Morgunblaðið - 21.07.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.07.1998, Qupperneq 16
16 ÞRIÐ JUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Forsvarsmenn Auðlindar um erlendar lántökur til kaupa á innlendum verðbréfum Fela ekki í sér aukna áhættu Hluthafar vel upplýstir um stefnu fyrirtækisins ERLENDAR lántökur til kaupa á innlendum verðbréfum fela ekki í sér aukna áhættu fyrir hlutabréfa- sjóði og hluthafa þeiiTa, að sögn Hreiðars Más Sigurðssonar, fram- kvæmdastjóra Kaupþings eigna- stýringar ehf. Hreiðar segir hlut- hafa Auðlindar hf. vel upplýsta um stefnu fyrirtækisins og vísar á bug meintum staðhæfingum Guðmund- ar Þórðarsonar, sjóðsstjóra hjá Landsbréfum hf., sem birtust í Morgunblaðinu á laugardag, um að Auðlind hafi breyst í sérstakan áhættusjóð vegna þess að hluti af verðbréfakaupum sjóðsins sé íjár- magnaður með erlendum lántök- um. Hreiðar segir stjóm Auðlindar hafa ákveðið að bæta við fjárfest- ingar sínar í erlendum hlutabréf- um snemma á síðasta ári tö að minnka áhættu sjóðsins og auka við ávöxtunarmöguleika hans: „Þetta reyndist farsæl ákvörðun því að erlend hlutabréf sveiflast ekki í takt við innlend og hafa á undanfömu ári skilað umtalsvert hærri ávöxtun en innlend hluta- bréf. Hins vegar vildi sjóðsstjórnin ekki taka þá gengisáhættu gjald- miðla sem fylgir erlendum fjár- festingum og til að lágmarka hana vom tekin erlend lán og fjárfest fyrir það fjármagn í skammtíma innlendum ríkisverðbréfum. Með þessu vannst tvennt: Ahætta sjóðsins minnkaði og ávöxtunar- möguleikarnir jukust því vextir á traustustu innlendu verðbréfunum voru hærri en fjármagnskostnaður Auðlindar af erlendum lánum. Þessi ráðstöfun skilaði hluthöfum einnig veralegum ávinningi þar sem gengi íslensku krónunnar hef- ur styrkst allt frá því að erlendu lánin vora tekin“. Misvísandi staðhæfingar Hreiðar segir ummæli Guð- mundar sl. laugardag því ekki eiga við rök að styðjast og telur þar um að ræða annaðhvort fullkomna vankunnáttu á eignastýringu í hinu opna hagkerfi og alþjóðlega umhverfi nútímans eða hreinan at- vinnuróg í garð Kaupþings eigna- stýringar ehf: „Þeir sem fylgst hafa með umræðunni um fjárfest- ingar bandarískra verðbréfasjóða á alþjóðlegum mörkuðum vita að mikið hefur verið fjallað um hvort sjóðirnir verji erlendar fjárfesting- ar sínar gagnvart gjaldmiðlahreyf- ingum. Aðgerðir Auðlindar á síðasta ári snera að nákvæmlega sama hlut. Sjóðurinn vildi auka við ávöxtun- armöguleika sína með fjárfesting- um í alþjóðlegum hlutabréfum en vildi hins vegar ekki auka við áhættu sína af sveiflum í gengi gjaldmiðla," segir Hreiðar. Skortur á múr- hleðslum önn um Á MYNDINNI sjást þeir Ólafur Haraldsson og Pétur Þ. Óskarsson, eigendur Reykvískrar útgáfu, afhenda Þóru Guðmundsdóttur, for- stjóra Atlanta, fyrsta eintak hins nýja tímarits. Nýtt tímarit Atlanta MIKILL skortur er á kunnáttu- mönnum í múrhleðslu hér á landi og hefur byggingaverktakafyrir- tækið Desember fengið til liðs við sig breska aðila til að sjá um múr- hleðslu utan um eitt fjögurra múr- steinshúsa sem félagið hefur reist við Dalveg í Kópavogi. Að sögn Gunnars R. Gunnars- sonar, eins eiganda Desembers, hefur reynst erfitt að