Morgunblaðið - 17.06.1998, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998 57 >%
3
1
1
I
I
J
i
I
J
!
I
1
I
I
.1
I
I
I
I
I
j
I
I
i
Haukarnir í liði
Jóns Sigurðssonar
Frá Hallgrími Sveinssyni:
FRELSISBARÁTTA þjóðar verður
seint unnin af einum manni, þó mikið
sé komið undii- hiklausum forystu-
mönnum. Það skal
rifjað upp hér, að
fjöldi manna um
allt land starfaði
opinskátt með Jóni
Sigurðssyni að
þeim mai-kmiðum
sem hann setti
snemma í frelsis-
baráttunni við
Dani, í Hugvekju
til íslendinga, eða
voru óhvikulir
stuðningsmenn hans bak við tjöldin.
Þetta voru menn úr öllum stéttum
þjóðfélagsins: Bændur, prestar,
vinnumenn, vinnukonur, verkamenn,
búðarþjónar, embættismenn, hús-
freyjur og námsmenn. Flestir þeirra
verða aldrei nafngi-eindir. Það er
hinn þöguli fjöldi. En hinir, sem
gengu fram fyrir skjöldu, voru oft í
mjög erfiðri aðstöðu, þar sem for-
ystumaðurinn bjó löngum erlendis
og margir þeirra höfðu embættum
að gegna og voru komnir upp á
kóngsins náð. Þessa menn má kalla
haukana í liði Jóns Sigurðssonar, þó
misjafnlega hafi þeir haft sig í
frammi.
Jón stóð ekki einn
Jón Guðmundsson (1807-1875):
Helstur haukanna í liði Jóns var Jón
Guðmundsson, ritstjóri Þjóðólfs, en
hann kallaði sig „skugga" Jóns Sig-
urðssonar. Það var á heimili Jóns
Guðmundssonar í Aðalstræti í
Reykjavík sem Þjóðfundarfulltrúar
komu saman, er upp úr
slitnaði og réðu ráðum
sínum. Margt hefði orðið
erfiðara hjá Jóni Sig-
urðssyni ef hann hefði
ekki notið dugnaðar og
framtakssemi nafna síns
hér heima. En eftir því
sem næst verður komist
hafa Islendingar alveg
gleymt að heiðra minn-
ingu þessa eldheita fylg-
ismanns Jóns Sigurðs-
sonar.
Prestarnir hugdjörfu
Merkilegt er að ein-
hverjir hörðustu og
óhvikulustu stuðnings-
menn Jóns í baráttunni
voru prestar. Fimm þeirra skulu
nafngreindir hér með örfáum orðum.
Séra Hannes Stephensen (1799-
1856): Prestur á Ytra-Hólmi. Alþing-
ismaður Borgfírðinga. Trampe greifi
vildi láta víkja honum úr embætti
eftir Þjóðfund, ásamt öðrum prest-
um, starfsbræðrum hans sem þar
voru fulltrúar, en fékk því ekki ráðið.
Eldheitur stuðningsmaður Jóns Sig-
urðssonai- og talinn með málsnjöll-
ustu mönnum á þingi. Páll Eggert
Ólason lýsir séra Hannesi svo: „Mað-
urinn var í öllum greinum hinn mesti
afbragðsmaður, allra manna þjóðleg-
astur, þjóðræknastur og frjáls-
lyndastur. Honum var við brugðið
fyrir rausn og gestrisni, svo að svipa
þótti mest til höfðingja hinna fyrri
alda.“
Séra Halldór Jónsson (1810-
1881): Prestur á Hofí í Vopnafírði.
Hann var konungkjörinn fulltrúi á
Þjóðfundi og sá eini úr
þeim hópi sem hafði
kjark til að fylgja Jóni
Sigurðssyni að málum.
Einarður stuðnings-
maður Jóns.
Séra Ólafur E. John-
sen (1809-1885): Prest-
ur á Stað á Reykjanesi.
Frændi Jóns Sigurðs-
sonar og bróðir Ingi-
bjargar, konu hans.
Fulltrúi Barðstrendinga
á Þjóðfundi. Hafði sig
alla tíð mjög í frammi í
stuðningi við Jón
frænda sinn. „Bylting-
arsinni að eðlisfari,
áhlaupamaður með
stórt hjarta og heitt
geð.“ (Lúðyík Kristjánsson)
Séra Ólafur Sívertsen (1790-
1860): Prestur í Flatey á Breiðafirði.
Alþingismaður Barðstrendinga.
Helsti forgöngumaður Kollabúða-
funda. Einn af lykilmönnum í stuðn-
ingi við Ný félagsrit.
Séra Eiríkur Kúld: Prestur í
Stykkishólmi. Alþingismaður Snæ-
fellinga og Barðstrendinga um langt
skeið. Var einn starfhæfasti maður í
flokki Jóns á þingi og oft talsmaður
hans, enda oft nefndur „munnur
Jóns Sigurðssonar“.
(Þeir sem vilja fræðast nánar um
Jón Sigurðsson geta til dæmis flett
upp á Heimasíðu hans á Veraldar-
vefnum á íslensku, ensku, dönsku og
þýsku:http://www.snerpa.is/kynn//-
jonsig.
HALLGRÍMUR SVEINSSON,
Hrafnseyri.
Jón
Sigurðsson
BJÖRGUN HF.
SÆVARHÖFÐA 33
Fegrar
og bætir
garðinn
Þú færð allskonar grjót hjá
okkur, sand og sérstakan sand
í sandkassann.
Við mokum efninu á bíla eða
kerrur og afgreiðum það líka í
sterkum plastpokum, sem þú
getur sett í skottið á bílnum
þínum.
Simi: 577-2000
Salatostur • Létt-Brie
Bóncla-Brie • Gráöaostur
Kastali
Gouda 11% • Dala-Brie
Maribo
Óðalsostur • Gouda 17%
Feta með tómötum og ólifum
Gouda 26%
Lúxusyrja • Dala-yrja
Stóri Dímon • Feta í kryddolíu
Camembert
Ilvítlauksbrie
i salatið!
Kitlaðu bragðlaukana! Ferskt, nýsprottið
salat með grænmeti og osti er endurnærandi
sumarmáltíð sem þú setur saman á augabragði.
Taktu lífinu létt í sumar - og njóttu þess í botn!
Ostur í allt sumar
www.ostur.is
ÍSLENSKIR W
OSTAR W fÆft
í Allt sumak Tjjsr