Morgunblaðið - 03.06.1998, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 63
MINNINGAR
SIGURÐUR Þ.
GUÐJÓNSSON
+ Sigurður Þ.
Guðjónsson var
fæddur í Voðmúla-
staða-Austurhjá-
leigu í A-Landeyj-
um 11. júní 1927.
Hann lést í Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 8.
maí síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Fossvogskirkju
26. maí.
I fjölmennu sam-
kvæmi fyrir stuttu hitti
ég mann, gamlan leik-
félaga frá bernskuárum. Það var
óvænt og ánægjulegt og ýmislegt
rifjaðist upp í okkar spjalli, þar kom
að hann sagði: „Hvar er hann
frændi þinn, sem smíðaði rútuna,
mig hefur alltaf langað til að hitta
hann? Ég man hvað við strákarnir
öfunduðum þig af bílnum enda var
rútan falleg.“ Svo bætti hann við:
„Ég hef aldrei getað gleymt bílnum
og gæti vel hugsað mér að fara þess
á leit við hann að smíða slíkan grip
fyrir mig.“
Nú er þessi frændi minn, vinur,
velunnari og völundur látinn.
Bernskusviðið Selfoss og rútan full-
komin smíð, falleg úr tré og máluð í
litum fyrirmyndanna, eftirlíking
fólksflutningabíla þess tíma og bíl-
stjórinn 5-7 ára snáði í hópi „bíl-
stjóra" á svipuðu reki. Nokkru síðar
fékk ég aðra gjöf frá Sigga. Vörubíl
fagurlega gerðan úr jámi með
mjúkum línum, gluggum og hurð-
um, ljósum og sturtu og renndum
hjólum. Minn gamli leikfélagi
minntist ekkert á þennan gi'ip, trú-
lega vegna þess hve þungur bílinn
var í drætti og því ekki allra eins og
rútan. Lítil mynd frá liðnum tíma.
Þetta var á árunum í kringum
1950 og Sigurður föðurbróðir minn
bjó hjá foreldrum mínum á Selfossi.
Astæða dvalar hans var að nema
járnsmíði við Iðnskólann á staðnum.
Sigurður lauk meistaraprófi í járn-
smíði og vann sitt verk sem slíkur
fyrst á Selfossi, en frá 1954 til
starfsloka í Stálsmiðjunni í Reykja-
vík. Ég hygg að hann hafi ekki vant-
að í vinnu né mætt of seint að heitið
geti starfsævina alla.
Þegar afi minn og amma brugðu
búi i sveitinni fluttu þau til Reykja-
víkur og þar kom að Austurhjá-
leigusystkini, þau þeirra sem enn
voru í fóðurgarði, keyptu lítið hús
við Grettisgötuna. Það var fjarlægt
og byggð höll sem varð ættarsetur
um árabil. Guðjón afi minn andaðist
1955. Við bygginguna á Grettisgöt-
unni lögðu margir til verka, en víst
má telja að hlutur Sigurðar hafi
Skila-
frestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útfór er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: I sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-,
föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dög-
um fyrir birtingardag. Berist
grein eftir að skilafrestur er
útrunninn eða eftir að útför
hefur farið fram, er ekki unnt
að lofa ákveðnum birtingar-
degi. Þar sem pláss er
takmarkað getur þurft að
fresta birtingu greina, enda
þótt þær birtist innan hins
tiltekna skilafrests.
verið stór, og gilti einu
hver verkþátturinn
var: Tré, járn, málun,
lagnir, steypa, flísar og
síðar viðhald. Sigurður
var völundur til allra
verka og gekk að þeim
syngjandi. Það var úr
þessum ranni ömmu
minnar Jónu og barna
hennar, sem hjá henni
bjuggu sem ég fékk
fyrstu píanótímana í
fermingargjöf. Þau
voru Leifur, Jóhanna,
Sigurður, sem nú er
kvaddur, Þórður og
Guðni. Ég bjó á Grettisgötunni
næstu vetur við allsnægtir og elsku
allra. Þetta var einstök og samhent
fjölskylda. Ég bjó í íbúðinni hjá
Sigga bróður en það var hann kall-
aður af nákomnum. Af þessu mætti
segja lengri sögu en verður ekki
gert að sinni.
