Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
L-
ERLENT
Blair segir nýtt tímabil blasa við í samskiptum Ira og Breta
Avarpar írska þingið í haust
Dublin, Belfast. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, heimsótti Belfast í gær
og ræddi við leiðtoga helstu stjóm-
málaflokka en gengið verður til
þingkosninga á N-írlandi 25. júní
næstkomandi. David Trimble, leið-
togi Sambandsflokks Ulster (UUP),
sagðist fyrir fundinn með Blair
éinnig ætla að ræða um hina
svokölluðu „göngutíð“ Oraníuregl-
unnar, sem tengd er UUP tryggða-
böndum, en hún nær að venju há-
marki í byrjun júlí. Er nú reynt að
fínna lausn þannig að ekki komi til
átaka eins og undanfarin tvö ár.
Karl Bretaprins kom einnig til
Belfast í gær en hann er nú í
tveggja daga heimsókn á N-írlandi.
Blair hitti Bertie Ahern, forsætis-
ráðherra írlands, í Dublin í fyrra-
dag og bauð Ahem Blair að koma
aftur í haust og verða fyrstur
breskra forsætisráðherra til ávarpa
sameinaðan fund efri og neðri deild-
ar írska þingsins. Blair kvaðst afar
snortinn yfir boðinu og sagðist telja
að vip blasti nýtt tímabil í samskipt-
um írlands og Bretlands þar sem
samvinna landanna tveggja yrði
með breyttu og betra sniði.
Óeirðir við
Drumcree
Haft er eftir Ronnie Flanagan,
lögreglustjóra á N-írlandi, í The
Irish Times í gær að átökin í bæn-
um Portadown á sunnudag hefðu án
nokkurs vafa verið fyrirfram skipu-
lögð af lýðveldissinnum. Til átaka
kom þegar kaþólskir íbúar við Gar-
vaghy-veg mótmæltu göngu yngri
deildár Oraníureglunnar í gegnum
hverfíð sem undanfarin tvö sumur
hefur orðið nánast sem vígvöllur
eftir göngu Oraníureglunnar niður
Garvaghy-veginn í óþökk íbúanna.
Fjórtán vom á sunnudag fluttir á
slysadeild, þar af ellefu lögreglu-
menn og er óttast að átökin séu vís-
ir á það sem koma skal í sumar.
Jafnframt sagðist Flanagan ótt-
ast að klofningsfélög úr írska lýð-
veldishemum (IRA), sem andsnúin
era páskasamningnum, hyggist
sameinast undir einn hatt á næstum
vikum og hefja sprengjuherferð.
Hague stokkar upp í
skuggaráðuneytinu |
Markmiðið
að bæta stöð-
una í glím-
unni við Blair ;
London. The Daily Telegraph, Reutei's.
WILLLAM Hague, leiðtogi breska I
íhaldsflokksins, tilkynnti í fyrradag
um verulegar breytingar á skugga-
ráðuneyti sínu.
Vonast hann til
að þær verði til
að blása nýju lífi
í flokkinn og for-
ystu hans og
auðveldað hon- )
um glímuna við |
Tony Blair, leið- i
toga Verka- f
mannaflokksins.
Helstu breyt-
ingarnar eru þær, að Ann Widd-
ecombe, sem hefur verið nokkuð
áberandi í þingliðinu, leysir af
hólmi Frank Dobson sem heil-
brigðisráðherra í skuggaráðuneyt-
inu og David Willetts tekur að sér
að móta nýja stefnu í skólamálum. 1
Peter Lilley, sem hefur þótt held- |
ur atkvæðalítill í fjármálunum, |
verður aðstoðarleiðtogi með það
verkefni fyrst og fremst að endur-
skoða stefnumál flokksins með
næstu kosningar í huga. Við fjár-
málunum tekur Francis Maude en
hann hefur farið með menningar-,
fjölmiðla- og íþróttamál í skugga-
ráðuneytinu.
„Hér er um ræða nýtt og hæfi-
leikaríkt fólk,“ sagði Hague þegar
hann kynnti breytingarnar. „Við I
ætlum að láta hana svara til saka |
þessa ríkisstjóm, sem er önnum
kafin við að svíkja þau loforð, sem
hún gaf þjóðinni fyrir síðustu kosn-
ingar.“
Tangarsókn
Hague hefur gert ýmsar breyt-
ingar á skipulagi Ihaldsflokksins
með það fyrir augum að auka áhrif j
óbreyttra flokksmanna en flokkur-
inn á samt ennþá á brattann að 1
sækja gagnvart kjósendum. Klofn- )
ingurinn vegna Evrópumálanna
gýs alltaf upp öðra hverju og skoð-
anakannanir sýna, að hann hefur
nú minna fylgi en hann fékk í síð-
ustu kosningum.
Hague ætlar nú að beita nokkurs
konar tangarsókn gegn ríkisstjóm-
inni. Þau Maude og Widdecombe
eiga að hamra á aumu blettunum í |
störfum stjómarinnar, til dæmis ,
því, að ekki hefur enn tekist að
fækka fólki á aðgerðalistum sjúkra- j
húsanna né að fækka nemendum í
bekkjum, en Lilley á að endurmeta
stefnuna með víðtæku samráði við
kjósendur. Bindur Hague miklar
vonir við Maude sem einn af for-
ystumönnum flokksins í framtíð-
inni.
Howard áfram með
utanríkismál
I
Af öðrum breytingum má nefna,
að Michael Ancram, talsmaður
flokksins í stjórnarskrármálum,
mun taka við af Parkinson lávarði
sem formaður flokksins á flokks-
þinginu í október og skuggaráð-
herrarnir Sir Brian Mawhinney og
Stephen Dorrell hætta að eigin ósk.
Þá var Sir Alastair Goodlad, tals-
maður flokksins í alþjóðaþróun, lát-
inn hætta. Er þá ekki allt upp talið
en rétt að nefna, að Sir Norman
Fowler verður innanríkisráðherra í i
skuggaráðuneytinu en hann hefur
verið með umhverfis- og sam-
göngumál. Michael Howard verður
áfram talsmaður flokksins í utan-
ríkismálum en sagt er, að hann sé
ekkert yfir sig hrifinn af frama Ann
Widdecombe. Hann var á sínum yf-
irmaður hennar í innanríkisráðu-
neytinu og þá lenti þeim saman út
af brottrekstri yfirmanns fangelsis-
málanna í Bretlandi. Þá sagði hún
um Howard, að það væri „eitthvað
skuggalegt við hann“.
Armúla 38 • Sími 553 1133