Morgunblaðið - 03.06.1998, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 73
FOLK I FRETTUM
EINSTEIN ásamt Konenkovu á ódagsettri mynd
sem boðin verður upp hjá Sothebys og er með
áletruninni „Kærar kveðjur. A. Einstein“.
Astarbréf Einsteins
á uppboð
NÍU ástarbréf vísindamannsins Alberts Einsteins til konu sem líklegt er
að hafí verið rússneskur njósnari verða boðin upp í New York í þessum
mánuði, að því er New York Times greindi frá á mánudag.
I blaðinu kemur fram að bréfín, sem skrifuð voru árin 1945 og 1946,
voru send frá heimili Einsteins í Princeton til meints rússnesks njósnara,
Margaritu Konenkovu, sem hafði þann starfa að kynna eðlisfræðinginn
fyrir sendiráðsmanni Sovétríkjanna í New York.
Bréfín verða boðin upp hjá Sothebys 29. júní ásamt fimm myndum af
vísindamanninum og er hann með Konenkovu á fjórum þeirra. Einnig
verða boðnir upp fleiri persónulegir munir sem bera sambandi Kon-
enkovu og Einsteins vitni. Bréfunum, sem skrifuð era á þýsku og vitna
um ást hans á Konenkovu, var komið á framfæri við Sothebys af ættingja
Konenkovu.
The Times greindi frá því að Paul Needham, ráðgjafi Sothebys, teldi
rithöndina vera Einsteins og að á umslögunum væri heimilisfang hans
ásamt upplýsingum póstþjónustunnar um hvar og hvenær þau hefðu verið
send.
Þá hefði Needham fundið út í rannsóknum sínum á uppruna bréfanna
að Konenkovu væri getið í bókinni Sérverkefni eða „Special Tasks“ frá
1995 eftir rússneska njósnarann Pavel Sudoplatov og son hans, Anatoly.
Þar kæmi fram að henni hefði verið ætlað að „hafa áhrif á Oppenheimer
og aðra frambærilega bandaríska vísindamenn sem hún hitti reglulega í
Princeton". Robert Oppenheimer lagði sem kunnugt er mikið af mörkum í
smíði Bandaríkjamanna á kjamorkusprengju.
The Times greinir loks frá því að sérfræðingar um kalda stríðið telji af-
ar ósennilegt að Einstein hafí lagt nokkuð af mörkum til smíðar Rússa á
kjarnorkusprengju enda hafí hann ekki haft nein bein afskipti af
sprengjusmíði Bandaríkjamanna.
Sandra Bullock
einstæð móðir
►LEIKKONAN Sandra Bullock var miðpunktur
forsýningar myndarinnar „Hope Floats" sem hald-
in var í Los Angeles á dögunum. í myndinni leikur
Bullock einstæða móður sem flytur aftur til heima-
bæjar síns til að ná betri tökum á lífi sínu. Leikar-
inn og söngvarinn Harry Connick yngri leikur við-
gerðarmann sem stígur í vænginn við einstæðu
móðurina.
Adam Sandler og
Drew Barrymore
áttu besta kossinn
TITANIC var valin besta kvikmynd-
in þegar MTV-verðlaunin voru af-
hent í áttunda sinn síðastliðinn laug-
ardag. Sviplegt fráfall Phils Hart-
mans setti svip á hátíðina og var
hans minnst af gamanleikurunum
Mike Myers og Adam Sandler.
Myers tileinkaði Hartman verð-
laun sem hann fékk fyrir besta þorp-
arann og lýsti honum „sem mjög
góðum vini mínum ... sem var einn af
bestu grínurum allra tíma.“
Hann bætti við að eiginkona
Hartmans, Brynn, hefði verið „ynd-
isleg manneskja og yndisleg móðir“.
Sandler, sem fékk verðlaun fyrir
besta kossinn, sagði að Hartman-
hjónin hefður ___________________
verið „skemmti-
legt fólk... Það
tekur mjög á að
heyra þessar fréttir og einnig að
[Chris] Farley sé fallinn frá, þetta
er stormasamt ár.“
Samuel L. Jackson var kynnir há-
tíðarinnar og voru sigurvegararnir
valdir af áhorfendum MTV, sem
gátu greitt atkvæði í síma. Titanic
var tilnefnd til átta verðlauna en
vann aðeins tvenn, annars vegar
sem besta mynd og hins vegar var
Leonardo DiCaprio verðlaunaður
íyrir besta leik í karlhlutverki.