Heima fyrir var vinnusemin og
alúðin alstaðar umvefjandi. Það var
til eftirbreytni hvernig Sigurður
bjó, og raunar systkinin öll hvert í
sinni íbúð. Með Sigurð í huga koma
fram myndir þar sem hann svífur
um syngjandi með þvegilinn eða sit-
ur í bólstruðum hægindastólum
prjónandi sokka fyrir fætur á köld-
um vinnustað. Hafragrauturinn á
morgnana og meira að segja jóla-
kakan hans Sigga var þéttari í sárið
en hjá öðrum. Það var hollt ungum
manni og þakkarvert að fá notið
stunda við slíkar aðstæður stóran
hluta táningsáranna.
Sigurður kvæntist ekki og átti
ekki afkomendur, en fylgdist af
áhuga með niðjum ættarinnar í
þeirra leik og störfum. Hann gladd-
ist mjög yfir velferð frændfólksins
og sagði stundum svo eftir var tek-
ið: „Ja,... börnin mín,“ eða „Guð
blessi ykkur,“ með sínum sérstaka
hætti.
Sigurður var í hópi þrettán systk-
ina og ólst upp við hefðbundin
sveitastörf þess tíma í glaðværð og
svo söngelskum hópi að talað var
um „sönghjáleiguna" í sveitinni.
Veganestið entist honum ævilangt
og við samferðafólkið fengum notið
góðs af í ríkum mæli.
Blessuð sé minning hans,
Jónas Ingimundarson.
GUÐMUNDUR
JÓNASSON
+ Guðmundur
Jónasson fædd-
ist í Vestari-Garðs-
auka, Hvolhreppi í
Rangárvallasýslu,
3. maí 1920. Hann
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlið
23. maí síðastliðinn
og fór útfór hans
fram frá Mosfelli,
Mosfellssveit, 30.
Ég kynntist Guð-
mundi Jónassyni fyrst
hjá Sameinuðum verktökum þegar
ég kom heim frá Bandaríkjunum í
september 1951. Var það í raun
upphaf að farsælu samstarfi okkar
sem entist í 37 ár eða þar til Guð-
mundur gerðist húsvörður í Iðnað-
armannahúsinu í Reykjavík árið
1988. Guðmundur vann hjá Sa-
meinuðum verktökum til júlí 1957
og byrjaði þá hjá Islenskum aðal-
verktökum. A þessum árum vann
hann við flest þau stórverk sem
íyrirtækið starfaði að og má þar
nefna m.a. lagningu Reykjanes-
brautarinnar, sem var unnin á ár-
unum 1962-1963 og 1965. Fljótt
varð ég var við að þar fór ekki að-
eins góður verkmaður heldur
einnig góður og traustur drengur.
Mér er það sérstaklega minnis-
stætt þegar við vorum eitt sinn á
leið til Radarstöðvarinnar á
Langanesi með 30 smiði, hinn 5.
september 1954 og lentum í blind-
byl og ófærð nálægt Grímsstöðum
á Fjöllum. Þetta var að nóttu til og
gengum við Guðmundur saman á
undan bílunum til að forða óhappi.
Lýsti sú ferð vel ósérhlífni Guð-
mundar og traustleika. Á þessum
árum öðlaðist Guðmundur víðtæka
verkreynslu sem gerði hann að
fjölhæfum fagmanni. Guðmundur
var af kynslóð þeirra iðnaðar-
manna sem voru í senn bæði
tæknimenn og handverksmenn.
Benti hann tæknimönnum oft góð-
látlega á hluti sem betur mátti út-
færa í þeim verkum sem hann kom
að.
Það varð mér því mikill fengur
þegar Guðmundur kom með mér
t
Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
DÓRU SÆMUNDSDÓTTUR,
Botnahlíð 33,
Seyðisfirði,
fer fram frá Áskirkju í Reykjavík föstudaginn
5. júní kl. 15.00.
Þorvaldur Jóhannsson,
Sigurbjörg Baldvinsdóttir,
Hafdís Baldvinsdóttir,
Þorsteinn Þórir Baldvinsson,
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir,
Inga Þorvaldsdóttir,
Jóhann Þorvaldsson,
Olav Jacobsen,
Gunnar K. Gunnlaugsson,
Björn Sigfinnsson,
Þorsteinn Arason,
Hrafnhildur Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SNORRI DANÍEL HALLDÓRSSON,
verður jarðsunginn á morgun, fimmtudaginn
4. júní. Athöfnin fer fram í Langholtskirkju og
hefst kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hins
látna er bent á líknarstofnanir.
