Morgunblaðið - 21.07.1998, Page 25

Morgunblaðið - 21.07.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 25 LISTIR BROSANDILAND MYIVPLIST 20 fm, Vesturgötu lOa, kjallara UMHVERFISLÍKING ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON Til 26. júlí. Opið frá miðvikudögum til sunnudags, kl. 15-18. ÞÚSUNDÞJALASMIÐURINN Þorvaldur Þorsteinsson var í hópi þeirra innlendu listamanna sem fyrstir þreifuðu fyrir sér með svið- setningar í formi umhverfislíkinga. Að búa til nákvæma eftirmynd um- hverfís til að laða fram leikhús Ferðastyrkir til dans- og leikhópa ANNARRI úthlutun styrkja Nor- rænu leiklistar- og dansnefndar- innar til ferða leik- og danshópa á milli Norðurlandanna er nýlokið. Til úthlutunar voru 478.400 dkr eða tæpar 5 milljónir íslenskra króna. I hlut íslenskra leikhópa eða noiTæna leikhópa á ferð til ís- lands komu 96.800 dkr. sem skipt- ist þannig: Brúðubíllinn fær 10 þúsund dkr. til leikferðar á UNIMA leiklistarhátíð í Svíþjóð. Unga Klara leikhúsið í Stokk- hólmi fær 40 þúsund dkr. til leik- ferðar á Listahátið í Reykjavík 1998 með sýninguna Irinas nye iiv.Aðstandendur Ormstungu-Ast- arsögu fá 25 þúsund dkr. til ferð- ar með sýninguna á leiklistarhátið í Tampere í Finnlandi í ágúst 1998. Islenski Dansflokkurinn fær 10.900 dkr. til að ráða tímabundið fínnska danshöfundinn Jorma Uotinen vegna sýningarinnar Dagur og nótt. Islenski dans- flokkurinn fær 10.900 dkr. til að ráða tímabundið fínnska ljósa- hönnuðinn Juha Westman vegna sýningarinnar Dagur og nótt. ------------- Waterloo- verk til sýn- is að nýju London. The Daily Telegraph. EINU þekktasta málverki sem til er af orrustunni um Wa- terloo hefur verið komið að nýju fyrir í Edinborgarkastala, en það fannst fyrir sjö árum í breskri vöruskemmu, og hafði þá verið þar í tvo áratugi. Var verkið nokkuð skemmt en hef- ur nú verið gert upp. Verkið er metið á uin 250.000 pund, um 30 milljónir ísl. kr. og er eftir Richard Ans- dell. Það var málað árið 1848 og er 3,5 x 4,5 metrar að stærð. Einni öld síðar var það flutt í Edinborgarkastala, þar sem tekinn var tæpur metri neðan af því til að koma því fyrir. Arið 1971 sprakk sprengja sem írski lýðveldis- herinn kom fyrir í kastalanum og var verkið þá flutt í vöruhús í geymslu. Þar var það, öllum gleymt, í fjórtán ár en það var fyrir þrautseigju listaverkasala og áhugamanns um verk Ans- dells, að verkið fannst um síðir í vörugeymslunni. Þá var björninn ekki unnin, því það tók listaverkasalann sex ár að fá hið opinbera til að Ieggja fé í viðgerð á verkinu. Það hafðist þó og nú, sjö árum og fjórum milljónum ísl. kr. síðar, hangir verkið að nýju uppi í kastalan- um. raunveruleikans er meðal þess sér- stæðasta sem komið hefur fram á síðustu áratugum. Eftir að áhrif stílfærðrar myndlistar þurru og menn fóru að fikra sig aftur nær raunveruleikanum - með popplist- inni og öðrum hlutbundnum tján- ingarmáta - til að gera hann að þungamiðju listar sinnar hefur munurinn á myndlist og leiklist orð- ið sífellt minni. Þoi-valdur er heldur ekki að leyna hrifningu sinni á leikhúsi. Hvað eftir annað hefur hann sýnt hve auðveldlega leiklistin smýgur inn í myndlist hans og öfugt. Þetta stafar