Morgunblaðið - 03.06.1998, Side 68
68 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ1998
MORGUNBLAÐIÐ
/
1
Hvítlauksbrauð
og spjót á grillið
Matur og matgerð
I þessum þætti gefur Kristín
Gestsdóttir okkur uppskrift að því sem
kallað er kebab (spjót) um allan heim
og með því hvítlauksbrauð sem
er geysivinsælt á heimili hennar.
EBAB er upprunalega
tyrkneskur réttur sem
barst fljótlega til
Balkanskagans og Mið-Austur-
landa. Nafnið er að sjálfsögðu
tyrkneskt, „sis kebab“, sis þýðir
kjötprjónn eða kjötteinn en kebab
þýðir steikt eða glóðað kjöt. Við
. þýðum þetta „á spjóti“ en það get-
ur verið fleira en kjöt á spjótinu,
t.d. fískur, grænmeti og ávextir.
Líklega er hvergi meira víðsýni
til allra átta í nágrenni höfuðborg-
arinnar en þar sem ég á heima.
Útsýnið svíkur engan með konung
jöklanna, Snæfellsjökul, í vestri.
Út um stofugluggann fylgjumst
við með skipakomum til Hafnar-
fjarðar. Það var þó ekki skip sem
kom siglandi framhjá eitt góðviðr-
iskvöld í vor heldur flotkvíin
margfræga sem varð fyrir ýmsum
skakkaföllum á leiðinni heim. En
það er fleira en flotkví sem kemur
yfir hafið, farfuglarnir hafa skilað
sér flestir en þeir eins og flotkvíin
verða líka fyrir skakkaföllum á
leið sinni til Islands. Hér skammt
fyrir vestan Garðaholt hvílir
margæsin sig eftir flugið frá
Skotlandi og fítar sig fyrir flug til
Kanada, sem hún er um það bil að
að leggja upp í. Þegar hún kom
hingað fyrr í vor var þetta hin
nettasta smágæs með línurnar í
lagi, en þegar við hjónin skrupp-
um niður að eiðinu út í Hliðsnes
um helgina til að óska henni góðr-
ar ferðar yfír hafið til Kanada ætl-
uðum við ekki að þekkja hana,
hún réri í spikinu, gjörbreytt af
hinum kjammikla marhálmi sem
hún hafði hakkað í sig og var orðin
sannkölluð fítubolla.
Fyrri uppskriftin í dag er úr
bók minni „Grillað á góðum degi“
sem kom út árið 1993.
Svínakjöt og smá-
pylsur á spjóti
Opið eða lokað grill. Grilltími
12-15 mínútur. Handa 5.
500 g meyrt svínakjöt í
_____________gúllasbitum_______________
__________30 kokteilpylsur_____________
_______30 meðalstórir sveppir__________
__________2 grænar papríkur____________
__________1 2 * * 5 6 7/2 dl matarolía_
__________2 msk sitrónusafi____________
2 tsk soja- eða
__________worcestershiresósa___________
1 hvítlauksgeiri eða !4 tsk
hvítlauksduft
1/2 tsk salt
10 grillspjót
1. Setjið matarolíu, sítrónusafa
og soja- eða worcestershiresósu í
skál. Merjið hvítlauksgeirann,
setjið hann út í og þeytið saman.
2. Setjið kjötbitana í löginn og
þekið þá alla vel. Látið bíða á köld-
um stað í 3-4 klst. eða við eldhús-
hita í 1 klst.
3. Takið bitana úr Ieginum og
þerrið lauslega með eldhúspappír.
4. Burstið sveppina með mjúk-
um bursta, þerrið þá með eldhús-
pappír eða þvoið. Takið steina úr
papi-íku, skerið í bita.
5. Þræðið kjöt, sveppi, papríku
og kokteilpylsur á víxl á grillspjót.
6. Hitið grillið og grindina. Setj-
ið hana á miðrim á kolagrilli en haf-
ið meðalhita á gasgrilli. Takið
grindina af grillinu og smyrjið hana
með matarolíu. Leggið grillspjótin
á grindina. Grillið í 12-15 mínútur.
Snúið öðru hverju. Stráið salti
yfir kjötbitana í lokin.
Meðlæti: Hvítlauksbrauð sem
byrjað er á að grilla.
