Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 25
ERLENT
Bill Clinton
áfrýjar ekki til
hæstaréttar
Washington. Reuters.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, ákvað á mánudag að áfiýja
ekki til hæstaréttar þeim úr-
skurði alríkisdómara að tveir ráð-
gjafar hans væru ekki undan-
þegnir vitnaskyldu vegna frið-
helgi forsetaembættisins. Clinton
hyggst hins vegar áfrýja máli
annars ráðgjafanna, lögfræðings-
ins Bruce Lindsey, til áfrýjunar-
dómstóls til að reyna að koma í
veg fyrir að hann þurfi að bera
vitni vegna rannsóknar Kenneths
Starrs saksóknara á ásökunum
þess efnis að forsetinn hefði hald-
ið við fyrrverandi starfsstúlku í
Hvíta húsinu og hvatt hana til að
bera ljúgvitni um samband
þeirra.
Lögfræðingar Clintons skýi'ðu
hæstarétti Bandaríkjanna frá því
að þeir hygðust ekki áfrýja úr-
skurði dómarans á grundvelli
friðhelgi forsetaembættisins. Síð-
ast þegar hæstiréttur tók slíkt
mál fyrir, í júlí 1974, úrskurðaði
dómstóllinn að Richard Nixon,
þáverandi forseta, bæri að leggja
fram upptökur og gögn sem sak-
sóknarar höfðu óskað eftir vegna
Watergate-málsins. Nixon varð
að segja af sér tæpum mánuði
síðar.
Charles Ruff, einn af lögfræð-
ingum Clintons, sagði hins vegar
að máli Lindseys yrði áfrýjað til
áfrýjunardómstólsins á þeirri for-
sendu að lögfræðingum bæri ekki
að bera vitni um samtöl sín við
skjólstæðinga sína.
Máli lífvarðanna
áfrýjað?
Ennfremur var haft eftir lög-
fræðingum, sem tengjast málinu,
að bandaríska dómsmálaráðu-
neytið hygðist áfiýja þeim úr-
skurði dómarans að lífverðir
Clintons væru ekki undanþegnir
vitnaskyldu.
Clinton hafði skírskotað tO frið-
helgi forsetaembættisins og ósk-
að eftir því að ráðgjöfum forset-
ans, Lindsey og Sidney Blument-
hal, yrði ekki gert að bera vitni en
því hafnaði dómarinn. Ruff sagði
að Blumenthal myndi nú bera
vitni og kvaðst aðspurður „alls
ekki“ hafa áhyggjur af því hvað
hann myndi segja.
Lögfræðingar Clintons sögðu
að Lindsey hefði þegar borið vitni
um að „hann hefði engar upplýs-
ingar um að einhver hefði framið
meinsæri eða lagt stein í götu
réttvísinnar".
UNDIRBÚNINGSFUNDUR AÐ STOFNUN
HAGSMUNASAMTAKA FYRIRTÆKJA
í FERÐAÞJ ÓNUSTU
Undirbúningsstofnfundur hagsmunasamtaka fyrirtækja
í ferðaþjónustu verður haldinn fimmtudaginn 4. júní
kl. 14.00 á Grand Hótel Reykjavík (Gullteig).
Dagskrá verður sem hér segir:
Fundarmenn boðnir velkomnir
Aslaug Alfreðsdóttir, formaður Sambands veitinga- og gistihúsa.
Kynning
Undirbúningsnefind kynnir drög að lögum og fjallar um
aðdraganda og framtíðarsýn.
Stutt ávörp:
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða
Helgi Jóhannsson, forstjóri Samvinnuferða/Landsýnar
Yilhelm Ágústsson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar
Óskar Finnsson, veitingamaður Argentínu
Kaffihlé
Umræður
Forskráning stofnfélaga
Fundarstjóri veður Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri Islandsflugs
Undirbúningsnefndin.
■■
ÚT UM ALLT LAND ROVER
Land Rover Discovery er öflugur ferðajeppi fyrir þá sem fara ekki alltaf auðveldustu leiðina. Slíkur bíll hentar sérstaklega
vel við margbreyttar íslenskar aðstæður. Discovery kemur þér hvert sem þú vilt fara og þægindunum er ekki fórnað.
Uppgötvaðu landið upp á nýtt í þolgóðum en jafnframt glæsilegum farkosti.
HR
Umbodsaöilar:
Keflavík: Bflar og þjónusta, s: 421 7180 • Akranes: Bflasalan Bílás, s: 431 2622 • Bolungarvfk: Blfreiöaverkstæðið Nonni, s: 456 7440
Sauðárkrókur: Bifreiðaverkstæðiö Áki, s: 453 5141 • Akureyri: Bflaval, s: 462 1705 • Húsavík: Bflaleiga Húsavíkur, s: 464 1888 • Egilsstaðir: Bflasalan Ásinn, s: 471 2022
Hornafjöröur: HP & synir, s: 4781577 • Selfoss: Bflasala Suðurlands, s: 482 3700 • Vestmannaeyjar: Bflaverkstæöi Haröar & Matta, s: 481 2733
Suöurlandsbraut 14
Sími: 575 1200
Söludeild Land Rover: 575 1210
bl@bl.is