Morgunblaðið - 03.06.1998, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
, TÓNLISTIN var
lengi á leiðinni til ís-
lands svo að telja verð-
ur í öldum. Fimm
hundruð ára gersemar
tónlistar voru með öllu
ókunnar á íslandi til
skamms tíma en eru
vaktar til lífs á síðustu
tímum. Islendingar
vissu ekki að klassísk
tónlist væri til fyrr en á
síðustu áratugum. Tón-
skáld eins og Mozart
og Beethoven að ekki
' sé talað um Bach,
Handel, Telemann og
Vivaldi, hvað þá aðrir
minni spámenn, voru
með öllu óþekktar stærðir í huga al-
mennings og eru jafnvel enn, sakir
sinnuleysis um almenna tónlistar:
menntun í grunnskólum landsins. I
ÐataCard
Plastkortaprentarar fyrir
félaga- og viðskiptakort.
Gæðaprentun í lit
Otto B. Arnar ehf.
Ármúla 29, Reykjavík,
sími 588 4699, fax 588 4696
íslensku skólamála-
stefnunni, ef hún er til,
hefur gleymst hve
áhrifamikill uppalandi
góð tónlist er, mótar,
fágar og agar iðkand-
ann um leið og hún er
eins konar andóf við
hina vélrænu veröld,
sem firrir og ógnar vit-
rænu lífi og kæfir við-
kvæmar tilfinningar.
En tónlistin hefur
numið land hér á hjara
heims svo að um munar
og eftir er tekið. Fram-
farirnar eru stórstígar
í mörgum greinum tón-
listar, bæði í söng og
hljóðfæraleik. Má þakka það starfi
Sinfóníuhljómsveitar Islands, góðu
sönguppeldi í nokkrum skólum
landsins, fáeinum úrvalskónim, en
ekki síst starfsemi tónlistarskól-
anna, sem hefur brotið blað í tón-
listariðkun Islendinga. Aheyrendur
í samkomusal Vídalínskirkju í
Garðabæ urðu vitni að merkum
menningaiviðburði sl. föstudags-
kvöld, þegar söngdeild Tónlistar-
skóla Garðabæjar flutti hina vin-
sælu óperu Mozarts „Brúðkaup
Figaros" í heilu lagi undir stjóm
Snæbjargar Snæbjörnsdóttur yfir-
kennara við þvílíka hrifningu gesta
að mörg atvinnuleikhús hefðu verið
sæmd af slíkum undirtektum.
Söngkennsla á
heimsmælikvarða
Snæbjörg Snæbjarnardóttir hef-
ur unnið íslenskri söngmenningu
svo mikið gagn með kennslu sinni
að enginn getur komist hjá að við-
urkenna árangur hennar, sem lýsir
*
Aheyrendur urðu vitni
að menningarviðburði,
segir Ingólfur Guð-
brandsson, þegar þeir
hlustuðu á „Brúðkaup
Figaros“ í flutningi
söngdeildar Tónlistar-
skóla Garðabæjar.
sér best í frammistöðu nemenda
hennar heima og erlendis, en þeir
stefna hver af öðrum inn á svið
þekktra óperuhúsa Evrópu. Hér
sannast hið algilda, að „varðar
mest... að undirstaða rétt sé fund-
in“. Raddbeiting nemenda Snæ-
bjargar bregst varla, þegar hún fær
góðan, óspilltan efnivið. Röddin er
lögð vel frammí og í efstu hæðir
hljómsins. Fyrir bragðið berst
röddin vel og áreynslulaust. Þetta
einkenndi ílutninginn á Brúðkaupi
Figarós hjá nærri öllum flytjendum
og gerði hann óvenju samstæðan.
Eg held að fáir hafi gert sér grein
fyrir, hve mikið var færst í fang, og
þeim mun einstakari var árangur-
inn. Sannast hér sem jafnan, hvers
virði góð tilsögn er og hvers virði er
skóla að hafa frábærum kennurum
á að skipa.
Tónlistarskólinn í Garðabæ er
framsækin stofnun, sem getur verið
stolt af framtaki sínu. Þar virðist
ríkja samtök og góður vinnuandi,
enda tóku nokkrir af hljóðfæra-
kennurum skólans þátt í flutningn-
um með nemendunum og virtust
hafa hina bestu skemmtun af. Kom-
in er á legg ágæt hljómsveit nem-
enda við skólann, sem hefur getið
sér gott orð. Þá virðist þess skammt
að biða að skólinn geti sett upp óp-
eru með samleik hljómsveitar, sem
auðvitað mundi kóróna starf sem
þetta og byggja upp dýrmæta
reynslu nemenda í söng og samleik.
Að þessu sinni var óperan flutt við
öruggan píanóleik Kolbnjnar 0.
Óskarsdóttur og Valgerðar Andrés-
dóttur.
Óperan var flutt á ítölsku, og virt-
ust hinir ungu flytjendur ekkert víla
fyrir sér að koma öllu til skila í tón-
Æ* WARNERIS
Flott
undirföt
■
lí ; OÍ//
Kringlunni s. 553 7355 VS^~/
um, leik og söng, en leikstjóri var
Hrafnhildur Hagalín. Leikurinn var
óþvingaður og öryggi flytjenda
ótrúlegt, miðað við slíka frumraun.
Agætir búningar gerðu flutninginn
trúverðugan, þótt leiktjöld vantaði.
Öryggið, góður söngur og einlæg
söng- og leikgleði gerðu sýninguna
svo skemmtilega að allir gleymdu
tímanum. Þetta er hinn sanni gald-
ur - tímalaus upplifun þess sem
gerist á sviðinu.
Auðvitað eru söngnemarnir mis-
langt á veg komnir, en nær undan-
tekningarlaust allir stóðu sig vel og
fóru langt framúr væntingum.