eflaust af þeim brennandi áhuga sem Þorvaldur hefur fyrir tungutakinu og tjáningunni al- mennt. Sterk tilfinning hans fyrir mynstri tjáningar í ýmsum búningi er einhver mikilvægasti þátturinn í list hans. Þannig er hann alltaf að hlera eftir atferlinu sem fylgir málfari og hegðun. Það er eins og hann vilji fá svar við grundvallar- spurningunni: Hví tjáum við okkar með þeim hætti sem raun ber vitni? Fleiri vangaveltur spretta af þessum sérstæða áhuga. I vopna- búri Þorvaldar má sjá ýmsar ögrandi athugasemdir við sérís- lenskan hegðunarmáta, einkum þá innantómu vanafestu sem fólgin er í hátíðlegu orðfæri, hugsunarlitlum prótókolli og mærð til að dylja með skilnings- leysi. Allir ómerkileg- ustu kækir okkar verða Þorvaldi hið ríkulegasta mótagull. Og þó er það allt sett fram af græskulausri kímni. Þorvaldur er ólíkt mörgum kolleg- um sínum á hinum fé- lagssækna væng ís- lenskrar myndlistar hafínn yfir allar ómerkilegar undir- beltiskýlingar. Hann missir aldrei húmor- inn í ádeilu sinni. Þó er hann trúlega betri og beittari en flestir þeirra og þar með úthalds- betri á endasprettinum. Það lýsir sér oft í léttháðskum verkum sem sneiða elskulega nærri viðvaningshætt- inum sem ríkir svo víða í okkar agn- arsmáa samfélagi. Söngskemmtun er einmitt af þessum létta toga. Því miður fyrir lesendur er alveg loku íyrir það skotið að lýsa megi verkinu og því verður einungis sagt að þar er á ferðinni óperettískur smellur; nokkur konar Bros- andi land í formi um- hverfislíkingar. En eins gengur og gerist í öðrum leikhúsum eru gestir hvattir til að mæta vel fyrir tímann því dyrum er lokað eftir að skemmtun hefst. Halldór Björn Runólfsson «2 Íví Bandarískur munaðiir, fjör og íjölskylduskemmtun. Sæludagar með VISA og Fhigleióum Látið heitustn draumana rætast 1 ríM sólartnnar þar sem bíða yfckar: 0: frábærir gististaðir %'bílaleigubílar á hagstæðuin kjörum ^bestu baðstrendur í heimi skemmtigarðar sem gerast ekki betri i§v sælkeraborð sem svigna undan krásum skemmtistaðir þar sem er Ufsnautn að vera til glæsilegir golfvellir afslöppun, áhyggjuleysi og vellíðan ma Defcrið við ykkur sjálf og gleðjið þá sem yfckur pytór vænst nm. K m Florida Geislandi sérkjör fyrir korthafa VISA Fyrsta brottför á þessu tilboðsverði er 8. septcmber og sfðasti heimkomudagur er 12. desember. Tilboðið gUdir einungis í tilteknar flugferöir til og frá Florida á framangreindu tímabili. .ágmarksdvö! er 6 dagar. 10.000 kr. afsláttur afverðipakkaferðafyrirkortliafa, maka hans og böni aö 20 ára aldri til Orlando, St. Petersburg Bcacli, Bradcnton/Sarasota, Ft. Ijuderdalc, Fort Mycrs, Naplcs og Soutli Beach 8. scpt -12. des. Afslátturinn gildir ekki með öðrum tílboðum. Böm, 2 -11 ára, fá S .000 kr. afslátt til viðbótar liinum almenna bama- afslættí scm er 19.000 kr. eða samtals 24.000 kr. afslátt af vcrði pakkafcrðar fyrir fullorðinn. Haflð samband við söluskrifstofur okkar eða símsöludeild Flugleiða í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 8 - 20, laugard. kl. 9 -17 og sunnud.kl. 10.-16.) FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi VtSA VISA ÍSLAND Þorvaldur Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.