Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 27

Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 27 Vestfírskir hags- munir og Sverrir Hermannsson SÁ veldur miklu sem upphafinu veldur segir orðtakið og Sverrir Hermannsson og samráðherrar hans í ríkisstjórninni 1984 sem settu kvótalögin fyrst firra sig seint ábyrgð. Við lagasmíðina þá og á árunum þar á eft- ir fengu Vestfirðingar ekki að njóta reynslu sinnar i þorskveiðun- um; við mótmæltum en ráðherrarnir heyrðu ekki. Enn verra var með grálúð- una; við mótmæltum eins og við gátum, en Sverrir heyrði ekki, vildi ef til vill ekki heyra. Hraksmánar- legast af öllu var þó meðferðin á úthafs- rækjunni. Rækjuverk- smiðjurnar við Djúp höfðu alla forystu um að hefja þessar veiðar, kostuðu til óhemju fé og ómældri fyrirhöfn. Hver varð svo þeirra hlutur þá úthafsrækj- unni var úthlutað? Ekki eitt ein- asta kíló kom í þeirra hlut, ekki ein einasta rækja. Sverrir heyrði ekki mótmælin, það passaði honum ekki Sverrir verður að fínna áburði sínum stoð, seg- ir Einar Oddur Krist- jánsson, eða biðjast afsökunar ella. þá. Ef til vill hefur þó ómurinn af brothljóðunum borist inn fyrir múra Landsbankans þegar þessi fyrirtæki, frumkvöðlarnir í úthafs- rækjuveiðunum, urðu gjaldþrota hvert á fætur öðru nokkrum árum síðar. Allt heyrir þetta nú sögunni til, sennilega verður valdníðslan aldrei leiðrétt. Hitt er þó rétt að minna á að spint er ástæða til að sættast við þá sem um véluðu. Um hvað er deilt? Alla tíð hef ég verið þess fullviss að þorkveiðunum verður ekki stjórn- að af neinu viti öðruvísi en að stjórna fiskveiðiflotanum og sókn hans. Fyrir því liggja fjölmörg rök, efnahagsleg, félagsleg og þó ekki hvað síst, líffræðileg. Það er megin munur á því að útdeila sókn, „sókn- arkvótum" eða útdeila aflakvótum - þyngdareiningum, kílóum eða tonnum. Það er heldur ekki jafn ei-fitt eins og sumir halda að um- reikna aflakvótana í sóknarkvóta. Langstærsti gallinn á núverandi kerfi, brottkastið, þessi hryllilega sóun, mundi hverfa. Nýtingarvand- ræðin varðandi frystitogarana myndu einnig verða úr sögunni. Sóknareiningar myndu að sjálf- sögðu nýtast mönnum misjafnlega. Þeir sem mesta þekkingu hefðu á veiðunum og stunduðu veiðarnar af mestri einbeitni myndu að sjálf- sögðu bera meira úr býtum en hin- ir. Bestu sjómennirnir myndu sækja í bestu plássin og gera þau enn betri. Ég trúi því að þannig há- markaði þjóðin hagnað sinn af þorskveiðum. Fyrir þessu sjónar- miði hef ég barist bæði í ræðu og riti um árabil. Það virðist allt hafa farið framhjá Sverri, enda áhugi hans á þessu máli greinilega alveg nýtil- kominn. Upplognar sakir I grein sinni á laugar- daginn ber Sverrir á mig upplognar sakir. Hvorki íýrir síðustu kosningar, né nokkurn tímann, hef ég svo mikið sem ýjað að því að stuðningur minn við Sjálfstæðisflokkinn eða ríkisstjórn sem flokkurinn styddi, væri bundinn af því að núverandi kerfi væri hent og mínar skoðan- ir settar í öndvegi. Því verður Sverrir að finna áburði sín- um stoð, biðja mig afsökunar á ósannindunum ella. Hins vegar hef ég alltaf sagt að ég vildi freista þess með öllum ráðum að opna augu flokksystkina minna fyrir því hve núverandi stjórnkerfi þorsk- veiðanna væri stórlega gallað. Ég tel mig hafa notað hvert tækifæri sem gefist hefur til þess, þótt ár- angurinn sé kannski lítt mælanleg- ur enn. Þegar öllum almenningi á íslandi verður orðið það ljóst hve gífurleg sóun er í núverandi kerfi þá veit ég að kerfið fær ekki stað- ist. Blekkingar Svo meingölluð sem stjórnunin á þorskveiðunum er þá er það með endemum að láta sér detta í hug að nokkuð batni við það að skatt- leggja sjávarútveginn stórkostlega. Árlegm- nýr skattur upp á átján