Morgunblaðið - 03.06.1998, Page 80
ÍSLANDSFLUG
gorir fteirum fsert aó fljúga
570 8090
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
FÓSTHÓLF3040, NETFANG: R1TSTTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Keflavíkur-
flugvöllur
Landgangur
féll niður
„Galina er sann-
kölluð dívau
RIJSSNESKA sópransöngkonan
Galina Gorchakova söng sig inn
í hjörtu gcsta á tónleikum Lista-
hátíðar í Reykjavík í Háskóla-
bíói í gærkvöld svo að fagnaðar-
látum ætlaði aldrei að linna.
Galinu hefur verið líkt við Maríu
Callas og stundum er hún kölluð
rödd 21. aldarinnar. Galina er
vafalaust ein fremsta söngkona
sem sótt hefur Islendinga heim
en hún hefur sungið í mörgum
af sögufrægustu óperuhúsum
heims, svo sem Covent Garden,
Metropolitan, Bastillu-óperunni,
Þjóðaróperunni í Vínarborg,
Kölnaróperunni og La Scala.
Jón Ásgeirsson, tónlistargagn-
rýnandi Morgunblaðsins, segir í
dómi um tónleikana í gærkvöld:
„Galina Gorchakova er sannköll-
uð „díva“, sem ræður yfir mikl-
um raddstyrk, svo að það hlýtur
að vera mikil upplifun að heyra
hana með hljómsveit í einhverri
af átakasenum óperubókmennt-
anna. Þéttleiki raddarinnar á
öllum styrkleikasviðum, tónsvið-
ið í heild, túlkun og mótun tón-
hendinga er í þeim gæðaflokki,
sem aðeins snillingar hafa á
valdi sínu.“ Jón segir að tónleik-
amir eigi eftir að lifa lengi með
þeim sem á hlýddu.
■ Seiðmagnaður/38
Morgunblaðið/Ásdís
ÞAÐ óhapp varð þegar verið var að
keyra landgang að þotu Atlanta
sem lenti á Keflavíkurflugvelli um
helgina að keðja í landganginum
slitnaði með þeim afleiðingum að
hann féll niður.
Engin slys urðu á mönnum og í
stað landgangsins var gripið til
stigabfls til þess að koma mann-
skapnum, sem voru flugáhafnir frá
Atlanta, frá borði. Að sögn Omars
Ingvarssonar, umsjónarmanns
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar,
hefur Vinnueftirlit ríkisins málið til
athugunar.
Skipting á kolmunnakvóta NEAFC
Byggt á
veiðireynslu
BYGGT verður m.a. á veiðireynslu
þegar skipt verður upp veiðiheimild-
um á kolmunna innan Norðaustur-
Atlantshafsnefndarinnar, NEAFC.
íslendingar hafa lítið gefíð sig að
veiðum úr þeim stofni. Kolmunna-
veiðar við íslands hafa verið slitrótt-
ar en á síðasta ári veiddust um
10.500 tonn.
Snorri Rúnar Pálmason í sjávarút-
vegsráðuneytinu á sæti í vinnuhópi
sem farið hefur yfír gögn sem hafa
þarf í huga þegar og ef kemur að því
að skipta upp veiðiheimildum úr
kolmunna- og makrílstofnunum.
Vinnuhópurinn mun væntanlega skila
yfirliti í tengslum við aðalfund
NEAFC sem haldinn verður i nóvem-
ber.
Snorri Rúnar segir að íslendingar
hafi lítið gefið :úg að veiðum úr þess-
um stofnum. ,Á móti kemur að þessar
tegundir hafa veiðst innan okkar lög-
sögu og það gefur okkur spil á hendi.“
■ Stjórnun/Dl
Pavarotti
vill syngja
með Björk
„EINSTÖK rödd. Ég vona
að við getum komið fram
saman einn góðan veður-
dag,“ sagði ítalski tenórinn
Luciano Pavarotti um
Björk Guðmundsdóttur í
samtali við danska blaða-
manninn Peter Bennett.
Pavarotti ræðir í samtal-
inu m.a. samstarf við popp-
stjörnur, sem hann segir
að margir unnendur sí-
gildrar tónlistar kunni
ekki að meta. „En við alla
þessa gagnrýnendur vil ég
segja, að ég held að þetta
sé rétta leiðin til að koma
klassískri tónlist til stærri
áhorfendahóps. Ég geri
einskonar samning við tón-
listarunnendur, sem ekki
þekkja óperuna; ég syng
dálitið af ykkar tónlist ef
þið hlustið á dálítið af
minni.“
Þá víkur Pavarotti að
tónleikum tenóranna
þriggja; Domingo, Carrer-
as og Pavarottis og segir,
að hann telji tónleika
þeirra í París 20. júlí ekki
verða þeirra síðustu sam-
an.
■ „Popperukonungurinn“/39
_ Bflasalan
svipuð nú
og allt
árið 1994
SALA á nýjum fólksbílum jókst
um tæp 40% í maí síðastliðnum
miðað við sama mánuð í fyrra. Alls
seldust 1.449 nýir fólksbflar en
1.036 bílar í maí 1997 sem er 39,8%
aukning. Fyrstu fimm mánuði árs-
ins hafa selst 5.225 nýir fólksbílar
en á sama tímabili í fyiTa seldust
5 2M.026 bflar. Söluaukningin það sem
af er þessu ári er því tæp 30%. Sé
miðað við að meðalverð á fólksbfl
sé 1,5 milljónir kr. hafa landsmenn
keypt bfla íyrir rúma 7,8 milljarða
kr. það sem af er árinu.