Hvítlauksbrauð
á grillið
500 g hveiti
1 tsk salt
2 tsk þurrger
2 msk ólífuolía eða önnur matarolía
4 dl fingurvolgt vatn, alls ekki heitara
1 dl ólífuolía til að pensla með
1 meðalstór hvítlaukur
saman við olíuna
1. Brjótið hvítlaukinn upp, af-
hýðið og merjið, setjið saman við
olíuna, hitið örlítið, kælið og látið
standa í Vá-1 klst. Hellið þá á sigti.
Fleygið hvítlauknum.
2. Setjið allt annað í skál og
hnoðið vel saman. Gott er að nota
hrærivél.
5. Búið til um 10 kringlóttar
kúlur úr deiginu, fletjið út í
kringlóttar eða aflangar kökur um
‘/z cm þykkt. Hitið grillið í mesta
straum.
6. Penslið báðar hliðar brauð-
anna með hvítlauksolíunni og bak-
ið á grillinu í um 3 mínútur á
hvorri hlið. Tími er mismunandi,
fjarlægð frá glóð og hitastyrkur
skiptir máli.
7. Vefjið brauðin strax inn í
hreint stykki og stingið ofan í
plastpoka.
Athugið: Brauðin má baka fyrst
og pensla í lokin með olíunni.
í DAG
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Frábær
þjónusta
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi:
„Eg vil koma á framfæri
þakklæti mínu til þeiiTa á
Bílasölu Reykjavíkur á
Bíldshöfða. Ég hef selt bíla
mina hjá þeim og finnst
þjónustan hjá þeim bera af.
Þeir ganga frá öllu fyinr
mann svo maður þarf ekk-
ert að gera sjálfur. Þama er
þjónustulundin i fyrirrúmi."
Ánægður
viðskiptavinur.
Þakklæti vegna
bókagjafar
FORELDRI barns sem er
að útskrifast úr 10. bekk
vildi koma á framfæri
þakklæti til Félags ísl.
bókaútgefenda og prent-
smiðjunnar Odda. Þessi
fyrirtæki gáfu öllum í~10.
bekk bókina „Islensk orð-
snilld". Telm- foreldri það
höfðinglegt að gefa öllum
sem nú útskrifast úr 10.
bekk bókina.
Tapað/fundið
Næla týndist
NÆLA, eins og G i laginu
með pei-lum í, týndist á
leiðinni frá Leifsgötu niður
á Lindargötu, Vitatorg.
Skilvís finnandi hringi í
síma 551 8753.
Dýrahald
Skógarkettlingur
fæst gefíns
BLANDAÐUR skógar-
kettlingur fæst gefins.
Upplýsingar í síma
586 1485.
Snúður er týndur
SVARTUR og hvítur frek-
ar stór fress, þekkist af
hvítum litlum punkti á
enda rófunnar, týndist í
Hrauntungunni í Kópa-
vogi, bjó áður í vesturbæ
Kópavogs. Þeir sem hafa
orðið varir við kisa hafi
samband í síma 554 6667.
Læða óskar
eftir heimili
LÆÐA, 2 og hálfs mánað-
ar, óskar eftir heimili.
Upplýsingar í síma
567 0744.
Kettlingar óska
eftir heimili
FJÓRAR litlar kisulórur
óska eftir að komast á góð
heimili (mamman er bland-
aður skógarköttur). Upp-
lýsingar í síma 567 5404.
Kettlingar óska
eftir heimili
TVEIR kettlingar óska
eftir góðu heimili. Upplýs-
ingar í síma 554 1102.
Kettlingur óskar
eftir heimili
KETTLINGUR óskar eft-
ii’ nýju heimili vegna of-
næmis á heimili hans.
Upplýsingar í síma
562 1452.
Þessi kisa
er týnd
ÞESSI fallegi köttur
hvarf frá heimili sínu Hr-
ingbraut 65 í Hafnarfírði
fyrir viku. Hans er sárt
saknað.
Þeir sem hafa séð hann
eða geta gefið einhverjar
uppiýsingar vinsamlega
hafið samband við Fann-
eyju í síma 555 0551.
SKAK
llm.vjón Mai'gcir
Pétursvon
STAÐAN kom upp í
hraðskák á alnetinu. Gary
Kasparov (2.825), stiga-
hæsti skákmaður heims,
hafði hvítt og átti leik gegn
Rússanum Peter Svidler
(2.690)
48. Bxh6+! - Kxh6
49. Dcl+ - Kg7 50.
h6+ - Kh8 51. g7+
- Kh7 52. Hgl -
Hd8 53. g8=D+ -
Hxg8 54. Hg7+! og
Svidler gafst upp.