milljarða kr., þar af rúmlega tveir milljarðar á vestfirsk útgerðarfyr- irtæki, eins og Sverrir lagði til á ísafjarðarfundinum, er svo mikil fáviska að mér er það raun að hann skyldi rata í þann pytt. Er þetta virkilega meining þín, Sverrir? Undanbragðalaust svar óskast!! Þessi nýi skattur Sverris eyðilegg- ur með öllu samkeppnishæfni sjáv- arútvegsins og bitnar iyrst og fremst á þeim sem við sjávarútveg vinna; á sjómönnum og fiskverka- fólki, á þeim sem þjóna sjávarút- vegsfyrirtækjunum og á sveitarfé- lögunum þar sem sjávarútvegurinn er stundaður. Með öðrum orðum; Sverris-skatturinn bitnar verst á Vestfjörðum. Það er bágt til þess að vita að Sverrir Hermannsson skuli leita í smiðju til Þjóðvaka um ráð í fiskveiðistjórnun sem gagnast mætti Vestfirðingum. Hinn nýi lærimeistari hans, Ágúst Einars- son, mun aldrei draga upp úr sín- um galdra-hatti aðrar kanínur en þær sem eru blekkingin ein. P.s. Sverrir, það er brýnt að hefja refaveiðar á Hornströndum, vinur. Höfundur er alþingismuður. Einar Oddur Kristjánsson Léttir meöfærilegir viðhaldslitlir. Ávallt fyrirliggjandl. Góð varahlutaþjónusta. "* Þ. ÞORGRÍMSSON & CO A undan timanum i 100 ár. fyrir steinsteypu. Armúla 29. simi 38640 FYRIRLI6GJMDI: GÖLFSLÍPIVÉLRR - RIPPER ÞJÖPPUR - DJELUR - STEYPUSIGIR - HRJERIVÉLAR - SR6IRDLÖD - Vöiiul framleiðsla. Lögreglan og siðferðið FYRIR nokkru var ég tekinn fyrir of hrað- an akstur. Ég vildi óska að þetta væri í fyrsta skipti, en svo er ekki því að fyrir tæp- um tuttugu árum var ég einnig tekinn fyrir of hraðan akstur. Mig minnir að ég hafi sloppið með áminningu í það skiptið. En í þetta skiptið var öðruvísi staðið að málum. Vegna þess að ég var tekinn á 68 kílómetra hraða var ég handtek- inn, fékk réttarstöðu handtekins manns og eftir yfirheyi’slu á lögreglustöðinni, þar sem ég játaði auðmjúklega öll- um sakargiftum, var ég sviptur öku- réttindum í 2 mánuði, missti þrjá punkta af ökuferilsskrá og fékk 25 þúsund króna sekt. Það sem mér fannst þó einna verst var að mér var tilkynnt að með þessari afgreiðslu væri ég kominn á sakaskrá og fylli því nú þann flokk manna sem hafa komist í kast við lögin eins og oft er sagt. Seinast fékk ég réttarstöðu grun- aðs manns þegar ég, peyi á Selfossi, var grunaður um að hafa stolið jarð- arberjum úr garði nágrannans. Móðir mín var þá í hlutverki sak- sóknarans en nágranninn, þ.e.a.s. tjónþolinn, tók að sér málsvörnina og hélt því fram að ég myndi alveg örugglega ekki gera þetta aftur. Þá eins og núna játaði ég öllum sakar- giftum og ekki hefur refsingin verið þung því ekki man ég lengur í hverju hún var fólgin. Nú halda sjálfsagt þeir sem þetta lesa að ég ætli að fara að kvarta yfir slæmri meðferð lögreglunnar og að ég hafi verið beittur miklu óréttlæti. Svo er ekki, því ég er jafn sekur nú og af jarðarberjastuldinum forðum daga og tek því út mína refsingu og er satt að segja ekki stoltur yfir því að hafa brotið lög og reglur þjóðfélags- ins. Það liggur í hlutarins eðli að ég er ekki sáttur við refsinguna þó að mér finnist hún ekki endilega ósanngjörn. Enda var mér á lög- Vatnsheld og vindþolin Allar stærðir og gerðir Margir litir - gott verð Jón Sigurðsson og reglustöðinni sagt að sú áherslubreyting hafi orðið að nú væri algjör- lega farið eftir reglum og engar undanþágur gerðar. Þetta var einnig uppistaðan í við- tali í Morgunblaðinu við settan lögreglu- stjóra í Reykjavík, Ge- org Kr. Lárusson, þar sem einnig var upplýst að hann hafi beitt sér fyrir því að hart yrði tekið á smábrotum ým- iskonar, því ef til lengri tíma væri litið væru þau undirrót stærri af- brota eins og ofbeldis fíkniefnabrota. Hann sagði JhOfnasmiðjan Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100 