d
aDeBga sHcátta
..meo skötum á heimavelll
sfmi 562 1390 • fax 552 6377
Jórdanir og Saudi-Arabar ræða væntanlega ráðstefnu arabaríkja
Eindrægni verði tryggð
Ainman. Reuters.
JÓRDANIR og Saudi-Arabar
sögðu í gær að ef halda ætti ráð-
stefnu arabaríkja um stöðu mála
fyrir botni Miðjarðarhafs yrði að
vanda mjög til alls undirbúnings til
þess að eindrægni n'kjanna rofnaði
ekki. Að loknum fundi Hússeins
Jórdaníukonungs og Abdullah
krónprins af Saudi-Arabíu á mánu-
dag var hvatt til þess að meira yrði
gert til þess _að koma á friðarum-
leitunum við Israel.
Opinber fréttastofa Jórdaníu,
Petra, sagði að báðir hefðu staðfest
nauðsyn þess að ráðstefnan gengi
vel svo eining arabaríkja myndi
styrkjast gagnvart friðarumleitun-
unum og þeim vanda sem þar væri
yið að etja. Jórdanir sömdu frið við
ísraela fyrir fjórum árum og vilja
ekki að væntanleg ráðstefna verði
notuð til að koma höggi á Israela.
Netanyahu efni
gefín heit
Aðstoðarforsætisráðherra
Jórdaníu sagði á mánudag að þar-
lend stjórnvöld teldu að best færi á
því að væntanleg ráðstefna yrði
haldin í höfuðstöðvum Ara-
babandalagsins í Egyptalandi, en
þarlendir ráðamenn hafa einnig
komist að friðarsamkomulagi við
ísraela.
Jórdanir leggja áherslu á, að
ráðstefnuna skuli nota til að auka
þrýsting á að Benjamin Netanya-
hu, forsætisráðherra Israels, efni
gefin heit sem ísraelar hafa lengi
frestað, svo sem að afhenda Palest-
ínumönnum meira land á Vestur-
bakkanum.