Salan gæti farið
yfir 13.000 bfla
Allt árið í fyrra seldust 10.146
nýir fólksbílar. Haldist söluaukn-
ingin um 30% verður bflasalan á
þessu ári tæplega 13.200 bflar.
Bflasalan nú, íyrstu fimm mánuði
ársins, 5.225 bílar, slagar hátt í alla
bflasölu ársins 1994 þegar 5.390
nýir fólksbflar seldust.
Mesta markaðshlutdeild í fólks-
^bílum það sem af er árinu hefur
Toyota, 17,3%, VW, 9,9%, og Niss-
an, 9,1%.
Sá elsti
sem fer
holu í höggi
MAGNÚS Guðmundsson,
fyrrverandi flugstjóri, fór
holu í höggi á Nesvelli i gær.
Hann verður 82 ára eftir tvo
mánuði og er elsti íslending-
urinn sem fer holu í höggi.
Hann náði draumahögginu á
2. braut, sem er 120 metrar
og notaði 7-járn.
Tölvunefnd gerir alvarlegar athugasemdir við IE og samstarfslækna
• •
Oll vinnsla bönnuð með-
an gerðar verði úrbætur
TÖLVUNEFND gerir mjög alvarlegar at-
hugasemdir við erfðarannsóknir sem unnið er
að á vegum íslenskrar erfðagreiningar hf. og
samstarfslækna fyrirtækisins. Þetta kemur
fram í bréfi sem Tölvunefnd hefur sent IE og
hópi samstarfslækna hennar. I bréfinu segir að
fulltrúar Tölvunefndar hafi farið í eftirlitsferð í
aðsetur ÍE 27. maí síðastliðinn og komið hafi í
ljós að alvarlegir misbrestir eru á að sam-
starfslæknarnir og ÍE fari að þeim skilmálum
sem Tölvunefnd setti til að tryggja persónu-
vernd þess fólks sem tekur þátt í umræddum
' erfðarannsóknum.
í bréfinu veitir Tölvunefnd frest til 20. júní á
meðan gerðar verði úrbætur og séð til þess að í
hvívetna verði farið að þeim tilmælum sem
nefndin hefur sett um framkvæmd umræddra
rannsókna. „Fram að þeim tíma er öll frekari
vinnsla óheimil,“ segir í bréfinu. Tekið er fram
að ef ekki verði orðið við tilmælum nefndarinn-
ar megi vænta þess án frekari viðvarana að
gripið verði til þess að-eyða gögnum, stöðva
vinnslu eða beita öðrum úrræðum skv. lögum.
Starfsmenn ÍE vinna með hin
nafngreindu gögn
Tölvunefnd bendir á í bréfinu að allar heimildir
sem hún hefur veitt til rannsókna sem unnar eru í
samstarfi við ÍE byggist á þeirri forsendu að sam-
starfslæknar fyrirtækisins beri ábyrgð á varð-
veislu og trúnaði allra gagna um sína sjúklinga og
ábyrgist að engin persónutengd eða persónutengj-
anleg gögn berist öðrum og óviðkomandi aðilum.
„I ljós kom að það sem vinnuferlið gerir ráð
fyrir að unnið sé af samstarfslæknum er í raun
unnið af Islenskri erfðagreiningu hf. Athugunin
sýndi að það eru starfsmenn Islenskrar erfða-
greiningar hf. sem vinna með hin nafngreindu
gögn en hvorki samstarfslæknarnir (ábyrgðar-
menn rannsóknanna) né fólk sem starfar í þeirra
umboði. Þá leiddi athugun Tölvunefndar og í ljós
að sá starfsmaður sem þar er i forsvari hafði
aldrei séð skilmála Tölvunefndar og þekkti ekki
efni þeirra. Er ljóst að við slíkar aðstæður er úti-
lokað að samstarfslæknarnir geti ábyrgst fulla
vernd þeirra upplýsinga sem þeir bera ábyrgð á
gagnvart sínum sjúklingum eða það öryggi sem
ætla verður að sjúklingar þeirra og aðrir þátttak-
endur treysti á,“ segir m.a. í bréfinu.
Trúnaðarbrestur hefur
áður átt sér stað
„Tekið skal fram að Tölvunefnd lítur mál þetta
mjög alvarlegum augum. Er málið sérstaklega
alvarlegt þegar haft er í huga að svipaður trúnað-
arbrestur hefur áður átt sér stað, sbr. að í síðustu
eftirlitsheimsókn nefndarinnar í fyrirtækið (25.
nóvember 1997) kom í ljós að ýmsu var ábótavant
varðandi öryggi gagna og m.a. reyndust starfs-
menn ÍE hafa undir höndum sjúklingalista frá
SÁÁ,“ segir ennfremur í bréfi Tölvunefndar.
■ Alvarlegir misbrestir/6