Frammistaða Benedikts Elfars í
hlutverki Figarós og Margi'étar As-
geirsdóttur sem Súsönnu vekja
glæstar vonir um hæfileika, sem
með frekara námi og reynslu geta
skilað þeim langt á þyrnum stráðri
braut listarinnar. Margi'ét var sem
fædd í hlutverk sitt, er hún skilaði
af miklu öryggi og einstæðum
þokka. Rödd hennar er tandurhrein
og fagurhljómandi, svo að spá má
henni frama í framtíðinni. Af öðrum
flytjendum vakti athygli mikil og
þétt rödd Jóhönnu Héðinsdóttur í
hlutverki Rósínu greifafrúar, jafn-
ung og hún er að árum, en einnig
prýðilegur flutningur og myndug-
leiki Gunnars Kristmundssonar í
hlutverki Almaviva greifa.
Snæbjörg sat við stjórnvölinn og
stýrði öllum flutningnum með
bravúr, eins og hún hefði aldrei gert
annað. Var sannarlega kominn tími
til að Snæbjörg fengi að sanna hvað
í henni býr. Stór óperuhús úti í
heimi gætu verið stolt af henni sem
kennara og æfingastjóra.
Það var glaður hópur þakklátra
áheyi'enda, sem gekk útí vornótt-
ina að lokinni sýningu í samkomu-
sal Vídalíns. Ástæða er til að þakka
Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir
framtak sitt og sýna það í verki
með því að fjölmenna á sýningarn-
ar tvær, sem eftir eru í kvöld og á
föstudag klukkan átta bæði kvöld-
in. A meðan er listahátíð í Garða-
bæ.
Höfundur er forstjóri.
Parqcolor býður uppá nýja
vídd í klæðningu á stigum
NÝTT Á íslandi
ABET GROUP
HPL PARKET VALHNOTA
HPL PARKF.T BF.IKl
HPL PARKET EIK
HPL TRÖPPUNEF VALHNOTA
HPL TRÖPPUNEF BEIKI
HPL TRÖPPUNEF EIK
1200X190X6,5mm
1200X190X6,5mm
1200X190X6,5mm
400X3650X6,5mm
400X3650X6,5mm
400X3650X6,5mm
BYGGINGAVÖRUR
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 - SÍMl 553 8640 - 568 6100
____________________FRÉTTIR
Listahátíð í Garðabæ
Ingólfur
Guðbrandsson
A U G
LÝ S I IM G A R
FÉLAGSSTARF
Sjálfstæðisflokkurinn
í Hafnarfirði
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði er boðaðtil áríðandi
fundar í Sjálfstæðishúsinu í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.00 stund-
víslega.
Fundarefni: Meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins í bæjarstjórn.
Stjórnin.
FUNOIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Aðalfundur Látravíkur ehf. verður haldinn í
Reykjavík 16. júní að Grundarlandi 12 kl. 16.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
TIL SÖLU
Hve lengi endist þögnin?
Þögn alþingismanna um „óhefðbundin" við-
skipti tveggja ráðherra, (P.P. og H.Á.) við fíkni-
efnasala, sem þeir upplýstu um á Alþingi 17.2.
1998. Skýrsla um samfélag, sem lýsir stjórn-
arfari, fæst í Leshúsi, Reykjavík.
Plötusög
Til sölu plötusög, Striebig veggsög.
Er í topplagi. Mjög nákvæm. Verð 150 þús.
Upplýsingar í síma 587 5609.
ÞJÓIMUSTA
Langar þig að missa allt af,
5—15 kg á einum mánuði?
eða langar þig að hjálpa öðru fólki að ná
árangri?
Hringdu og kynntu þér tækifærið.
Hulda, sími 896 8533.
HÚSINIÆOI ÓSKAST
Til leigu
Laugarneshverfi-Reykjavík
160 fm efri hæð til leigu á góðum stað við Gull-
teig, góð bílastæði. Byggt sem íbúðarhúsnæði,
en hentar vel sem atvinnuhúsnæði t.d. fyrir
lækna, nuddstofu, fótaaðgerðastofu, hársnyrti-
stofu eða sem skrifstofuhúsnæði. Einnig er
til leigu í sama húsi kjallarahúsnæði meðfullri
lofthæð, með góðri aðkeyrslu (bílskúrshurð),
um 140 fm. Apótek á jarðhæð.
Upplýsingar í símum 481 1116 og 481 2016.
3ja—4ra herbergja íbúðir
óskast til leigu
Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinudu
þjóðanna auglýsir eftir íbúðarhúsnæði fyrir
nemendurskólans. Skólinn starfar í sex
mánuði á ári og verðurfyrsti hópurinn frá miðj-
um ágúst 1998 fram í miðjan febrúar 1999.
Nemendur eru frá þróunarlöndunum, þeir eru
flestir á aldrinum 30-40 ára, hafa hlotið háskól-
amenntun og gegna ábyrgðarstöðum í heima-
löndum sínum.
Þörf er á tveimur eða þremur 3ja-4ra herb.
íbúðum, með húsgögnum og þvottaaðstöðu.
íbúðirnar þurfa að liggja vel við almennings-
samgöngum, eða vera nokkuð miðsvæðis.
Nánari upplýsingar veitirTumi Tómasson á
Hafrannsóknarstofnun í síma 552 0240.
HÚSIMÆOI í BOOI
Seltjarnarnes
Til leigu fra júlí/ágúst 200 fm endaraðhús með
eða án húsgagna.
Innbyggður bílskúr, 4—5 svefnherb., arinn í
stofu, sólskáli o.fl.
Upplýsingar í síma 562 2848 og 898 2848.