Morgunblaðið - 03.06.1998, Síða 66

Morgunblaðið - 03.06.1998, Síða 66
66 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens MEFUR. þðMOKKORN TÍMAH HNEfSfSAP/MBÐ FULLAN '—\ - /VIUNNINN ? Tommi og Jenni Smáfólk LOOK WHAT I 60T1THAT WEIRD KID JU5T 50LD METME BATTHATUIAS U5ED BY ROY HOBB5Í BOY, LOOK AT THI5 BAT! THI5 15 A REAL COUECTOR'S ITEM! -ZC ^WHO Y1 DON T WA5 ROY/ HAVE THE H0B85? SLI6HTE5T Sjáðu hvað ég fékk! Þessi Hver var Roy Hobbs? skrýtna stelpa seldi mér kylf- Hver var Roy Hobbs? Ertu að una sem Roy Hobbs notaði! grínast? Vá, sjáðu þessa Hver var Roy Hobbs? kylfu! Þetta er ekta Ég hef ekki minnstu safngripur! hugmynd um það! BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Einstök börn Styrktarnefnd Kíwanisklúbbsins Korpu: FJÁRÖFLUNARÁTAK Kíwanis- klúbbsins Korpu til stuðnings börn- um með sjaldgæfa alvarlega sjúk- dóma. Kiwanishreyfínguna á Islandi þarf vart að kynna. En eins og flestir vita er hún þjónustuhreyfing sem hefur það að meginmarkmiði að styðja við bakið á þeim sem minna mega sín. Kiwanisklúbburinn Korpa í Reykjavík er ungur klúbbur þar sem félagar eru 14 afar duglegar og virk- ar konum. Fyrir örfáum mánuðum höfðum við Koipukonur spumh- af félagi sem nefnist Einstök böm. Félagið var stofnað snemma á sl. ári og í dag era innan félagsins 26 langsjúk böm og eru þau flest á aldrinum 1-16 ára. Þessi böm eru einstök hvað það varð- ar að þau eiga í raun ekki heima inni í öðram sjúklingafélögum sem fyrir eru vegna þess hve margvíslegum og í mörgum tilfellum afar alvarlegum og sjaldgæfum sjúkdómum þau era haldin. Dæmi eru um að í kringum einn lítinn einstakling séu allt að 13 sérfræðingar. Mörg þessara bama hafa verið í rannsóknum og aðgerðum hér heima og erlendis jafnvel allt frá fæðingu og þannig vh-ðist fí-amtíðin bíða þehTa. Foreldrar þessara bama hefa sjálfír reynt efth- megni að afla sér vitneskju um svipuð sjúkdómstil- felli erlendis og reynt að koma sér í sambönd við sérfræðinga og foreldra- félög starfandi erlendis í gegnum Internetið. Mikil þörf er fyrir fjár- magn til rannsókna á þeim sjaldgæfu sjúkdómum sem sum bamanna eru haldin. Erfitt er að gera sér í hugarlund hvílíkt erfiði og álag þetta er bæði fyrir börnin - þessar hetjur - for- eldra þeirra og systkini. Systkini þessara sjúku einstaklinga fara enn- fremur mikils á mis í sínum upp- vexti. Mikil þörf er fyrir sálfræðiað- stoð þessum fjölskyldum til handa. Foreldrar þurfa að dvelja með þess- um sjúku börnum langdvölum fjarri heimilum og öðrum börnum sínum og verða fyrir tekjumissi sem óhjá- kvæmilega fylgir slíku. Nokkrar af þessum fjölskyldum búa úti á landi og eiga ekki auðvelt um vik þegar dvelja þarf langdvölum næiTÍ sjúkrahúsum hér syðra. Ennfremur þurfa sum barnanna að fara í að- gerðir erlendis - jafnvel oft á ári. Að vísu búum við Islendingar í velferð- ai'þjóðfélagi þar sem samtrygging ríkir en flestir sem til þekkja vita hversu skammt hún nær þegar um alvarlega og langvarandi sjúkdóma er að ræða. Eftir að hafa beðið um fund með formanni Einstakra barna, Önnu Maríu Þorkelsdóttur, ákváðum við Korpukonur að gera