Morgunblaðið - 03.06.1998, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
MORGUNB L AÐIÐ
FRÉTTIR
Bjargsig
í Látrabjarg
Ekki óhugs-
andi á
næsta ári
ÓLAFUR Ái-nason, einn tíu landeig-
enda við Látrabjarg og sá eini sem
lagðist gegn því að björgunarsveitin
Blakkur fengi að síga í Látrabjarg til
eggjatöku í vor eins og sagt var frá í
blaðinu á sunnudaginn, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að bjargsig
væri alltaf ábyrgðarhlutur og fara
yrði varlega í það.
Hann vildi ekki gefa upp ná-
kvæma ástæðu fyrir andstöðu sinni
en sagði að menn myndu ræða sam-
an um málið og ekki væri óhugsandi
að gefa grænt ljós á næsta ári.
„Björgunarsveitarmenn standa
ekki við gefín loforð. Okkar sam-
skipti hafa alltaf verið í fullri vin-
semd en ég held að menn verði bara
að fletta upp í huga sínum eftir
ástæðunni,“ sagði Olafur og bætti
við að sér væri ekki kunnugt um að
neinn hinna landeigendanna væri á
móti ákvörðun sinni. „Ég hef frekar
fengið hrós fyiár en hitt,“ sagði Ólaf-
ur í samtali við Morgunblaðið.
Eggjataka í Látrabjargi hefur
verið árlegur viðburður í starfí
björgunarsveitarínnar um áratuga-
skeið og er bæði mikilvæg fjáröflun
fyrir sveitina og góð æfíng í bjarg-
sigi.
-------»»»------
Þorvaldur Gylfason,
prófessor
Vill ekki út-
skýra nánar
PORVALDUR Gylfason, prófessor
við Háskóla Islands, segist ekki vilja
útskýra nánar við hvað hann eigi
með neðangreindum orðum sínum
sem féllu í grein í Morgunblaðinu 24.
maí síðastliðinn, þegar Morgunblað-
ið leitaði eftir því við hann í gær.
í greininni segir: „Einn angi þessa
vanda er hin algera leynd, sem grúf-
ir sums staðar eins og þykkasta þoka
yfir fjárreiðum stjómmálaflokka.
Hvar fá flokkarnir peninga? Hvers
vegna má ekki segja frá því? Þessi
vandi brennur heitast í þeim löndum,
þar sem stjórnmálamenn eru iðnast-
ir við að myija undir sjálfa sig, einka-
vini sína og fámenna hagsmunahópa
með því að afhenda þeim á silfurfati
mikil verðmæti úr fómm almennings
(t.d. aflakvóta) og neita jafnframt að
upplýsa, hverjir fjármagna einka-
neyslu þeirra sjálfra (t.d. afmæl-
isveizlur)."
Morgunblaðið/RAX
PILTARNIR galvösku: Óli Valur Þrastarson, Grímur Aspar Birgisson, Guðgeir Guðmundsson, Albert Örn Sigurðsson, Sigurjón Ólafsson,
Hallur Ingi Pétursson og þjálfunarsljórinn, Mikael R. Ólafsson.
f ÁHÖFN varðskipsins Týs eru
alla jafna um 19 manns en þeg-
ar Týr lét úr höfn í gær voru
fleiri um borð. Sex upplitsdjarf-
ir ungir menn voru með, tilbún-
ir að taka til hendinni og Iæra
eitthvað nýtt.
Síðustu fjögur ár hefur hópur
nemenda fengið starfskynningu
um borð í varðskipi Landhelgis-
gæslunnar. Þeir hafa siglt einn
hefðbundinn túr og fengið að
taka þátt í störfum skipveija. I
ár eru eingöngu piltar í hópn-
um og voru þeir allir að útskrif-
ast úr tíunda bekk í vor. Þeir
mættu tímanlega fyrir brottför
til að fræðast um störf Land-
helgisgæslunnar og hvað þeirra
bíður næstu tvær vikur.