fá íslenska múrara til verksins. Bæði sé bygg- ingarhefðin ekki til staðar á Is- landi auk þess sem miklar annh' ríkja á innlendum byggingarmark- aði og fáir iðnaðarmenn á lausu. Bresku múrararnir komu til landsins fyrir viku en Gunnar telur að verkið taki alls um tvo mánuði. Hann segist hissa á að ekki séu fleiri hús af þessu tagi hér á landi þrátt fyrir að byggingarkostnaður þeirra sé aðeins hærri en almennt gerist: „Þetta era falleg hús og það er dapurt að þurfa að flytja inn múrsteina þegar við eigum öll nauðsynleg jarðefni til vinnslu í þennan iðnað. Múrsteinaverk- smiðjur þurfa lítinn tækjabúnað og því ætti rekstrarkostnaður á slíku fyrirtæki að vera tiltölulega lítill. Innlend framleiðsla á múrsteinum hefði eflaust í fór með sér fjölgun H Á G Æ Ð A Steiningarlím hlaðinna húsa á íslandi fyrir minna verð en áður,“ segir Gunn- ar. Hlutabréf í Eimskipi hækka í verði VERÐ hlutabréfa í Eimskipa- félaginu hækkaði um tæp 2% í gær og námu viðskipti með þau alls rúmum 17 milljónum króna. Lokaverð var 7,28 en hæst fór gengið í 7,38. Loka- verð á föstudag var 7,14. Rekja má hækkunina til spár Við- skiptastofu Islandsbanka þess efnis að hagnaður Eimskips muni nema 1 milljarði króna á fyrstu 6 mánuðum ársins. Alls námu viðskipti mpð hlutabréf á Verðbréfaþingi ís- lands tæpum 54 milljónum króna í gær. Úrvalsvísitala Að- allista hækkaði um 0,19%. Verslað var með hlutabréf í Flugleiðum fyrir rúmlega 5 milljónir króna og lækkaði gengi þeirra í 3,03 úr 3,07. Hlutabréf í Sölusambandi ís- lenskra fiskframleiðenda lækk- uðu sömuleiðis; niður í 5,20, en lokaverð á fóstudag var 5,35. Viðskipti með hlutabréf í SÍF námu rúmum 20 milljónum króna. REYKVÍSK útgáfa hefur unn- ið tímaritið Farið (Passage) fyrir flugfélagið Atlanta. Blaðið sem er bæði á íslensku og ensku er ætlað fyrir við- skiptavini félagsins og inni- heldur afþreyingarefni, upp- lýsingar um starfsemi Atlanta og þann varning sem boðinn er til sölu um borð í Tri Star og Júmbó vélum félagsins sem gerðar eru út frá Islandi. Áætlað er að milli 60 og 70 þúsund íslenskir og erlendir ferðamenn líti blaðið augum á næstu mánuðum, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Reykvísk útgáfa hefur stað- ið að útgáfuþjónustu og aug- lýsingagerð fyrir ýmis fyrir- tæki og stofnanir hér á íandi frá því að fyrirtækið var sett á fót árið 1994. • Til filtunar, kústunar og sem þéttimúr. • Gufuopið, vatnsþétt og frostþolið. • Tryggir góða áferð. • 15,ára reynsla á íslandi. Smiðjuvegur 72,200 Kópavogur Sími: 564 1740, Fax: 554 1769 -----------------DREIFINGARAÐiU- bVjtlDMll NÐSSONebf: Slmi: 533-1999, Fax: 533-1995 Margmiðlun eykur alnets- þjónustu MARGMIÐLUN hf. hefur skrifað undir samstarfssamning við alþjóð- lega fyrirtækið iPass Inc., sem þró- að hefur samnefnda tækni er gerir alnetsþjónustum kleift að bjóða not- endum sínum að tengjast Netinu hvar sem er í heiminum á einfaldan hátt gegn greiðslu sem nemur inn- anlandssímtali á viðkomandi stað. Samkvæmt frétt frá Margmiðlun, er um að ræða net rúmlega 2.500 al- netsþjónusta í veröldinni og löndin sem taka þátt eru yfir 150 talsins. Meðal erlendra fjarskiptafyrirtækja í iPass-samstarfinu era m.a. CompuServe, GTE