Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/RAX Táknræn mótmæli við Fögru- hveri „ÉG vil mótmæla þeirri skamm- sýni sem felst í því að eyði- leggja þjóðargersemar," segir Guðmundur Páll Ólafsson, nátt- úrufræðingur og rithöfundur, sem dró á sunnudag íslenska fánann í hálfa stöng við Fögru- hveri á bökkum Köldukvíslar. Hverirnir eiga eftir að fara undir vatn vegna Hágöngumiðl- unarlónsins, sem gert er vegna virkjana Landsvirkjunar á Þjórsár-Tungnaársvæðinu. „Ég hafði engin önnur meðul til þess að mótmæla, búinn að gera það í skrifum og viðtölum og það er nú einu sinni þannig að þjóðin fær ekkert um þetta að segja fyrr en eftir á,“ segir Guðmundur. „Þetta er bókfell náttúrunnar og við eigum að vernda það fyrir komandi kyn- slóðir. Sá þjóðararfur er miklu meira virði heldur en virkjan- irnar, meira að segja í pening- um talið.“ Guðmundur segir Fögruhveri ekki vera einu náttúruperluna sem sé í hættu vegna virkjanaá- ætlana Landsvirkjunar. „Mjög margar aðrar eru í húfi, Langisjór, Þjórsárver, svæðið norðan jölda og eiginlega allt vatnafar íslands og vistkerfi." Frjáls af- greiðslutími frá 28. júlí LÍKLEGT er að ákvæði um frjálsan afgreiðslutíma veit- ingastaða í Reykjavík tald gildi þriðjudaginn 28. júlí. Að sögn Helga Hjörvar borgarfulltrúa var upphaflega stefnt að því að afgreiða málið úr borgarstjóm í dag, en ákveðið var að leita fyrst eftir umsögn lögreglustjóra og því frestast það um viku. Sól fundar með umhverfísráðherra Br otaj árns vinnsla fái umhverfísmat STJÓRN Sólar í Hvalfirði gekk í gær á fund Guðmundar Bjarnasonar umhverfisráðherra til að kynna hon- um afstöðu sína til hugmyndar um brotajámsvinnslu á Grundartanga. Stjórnin lýsti yfir eindreginni and- stöðu við frekari uppbyggingu á mengandi starfsemi á svæðinu. I bréfi sem stjórn Sólar afhenti umhverfisráðherra er farið fram á að ekki verði gefin út starfsleyfi fyr- ir frekari mengandi starfsemi í Hvalfirði fyrr en fyrir liggi niður- stöður rannsókna og mat á áhrifum þeirrar starfsemi, sem fyrir er, á líf- ríki Hvalfjarðar. Þá krefst Sól þess að allar umsóknir um starfsleyfi á þessu svæði komi til umsagnar ráð- gjafanefndar um umhverfisvöktun í Hvalfirði. Loks er þess krafist að umhverfisráðherra beiti 6. gr. um mat á umhverfisáhrifum og að fyrir- huguð starfsemi Hringrásar ehf. fari í lögfomlegt umhverfismat. Ólafur Magnússon, fomaður stjómar Sólar, sagði að mengunar- áiag á Grundartanga og næsta ná- grenni væri orðið gríðarlega mikið. Mikil iðnaðaruppbygging hefði átt sér stað á svæðinu og í kjölfar teng- ingar við Hvalfjarðargöng hefði mengun og ónæði aukist mikið. Ólafur sagðist gera sér grein fyrir að það væri jákvætt að losna við brotajárn úr umhverfinu, en Grund- artangi væri ekki rétti staðurinn undir slíkt vegna þess hvað mengun- arálag á svæðinu væri mikið. Sextíu húsbílar á ferðinni Blönduósi. Morgunblaðiö. UM sextíu húsbflar eru þessa dagana saman á ferð um Norð- urland. Um er að ræða félaga í Félagi húsbflaeigenda. Um helgina heimsóttu húsbflaeig- endurnir Húnavatnssýslur og heilsuðu m.a. upp á kántrý- kónginn Hallbjörn Hjartarson í Kántrýbæ hinum nýja og færðu honum gamlar sveitasöngva- plötur. Nú í vikunni er ferð húsbfl- anna heitið austur á bóginn og lýkur ferðinni í vestanverðum Éyjafirði. Á myndinni má sjá húsbflana sextíu koma til Blönduóss. f hnattflugi á fisi Kominn á áfangastað BRIAN Milton, sem ferðast hefur í kringum hnöttinn á fisi, lenti í London síðdegis í gær. Þar með lauk hnattferð Miltons. Milton kom til Reykjavíkur á mið- vikudagskvöld og flaug tO Hafnar daginn eftir. Hann lagði af stað frá Höfn fyrir hádegi á laugardag og lenti á Orkneyjum klukkan níu að staðartíma á laugardagskvöld. A sunnudag flaug hann til Aberdeen í Skotlandi. Þaðan fór hann í gær- morgun og lenti m.a. í Edinborg á leið sinni til London. Milton var alls 119 daga á leið