DiCaprio hefur látið lítið fyrir sér
fara síðan hann sló svo eftirminni-
lega í gegn í Titanic. Hann mætti
ekki á verðlaunaafhendinguna en
sendi upptöku með þakkarræðu.
Hann sleppti einnig Óskarsverð-
launaafhendingunni og Kvikmynda-
hátíðinni í Cannes.
NTV-verðlaunin
Jim Carrey var verðlaunaður fyr-
ir besta gamanleik fjórða árið í röð,
að þessu sinni fyrir hlutverk sitt í
„Liar Liar“. Hann hafði áður unnið
fyrir myndirnar „The Cable Guy“,
„Ace Ventura: When Nature Calls“
og „Heimskur heimskari“.
Myers og Will Smith unnu til
tvennra verðlauna hvor. Myers fékk
verðlaun lyrir besta þorparann og
dansatriðið í myndinni Austin
Powers, og Smith, sem mætti með
skegg, fékk verðlaun fyrir besta
söng- og slagsmálaatriði í myndinni
„Menn í svörtu".
Neve Campbell var valin besta
leikkona í aðalhlutverki fyrir
________________ frammistöðu sína
í „Scream 2“.
Greindi hún frá
því að henni hefði
verið boðið hlutverk í þriðju öskur-
myndinni, en ekkert hefði enn verið
ákveðið.
Sandler deildi verðlaunum fyrir
besta kossinn með Drew
Barrymore úr myndinni „The
Wedding Singer". Nicolas Cage og
John Travolta voru kjörnir besta
tvíeykið fyrir frammistöðu sína í
tæknitryllinum „Face/Off‘.
Leikstjóri myndarinnar, John
Woo, var einnig heiðraður fyir besta
hasaratriðið sem er eltingaleikur á
hraðbátum. Hann sagði að ákveðið
hefði verið að hann leikstýrði fram-
haldi myndarinnar „Mission:
Impossible", en hann vissi ekki
hvort Tom Craise hefði samþykkt
að leika áfram Ethan Hunt.
Eftirtektarverðasti nýliðinn þótti
wznzm
gönguskór
Meindl Island herra- og dömuskór
Gönguskór úr hágæða leðri. Gore-tex í innra
byrði og góð útöndun. Vibram Multigriff sóli.
-góíir í lengrí gönguferöir.
KYNBOMBAN Carmen El-
ectra, sem er annar af kynnurn
„America’s Funniest Home
Videos", var á meðal gesta á
hátíðinni.
vera Heather Graham vegna
frammistöðu sinnar í „Boogie
Nights“ og Peter Cattaneo var besti
nýi kvikmyndagerðarmaðurinn, en
hann leikstýrði fatafellumyndinni
Með fullri reisn eða „The Full
Monty“.
Slegið var á létta strengi þegar
leikarinn Clint Howard fékk verð-
laun fyrir æviframlag sitt til kvik-
mynda. Hann er yngri bróðir leik-
stjórans Rons Howards og hefur
leikið í myndum á borð við „Apollo
13“, „Barb Wire“ og „Silent Night,
Deadly Night 5“.
JIM Carrey var valinn besti
gamanleikarinn fjórða árið í
röð við afliendingu MTV-
verðlaunanna.
www.mbl l.is
Dekaiopp
EPÖXY MÁLNING
Hágæðamálning ____
fyrir gólf og veggi ppMjj
Gólflagnir
IÐNAÐAHQÚLF Smiðiuvcni
Smiðjuvegur 72, 200 Kópavogur
Sími: 564 1740, Fax: 554 1769
V 0 R V I N D
R
>€
KVIKMYNDAHATIÐ
2 fyrir 1á Vorvinda!
' * * t *’ V-:A- V &*:
4.iásk:^ , •*?
í Háskólabíói og Regnboganum
Gegn framvísun þessa miða býðst
lesendum Morgunblaðsins að fá
tvo miða á verði eins á mynd að eigin
vali á kvikmyndahátíðinni Vorvindar.
Góða skemmtun!
fe í|jf M |f B
JHorgunblabib
pCCMOAmMKJ