Morgunblaðið - 03.06.1998, Side 72
72 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
BÍÓIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/ Arnaldur Indriðason/ Hildur Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
Brjáluð borg ★★
Fréttamaðurinn Dustin Hoffman
hyggst notfæra sér lykilstöðu í gísla-
tökumáli til að komast aftur í fremstu
röð en fær skömm á öllu saman. Tra-
volta er góður í langdregnu hlutverki
meðaljóns sem gn'pur til örþilfaráða.
Vel gerð að mörgu leyti en skortir
sannfæringarki'aft er á líður.
US Marshalls ★★★
Tommy Lee Jones er í toppfonni á
eftir flóttamanni sem leikinn er af
Wesley Snipes. Fínasta afþreying.
Out to Sea ★★
Gömlu gleðigjafarnir era enn að.
Matthau gerist þreytulegur, að mað-
ur segi ekki ósannfærandi, í eilífum
eltingaleik við sér yngri konur, og
Lemmon er óvenju daufur. Formúl-
an faiún að hiksta alvarlega.
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Scream 2 ★★★
Enn leikur Wes Craven sér með
hryllingsmyndarformið og tekst bet-
ur upp en í fyrri myndinni.
Áreksturinn ★★★
Gamla stórslysamyndaformúlan virk-
ar vel í höndum Mimi Leder í mynd
um yfirvofandi endalok Jarðar. Téa
Leoni, Morgan Freeman og Robert
Duvall fai'a stönduglega fyrir ágæt-
um leikhóp þó textinn sé ekki alltaf
háreistur. Brellurnar góðar en kunn-
uglegar.
US Marshalls ★★★
Tommy Lee Jones er í toppformi á
eftir flóttamanni sem leikinn er af
Wesley Snipes. Fínasta afþreying.
The Stupids ★
Dæmalaus þvæla um heimska fjöl-
skyldu og vopnasala.
Mr. Magoo ★
Ofyndin mynd, 20 árum of seint á
ferðinni. Leslie Nielsen lyftir henni
ekki upp, er leiðinlegur Mr. Magoo.
Fallen +Vz
Svæfandi, bitlaus, langdregin og lítt
hrollvekjandi hryllingsmynd.
Litla hafmeyjan ★★★
Falleg og fyndin kvikmynd þar sem
töfrar ævintýrsins blómstra að fullu.
The Assignment ★VS2
Furðulegur samsetningur um plön
til að handsama hryðjuverkamann-
inn Carlos. Langdregin í meira lagi.
HÁSKÓLABÍÓ
Áreksturínn ★★★
Gamia stórslysamyndaformúlan
virkar vel í höndum Mimi Leder í
mynd um yfirvofandi endalok Jarð-
ar. Téa Leoni, Morgan Freeman og
Robert Duvali fara stönduglega fyrir
ágætum leikhóp þó textinn sé ekki
alltaf hái’eistm-. Brellurnar góðar en
kunnuglegar.
The Big Lebowski ★★★
Coenbræður eru engum líkir. Nýja
myndin er á köflum meinfyndin og
kolgeggjuð en nær ekki að fylgja eft-
ir meistaraverkinu Fargo. Leikar-
arnir hver öðrum betri í sundur-
lausri frásögn af lúðum i Lös Angel-
es.
Búálfarnir ★★★
Virkilega skemmtileg barna- og fjöl-
skyldumynd, sem hægt er að mæla
með fyrir alla aldm-sflokka.
Bíóstjarnan Húgó ★★'/2
Sagan mætti vera skemmtilegri, en
Húgó er sætur og börnum finnst
hann fyndinn.
Titanic ★★★!4
Mynd sem á eftir að verða sígild sök-
um mikilfengleika, vandaðra vinnu-
bragða í stóru sem smáu, virðingar
fyrir umfjöllunarefninu. Falleg ást-
arsaga og ótrúlega vei unnin endur-
gerð eins hrikalegasta sjóslyss ver-
aldarsögunnar.
Stikkfrí ★★1/2
Islensk gaman- og spennumynd þar
sem þrjár barnungar leikkonur bera
með sóma hita og þunga dagsins og
reyna að koma skikk á misgjörðir
foreldranna.
KRINGLUBÍÓ
Mouse Hunt ★★
Ævintýraleg saga af átökum músar
og tveggja bræðra, sem er konfekt
fyrir augað en tyggjó fyrir heilann.
The Rainmaker ★★★
Dágott réttardrama með Matt
Damon finum í hlutverki nýgræðings
i lögfræðistétt.
Mr. Magoo ★
Ofyndin mynd, 20 árum of seint á
ferðinni. Leslie Nielsen lyftir henni
ekki upp, er leiðinlegur Mr. Magoo.
Litla hafmeyjan ★★ek411/2
Falleg og fyndin kvikmynd þar sem
töfrar ævintýrsins blómstra að fullu.