að átaksverk- efni okkar fjáröflun til handa Ein- stökum börnum og fá ykkur - lands- menn góðir - til liðs með okkur. Átakið hefst nú um helgina með því að DV mun laugardaginn 30. mai fjalla um félagið Einstök börn - bar- áttu litlu hetjanna - og hafa viðtal við formann félagsins. Utvarpsstöðin Matthildur FM 88,5 mun leggja sitt af mörkum í þessari fjáröflunarher- ferð með okkur dagana 30. maí til 8. júní og mun verá með umfjöllun um Einstök börn ásamt ýmsu sem þeim viðkemur. Landssíminn og Tal hf. hafa lánað okkur Korpukonum síma- línur, tæki og tól til afnota vegna þessa átaksverkefnis. Ennfremur gefa Auglýsingastofan Hausverk og Prentsmiðjan Prentmet okkur gerð auglýsingar sem dreift hefur verið. Hafa allh- þessir aðilar tekið því stór- kostlega vel að gera þetta söfnunará- tak með okkur þannig úr garði að fjárhagslegur árangur verði sem mestur fyrir Einstök börn og fjöl- skyldur þeirra. Við Korpukonur skorum á ykkur landsmenn góðfr að leggja þessu brýna fjáj’öflunarátaki okkar lið. Stofnaður hefur vci'ið reikningur i Búnaðarbanka íslands, 324-13-19000 Einstök börn/Kiwanisklúbbur Korpa kt. 460396-2479. Hægt er að greiða með gíroseðli í öilum bönkum og sparisjóðum. Ennfremur bendum við á símanúmer fjársöfnunarinnar sem er 567-1900. SIGRÚN HÖSKULDSDÓTTIR. Fyrir hönd styrktarnefndai- Kíwanisklúbbsins KORPU, Orlagasaga auðnuley singj a Frá Ólafí Lárussyni: ÁGÆTI Hannes Hólmsteinn. Oft má hafa gaman af sendingum þínum í Morgunblaðinu. Þær rata þó ekki alveg réttan veg á stundum. Það stakk mig orðalag þitt um Napóleon Bónaparti, sem þú kallar söguhetju Halldórs Laxness. Halldór gerði þessa sögu og fleira er hann snuddaði í heiðinni forðum og Bjartur karlinn í Sumarhúsum (sem sumir vilja meina að sé Bjarni bóndi í Veturhúsum) varð til. Þú segir orðrétt: Bóni „sem var geðveikur umkomuleysingi austur á fjörðum". Þú átt sjálfsagt við auðnuleysingi, en ekki umkomuleysingi, og að nefna menn geðveika í endurfrásögn er einfaldlega ekki við hæfi. Örlagasaga Finnboga Finnssonar, f. 11.09. 1860, í Skoruvík á Langa- nesi, d. 3.12. 1932, er flóknari og margslungnari en svo, að hægt sé að afgreiða með þvílíku orðfæri: „Hann var geðveikur." Annars læt ég Bóna um að svara fyrir sig að lokum, en hér segir hann álit sitt á ungu kynslóðinni: „Þefr telja sér nú flest fært,_ sem vita ekki hvað þeir era að fara. Eg er ekki van- ur að setja út á sköpunarverk drott- ins. En það var áreiðanlega yfirsjón af honum að setja ekki ofurlítinn hala á hann Grím í Gunnólfsvík.“ Eftir stutta þögn bætti hann við: „Hann hefði þá átt hægara með að slá dálítið meira um sig en hann gerir.“ Foreldrar Finnboga voru Finnur Gunnarsson (Barna-Finnur) og Kristín Guðmundsdóttir (dóttir Rifs- Jóku). Saga Finnboga, eða Bóna prins eins og hann var nefndur, er örlaga- saga Islendings úr fortíðinni, ömur- leg og döpur í senn. Lesa má um þennan þátt sögunnar í Sagnaþætti Benjamíns Sigvaldasonar, 1. bindi, útg. af Iðunni 1950. Segir þar af fólki og örlögum þess í N-Þingeyjarsýslu. ÓLAFUR LÁRUSSON, Grandavegi 1, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.