Morgunblaðið - 21.07.1998, Page 8

Morgunblaðið - 21.07.1998, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ DÓMSMÁLARÁÐHERRA réði kannski betur við lítið sýslumannsembætti en reglugerðasmíði. Reglugerð um ökuleyfissviptingu: - Breytir dómvenju Vítavert eöa ckki vítavert , Dómarar í Héraðsdómi Reykjavíkur virðast ósammála um skilgrein- ingu á hugtakinu „vítaverður akstur" " 1111 Orlofsbyggð í 54 húsum í gömlu Súðavík Staðfestir samþykkt um að fella tré UMHVERFISRÁÐHERRA hefur staðfest samþykkt borgarstjómar Reykjavíkur um að fella tré í lög- sagnarumdæmi Reykjavíkur. Samþykktin felur í sér að sækja skuli um leyfí byggingarnefndar Reykjavíkur til þess að fella tré sem eru eldri en 40 ára eða hærri en 4 m. Samþykkt þessi er sam- hjjóða þeim ákvæðum sem gilt hafa í byggingarreglugerð frá 1992, en sú reglugerð féll úr gildi með til- komu nýrrar byggingarreglugerð- ar í gær, 20. júlí. Borgarráð hefur skipað nefnd til þess að gera tillögur um trjágróður og að fella tré í borginni og er fyrr- nefndri samþykkt ætlað að gilda þar til ný samþykkt hefur verið gerð samkvæmt tillögum nefndar- innar. BYRJAÐ er að selja og leigja hús og íbúðir í gamla bænum í Súðavík undir orlofsbyggð. Stofnað hefur verið hlutafélagið Sumarbyggð í Súðavík í kringum starfsemina og að sögn Dagbjartar Hjaltadóttur, framkvæmdastjóra, hafa nokkur hús verið seld til ein- staklinga og fyrirtækja. Hún segir fasteignaverð húsanna lægra en gengur og gerist á almennum markaði. Súðavíkurhreppur, fyrirtæki og einstaklingar standa að hlutafélag- inu, sem var stofnað í byrjun júlí. „Það eru 54 hús og íbúðir í gamla bænum sem hafa staðið ónotuð eft- ir flóðin í janúar 1995. Okkur þótti sárt að sjá þessi hús ónotuð og því var tekin ákvörðun um að nýta þau undir orlofsbyggð yfir sumarmán- uðina, frá byrjun júní til loka ágúst. Frá 1. október fram í byrjun maí er hins vegar bannað að dvelja í húsunum.“ Dagbjört segir húsin og garðana í kringum þau í góðu ásigkomulagi og þeim hafi verið haldið vel við á allan hátt. Hún segir að félagasam- tök og fyrirtæki hafi sýnt húsunum mikinn áhuga og nú þegar hafa nokkur hús verið tekin á leigu eða verið seld. Meðal þeirra sem hafa nýtt sér húsin í orlofsbyggðinni í Súðavík eru Ingvar Helgason hf. og Félag íslenskra hljómlistar- manna. Dagbjört segist ekki óttast að Reykvíkingar telji það eftir sér að dvelja í orlofshúsi í Súðavík. „Eg held að Vestfirðir séu eitt best geymda leyndarmál íslendinga. Það er margt um að vera hér og fólki ætii því ekki að leiðast." ^Mikið úrval efna! Flísefni frá Bandaríkjunum frá 1.045 kr. m. Flísefni frá Ítalíu frá 1.195 kr. m. Teygjuefni í buxur og kjóla frá 1.565 kr. m. Einlit dragta- og kjólaefni með fiskibeinamynstri frá 1.595 kr. m. Svart, beige, dökkbrúnt, off white og dökkblátt. ÖgUÖ-búðirnar Margrét Jónsdóttir ► Margrét Jónsdóttir, dósent í fslensku fyrir erlenda stúdenta, er fædd í Neskaupstað 21. mars árið 1951. Margrét er stúdent frá Menntaskólanum á Laugar- vatni árið 1971 og cand. mag. í íslenskri málfræði frá Háskóla íslands árið 1981. Þar hefur hún verið kennari frá 1980. Fyrst sem stundakennari en fastur kennari frá árinu 1989. Lengst af hefur hún kennt út- lendingum íslensku. Eiginmað- ur Margrétar er Jón R. Gunn- arsson. Hún á einn lftinn ömmu- strák. Erlendir stúdentar læra íslensku 50 ár frá fyrsta sumarnám- skeiðinu við HÍ ÞÓTT flestir skóla- nemar fagni því að geta lokið aftur skruddunum og haldið út í sólina að loknum löngum vetri fer því fjarri að allar skólabyggingar standi auðar yfir sumartímann. Háskóli Islands er t.a.m. fullur af lífi allt sumarið. Þar inni sitja erlendir stúdentar og nema ís- lensku í gríð og erg. Mar- grét Jónsdóttir, dósent í íslensku íyrir erlenda stúdenta, vekur athygli á því að saga sumamám- skeiðanna sé orðin 50 ára