Piltamir neita því að stress
eða kvíði geri vart, við sig, þó
hefur enginn þeirra reynslu af
lengri sjóferðum. Þeir telja smá
sjóveiki heldur ekkert vandamál,
ef hún heiji á þá verði þeir bara
að láta sig hafa það að æla að-
eins í sjóinn. Þeir hlakka til ferð-
arinnar og búast við að fá að
reyna eitt og annað. Einn þeiira
stefnir á nám í Sjómannaskólan-
um í haust svo það lá beint við
fyrir hann að sækjast eftír þessu,
annar er þegar byijaður í vél-
stjómaraámi. Hinir segjast
leggja í þessa ferð til að prófa
eitthvað nýtt og spennandi.
Allir sem em að útskrifast úr
tíunda bekk geta sótt um að
fari við þrif, málningarvinnu
og annað viðhald. Þeir standi
einnig vakt í vélarrúmi, en
Mikael segir það í raun hættu-
legasta staðinn um borð og því
fái þeir bara að fylgjast þar
með. Piltarnir standa líka
vaktir í brú og taka þátt í að
koma skipinu milli áfanga-
staða.
Um borð í varðskipi má
alltaf eiga von á óvæntum
verkefnum og lögð er áhersla
á að piltarnir fái að reyna sem
flest og fá góða mynd af öllu
því sem fer fram um borð.
Lærdómsrík ferð
Mikael segir nemendur yfir-
leitt ánægða með þessa reynslu
og alltaf sé einn og einn sem
vilji starfa við þetta. Einn mess-
inn þeirra, Steinunn Einars-
dóttir, kom t.d. í starfskynn-
ingu ‘95. Steinunn birtist rétt í
þessu og gefur piltunum það
heilræði að ef þeir verði sjó-
veikir skuli þeir alls ekki leggj-
ast í koju heldur finna sér eitt-
hvað að gera og reyna að
dreifa huganum.
Mikael segir engan heraga
ríkja um borð, lögð sé áhersla á
almenna mannasiði og kurteisi.
Hann telur að ef nemendur
fylgist vel með og spyrji um
það sem fyrir augu ber geti
þetta verið hin lærdómsríkasta
ferð.
Galvaskir
í starfskynningu
á varðskipi
Morgunblaðið/RAX
STEINUNN Einarsdóttir, messi, gefur góð ráð.
komast í starfskynningu hjá
Landhelgisgæslunni. Hópurinn
sem kemst að er svo valinn með
aðstoð námsráðgjafa og skóla-
skrifstofa.
Þjálfunarstjórinn Mikael R.
Ólafsson segir störf um borð í
varðskipi fjölbreytt og strák-
arnir fái að prófa ýmislegt.
Þeir standi tvær fjögurra tíma
vaktir á sólarhring. Á vöktun-
um vinni þeir í eldhúsi, á þil-
Yfírlýsing bankaráðs
Landsbanka Islands hf.
HÉR fer á eftir yfirlýsing banka-
ráðs Landsbanka Islands hf. sem
samþykkt var 1. júní 1998:
„I tilefni af fréttum undanfarna
daga um greiðslu Landsbanka ís-
lands hf. á ferðakostnaði fyrir
Sverri Hermannsson fyrrverandi
bankastjóra í ferð til Svíþjóðar í
aprílmánuði sl. og vegna óskar
Sverris sjálfs til bankans um upp-
lýsingar til íjölmiðla af þessu til-
efni tekur bankaráðið fram eftir-
farandi:
Sverrir Hermannsson fór ásamt
maka sínum til Svíþjóðar dagana
4.-13. api-íl sl. Þá gegndi hann enn-
þá starfí bankastjóra. Áður en
ferðin hófst hafði bankinn greitt
ferðakostnað samtals kr. 353.451.
Af þessari fjárhæð voru kr.
197.802 vegna fargjalda, annars
vegar vegna flugferðar þeirra
hjóna fram og til baka milli Kefla-
víkur og Stokkhólms en einnig
vegna ferðar fram og til baka milli
Stokkhólms og Helsinki með „Silja
Line“ (ferjufyrirtæki) dagana
10.-12. apríl. Restin kr. 155.649
voru dagpeningar fyrir Sverri.
Þessi kostnaður var greiddur að
ósk Sverris.
