Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Kastaðist út af flug-
braut í lendingu
LÍTIL einkaþota sem var að
koma inn til lendingar á Kefla-
víkurflugvelli á sunnudagskvöld
kastaðist út af braut í lendingu.
Orsakir óhappsins er ókunnar
að sögn Þorsteins Þorsteinsson-
ar hjá Rannsóknamefnd flug-
slysa en von er á tæknimönnum
til landsins í dag sem munu
gera við vélina og komast að því
hvað fór úrskeiðis. Engin slys
urðu á fólki en tveir flugmenn
og einn farþegi voru um borð.
Vélin sem var á leið frá
Bandaríkjunum til Evrópu var í
ferjuflugi og hafði hér viðdvöl
til að taka eldsneyti. Að sögn
lögreglu í Keflavík, sem mætti á
staðinn ásamt slökkviliði, hafði
engin tilkynning borist frá vél-
inni um að eitthvað væri að
þannig að svo virtist sem eitt-
hvað hefði komið upp á í lend-
ingunni.
Helgarferð til
Prag
16. okt.
frá kr. 29.960
Föstudagsmorgunn
til sunnudagskvölds
Beint leíguflug
Borg hinna þúsund tuma, gimsteinn
Evrópu, borg töfranna, gullna borgin.
Það er engin tilviljun að Prag hefur
verið nefnd öllum þessum nöfnum,
borgin er einstök og á engan sinn líka
í Evrópu. Borgin var stærsta og
ríkasta borg Evrópu á 14. og 15. öld,
menningarhjarta Evrópu, og hún er
ótrúlegur minnisvarði um stórkost-
lega byggingarlist og kúltúr. Hér
frumflutti Mozart Don Giovanny
óperuna, hér hélt Beethoven reglulega tónleika, hér samdi Mahler tónlist og
Kafka og Einstein sátu við skriftir. Hradcany kastalinn gnæfir yfir borgina, hið
gamla stjómarsetur konunga allt frá níundu öld og nú aðsetur forsetaskrifstofu
Havels. Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast þessari ótrúlegu
borg með beinu flugi til Prag, föstudaginn 16. október. I boði em góð 3ja og
4ra stjömu hótel og spennandi kynnisferðir um kastalann og gamla bæinn þar
sem þú kynnist alveg ótrúlega heillandi
mannlífi á milli þess sem þú eltir óendan-
lega ranghala gamla bæjarins með íslensk-
um fararstjórum Heimsferða.
Aðeins 50 sæti
á sértilboði
Túnleikar ♦ Glæsilegir veitingastaðir
Næturlíf ♦ Kynnisferðir ♦ íslenskir fararstjórar
Hótel Quality
Eitt besta þriggja stjömu hótel í Prag, 240 herbergi. í 10 mínútna fjarlægð frá
gamla bænum, öll herbergi með sjónvarpi, síma, minibar, baðherbergi. Veit-
ingastaður, bar, stór móttaka. Mjög snyrtileg herbergi.
Don Giovanni
Líklega besta 4ra stjörnu hótel í Prag. Staðsett rétt hjá Quality-hótelinu. Öll
herbergi með loftkælingu, sjónvarpi, síma, baðherbergi, minibar, öryggishólfi.
Herbergisþjónusta. Góður veitingastaður, píanóbar, skemmtistaður. Topphótel.
Hilton Prag
Topphótel í hinum fræga hótelhring. Skammt frá gamla bænum. Stærsta hótelið í
Prag, öll herbergi með sjónvarpi, síma, baði, minibar, loftkælingu, baði. Veitingastað-
ir, barir, ráðstefnuaðstaða.
Verð kr.
29.960 Verð kr. 39.960
Flugsæti til Prag fyrir fullorðinn með
sköttum.
Verð kr.
43.860
M.v. 2 í herbergi, Don Giovanni, flug,
gisting m. morgunverði, fararstjóm,
ferðir til og frá flugvelli, skattar.
M.v. 2 í herbergi Quality Hotel, flug,
gisting, ferðir til og frá flugvelli, ís-
lensk fararstjóm, skattar.
