Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ __________________________FRÉTTIR_____________ Viðskiptaráðherra gagnrýnir ummæli Ástu R. Jóhannesdóttur í útvarpsþætti Stjórnarandstæðingar segja ráð- herra reyna að drepa málinu á dreif Málefni Lindar hf. voru enn á ný rædd á þingfundi Alþingis í gær. Arna Schram fylgdist með umræðunum. FINNUR Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kvaddi sér hljóðs í upphafl þingfundar á Alþingi í gær og gerði að umtalsefni ummæli Astu R. Jóhannesdóttur, þingflokki jafn- aðarmanna, í útvarpsviðtali fyrr um morguninn. Sagði ráðherra að Asta hefði sagt í útvarpsviðtalinu að óund- irbúnar fyrirspurnir á þinginu væru þess eðlis að ráðherrar hefðu tök á að undirbúa sig fyrir þær, ef þeir vildu. Sagði ráðherra að Asta hefði sagt í viðtalinu að sá háttur væri hafður á þegar þingmenn legðu fram beiðni um óundirbúna fyrirspurn til forseta Alþingis, að þeir tæku jafnframt fram um hvað þeir ætluðu að spyija. Ráðherrar hefðu þannig tök á að afla sér gagna og undirbúa sig fyrir svör ef þeir hefðu ekki upplýsingar á hraðbergi þegar að fyrirspurnunum kæmi. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra benti á að þarna hefði Asta gefíð ranga mynd af því hvernig staðið væri að óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi. Ráðheirar gætu ekki fengið að vita um hvað þingmenn ætluðu að spyi’ja í óundirbúnum fyrirspurnum. Kvaðst ráðhen-a telja alvariegt að Asta hefði viðhaft þessi ummæli í út- varpsviðtalinu og óskaði eftir því að forseti Alþingis skæri úr um það hvort hún hefði sagt satt eða ósatt í umræddu útvarpsviðtali. Guðni Agústsson, 3. varaforseti AI- þingis, tók fram, vegna þessarar ósk- ar ráðherra, að ráðherrum væri ekki tilkynnt um efni óundirbúinna fyrir- spurna. „Það liggur í orðanna hljóðan að þær eru óundirbúnar. Þetta fer þannig fram að forseti fær fyrir- spurnina í hendur en það er fyrst og fremst hans vinnuskjal," sagði Guðni. Ásta R. Jóhannesdóttir sem og aðrir þingmenn stjórnarandstöðu mótmæltu þessum málflutningi við- skiptaráðheiva og sögðu m.a. að með því væri hann að drepa umræðunni um málefni Lindar hf. á dreif. Aðalat- riði þessa máls væri það að viðskipta- ráðheiTa hefði sagt ósatt eða leynt Alþingi upplýsingum í óundirbúinni fyrirspurn um tap Lindar hf. á Al- þingi fyrir nákvæmlega tveimur ár- um. „Allir vissu sem vildu vita“ Asta Ragnheiður kvaðst hafa sagt frá því í útvarpsviðtalinu að þing- menn tilkynntu forseta Alþingis æv- inlega um efni óundirbúinnar fyrir- spurnar í upphafí þingfundar eða rétt áður en fyrirspurnin væri lögð fram. Því hefði hún talið að ráðherr- ar gætu nálgast efnisatriði fyrir- spurnarinnar. Væri það hins vegar ekki rétt breytti það því ekki að við- skiptaráðherra hefði farið með rangt mál á Alþingi þegar hann hefði svar- að óundirbúinni fyrirspurn um mál- efni Lindar hf. og Landsbankans fyrir tveimur árum. Eftir ræðu Ástu ítrekaði Guðni Ágústsson 3. varaforseti Alþingis að það lægi fyrir að ráðherra væri ókunnugt um efni óundirbúinna fyr- irspuma. Þetta ítrekaði hann reynd- ar nokkrum sinnum til viðbótar í þeim umræðum sem á eftir fóru. Svavar Gestsson, þingmaður Alþýðu- bandalags og óháðra, tók þvf næst til máls og sagði að það færi viðskipta- ráðherra ekki vel að skamma fólk 111 ! ili:_JH,'Áll Ái 'ÁJ.