Hinn 27. janúar sl. voru sam-
þykktar í bankaráði Landsbanka
Islands hf. reglur um greiðslu
kostnaðar vegna ferðalaga banka-
stjóra. Þar kemur m.a. fram að
ferð þurfi að vera þáttur í starfi
bankastjóra fyrir bankann til þess
að bankinn greiði ferðakostnað-
inn. Sé heimilt að greiða fargjöld
og gistingu vegna maka „ef tilefni
ferðar er þannig vaxið“, eins og
það er orðað í reglunum. Þá er
kveðið á um að gera skuli sérstakt
ferðauppgjör vegna hverrar ferð-
ar, þar sem komi fram tilefni
hennar og greinargerð um kostn-
aðarliði.
Ríkisendurskoðun vakti athygli
bankaráðsins á ofangreindum
greiðslum vegna ferðar þessarar
með bréfi 18. maí sl. Þá hafði
bankanum ekki borist ferðaupp-
gjör frá bankastjóranum fyrrver-
andi. Tekið skal fram að kostnað-
urinn er eignfærður í bókhaldi
bankans, þar til ferðauppgjör
berst, en er þá gjaldfærður ef allt
er með felldu. í framhaldi af bréfi
Ríkisendurskoðunar var lögmanni
bankaráðsins falið að gera athuga-
semdir við Sverri Hermannsson
vegna málsins og óska skýringa
hans. Það gerði lögmaðurinn með
bréfi dags. 22. maí sl. Svar hefur
ekki enn borist við því bréfí. Með-
an svo stendur, telur bankaráðið
ekki ástæðu til að tjá sig frekar um
þennan ferðakostnað opinberlega."
Ferðakostnaður bankastjóra Landsbanka
Hálfs árs bið eftir
uppgjöri alvanaleg
- segir Sverrir
Hermannsson
SVERRIR Hermannsson segh' al-
vanalegt að utanlandsferðh banka-
stjóra séu ekki gerðar upp fyrr en
allt að hálfu ári eftir að þær séu farn-
ar. Hann segist hafa rætt við yfir-
mann fjárhagsdeildar bankans, Hauk
Þór Haraldsson, strax að lokinni Sví-
þjóðarferð sinni í apríl, um að hann
myndi skila skýrslu um ferðina og
gera upp þegar færi gæfíst, enda
hefði hann þá haft í ýmsu að snúast.
Hann segist nú munu borga sjálfur
alian kostnað vegna ferðarinnar.
Bankaráð Landsbankans gaf á
mánudaginn út yfirlýsingu varðandi
umi-ædda ferð Sverris og var það í til-
efni af fréttum af henni og vegna ósk-
ar Sverris sjálfs. Þar segir að Ríkis-
endurskoðun hafí 18. maí síðastliðinn
vakið athygli bankaráðsins á greiðsl-
um til Sverris vegna ferðarinnar, sam-
tals kr. 353.451, fyrir fargjöldum hans
og maka og dagpeningum íyrir Sverri.
Bankaráðið bendir á að sam-
kvæmt samþykkt þess um greiðslu
kostnaðar vegna ferða bankastjóra
frá 27. janúar síðastliðnum þurfí ferð
að vera þáttur af starfi bankastjór-
ans fyrir bankann til þess að hann
greiði ferðakostnaðinn. Heimilt sé að
greiða fargjöld og gistingu vegna
maka „ef tilefni ferðar er þannig
vaxið“, eins og segir orðrétt í yfírlýs-
ingunni. Einnig segii’ að gera skuli
sérstakt ferðauppgjör vegna hven’ar
ferðar, þar sem fram komi tilefni og
greinargerð um kostnaðarliði.
í framhaldi af bréfi Ríkisendur-
skoðunar var lögmanni bankaráðs-
ins falið að kom á framfæri athuga-
semdum við Sverri vegna málsins og
var það gert í bréfí 22. maí síðastlið-
inn.
„Ég á ekki í neinu togi við þennan
mannskap sem þarna ræður ríkjum
og ég mun gera þetta upp við fyrsta
tækifæri og engin eftirkaup hafa við
þá,“ sagði Sverrir í samtali við
Morgunblaðið í gær.