Internetwork- ing, UUNet Technologies og EQUANT, sem rekur í samvinnu við SITA stærsta fjarskiptanet heims. Heilsukort fyrir alla vestanhafs New York. Reuters. CLINTON-stjórnin hyggst skylda alla Bandaríkjamenn til að bera „heilsukort“ með kennitölu viðkomandi, sem væri hægt að nota til að koma á fót gagnabanka og rekja sjúkdómssögu allra borg- ara frá vöggu til grafar að sögn New York Times. Tölvumerkingar sem þessar voru heimilaðai’ með lögum frá 1996 og verða fyrsta víðtæka kennitölukerfi Bandaríkjanna síð- an almannatryggingakerfið inn- leiddi kennitölui- 1935. Fyrirætl- unin er umdeild og þeim sem átti að hi-inda henni í framkvæmd í febrúar hefur orðið lítið ágengt. Þefr munu nú kalla fyiir vitni til að afla sér stuðnings meðal al- mennings að sögn blaðsins. Meðal þeirra sem styðja fyrir- ætlunina eru tryggingarfélög og yfirvöld heilbrigðismála. Stuðn- ingsmennirnir segja að með áætl- uninni geti læknar og sjúkrahús fylgzt með heilsu sjúkiinga, þótt þeir skipti um tryggingarfélög. Skriffinnska muni ekki koma í veg fyrir að hægt verði að afla gamalla upplýsinga. Andstæðingar fyrirætlunarinn- ar, þar á meðal baráttumenn frið- helgis einkalífs og sumir hópar lækna, segja að kennitölukerfið beri keim „Stóra bróður". Þeir segja að viðkvæmar upp- lýsingar um heilsufar verði hægt að tengja upplýsingum um fjárhag eða sakaferil. Veradun einkalífs sé veik fyrir og nú verði enn meira grafið undan henni þegar til dæm- is gagnabankar með upplýsingar um sjúklinga með geðræn vanda- mál verði tengdir. Báðir aðilar segja að umræðan hafi harðnað við það að skortur sé á alríkislögum til vemdar einkalífi sjúklinga í Bandaríkjunum. Hagnaður Microsoft eykst um 28% Seattle. Reuters. HAGNAÐUR Microsoft Corp. jókst um 28% á síðasta ársfjórð- ungi, meira en búizt hafði verið við í Wall Street og að miklu leyti vegna mikillar sölu á Windows 98- stýrikerfinu að sögn fyrirtækisins. Hagnaðurinn nam 1,36 milljörð- um dollai-a, eða 50 sentum á hluta- bréf, á fjórða fjórðungi reiknings- árs fyrirtækisins. Á sama tíma í fyrra nam hagnaður Microsoft 1,06 milljörðum dollara, eða 40 sentum á bréf. Sérfræðingar höfðu yfirleitt spáð 48 senta arði á hlutabréf. Microsoft segir að 1 milljón Windows 98-stýiikerfa hafi verið seld síðan kerfið var sett á markað 25.júní. Á fjárhagsárinu í heild nam hagnaður Microsoft 4,49 milljörð- um dollara, eða 1,67 dollurum á hlutabréf, miðað við 3,45 milijarða dollara, eða 1,32 dollurum á hluta- bréf, reikningsárið 1997. Adidas semur við AC Milan og“ Real Madrid Herzogenaurach, Þýzkalandi. Reuters. REAL MADRID og AC Milan munu bera merki Adidas fram á næstu öld vegna samnings, sem hinn kunni framleiðandi íþrótta- fatnaðar í Þýzkalandi hefur gert við liðin. Samið var við Real Ma- drid til 10 ára frá 1. júli og við AC Milan til sex ára frá sama tíma. Deilt hefur verið á Adidas fyrh’ að nota vinnuþræla í Kína til að framleiða fótbolta með merki fyr- irtækisins og HM. Adidas kveðst hafa sagt upp samningum um fótbolta frá Kína meðan rannsókn fari fram á þess- um ásökunum, sem kínverskur andófsmaður, Bao Ge, setti fram í Macau á fyrsta degi HM.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.