- ALÞINGI fyrir að segja ósatt. Það væri eigin- lega eins og að kasta grjóti út úr glerhúsi. „Veruleikinn er sá að hinn 3. júní 1996 sagði ráðherrann ekki satt hér úr þessum stól,“ sagði Svavar og benti m.a. á sem fyrr að ráðherra hefði haft skýrslu Ríldsend- urskoðunar um málefni Lindar hf. undir höndum í sex vikur fyrir þann tíma. Ennfremur hefði ráðherra haft á borðinu hjá sér, sem og allir lands- menn, greinar viðskiptablaðs Morg- unblaðsins eftir Kristinn Briem þar sem flett hefði verið ofan af þessum málum lið fyrir lið. „Það vissu allir um það sem vildu vita hvernig staða þessara mála var,“ sagði Svavar. „Ráðherra reynir að hvítþvo sig“ Fleiri þingmenn tóku til máls í þessari umræðu m.a. Rannveig Guð- mundsdóttir, þingflokki jafnaðar- manna. Sagði hún m.a. að hún hefði ávallt haldið þar til fyrir stuttu að ráðherrar gætu fengið að vita um efni óundirbúinna fyrirspurna hjá forseta Alþingis. Svo væri hins vegar ekki eins og nú hefði komið fram. I sama streng tók Guðný Guðbjörns- dóttir, þingmaður Kvennalistans. Rannveig sakaði ráðheiTa ennfremur um að reyna að hvítþvo sjaifan sig með með því gera ummæli Ástu í út- varpsþættinum að umtalsefni og Svavar Gestsson gagnrýndi síðar í umræðunni þátt Guðna Ágústssonar, sem stýrði fundinum, í því sem Svavar kallaði „framsóknarleikriti" því sem hefði hafist fyrr um morgun- inn með athugasemdum viðskipta- ráðherra. Þessum orðum Svavars mótmælti Guðni og sagði að hann hefði ekki haft hugmynd um það um morguninn þegar hann settist í for- setastól að ráðherra hefði ætlað að fjalla um þessi mál. Valgerður Sverrisdóttir, þingmað- ur Framsóknarflokks, blandaði sér einnig í umræðuna og sagði m.a. að nú hefði Ásta Ragnheiður orðið upp- vís að ósannsögli í fjölmiðlum. Það væri algert grundvallaratriði þessa máls vegna þess að Ásta hefði rekið umfjöllunina um málefni Lindar hf. og Landsbankans þannig að við- skiptaráðherra hefði átt að geta svar- að fyrirspum hennar, fyrir tveimur árum, nákvæmlega. „Nú kemur það í ljós og er staðfest hér af hæstvirtum forseta, að hæstvirtur ráðherra í þessu tilfelli, eins og í öðrum tilfellum ráðhemar, að þeir viti ekkert um hvað er spurt. Þeir vita það ekki fyrr en viðkomandi háttvirtur þingmaður fer í ræðustól. Þess vegna er ekki hægt að gera kröfu um að þeir svari nákvæmlega." Valgerður bætti því síðan við að Ástu hefði verið í lófa lagið að leggja fram skriflega fyrir- spurn um málefni Lindar hf. hafí hún ekki verið sátt við svör ráðherra á sínum tíma. Það hefði Ásta hins veg- ar ekki gert fyrr en löngu síðar. Ásta Ragnheiður svaraði þessu þannig að hún hefði fengið þau svör frá viðskiptaráðherra fyrir tveimur árum að hann vissi ekkert um málið nema það sem hefði komið fram í fjölmiðlum. „Átti ég að fara að spyrja skriflega út í hiuti sem ráðherra upp- lýsir mig um hér í þinginu að hann viti ekki nokkurn skapaðan hlut um, óundirbúinn," spurði Ásta m.a. „Hvenær segja menn ósatt“? Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra tók einnig til máls í þessari umræðu og spurði m.a. hvort ráð- herrar væru að segja ósatt þegar þeir hefðu ekki ákveðnar upplýsingar og gætu ekki staðfest ákveðnar tölur. „Eg held að það sé mjög mikilvægt að það sé rætt hér á meðal þing- manna hvað það er að segja ósatt,“ sagði hann og bætti því við að hann hefði ekki lært það að menn segðu ósatt ef þeir gætu ekki staðfest ákveðna hluti eða vissu ekki ákveðna hluti. Þarna kallaði Ásta Ragnheiður fram í og spurði hvernig því væri háttað þegar menn vissu um ákveðna hluti. „Ef maður vissi um þá, já, þá er það að segja ósatt,“ sagði utanríkis- ráðherra. „En hæstvirtur viðskipta- og iðnaðan'áðheira hafði ekki þessar upplýsingar. Það má vel vera að þær hafi verið á skrifborðinu uppi í ráðu- neyti. Það er okkur ekki nægjanlegt í óundirbúnum fyrirspurnum eða er þingmaðurinn svo vel gefinn að hún læri allt sem hún lesi og viti það ná- kvæmlega. Hún þyrfti bara að lesa það einu sinni. Og ef hún hefur einu sinni lesið það sé það öruggt að hún muni það. Þar með sé hún að segja ósatt ef hún hefur gleymt því,“ sagði utanríkisráðherra. Ásta Ragnheiður kallaði þarna aft- ur fram í ræðu ráðherra og sagði að málefni Lindar hf. hefðu ekki verið neitt „smámál" eins og hún orðaði það. „Smámál, þetta er ekki spurn- ingin um það háttvirtur þingmaður," sagði utanríkisráðherra. „Það er al- varlegt að bera það á aðra að segja ósatt. En ég hef aldrei heyrt þessa skilgreiningu á sannleikanum fyrr,“ sagði hann m.a. Að síðustu kom viðskiptaráðherra aftur í pontu og sagði, að gefnu til- efni, að hann hefði tekið fram í um- ræðunni um málefni Lindar hf. fyrir tveimur árum að hann hefði vitað að útlánatöp Landsbankans væru í sér- stakri skoðun hjá bankaráði Lands- bankans. „Mér var hins vegar ekki heimilt að upplýsa Alþingi um efnis- innihald þeirrar skýrslu sem ég hafði undir höndum vegna þess að hún var rannsóknargagn í því máli sem bankaráð Landsbankans var með til umfjöllunar á þessum tíma,“ sagði hann. Schengen-samstarfíð Ekki íhugað að hætta við aðild Morgur.blaðið/Ásdís ÁSDIS Magnúsdóttir, formaður stúdentaráðs, fylgdist með umræðunum um Lánasjóðinn á Alþingi í gær. Tekist á um málefni Lánasjóðsins á Alþingi MÁLEFNI Lánasjóðs íslenskra námsmanna voru tekin upp í utan- dagskrárumræðu í gær. Málshefj- andi var Svavar Gestsson þingmaður Alþýðubandalagsins. Hann spurði menntamálaráðherra hver rökin væru fyrir þvi að hækka framfærslu- grunn námsmanna einungis um 2,5% og benti á að það væri ekki í sam- ræmi við verðlags- og launaþróun í landinu undanfarin ár. Svavar sagði engin menntapólitísk rök fyrir þess- ari hækkun og benti einnig á að sí- felldar breytingar á viðmiðun náms- lána hefðu mikil óþægingi í för með sér fyrir námsmenn. í svari menntamálaráðherra kom fram að kröfur námsmanna hefðu þýtt hundruð milljóna króna hækkun á útlánum sjóðsins. Fulltrúar ríkis- stjómar hefðu ekki getað fallist á þær kröfur enda vöruðu allir efna- hagsráðgjafar við þenslu í útgjöldum ríkissjóðs. Menntamálaráðherra rakti svo breytingar sem verða á út- hlutunarreglum næsta vetur og sagði ekki hægt að skoða tölur frá Lána- sjóðnum með sama hætti og launa- hækkanir. Þeir sem skoðuðu tölumar með fullri sanngirni gætu ekki sagt að gert væri illa við námsmenn. Þeir þingmenn sem tóku til máls vom flestir fulltrúar stjórnarand- stöðu og tóku í sama streng og Svavar. Ögmundur Jónasson, Al- þýðubandalagi, sagði að verið væri að halda námsmönnum undir nauðþurft- armörkum og að frítekjumörk Lána- sjóðsins væru allt of lág en þau verða 185.000 krónur samkvæmt nýjum út- hlutunarreglum. Eini fulltrúi stjórnarflokkanna sem tók til máls fyrir utan menntamála- ráðherra var Hjálmar Amason þing- maður Framsóknarflokks. Hann sagði í