gömul. „I júní voru liðin 50 ár frá því að fyrsta sumar- námskeiðið var haldið. Það var í senn norrænt og al- þjóðlegt og kennari var Sveinn Bergsveinsson sem lengst af var prófessor í Austur-Berlín. Nám- skeiðin lágu niðri á tímabili en voru tekin upp aftur síðar. Sér- stök námskeið eru fyrir nomæna stúdenta. Þau hafa verið haldin frá 1959, fyrst annað hvert ár en árlega frá um 1990. Námskeiðinu í ár er nýlokið. Alþjóðlegu nám- skeiðin hófust 1985 og hafa þau verið haldin árlega frá 1989. Um þau sér Stofnun Sigurðar Nor- dals. Hún sér einnig um sérstakt námskeið í bókmenntum nú í júlí. Með árunum hefur námskeiðið verið fjölsóttara og stunda um 50 nemendur nám á alþjóðlega nám- skeiðinu í sumar. I ágúst verða íslenskunámskeið fyrir þá er- lendu stúdenta sem hefja munu nám við HÍ í haust.“ - Hvenær fóru erlendir stúd- entar að sækja nám við háskói- ann? „Erlendir stúdentar hafa verið við nám í HÍ frá fyrstu tíð. Einn var t.d. við nám við skólann fyrir 1920. Nokkur tímamót urðu svo þegar menntamálaráðuneytið fór að styrkja erlenda stúdenta til ís- lenskunáms árið 1949. Smám saman þróaðist námið og er orðið þriggja ára skipulagt nám. Nám- ið er 90 eininga og lýkur með rit- gerð. Með því að ljúka náminu öðlast nemendurnir svokallaða B.Ph.Isl. gráðu. Menntamálaráðuneytið styrkir tæplega 30 erlenda stúdenta til náms hér á landi. Styrkurinn fjármagnar skólagjöld og fram- færslu miðað við mat Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Úthlutun- in fer eftir árangri stúdentanna við íslenskunám eða önnur skyld fóg í sínum heimalönd- um. Styrkurinn er mikil hvatning fyrir erlenda stúdenta og hið merkilegasta starf á vegum ráðuneytis- ins.“ - Hvaðan koma stúdentar að læra íslensku við HÍ? „Fyrstu stúdentamir voi-u að- allega nemendur í germönskum og norrænum fræðum af germ- anska málasvæðinu. Enn eru flestir nemendanna með þennan bakgrunn og sjaldnast algjörir byrjendur í íslensku. Hópurinn hefur stækkað og nemendur frá fleiri þjóðum hafa bæst við. Þeir koma víðar að en áður og er hægt að nefna að hingað koma stúdentar frá Japan og Kína á hverju ári. Mikil sókn hefur verið frá Á-Evrópu á seinni árum.“ - Hvers vegna kýs fólk að „Ódýrasta og besta land- kynningin sem völ er á“ til eyða sumrinu við íslenskunám á Islandi? „Ástæðan er fyrst og fremst brennandi áhugi á tungumálinu og/eða germönskum og norræn- um fræðum. Islenska er talsvert notuð sem rannsóknarmál í mál- vísindarannsóknum víða um heim. Sumir koma svo af hreinni ævintýraþrá." - Hvaða hag hafa íslendingar af því að styðja við nám ííslensku fyrir útlendinga? „Eg staðhæfi að nám í íslensku fyrir erlenda stúdenta og sumar- námskeiðin séu ein ódýrasta og besta landkynningin sem völ er á. Stúdentamir eiga eftir að koma íslenskri menningu í víð- ustu merkingu orðanna á fram- færi í heimalöndum sínum. Sér- staklega ber svo að nefna að með náminu er verið að leggja grunn að þýðendum framtíðarinnar. Ekki er lítils virði fyrir okkur að eiga þýðendur, í löndum eins og og Kína, þegar heimurinn er sí- fellt að minnka. Ég get líka nefnt í tengslum við þættina um Lax- ness að þónokkrir af þýðendum verka hans hafa stundað íslensku- nám við HÍ. Ekki er heldur óalgengt að í tengslum við þýðingar- verkefni eða önnur verkefni haldist tengslin við HI og landið þegar heim er komið.“ - Hvernig taka Islendingar útiendingunum ? „Reynsla stúdentanna af dvöl- inni fer að hluta til eftir fólkinu sjálfu. Annars verð ég að viður- kenna að mér finnst að við Is- lendingar gætum staðið okkur betur í samskiptum við útlend- inga. íslendingar mega ekki gleyma því að útlendingar eiga hrós skilið fyrir að koma hingað til að læra jafn erfitt tungumál og íslensku. Þetta er vel menntað og gott fólk sem við getum lært margt af.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.