LAUGARÁSBÍÓ
Brúðkaupssöngvarínn ★★■/2
Þægileg, rómantísk gamanmynd
með Adam Sandler í hlutverki
söngvara sem er óheppinn í ástum.
Deconstructing Harry ★★★
Woody Ailen segir okkur hversu
erfitt er að vera rithöfundur og gyð-
ingur í mynd þar sem slegið er á
gamla strengi sem alltaf hljóma jafn
vel.
Það gerist ekki betra ★★★Í4
Jack Nicholson í sallafínu foimi sem
mannhatari, rithöfundur og geðsjúk-
lingur sem tekur ekki inn töflurnar
sínar - íyn- en gengilbeinan Helen
Hunt, homminn Greg Kinnear og
tíkin vekja upp í honum ærlegar til-
finningar. Rómantískar gaman-
myndir gerast ekki betri. Vítamín-
sprauta fyrir geðheilsuna.
REGNBOGINN
Óskar og Lúsinda ★★'/
Undarleg mynd um utangarðsfólk er
falleg fyrir augað og tónlistin góð og
Ralph Fiennes hefur tæpast verið
betri en efni og framvinda hitasótt-
arkennt.
American Werewolf in Paris ★★V2
Hryllingur og grín blandast vel sam-
an í varúlfaafþreyingu sem byggist á
gamalli og góðri hefð.
Great Expectations ★★
Litlaus en snyrtileg útgáfa klassískr-
ar sögu Dickens skilur lítið eftir í
sínum nútúmaumbúðum.
Jackie Brown ★ ★!/
Nýja myndin hans Tarantinos er
fagmannleg, vel leikin, oft fyndin, en
næstum drukknuð í óhófslengd. Allt
snýst um flókna fléttuna (minnir á
The Killing meistara Kubricks), allir
reyna að hlunnfara alla útaf hálfri
milljón dala. Persónurnar, allar mis-
miklar minnipokamanneskjur, eru
dýrlega leiknar af Samuel L.
Jackson, Bridget Fonda, Robert
Forster, Michael Keaton og ekki síst
Pam Grier.
Anastasia ★★★
Disney er ekki lengur eitt um hituna
í gerð úrvalsteiknimynda. Anastasia
jafnast á við það besta sem gert hef-
ur verið. Frábærar teikningar, per-
sónur og saga, sem fer frjálslega
með sögnina af keisaradótturinni (?)
og byltingu öreiganna.
Good Will Hunting ★★‘/2
Sálarskoðun ungs manns í vörn
gagnvart lífinu. Frekar grunn en
ágætlega skemmtileg.
STJÖRNUBÍÓ
Brúðkaupssöngvarínn ★★!4
Þægileg, rómantísk gamanmynd
með Adam Sandler í hlutverki
söngvara sem er óheppinn í ástum.
U beygja ★★'/2
Oliver Stone er í stuði í ofbeldisfullri
nútíma kúrekamynd. Skemmtileg og
léttgeggjuð en svolítið langdregin
Erlend verðbréf
>
SCUDDER
GLOBAL Opportunities
FUNDS
Greater Europe Fund og Strategic Global Themes Fund skarta hæstu
einkunn hjá hinu virta matsfyrirtæki Momingstar eða fímm stjömum.
Ávöxtun hjá Greater Europe Fund var 41% árið 1997
og hækkun 26% á fyrsta ársfjórðungi 1998.
Hjá Strategic Global Themes Fund var ávöxtun 25% 1997
og hækkun á fyrsta ársfjórðungi 1998 12%.
fe
-o
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi • Sími 560 89 00
Veffang: www.vib.is ■ Netfang: vib@vib.is
ERLENDAR
Sigmar
Guðmundsson
fjallar um ,yAdore“
sem kom út
í gær.
Urrandi snilld
HLJÓMSVEITIN Smashing
Pumpkins var stofnuð í
Chicago árið 1989 af Billy
Corgan. Hann fékk til liðs við sig
James Iha, trommarann Jimmy
Chamberlain og kvenkyns-
bassaplokkara að nafni D’Arsy og
’lét þau læra lög sem hann samdi.
Fljótlega fór sveitin að vekja eftir-
tekt í Chicago og hróður hennar
barst tO útgáfufyrirtækja sem
slógust um sveitina.
Arið 1991 kom svo fyrsta platan
út og var henni gefið nafnið Gish.
Arið 1993 leit platan Siamese Dr-
eam dagsins ljós og fékk hún frá-
bærar viðtökur hjá gagnrýnendum
jafnt sem almenningi
og seldist í meira en 4
milljónum eintaka.