sínu innleggi að honum þætti eðlilegt að námsmenn fylgdu öðmm hópum í þjóðfélaginu í launahækkun- um. Svavar Gestsson gerði athuga- semd við það að fulltrúi Framsóknar- flokks styddi ekki ákvörðun Lána- sjóðsins og spurði menntamálaráð- herra hvort hann væri að skerða kjör með minnihluta á bak við sig. Menntamálaráðherra sagði í loka- svari sínu að Alþingi hefði aldrei komist að þeirri niðurstöðu að Lána- sjóður íslenskra námsmanna ætti að starfa með þeim formerkjum að um laun væri að ræða og ætti að taka mið af launaþróun. Menntamálaráð- herra sagði einnig nauðsynlegt að ræða áfram kröfur námsmanna og að ýmsar athyglisverðar hugmyndir hefðu komið fram í umræðunni síð- ustu viku sem mætti skoða nánar. HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sagði aðspurður í utandag- skrárumræðu á Álþingi í gær að ríkisstjórnin hefði ekki íhugað þann möguleika að ísland hætti við fyrir- ætlanir um aðild að Schengen. Hann sagði ennfremur aðspurður að norræna vegabréfasambandið væri einn af hornsteinum Norður- landasamstarfsins og að fyrirsjáan- legt væri að það hefði liðið undir lok ef ísland og Noregur hefðu staðið utan Schengen-samstarfsins. Auk þess efldi Sphengen-samstarfið póli- tísktengsl íslands við Norðurlöndin og önnur ríki Evrópusambandsins. Hjörleifur Guttormsson, þing- maður Alþýðubandalags var máls- hefjandi umræðunnar og sagði m.a. að mörg atriði er vörðuðu afleiðing- ar af hugsanlegri Schengen-aðild íslands væru óljós og óskýrð af hálfu stjórnvalda. Þar á meðal væri hættan á auknum ólöglegum inn- flutningi fíkniefna til landsins. Hjörleifur lagði fyrir utanríkis- ráðherra fyrirspurnir í tólf liðum, þar sem m.a. var spurt að því hvers vegna það væri ríkisstjórninni keppikefli að taka að sér landamæravörslu fyrir Evrópusam- bandið á ytri landamærum þess. Þessari spurningu svaraði utan- rfkisráðherra á þá leið að aðild að Schengen-samstarfinu fæli í sér réttindi og skyldur eins og aðild að öllum miUiríkjasamningum. „Kostir og gallar aðildar voru metnir af rík- isstjórninni áður en farið var út í viðræður um aðild að Schengen og var það mat hennar að hag Islands væri best borgið innan Schengen- samstarfsins,“ sagði ráðherra Gífurlegur kostnaður Fleiri þingmenn tóku til máls í umræðunum og sagði Kristín Ást- geirsdóttir, þingmaður utan flokka, m.a. að um viðamikið og flókið mál væri að ræða. Ragnar Arnalds, þingmaður Alþýðubandalags og óháðra, sagði ljóst að Schengen- samstarfinu fylgdu gríðarlega um- fangsmiklar og kostnaðarsamar skuldbindingar fyrir Islendinga ef af yrði. „Það er ljóst að Islendingar væru þarna að taka að sér landamæravörslu fyi-ir meginþorra ríkja Evrópusambandsins," sagði hann og bætti því við að Islendingar þyrftu m.a. að leggja í gífurlegan kostnað á Keflavíkurflugvelli við að byggja upp nýja farþegaaðstöðu, sem talið væri að kostaði sex til sjö hundruð milljónir króna, þó einhver af þeim kostnaði væri óhjákvæmi- legur engu að síður. Lagðist hann í ræðu sinni gegn aðild íslands að Schengen. Valgerður Sverrisdóttir, þing- maður Framsóknarflokks, hélt því hins vegar fram að ísland yrði mjög einangrað stæði það fyrir utan Schengen. Ekki síst yrði ísland mjög einangrað frá hinum Norður- löndunum, þar sem það lægi íyrir í dag að þau muni taka þátt í Schengen-samstarfmu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.