sinni kringum hnöttinn, 39 dögum lengur en hann ætlaði sér en hann ætlaði sér 80 daga í ferðina líkt og söguhetja Jules Verne. Á heimasíðu Miltons kemur fram að áhugasamir fisflugmenn slógust í för með Milton síðasta spölinn og buðu hann þannig velkominn á áfangastað. --------------- Óskað eftir gögnum um verð- hækkun Símans PÓST- og fjarskiptastofnun hefur óskað eftir gögnum um hvort hækk- un Landssíma íslands hf. á byrjun- argjaldi fyrir hringingar í upplýs- inganúmer 114 og 118 taki mið af raunkostnaði við að veita þjónust- una. í fréttatilkynningu frá stofnuninni segir að hún skuli hafa eftirlit með gjaldskrám í alþjónustu eins og upp- lýsingaþjónustu um símanúmer. Gjaldtaka í alþjónustu skuli taka mið af raunkostnaði við að veita þjónustuna að viðbættum hæfíleg- um hagnaði. Minnt er á að stofnun- inni sé heimilt að mæla fyrir um há- marksverð í alþjónustu þegar sér- staklega standi á. Stofnun Félagsbústaða hf. skiptir sköpum fyrir útkomu borgarsjóðs árið 1997 Seldar voru íbúðir fyrir 4.238 milljónir í stað 800 STOFNUN Félagsbústaða hf. á síð- asta ári hefur mikil áhrif á aíkomu Reykjavíkurborgar á árinu. í fjár- hagsáætlun fyrir árið 1997 var gert ráð fyrir að eignasala til Félagsbú- staða hf. yrði 800 milljónir króna eða sem svaraði til 20% af félags- legu íbúðarhúsnæði borgarsjóðs. í raun voru hinsvegar allar almennar leiguíbúðir seldar fyrir 4.238 millj- ónir króna, sem er 3.438 milljónum yfir áætlun. Þessi ráðstöfun hefur mikil áhrif á ársreikning borgarinnar. Þannig batnaði fjárhagsstaða borgarsjóðs um 2.678 milljónir króna vegna þessa, skuldir borgarsjóðs lækkuðu um 861 milljón króna, vegna áhvílandi lána á íbúðunum sem voru yfirtekin, og tekjuafgangur varð af rekstri borgarsjóðs árið 1997 að fjárhæð 881,1 milljón króna. Fram kemur í skýrslu borgarendurskoð- unar um ársreikninginn að ef horft er fram hjá áhrifum vegna sölu eigna til Félagsbústaða hf. þá „má leiða sterkar líkur til þess að um 1.820 m.kr. hafi vantað upp á frá reglulegum rekstri borgarsjóðs árið 1997 til að standa undir rekstri málaflokka, afborgunum lána og fjárfestingum“. Hlutafélagið Félagsbústaðir hf. sem sjá á um rekstur félagslegra íbúða borgarinnar, er alfarið í eigu borgarinnar. Við umræður um árs- reikninga borgarinnar kom fram hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra að við gerð fjárhags- áætlunar hafi verið tekin sú stefnu- markandi ákvörðun að láta fyrir- tækið kaupa leiguíbúðir borgarinn- ar. „Það voru hins vegar uppi áform um það þá að aðeins hluti íbúðanna yrði seldur á því ári og síðan yrði því haldið áfram á árinu 1998. Hins vegar þegar farið var að vinna mál- ið, þá varð niðurstaðan að Félags- bústaðir keyptu á einu bretti allar almennar leiguíbúðir, ekki íbúðir fyrir aldraða, heldur almennar leiguíbúðir. Fyrst verið væri að fara í þetta á annað borð þá væri nær að gera þetta einu sinni og í eitt skipti í stað þess að láta það ná yfir lengri tíma.“ Gerði gæfumuninn Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, segist í sjálfu sér ekki gagnrýna að svona mikið af leiguhúsnæði hafi verið fært yfir til Félagsbústaða hf. en það hafi samt gert gæfúmuninn um hvað fjárhagsstaða borgarinnar batnaði. „Það er augljós ástæða þegar ársreikningurinn hefur litið dagsins Ijós að salan er fyrst og fremst reikningslegur hagur fyi’ir borgarsjóð." Sigrún Magnúsdóttir, forseti borgarstjómar, segir að þennan ársreikning eigi að meta með sama hætti og aðra ársreikninga. „Hann gefur nákvæmlega rétta mynd af hag borgarsjóðs. Við vorum ákveðin í að hafa hallalaust og það tókst. Það verður kannski hægt að selja einhverjar aðrar eignir næst eða draga saman.“ Sérblöð f dag KR-ingar í þriðja sæti Landssímadeildarinnar/B5 ••••••••••••••••••••••••••••« Góður árangur í meistara- mótum golfklúbbanna/B8 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.