„Mellon Collie“ og
„The Infinite Sadd-
ness“ var svo gefin út
árið 1995 og er hún
söluhæsta tvöfalda
plata allra tíma (10
milljón eintök seld,
takk fyrir). Einnig hafa
komið út plöturnar
„Pisces Iscariot" og
„The Aeroplain Flies
High“ en þær inni-
halda báðar aukalögin
af smáskífum sveitar-
innar og teljast því
ekki til eiginlegra
breiðskffa. Billy Corg-
an semur alla tónlistina
sjálfur og er reyndar
einræðisherra í band-
inu. Hann rak
trommarann Jimmy Chamberlain
úr sveitinni fyrir tveimur árum
vegna heróínneyslu og þá héldu
margir að sveitin væri búin að
vera. Fastur og sérstakur
trommustíll Jimmy var eitt af sér-
kennum sveitarinnar og reyndar
höfuðaflið í þéttleika hennar. Skarð
hans er vandfyllt, sem sést best á
því að tveir trommarar hafa að
mestu séð um ásláttinn eftir að
Jimmy var rekinn, þeir Matt Wal-
ker og Matt Cameroun.
En þótt hinn hárlausi Billy
Corgan sé harður húsbóndi og fari
sínu fram er ekki hægt að væna
hann um getuleysi í lagasmíðum.
Tónsnilli hans er nefnilega í öfugu
hlutfalli við hárafjöldann á höfðinu.
Allar breiðskífur Pumpkins eru
urrandi snilld og hafa gert popp-
skríbenta um víða veröld hland-
blauta af hrifningu. Þar sem popp-
arinn hárlausi er nánast í guðatölu
á mínu heimili og lagasmíðar hans
á sama stalli og bækur Laxness, þá
var eftirvæntingin að sama skapi
mikil þegar að ég fékk plötuna
Adore í hendur. Og ekki varð ég
fyrir vonbrigðum. Platan Adore er
gargandi vitnisburður um snilld
Smashing Pumpkins og jafnframt
vitnisburður um bi'eytta stefnu.
Ki'aftmiklu rokklögin sem löngum
voru aðall sveitarinnar eru horfin
og í staðinn fáum við hugljúfar
ballöður sem auðveldlega fram-
kalla tár á hvörmum samvisku-
lausra fjöldamorðingja. Eða það
held ég að minnsta kosti. A plöt-
unni eru 15 lög í fullri lengd og eitt
17 sekúndna örverpi að auki og þau
standast fyllilega samanburð við
það besta sem sveitin hefur áður
gert. Lögin Tear, Daphne
Descends, Perfekt, Pug, Annie
Dog og For Martha framkalla
gæsahúð við fyrstu hlustun og al-
gleymi við frekari hlustanir. Ég
þori að veðja aleigunni að ég heyri
ekki betri plötu á þessu ári. Og hún
batnar við hverja hlustun en það er
besti mælikvarðinn sem til er á
gæði tónlistar.
Það er samt skrítið að hlusta á
heila plötu með Smashing Pumpk-
ins án þess að það blæði úr eyrun-
um á manni. Vælandi gítarveggur
yfir hamslausri trommukeyrslu
heyi-ir nú greinilega fortíðinni til
en nútíðin er pakkfull af ægiflott-
um vangalögum. Og það er smart.
Fyrir stuttu las ég viðtal við Billy
Corgan þar sem hann lýsti því
fjálglega hvernig erfið æska hans
Ég þori að veðja
aleigunni að ég
heyri ekki betri
plötu á þessu ári
og þunglyndi er oft kveikjan að
lagasmíðum hans. Ef það er for-
senda snilligáfunnar, þá vona ég í
eigingirni minni að hann verði
þunglyndur það sem eftir er. í
sama viðtali sagði hann jafnframt
að hann ætti eftir að búa til músík
til æviloka og að ekkert gæti
breytt því. Ekki ætla ég að kvarta
yfii’ því en þó efast ég um að hann
geti haldið endalaust áfram á sömu
braut. Snilldinni hljóta að vera ein-
hver takmörk sett.
Ég gæti haldið áfram með há-
stemmdai' lýsingar um gæði plöt-
unnar út í hið óendanlega. Og
reyndar haft um málið íleiri og
gagnmerkari orð en Jóhanna Sig-
urðardóttir hafði um húsnæðis-
kerfið sáluga i þinginu á dögunum.
En ég nenni því ekki. Þess í stað
hvet ég rokkunnendur til að sann-
færa sjálfa sig, því mín skoðun á
tónlist þarf ekki að vera allra.
Og meðan ég man, smáábending
til forsvarsmanna listahátíðar.
Hvernig væri nú að fá Smashing
Pumpkins til landsins í stað þess að
púkka endalaust uppá einhverja
franska kerlingu með horn. Ég
skal ábyrgjast að tónleikar með
graskerunum eru betri skemmtan
en falskur útvarpskór frá Dan-
mörku og að popparinn sköllótti
hreyfir við fleíri sálum hér á fróni
en kínverskir karlmenn sem leika
sér að flugdrekum á gamals aldri.
Takk og bless.