HEIMSFERÐIR
\ m
Austurstræti 17, 2. hæð,
sími 562 4600.
FRÉTTIR
Sverrir Hermannsson á fundi með Verðandi
Þarf að koma kvóta-
flokkum frá völdum
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
SVERRIR Hermannsson á fundi hjá Verðandi.
SVERRI Hermannssyni var boðið á
aukalandsfund Verðandi, samtaka
ungs alþýðubandalagsfólks og
óháðra, sem haldinn var á sunnu-
dag, til að ræða um sjávarútvegs-
stefnu sína. Sverrir sagði á fundin-
um m.a. að það væri lífsnauðsynlegt
að þeir kvótaflokkar sem nú sitja í
ríkisstjórn færu frá völdum. Sverrir
lýsti einnig efasemdum sínum um
sameiningu vinstri flokkanna, sagð-
ist ekki geta verið bjartsýnn fyrir
hönd Alþýðubandalagsmanna þegar
þeir ættu að „fara að strokka með
honum Sighvati," eitt væri að sam-
einast í sveitarfélagi eins og
Reykjavík, annað að sameinast á
iandsvísu.
Sverrir sagði ánægjulegt að finna
byr undir skoðanir sínar á sjávarút-
vegsmálum á fundinum en kvað nei
við fyrirspurn Þorvarðar Tjörva
Ólafssonar, fyrrverandi formanns
Verðandi, sem spurði Sverri hvort
hann hefði haft samband við Jóhann
Arsælsson, formann starfshóps Al-
þýðubandalagsins um sjávarútvegs-
mál, þegar hann var að móta hug-
myndir sína, þær ættu sér langan
aðdraganda.
Gerður Magnúsdóttir, nýkjörin
HELGI Hjörvar, formaður Birt-
ingar-Framsýnar, félags Alþýðu-
bandalagsmanna í Reykjavík, segir
það fáránlegt að Alþýðubandalags-
félagið í Reykjavík skuli fá Stein-
grím J. Sigfússon alþingismann til
að halda ræðu á almennum fundi
flokksmanna, sem félagið hefur
boðað til í kvöld. Kolbeinn Óttars-
son Proppé, formaður ABR, segir
að fundurinn sé tilraun til að sætta
ólík sjónarmið í flokknum.
„Steingrímur J. er farinn úr
flokknum, en það eru ekki allir
farnir sem greiddu tillögu hans at-
kvæði á landsfundinum," segir Kol-
beinn. „Að fá Steingrím sjálfan aft-
ur i Aiþýðubandalagið væri náttúr-
lega það besta en þó að hann sé
farinn úr flokknum er ekki nauð-
synlegt að slíta við hann öll
tengsl."
Myndi Sjálfstæðisflokkurinn
funda með Sverri?
Kolbeinn segir að á fundinum
verði tveir framsögumenn, fulltrú-
ar þeirra tveggja tillagna um sam-
fylkingarmál sem tekist var á um á
landsfundinum. Reynt hafi verið að
fá Margréti Frímannsdóttur, for-
mann Alþýðubandalagsins, en hún
hafi ekki getað mætt, og því hafí
Jóhann Geirdal varaformaður verið
fenginn í staðinn.
ALÞÝÐUBANDALAGSFÉLAGIÐ
við Öxarfjörð hefur ítrekað stuðning
sinn við sameiginlegt framboð
vinstri manna við næstu kosningar.
Félagsmenn hafa undanfama daga
fundað bæði með Steingími J. Sig-
fússyni alþingismanni og Margréti
Frímannsdóttur, formanni flokksins.
formaður Verðandi, sagði í samtali
við Morgunblaðið að Verðandi væri
að kynna sér framboðsmál í landinu
og lýsti ánægju sinni með að AI-
þýðubandalaginu hefði bæst lið-
styrkur í sjávarútvegsmálum. Ekki
væri þó hægt að slá neinu fóstu um
hvort möguleiki væri á stjómar-
samstarfl vinstrimanna og fram-
boðs Sverris að loknum kosningum
„Það gerist oft og iðulega að
menn sem ekki eru í flokknum eru
fengnir til að halda ræður í Alþýðu-
bandalaginu,“ segir Helgi Hjörvar.