Verksmiðja Ratahrauni 13 • Sími 555 6100 SlDAN 1972 GÆOA MURVORUR Á GÓÐU VERÐI MURKLÆÐNING LÉTT - STERK - FflLLEG Sl steinprýði STANGARHYL 7, SIMI 567 2777 einnig að jákvæð ímynd lögreglunn- ar og samstarf við borgarana væri / Eg bið ekki um annað, segir Jón Sigurðsson, en að lögreglan og framkvæmdavaldið geri sömu kröfur til sinna starfsmanna og til hins almenna borgara. undirstaða þess að halda Iögbrotum í lágmarki. Allt er þetta rétt hjá settum lögreglustjóra og aukin harka í löggæslu stafar sjálfsagt af breytingum í umhverfi okkar frem- ur en að lögreglan fari offari. Þetta flaug í gegnum huga mér þegar ég labbaði heim próflaus sunnudags- morguninn sem ég var tekinn og fannst það huggun harmi gegn að þetta væri liður í stærri heild og að allir væru undir sama hatti. Ég hafði ekki farið eftir settum reglum og ég þyrfti að taka afleiðingunum eins og aðrir. En þá komu þær upplýsingar að settur lögreglustjóri hafi fengið undirmenn sína til búslóðaflutninga fyrir sjálfan sig og þar með misnot- að það vald og það embætti sem honum hefur verið trúað fyrir og skiptir þar engu yfirklór þess efnis að þetta hafi verið gert í matartíma lögreglumanna. Við þessar fréttir varð þetta skyndilega allt miklu þungbærara og refsingin ekki eins sanngjöm og áður. Ekki síst vegna þess að sektargerðin barst til mín frá umræddum lögreglustjóra nán- ast á sama tíma og þessar ásakanir komu fram. Nokkmm dögum seinna lét dómsmálaráðherra hafa það eftir sér í fjölmiðlum að hann efaðist um að dómsmálaráðuneytið myndi aðhafast eitthvað í þessu meinta broti setts lögreglustjóra. Grundvöllur aðgerðarleysis dóms- málaráðuneytis byggist sjálfsagt á því að brotið sé ekki stórvægilegt og því að Georg Kr. Lárusson sé mætur maður sem ekki sé líklegur til þess að fremja annað brot. Ef þetta er það mat sem aðgerðarleysi byggist á, eru íyrri yfirlýsingar um að allir séu jafn réttháir gagnvart lögum og að nú skuli fýlgja eftir smæstu brotum markleysa ein. Málið snýst ekki um tiltölulega smávægilegar meintar yfirsjónir okkar Georgs heldur það grundvall- aratriði að framkvæmdavaldið þurfi að vera samkvæmt sjálfu sér við beitingu á þvi mikla og vandmeð- fama valdi sem því er falið. Ég bið ekki um annað en að lögreglan og framkvæmdavaldið geri sömu kröf- ur til sinna starfsmanna og til okk- ar, hinna almennu borgara. Höfundur er rekstrarhagfræðingur. Clinique hjálpar þér að halda feitri húð í skefjum CLINIQUE 100% ilmefnalaust e CLINIQUf CLiNIQUr deep cleansiir. emerger c-' mask CLINIQUE Það er góð hjálp í fituhemlaþrennunni Líttu í spegilinn - er húðin glansandi? Orðin líflaus, grófgerð, með áberandi svitaholum? Kannski þarftu aðstoð við að halda húðfitunni i skefjum. Þar gæti þrennan frá Clinique komið sér vel. Með sameinuðu átaki ráða fituhemlarnir þrír bót á glansandi húð með fitustifluðum svitaholum. Háðin verður slétt og fersk og húðfitan nær jafnvægi. Best er að beita þrennunni sem hér seg- ir: Notaðu Moisture In-Control að morgni dags. Þessi létta andlitsmjólk hjálpar háðinni að minnka fituframleiðsl- una og færir henni jafnframt nauðsynleg- an raka. Á kvöldin notor þá Turnaround Oil- Free Lotion, hressandi upplausn, sem djúphreinsar húðina, fjarlægir óhreinindi sem stífla svitaholurnar - og minnkar glansinn. Einu sinni til tvisvar í viku skaltu dekra við háðina með Deep Cleansing Emergency Mask. Þessi hviti leirmaski er mjög góður fyrir húð sem er ertin og útbrotagjörn, því hann hreinsar burtu hvers kyns óhreinindi og fitu. Moisture In-Control, 50 ml kr. 3.150,- Turnaround Oil-Free Lotion, 50 ml kr. 3.150,- Deep Cleansing Emergency Mask, 100 ml kr. 1.915,-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.