Um helgina voru
tefldar tvær skákir
í einvígi Kramniks
og Shirovs um
áskorunarréttinn á
Kasparov. Þeim
lauk báðum með
jafntefli. Eftir sex
skákir hefur Shirov
því forystu í einvíg-
inu 3í/2-2!4. Alls
verða tefldar fjórar skákir
til viðbótar.
Boðsmót TR
Hið árlega Boðsmót TR
hefst miðvikudaginn 3. júní
nk. kl. 19.30. Sem fyrr verða
tefldar 7 umferðir eftir
Monradkerfi með umhugs-
unartímanum 1,5 klst. á 30
leiki og síðan 30 mínútur til
að ljúka skákinni. Teflt
verður einungis virka daga,
og hefjast umferðir ávallt
kl. 19.30.
?ifiSTwlSm
ffliz |gp vm, íí gp
HVÍTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
Sf óll oktar Aznsriáe/cc era útbúin,
s/epp/sse.tam.. *
Víkverji skrifar...
STUNDUM hefur því sjónar-
miði verið gaukað að Víkverja
dagsins, að dálkarnir þrír, sem
settir eru undir tilskrif Víkverja
sex daga vikunnar, væru stundum
uppnefndir og kallaðir „grátmúr
Morgunblaðsins". Þessfr dálkar
væru vettvangur fyrir óhamingju-
sama starfsmenn ritstjórnar, sem
yrðu að leita útrásar fyrir
„frústrasjónir“ sínar, pirring, leið-
indi, röfl og reiði, með því að færa í
letur í Víkverja. Víkverji heldur
því fram, að nafngift sem þessi,
geti á stundum átt við, t.d. í dag,
en aðra daga alls ekki. Víkverji
veit ekki betur en það hendi oft, að
ýmsu sé hrósað í bak og fyrir í
þessum dálkum, mönnum, málefn-
um, frammistöðu, framtaki og
fleiru. En ekki í dag! Ó, nei!
XXX
HVAÐA stofnanir skyldu nú
vera jafnóvinsælastar í hug-
um fólks, vegna þess hversu erfíð-
lega gengur að sækja þjónustu, fá
svör, öðlast skilning á reikningum
o.þ.h.? Fyrst kemur upp í huga
Víkverja gamli Póstur og sími,
sem nú heitir Landsíminn hf. og
Islandspóstur hf. Kannski að há-
effið verði þessari klofnu stofnun
til bjargar og að símafyrirtækið og
póstfyi’irtækið fari að njóta já-
kvæðs umtals. Aldrei að segja
aldrei. Önnur stofnun sem Vík-
verja kemur í hug er Gjaldheimtan
í Reykjavík sem varð nú reyndar
kveikjan að þessum harmagráti
Víkverja við grátmúr dagsins í
dag, en það er arftaki Gjaldheimt-
unnar, því nú skal hringt í Toll-
stjóra til þess að fá upplýsingar
um álögð gjöld, ef leita þarf skýr-
inga á annað borð.
XXX
A
ASTÆÐA þess að Víkverji
hringdi fyrir nokkrum dögum
í Tollstjórann var sú að hann vant-
aði skýringu á ákveðinni upphæð
sem skattayfirvöld hugðust krefja
dóttur hans um. Skýrði hann mál
sitt fyrir símadömunni, sem sagði
hið hefðbundna: „Augnablik“, sem
varði að minnsta kosti í tvær mín-
útur. Þá loks var svarað á hinum
enda línunnar, og svarið var þetta:
„Bifreiðagjöld". Víkverji greindi
bifreiðagjaldamanni frá því að
hann hefði beðið um upplýsingar
varðandi skatta unglinga og fékk
svarið augnablik og aftur jafn-
langa bið, þar til á ný var svarað:
„Skiptiborð". Enn skýrði Víkverji
um hvað hafði verið beðið í upp-
hafi, og fékk enn eitt „Augnablik"
án þess að svo mikið sem „svei
þér“ að nú ekki sé talað „fyrir-
gefðu“ eða „afsakið" fylgdi með í
sárabót og enn ein „augnabliksbið-
in“ hófst. Loks var svarað á rétt-
um stað og svör veitt við þeim
spurningum sem lagðar voru fram.
Ungmenni undir 16 ára aldri
máttu á liðnu ári ekki þéna meira
en 77.940 krónur. Af því sem þau
unnu sér inn umfram það, var inn-
heimtur tekjuskattur. Ætlar ein-
hver að halda því fram að inn-
heimtumenn ríkissjóðs ráðist bara
á garðinn þar sem hann er lægst-
ur!