Gunnar Snorrason, Jóna Valdimarsdóttir,
Snorri Örn Snorrason, Camilla Söderberg,
Sigurður Ingvi Snorrason, Anna Guðný Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
yfir til Breiðholts hf.
og tók þátt í byggingu
fyrsta áfanga félags-
legra íbúða, sem fólst í
að byggðar voru 312
íbúðir á 17 mánuðum,
sem líklega er hraða-
met á Islandi. Nýttust
þar vel þeir eiginleik-
ar Guðmundar að
hann var jafnvígur á
grófvinnu eins og upp-
slátt og fínni verk eins
og innréttingavinnu,
en það er ekki öllum
til lista lagt.
Guðmundur hafði áhuga á nýj-
ungum í byggingaraðferðum og
varð hann sérfræðingur í svokall-
aðri „Lift-Slab“-byggingaraðferð,
ásamt Gunnólfi Sigurjónssyni
tækjastjóra en sú aðferð er
bandarísk. Vann hann við flestar
þær byggingar sem reistar voru
hérlendis með þeirri aðferð. í apr-
íl 1973 kom Guðmundur með mér
til Aðalbrautar hf. og vann að
flestum stórverkefnum sem fyrir-
tækið tók að sér, m.a. upphafs-
verki fyrirtækisins sem var lagn-
ing Vesturlandsvegar frá Höfða-
bakka að Úlfarsá. Fjöldi mann-
virkja var reistur á vegum Aðal-
brautar undir traustri verkstjórn
Guðmundar.
Guðmundur Jónasson var
óvenju verklaginn smiður og at-
orkusamur, skipulagður og hafði
góðan verkstjórnarhæfileika. Er
það eflaust skýring á okkar langa
samstarfi. Hann gekk ekki til
verka með látum, heldur af útsjón-
arsemi og vandvirkni og sannaði
dagsverkið að það var farsælla
verklag.
Ég votta Maríu og sonum henn-
ar, sem Guðmundur gekk í föður
stað, þeim Rúnari, Hermanni og
Ólafi, mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Einnig börnum Guð-
mundar, Jóhanni Helga og Kol-
brúnu Þórunni, svo og öðrum að-
standendum. Guðmundi
Jónassyni þakka ég langt og far-
sælt samstarf. Blessuð sé minning
hans.
Guðmundur Einarsson,
verkfræðingur.
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10-12. Starf fyrir
10-12 ára kl. 17.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
aðra: Opið hús í dag kl. 13.30-17.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18.
Neskirkja. Bænamessa kl. 18.05.
Sr. Halldór Reynisson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í síma
567 0110. Léttur kvöldverður að
bænastund lokinni.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Orgelleikur, fyrirbæn-
ir og altarisganga. Léttur hádegis-
verður á eftir. Opið hús kl. 20-22
æskulýðsfél. 13-15 ára.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 10 mömmumorgunn. Kl. 12.10
kyrrðarstund í hádegi, orgelleikur
frá kl. 12. Kl. 15.30 fermingartím-
ar, barnaskólinn. Kl. 16.30 ferm-
ingartímar, Hamarsskóli. Kl. 20
KFUM & K húsið opið unglingum.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Kl.
18.30 er fjölskyldusamvera sem
hefst með léttu borðhaldi á vægu
verði. Kl. 19.30 er fræðsla og bæn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Ellimálaráð Reykjavíkurprófasts-
dæma. Guðsþjónusta í Seljakirkju í
dag, miðvikudaginn 3. júní, kl. 14.
Gerðubergskórinn syngur undir
stjórn Kára Friðrikssonar. Prestur
sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Kaffi-
veitingar á eftir. Allir velkomnir.
+
Þökkum hlýhug og hluttekingu við fráfall okkar
ástkæra
RÍKARÐS SUMARLIÐASONAR
fyrrv. yfirdeildarstjóra
hjá Pósti og sima,
Ástúni 8,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Lan-
dakotsspítala.
Sigrún Einarsdóttir,
Tómas Ríkarðsson, Steinunn Arnórsdóttir,
Ágústa Ríkarðsdóttir, Gunnlaugur Nielsen,
Ríkarður Ríkarðsson, Friðbjörg Sif Grétarsdóttir,
Einar Már Ríkarðsson
og barnabörn hins látna.
+
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
RAGNARS GÍSLASONAR,
Lindargötu 26b,
Siglufirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Siglufjarðar.
María Guðmundsdóttir,
Halldóra Ragnarsdóttir,
María Lillý Ragnarsdóttir,
Guðmundur Ragnarsson,
Kristín Ragnarsdóttir,
Ragnar Ragnarsson,
Frímann Gústafsson,
Einar Júlíusson,
Haukur Jónsson,
Herdís Sæmundsdóttir,
Jón Ásgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.