„En það er annað mál með mann
sem er nýbúinn að kljúfa sig út úr
flokknum. Ætli Framsóknarflokk-
urinn myndi hafa boðið Stefáni
Valgeirssyni á fund í Reykjavík
eftir að hann klauf sig út úr flokkn-
um, eða mun Sjálfstæðisflokkurinn
halda sérstakan fund til heiðurs
Sverri Hermannssyni í Reykja-
vík?“
Helgi Hjörvar heldur því fram að
Svavar Gestsson, formaður þing-
flokks Aiþýðubandalagsins, standi
á bak við að Steingrímur hafi verið
fenginn á fundinn, enda sé fundar-
boð sent út og undirritað af
Svavari. „Þetta fundarboð verður
ekki skilið öðruvísi en svo að menn
vilji halda lifandi deilum frá lands-
fundi, að menn ætli að ala á ófriði
og átökum í stað þess að virða nið-
urstöður fundarins. Slíkar starfsað-
ferðir hljóta að valda vonbrigðum,
nú þegar ríður á að jafnaðarmenn á
Islandi sameinist um að ná fram
breytingum á íslensku samfélagi í
næstu kosningum," segir Helgi.
Kolbeinn segir að stjóm ABR
standj ‘4 bak við fundarboðið í um-
bóðHféfágsins, en ekki Svavar
Ge.stfison.
í fréttatilkynningu um ályktun
fundar félagsins segir að það sé
„samhljóða niðurstaða fundarins að
hagsmunum alþýðu sé best borgið í
öflugri samfylkingu". Einnig er
skorað á Margréti Frímannsdóttur
að veita hinni nýju hreyfingu for-
ystu.
á næsta ári vegna þess að enn væri
ekki vitað um skoðanir Sverris í
öðram málaflokkum eins og t.d.
menntamálum.
Vona að minn gamli
flokkur nái áttum
Sverrir sagði í samtali við Morg-
unblaðið að yfirlýsingar sínar um að
nauðsyn þess að velta stjórnar-
flokkum úr sessi þýddu ekki að
hann stefndi að samstarfi við
vinstriflokka. „Ég er að vænta þess
að minn gamli flokkur nái áttum og
það gerir hann ef hann fær ráðn-
ingu í kosningunum. Hins vegar
virðist manni á ýmsum vinstri
mönnum að þeir hafi þá skoðun og
stefnu að hverfa frá því kerfi sem
við búum við og það er auðvitað af
hinu góða.“
Svemr sagði að engu yrði breytt
ef Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur héldu meirihluta að lokn-
um kosningum og að hann gæti vel
séð fyrir sér samstarf síns framboðs
og Sjálfstæðisflokksins ef sá síðar-
nefndi snarbreytti um fiskveiði-
stjórnunarstefnu.
ANDLÁT
Ásthildur
Kristín
Björnsdóttir
ÁSTHILDUR Kiástín Björnsdóttir,
eiginkona Steins heitins Steinan'
ljóðskálds, lést 18. júlí síðastliðinn.
Hún var fædd á Bergsstöðum í
Svartárdal 4. júní árið 1917. Faðir
hennar var Björn Stefánsson og
móðir hennar Guðrún Ólafsdóttir.
Ásthildur Kristín var yngst fjögurra
alsystkina. Einnig átti hún tvær hálf-
systur.
Ásthildur Kristín fluttist til
Reykjavíkur árið 1937, sama ár og
hún varð stúdent frá Menntaskólan-
um á Akureyri. Var hún búsett í
Reykjavík upp fi'á þvt Ásthildur
Kristín vann við ýmis störf þar til
hún réðst á Hagstofuna 1941. Þar
starfaði hún til sjötugsaldurs.
Helgi Hjörvar um félagsfund ABR
Gagnrýnir að Stein-
grímur sé ræðumaður
Tilraun til sátta, segir formaður ABR
Alþýðubandalagsfélagið við Öxarfjörð
Stuðningur við sam-
fylkingu ítrekaður